Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1996, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1996, Síða 35
JjV LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 íkarkafli á sama. Auðvitað sé ég eftir á að þetta var ekki spuming um trú held- ur sjálfselsku. En þennan dag hélt ég þessu til streitu og gaf ekkert eftir. Um kvöldmatarleytið var ég -orð- inn hálfsljór og slappur því ég hafði ekkert borðað og sykurinn hækkaði jafnt og þétt. Síðar um kvöldið varð mér ljóst að það var einhver þrái í skaparanum að þóknast mér í þessum efnum. En samt vildi ég ekki gefast upp. Um kvöldið hringdi Inga í pabba og mömmu og þau komu út í Möðru- velli. Við pabbi höfum sjaldnast get- að talað saman af mikilli einlægni um andans mál, yfirleitt frekar átt eins konar „karlmannataT um verk- efni og um daglega brauðið og svo framvegis. En ég hef ekki oft séð pahba í hugarástandi eins og þetta kvöld. Það var greinilegt að honum og mömmu var brugðið. Þau gerðu sér vel grein fyrir í hvað stefndi ef ég héldi þessu áfram.“ bara mitt mál og ég held að þeir hafí tekið þessu sem sjáifsögðum hlut,“ hver dulin vissa að þetta sé allt í lagi - þetta fer allt vel. Ég sagði við hjúkkuna sem fór að „svíkjast“ úr vinnunni hlaupa frá - þegar svo mikið stendur til í lifi safnaðanna í mínu prestakalli. Erfitt að vera prestur Það er afar erfítt við svona að- Líkust Fílamanninum Pétur og Inga á gangi hjá gamla bænum í Laufási: „Ef maður lætur erfiðleikana ekki buga sig og gera mann þunglyndan, svartsýnan og jafnvel vonlausan þá verða erfiðleikar eins og viö Inga höfum lent í til góðs.“ Þegar mestu erflðleikar Péturs varðanda sykursýkina virtust að baki lentu þau i andstreymi úr óvæntri átt. „Þegar allt virtist vera komið í þann farveg sem okkur dreymdi um reið það áfall yfir sem lagst hefur hvað þyngst á mig af öllu því sem gerst hefur. Inga greindist með krabbamein," segir Pétur á einum stað í bókinni. Inga lýsir í bókinni meðferðinni sem hún hlaut og hvernig hún tókst á við þennan illvíga sjúkdóm. Hún var fyrst i sprautum fyrir sunnan en fór síðar norður aftur: „Ég fór upp á sjúkrahús, fékk ógleðilyf i æð og siðan sprauturn- ar og að því loknu hélt ég heim. En ég var varla kominn inn úr dyrunum áður en ógleðin tók að angra mig. Svo ágerðist þetta eftir þvi sem á leið. Uppköstin ollu því- líku álagi að andlitið á mér bólgn- aði svo að ég líktist Fílamannin- um frekar en nokkru öðru. Innra með mér safnaðist lika upp mikill kvíði og spenna fyrir hverja sprautu og þannig varð þetta að einum vítahring. Það var sama hvað reynt var að gera fyrir mig varðandi uppköstin, ekkert virk- aði. Það er ekki óalgengt að fólk sem fer í svona lyfjameðferðir verði veikt af tilhugsuninni einni saman og fái ógeð á fólkinu sem starfar við þetta, líti á það sem einhvers konar böðla. En til allrar hamingju sökk ég ekki svo djúpt enda þekkti ég allt þetta fólk og var öllum hnútum kunnug á sjúkrahúsinu. Að lokum var þó ákveðið að ég yrði lögð inn eftir hverja sprautu," Brjóstið fjarlægt Krabbamein Ingu var í öðru brjóstinu og þurfti að fjarlægja það: „Það var mikið talað um það við mig að margar konur upp- lifðu kvenleikann vera frá sér tekinn þegar brjóstin, annað eða bæði, væru fjarlægð. Auð- vitað er þetta mikið andlegt áfall en varanleiki áfallsins fer ekki síst eftir því hvern- ig aðstandendur taka á þessu. Þegar maður heyr- ir £rá því sagt að margir karlmenn hafi yfirgefið konur sínar eftir að- gerðir þá læðist að sá grunur að hjóna- bandið hafi varla verið byggt á traustum grunni. Ef svona áfall er ekki atburður sem fær fólk til að standa saman þá getur sambúðin varla hafa verið merkileg fyrir. Ég upplifði þetta ekki sem mikinn missi en konur upplifa þetta örugg- lega hver á sinn hátt. Um veturinn þegar meðferðinni var að ljúka voru nokkrir menn í vinnu við að laga kjallarann hjá okkur og voru í mat hjá mér. Oft fannst mér óþægilegt að vera með gervibrjóstið og gekk þá ekki með það og hér heima við not- aði ég hárkolluna afar sjaldan. Gagn- vart þessum mönnum var mér alveg sama þótt ég væri bæði flöt öðrum megin og sköllótt. Enda var þetta Guði þakklátur fyrir þig Inga hefur staðið þétt við bakið á Pétri í veikindum hans. Hér lýsir hann þakklæti sínu til hennar í bréfi sem / — hann sendi frá Borgar- spítalanum skömmu fyrir jól 1994. Þá var búið að taka af hon- um vinstri fótinn og tvísýnt um það hvort hann héldi þeim hægri: Að kvöldi 6.12. ’94 „Nú er klukkan orðinn 11 (23) og ég ligg hér á Borgarspítalanum og horfi suður yflr Kópavog. En þótt sjóninni sé beint í suður þá leitar hugurinn í norður - kannski örlítið órólegur yfir „ástandinu", en þó er einhver þíða yflr öllu saman - ein- með mér í flugvélinni að þig skorti ekkert nema séra fyrir framan nafn- ið - að þú gengir alveg inn í mitt starf, svo það þyrfti engan til að leysa mig af þótt ég væri á sjúkra- húsi. Já, mér skilst að konan þín sé alveg einstök, sagði hjúkkan, og ég tók undir það. Þú veist það ef- laust undir niðri, hvers virði þú ert mér - samt gerir þú þér ör- ugglega ekki til fulls grein fyrir áhrif- um þeim sem tilvera þín og fórnfýsi hefur á kjark minn til að takast á við þennan krankleika minn. Mér eykst styrkur þegar ég flnn að ég er ekki Það er hins vegar ekkert sann- gjamt að skilja þig eftir með alla byrðina, hæði þín daglegu störf, og svo það sem átti að hvíla á mínum herðum. En svona ertu og ég nýt sannarlega góðs af. Samviska mín gagnvart söfnuðunum er rólegri og tilhugsunin um að geta aftur komið heim og fundið að veikindi mín settu ekki kirkjustarfið úr skorðum. -í raun væri mér ekki stætt á að hverfa svona sí og æ af vettvangi, ef ekki værir þú til staðar. Laufás er okkur báðum (og öllum) haldreipi í þessu veikinda- stríði, og Laufás megum við ekki missa. Þess vegna ætla ég, hvað sem verður um fótinn, að halda prestsstarfinu. En mér er það vel ljóst að ef þín og fómfýsi þinnar nyti ekki við þá yrði ég að segja starfinu lausu. Ég leggst þvi nokkuð rólegur á koddann í kvöld, Guði þakklátur fýrir þig, Inga mín. Ungur drengur kistulagður Sem prestur hefur Pétur oft þurft að sinna erfiðum athöfnum. Hann lýsir því í bókinni hvernig hann hefur upplifað slíkar stundir en meðal þeirra er kistulagning og jarðarfór ungs pilts á Akureyri sem Jósep hét en hann var á aldur við Jón Helga, son líans: „Það voru erfið spor á mánudags- morgni þegar ég kom heim til for- eldra Jóseps heitins í fyrsta skipti. Að þurfa að horfa framan í þetta fólk, setja sig í spor þess og spyrja sig: Hvernig myndi mér líða ef þetta hefði verið Jónki? Jósep hafði verið í landsliði þessa aldurshóps, bæði í handbolta og fótbolta, og var bráð- efnilegur. Skólinn og allt það samfé- lag sem hann hafði tilheyrt var gjör- samlega lamað. Hann hafði verið með fæðingargalla sem aldrei hafði borið á. Þennan dag hafði hann ver- ið eitthvað þreyttur og lagt sig inn í rúm og sofnað og vaknaði ekki aftur til þessa lífs. stæður að vera prestur sem á að veita stuðning og styrk. Ég hafði yfirleitt verið mjög sterkur og gat unnið þannig að það væri stuðning- ur að mér. En í þessu tilfelli þræddi ég einnig götu syrgjandans. Mér fannst ég vart vera þess megnugur að vinna þetta verk. Þetta voru slík átök. Ég hafði oft talað við þennan strák þegar hann kom í Arnarsíð- una með Jónka, þó að ég þekkti hann ekki mikið og fjölskyldu hans þekkti ég lítið sem ekkert. Mér er afskaplega minnisstæð kistulagning þessa drengs. Við vor- um bara flmm, foreldrar Jóseps heitins, yngri systur hans tvær og svo ég. Ég stóð öðrum megin við kistuna og þau fjögur hinum megin og héldu þétt hvert utan um annað. Ég beitti öllum hrögðum til þess að reyna að standa mig og bresta ekki. En það var erfltt þegar maður horfði á drenginn. Þegar mér leið hvað verst þá vissi ég ekki fyrri til en hönd var komin í lófann á mér. Þá var móðirin komin við hlið mér. Bara að finna einhverja nálægð hjálpaði mér að slaka örlítið á. Ég spurði hana eftir á hvers vegna hún hefði komið yfir til mín. Þá sagðist hún hafa skynjað hvernig mér leið. Brast eins og flóðgátt Spennan og átökin við þessa at- höfn voru slík áð ég hef sjaldan reynt það í annan tíma. Inga beið eftir mér fyrir utan líkhúsið. Þegar ég kom út og settist upp í bíl þá brast ég eins og flóðgátt. Það er svo einkennilegt að þó að ég vissi hver þarna var og tengslin við hann hafi kannski verið meira á ytra borð- inu, þá sá ég alltaf Jónka fyrir mér liggjandi í kistunni. Ég skynjaði hvernig mér myndi líða ef þetta hefði verið hann. Athöfnin í kirkj- unni var líka átakanlega erflð því drengurinn var vinsæll hjá öllum helstu knattspyrnu- og íþrótta- mönnum Akureyringa sem voru þekktir fyrir annað en að brynna músum. Að upplifa fulla kirkju af unglingum og fullorðnu fólki, flest- um grátandi, þá var eins og ég öðl- aðist innri styrk og ég hætti að sjá fólkið. Það var það eina sem ég gat gert, að sjá engan og horfa í gegn- um alla. Þannig leið þessi athöfn. Jónki minn var einn af þeim sem báru kistuna." -em

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.