Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1996, Side 37
JjV LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996
útlönd «
Tatjana Díatsjenkó segist aldrei mundu
neita nokkurri bón frá fóður sínum. Pabbi er
heldur ekkert venjulegur maður, heldur Borís
Jeltsín Rússlandsforseti sem nú liggur á
sjúkrahúsi í Moskvu að jafna sig eftir stóra
hjartaaðgerð sem hann gekkst undir fyrir
skömmu.
Fréttaljós á
laugardegi
„Ég vann fyrir hann í kosningabaráttunni.
Hvað gerist nú er erfitt að segja til um - hvað-
eina sem hentar pabba. Ég mun alltaf gera fyr-
ir hann það sem hann segir mér að gera,“
sagði Tatjana, yngri dóttir Jeltsíns, í viðtali
við einkasjónvarpsstöðina NTV síðastliðið
sunnudagskvöld.
„Ég mundi ekki segja að ég hafi blandað
mér í stjómmál. Auðvitað voru kosningarnar
og pabbi bað mig um að hjálpa sér, en fjöl-
skyldan hefur alltaf aðstoðað hann,“ sagði
Tatjana.
Með axlasítt hár og klædd
samkvæmt nýjustu tísku
Næsta víst má telja að orð hennar muni
verða vatn á myllu allra þeirra sem fylgjast
náið með því sem fram fer í Kreml. í þeim
hópi er sagt að Tatjana hafi.myndað vald-
amikið bandalag með Anatolí Tsjúbaís, starfs-
mannastjóra Rússlandsforseta, og að í samein-
ingu gegni þau eins konar dyravarðarhlut-
verki á meðan forsetinn er veikur.
En hver er hún, þessi 36 ára Tatjana
Tatjana Díatsjenkó með Borís Jeltsín Rússlandsforseta, fööur sínum, í blíðskaparveöri.
ber skilaboð og skoðanir milli forsetans,
starfsmannastjóra hans og kaupsýslumann-
anna sem fylktu liði undir merkjum hans í
kosningabaráttunni í sumar. Heilmiklar
vangaveltur eru hins vegar uppi um frekari
metnað hennar á sviði stjórnmálanna. Hefur
hún áhuga á að komast í háa valdstöðu, hefur
hún kannski áhuga á sjálfu forsetaembætt-
inu? Eða er hún einfaldlega að rétta pabba
gamla hjálparhönd, einmitt þegar hann stend-
ur hvað berskjaldaðastur gagnvart alls konar
ráðabruggi óvandaðra manna allt um kring?
Sumir fréttaskýrendur eru farnir að ýja að
þvi að hún hafi einhver langtíma markmið og
þeir hafa að einhverju leyti líkt henni við
Benazir Bhutto, sem nýlega var rekin úr emb-
ætti forsætisráðherra í Pakistan, eða jafnvel
Indiru Gandhi, fyrrum forsætisráðherra Ind-
lands.
Dagblað í Moskvu hefur skýrt frá þvi að eitt
helsta pólitíska ráðgjafarfyrirtæki borgarinn-
ar sé að vinna að ímynd hennar, algjörlega í
tilraunaskyni, til að kanna hvernig henni yrði
tekið sem frambjóðanda í kosningum.
„Hverjum hefði getað dottið það í hug fyrir
hálfu ári að þessi kona, sem nú gengur um
Kremlarganga með farsíma i höndunum, yrði
mikils megandi i pólitík," sagði í blaðinu
Moskovskaja Pravda. w
Róðurinn verður þungur
ætli hún sár í stjornmál
Þeir sem unnu með Tatjönu í kosningabar-
áttunni bera henni vel söguna og segja hana
ekki hafa' verið með neina prímadonnustæla.
„Hún er mjög skörp, hún er fljót að læra og
man allt sem hún hefur lært,“ sagði einn
Tatjana, yngri dottir Borís Jeltsíns, gerir allt fyrir föður sinn og meira til:
Bannaði lífvörðum forsetans
að ganga með sólgleraugu
Anatolí Tsjúbais, starfsmannastjóri Borís Jeltsins Rússlandsforseta og helsti bandamaöur
Tatjönu forsetadóttur, á skrafi viö fréttamenn fyrir forsetakosningarnar í Rússlandi í sumar.
Díatsjenkó, með axlasíða jarpa hárið og klæð-
•ir sig samkvæmt nýjustu tísku? Flestir Rúss-
ar vita afskaplega lítið um hana. Sjálf segir
hún ekki mikið frá einkahögum sínum og
þannig ætlar hún að hafa það, í gamla góða
Kremlarstílnum. En þótt hún veiti fá blaða-
viðtöl er ævi hennar þó ekki alveg lokuð bók.
Tatjana fæddist árið 1960. Að lokinni venju-
legri skólagöngu lagði hún stund á stærðfræði
í háskóla og vann um skeið við að reikna út
brautir eldflauga. Hún gekk í hjónaband með
verkfræðingi sem gerðist kaupsýslumaður
þegar Sovétríkin liðu undir lok. Því hjóna-
bandi er nú lokið en saman eignuðust þau
hjónin einn son sem nú er 15 ára. Sá heitir
Borís og er augasteinn afa síns eins og nærri
má geta. Drengurinn stundar nám í fokdýrum
einkaskóla á Englandi þar sem sonur Tsjúbaís
starfsmannastjóra liggur einnig yfir bókun-
um. Tatjana á annan son en hann er enn bara
ungbarn.
Fékk að sjúga geirvörtu
Jeltsíns ílest'
Fyllsta myndin af Tatjönu kemur fram í
sjálfsævisögulegum skrifum Jeltsíns forseta.
Þar á meðal er undarleg frásögn af því þegar
hann lét hana sjúga á sér geirvörtuna þegar
hún var bam að aldri til að þagga niður henni
á erfiðu járnbrautarferðalagi. Forsetinn hefur
aldrei farið leynt með það að konumar í fjöl-
skyldunni, eiginkonan Naína og dætumar Jel-
ena og Tafjana, gegni mikilvægu hlutverki í
lífi sinu. í bókinni Horft frá Kreml kallar
hann þær „kvennaráðið“.
Þegar Tsjúbaís og nokkrir valdamiklir við-
skiptajöfrar í Moskvu tóku að sér að vinna að
endurkjöri Jeltsíns þurftu þeir nauðsynlega
að fá til liðs við sig manneskju sem hefði bein-
an aðgang að forsetanum. Tatjana uppfyllti
þær kröfur. í kosningabaráttunni þótti hún
vinna afskaplega vel og það orð fór af henni
aö hún hefði gott nef fyrir stjómmálum og því
sem þeim við kemur. Hún gerði sér fullkom-
lega grein fyrir því að ímynd fóður hennar
meðal kjósenda var ekkert til að hrópa húrra
fyrir og því reið á að hann kæmi vel fyrir.
Hún átti það t.d. til að æða inn í myndver
áður en pabbi hennar fór í viðtal og greiða
gráan makkann á honum. Svo tók hún sig til
og bannaði lífvörðum forsetans að ganga með
sólgleraugu þar sem það gerði þá enn þá bófa-
legri en ella.
Vangaveltur um
framtíðarhlutverkið
Sem stendur virðist Tatjana einkmn gegna
hlutverki eins konar tengiliðs, þar sem hún
starfsfélagi hennar.
Ekki voru allir jafn hrifnir af stúlkunni og
þeim miklu völdum sem hún virtist hafa
vegna náinna tengsla við forsetann.
„Eina manneskjan sem hann talaði við var
Tatjana," kvartaði Nikolaí Jegorov, fyrrum
starfsmannastjóri Jeltsíns, yfir i viðtali ný-
lega. „Hún er kannski gáfuð en hún er bara
dóttir og ekki sjóaður stjórnmálamaður. Hún
hefur alls enga reynslu á þessu sviði og þess
vegna er auðvelt að ráðskast með hana.“
Sú var tíðin, og kannski ekki fyrir svo ýkja
löngu, að Tatjana fékk það óþvegið hjá föður
sínum ef hún vildi ræða um stjórnmál en ekki
barnauppeldi við gamla manninn. Hann skip-
aði henni einfaldlega að skipta sér ekki af því
sem henni kæmi ekki við.
En ætli Tatjana sér einhvern meiri frama í
stjórnmálum í Rússlandi, veit hún sem er aö'*1
róðurinn verður henni þungur. Konur eiga
nefnilega ekki upp á pallborðið í rússneska
stjórnkerfinu og enn er varla hægt að segja að
nokkur kona gegni þar háu embætti. Hún veit
að líkurnar á því t.d. að kona verði kjörin í
forsetaembættið, hvað þá önnur manneskja úr
Jeltsín-ættinni, eru jafn miklar og að ekki
snjói í Rússlandi í heilan vetur. En hún man
líka eftir því hvemig faðir hennar lét útlegð-
ina úr stjórnarnefnd kommúnistaflokksins
sáluga ekki buga sig á sínum tíma, hún man
hvernig hann komst klakklaust frá sprengju-
árásinni á stjórnarsetrið í Moskvu fyrir
nokkrum árum og styrjöldinni í Tsjetsjeníi\.
Að ekki sé minnst á gífurlegar óvinsældir for-
setans. Þótt það hljómi kannski dálítið djarft
er Tatjana Díatsjenkó ef til vill með hugann
við eitthvað annað og meira en sess fóður síns
á spjöldum sögunnar.
Byggt á Reuter, Independent, Time,
Toronto Star.