Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1996, Síða 40
48
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996
Fjarar undan Eurostar
Þegar Eurostar-lestin hóf starfsemi sína með
ferðum undir Ermarsundið, milli London og Par-
ísar/Brussel, bjuggust margir við því að verðlag
á þessum leiðum myndi hríðlækka. Ýmsar leiðir
voru færar fyrir tilkomu Eurostar-lestarinnar,
annaðhvort ferjusiglingEU' eða flug. Samkvæmt
lögmálum markaðarins átti því verðið að lækka
töluvert.
Á fyrstu árunum eftir að Eurostar hóf ferðir
sínar ríkti hatrammt fargjaldastríð. Fargjöld
Eurostar voru til að byrja með mun lægri en flug-
fargjöldin á sömu leiðum. Það kostaði um 20.000
krónur að fara á fyrsta farrými báðar leiðir.
Gefið
eftir
Það þykir
heyra til tíð-
inda að
A fyrstu árunum eftir aö Eurostar Eurostar virð-
hóf feröir sínar ríkti hatrammt far- jst Vera að
gjaldastríö. Fargjöld Eurostar gefa eftjr j
voru til aö byrja meö mun lægri baráttunni
en flugfargjöldin á sömu leiöum. víq flugfélög-
in. Sami far-
miði er nú á 30% hærra verði hjá Eurostar, eða á
rúmar 26.000 krónur. Á sama tíma hafa flugfar-
Þeir sem koma til Barcelona halda
margir hverjir að þessi stórborg státi
ekki af neinu kvöld- eða næturlífi.
En það er tómur misskilningur;
margar af bestu krám borgarinnar
eru í bakstrætum sem ferðamannin-
um yfírsést á leið sinni um borgina.
Þessi höfuðborg Katalóníuhéraðs
hefur tekiö miklum breytingum á
undanförnum áratug. Áður fyrr var
Barcelona fyrst og fremst þekkt sem
iðnaðarborg en hefur þróast æ meir
í átt til þess að teljast verslunar- og
menningarborg. íbúar hennar eru
hreyknir af því að búa í höfuðborg
Katalóníu og hafa gert á henni ýms-
ar breytingar sem miða að því að
hún fái alþjóðlegra yfirbragð.
Hvíldartími
lagður niður
sem meira eru sóttar af heimamönn-
um.
Picasso
Aö boröa úti á krám í Barcelona
skemmtunin oft fram undir morgun.
er alsiöa enda stendur
DV-myndir ÞÖK
er tími sem margir nota til að fá sér lúr. íbúar í
Barcelona hafa lagt „siesta“ niður og vinnustund-
ir borgarbúa eru samkvæmt hefðbundnum evr-
ópskum venjum. Á sama hátt er næturlífið regl-
um háð, sjaldgæft er að barir séu lengi opnir á
virkum dögum en um helgar geta þeir verið opn-
ir fram á morgun.
Ramblas heitir hverfi i Barcelona sem nýtur
mikilla vinsælda á kvöldin. Það er löng gata með
fallegum trjám frá Placa de Catalunya torgi allt
að sjávarsíðunni. Hún er ekki aðeins iðandi af lífi
heldur má sjá þar götulistamenn á hverju götu-
horni. Krámar á Ramblas eru aðallega sóttar af
ferðamönnum en í nærliggjandi götum eru krár
og kaffihús
Fyrir austan Ramblas er gotneski
hluti borgarinnar með þröngum
strætum. Þar eru næturlífið ekki
eins fjörugt en þó er einn staður sem
vert er að heimsækja. Það er veit-
ingastaðurinn Las Caracoles þar sem
hægt er að fá úrvals paellu eða hvít-
laukssnigla á góðu verði. Þessi veit-
ingastaður hefur mikið aðdráttarafl
fyrir ferðamenn og er jafnan mikiö
sóttur.
Austan gotneska hverfisins er svæði
sem ferðamenn sækja mikið. Þar er
hið fræga Picasso-safn og allt í kring
eru frægir kampavínsbarir sem
bjóða upp á úrvals framleiðslu úr
nærliggjandi héröðum. Verðið kem-
ur á óvart og í þessu hverfi eru
margir fyrirtaks sjávarréttastaðir.
Norðan Placa de Catalunya torgsins
er nýrri hluti borgarinnar sem byrj-
aði ekki að byggjast fyrr en um alda-
mótin 1900. Þar fékk arkitektúrinn
að njóta sin og litríkar byggingamar
eru margar hverjar eins og úr ævin-
týri eftir Disney.
Mörg hótel eru á þessu svæði, yfir-
leitt af dýrari gerðinni. Þar er einnig
mikið af krám, sem eru gerólíkar
kránum við Ramblas, mun nútíma-
legri útlits og háværari. Á flestum
þeirra er hægt að fá sér að borða sem
þykir ekki tiltökumál í Barcelona.
Algengt er að snæða steiktar sardín-
ur, hvítlaukssveppi, sérstakar gerðir
af pylsum eða tapas - spænska smá-
rétti. Þar er sérstaklega mælt með
stað sem heitir La Gran Tasca en þar
er oft fullt út úr dyrum.
Tónlistaraðdáendur eru hrifnir af
Barcelona. Á fjölmörgum stöðum er
hægt að heyra spænska tónlist en Barcelona er
einnig fræg fyrir djass og í nóvember á hverju ári
er haldin djasshátíð í borginni. Þar koma fram
djassistar viða úr veröldinni á krám eins og La
Botie Mas I Mas á Avenida Diagonal eða La Cova
del Drac við Gracia.
Þeir sem hrifnari eru af klassískri tónlist geta
sótt konserta í Palau de Musica Catalana eða Salo
de Tinell í gotneska hverfinu. Þjóðdansa úr Kata-
lóníuhéraði er hægt aö sjá fýrir framan hina
frægu dómkirkju borgarinnar, Sagrada Familia,
á miðvikudagskvöldum og sunnudagsmorgnum.
Kirkjan sjálf er engu lík og er þekktasta bygging
þessarar skemmtilegu borgar.
Þýtt og endursagt úr Business Traveler. -ÍS
miðamir ekkert hækkað og almennt fargjald á
milli London og Parísar er nú rúmlega 22.000
krónur (London-Brússel 25.000). Sé hins vegar
pantað cdmennt far með Eurostar á mifli þessara
staða þá er það enn á lægra verði, eða rúmar
17.000 krónur fram og til baka.
Fulltrúar Eurostar halda því fram að farþegar
hafi aðgang að meiri þægindum á leiðinni en þeir
sem taka flugið og því sé verðmunurinn réttlæt-
anlegur. Áður hefur komið fram að það tekur
ferðamenn svipaðan tíma að komast á mifli
áfangastaðanna London-París/Brússel, hvort
sem Eurostar eða flug er notað. Þá er reiknaður
með sá tími sem fer í bið eftir farangri og að kom-
ast til og frá flugvöllunum. -ÍS
Borgarbúar vilja fyrst og fremst
að yfirbragð Barcelona sé evrópskt
en ekki spánskt. Á Spáni er til dæm-
is alsiða að hafa „siesta", hvíldar-
tíma yfir hádaginn þegar hitinn er
Jivað mestur, og leggja þá niður
vinnu í nokkrar klukkustundir. Það
Barcelona er falleg borg og götulífiö fjörugt..
Arkitektúrinn í Barcelona er engu líkur.
Heimilisgisting við Baltimore
Nokkuð er um liðið síðan
Flugleiðir hófu áætlunarflug til
Baltimore í Bandaríkjunum og
hefur það gefist vel fram að
þessu. Eftir að til borgarinnar
er komið liggja leiðir til margra
átta, til dæmis er höfuðborgin
Washington D.C. skammt und-
an. Þeir sem bregða sér til
Baltimore í lengri eða skemmri
tíma vilja gjarnan geta fengið
þægilega gistingu sem lítið þarf
að hafa fyrir.
Nýlega tók til starfa heimilis-
gisting hjá íslendingi sem búsettur
er í bænum Columbia sem er í
Howard-sýslu, miðsvæðis milli
Baltimore og Washington D.C. ís-
lendingurinn er Guðmundur Inga-
son en gistiþjónustan hefur fengið
nafnið Gúnni og Sóla. Þeir sem not-
færa sér hana verða sóttir á
Baltimore-flugvöll og þeim ekið á
gististaðinn.
Boðið er upp á heimilis-
gistingu í tveggja manna
herbergjum með baði.
Herbergið kostar 70 doll-
ara nóttin, en börn gista
frítt í herbergi með for-
eldrum sínum. Innifalinn
er akstur til og frá
Baltimore-Washington
flugvelli ásamt morgunverði og
kvöldhressingu. Einnig leitast
Gúnni og Sóla við að aðstoða ferða-
menn eftir þörfum. Gistihúsiö er
nefnt Sólhlíð og er í rólegu úthverfi
við götu sem er lokuð fyrir gegnu-
makstur. Það stendur í hlíð meö út-
sýni yfir litla tjöm.
Mögulegt er að fá frían akstur í
Columbia Hall, nýlega verslunar-
miðstöð með 200 verslunum og 30
veitingastöðum. í næsta nágrenni
við Sólhlíð er margt að sjá og skoða,
Maryland, Washington, Pennsylva-
níuríki og Virginiu.
Heimilisfangið er; Gúnni og Sóla,
10835, Beech Creek Drive, Columbia,
MD 21044, USA. Sími er 410 997 3559
Og FAX 410 997 3520. -ÍS
í
Lengur opið
Þjóðverjar nafa þrjóskast
lengi við að lengja hinn hefð-
bundna afgreiðslutíma verslana
IÍ en hann hefur meira og minna
verið gefinn frjáls í löndum
Vestim-Evrópu. í byijun þessa
mánaðar voru reglumar loks
rýmkaðar i Þýskalandi og nú er
leyfilegt að hafa verslanir opn-
ar til kl. 20 á virkum dögum í
stað 18.30 áður. Einnig er leyfi-
legt að hafa búðir opnar til kl.
16 á laugardögum.
Farangur týndist
Heathrow-flugvöllm- þykir al-
mennt veita nokkuð góða þjón-
ustu og vera með skárri flug-
völlum í Evrópu. En á fimmtu-
daginn í síðustu viku hrundi
skipulagskerfi farangurs í
skamman tíma og um 7000 tösk-
ur hlóðust upp án þess að nokk-
ur vissi hvaðan farangurinn
kom. Flugfarþegar voru ösku-
reiðir og töfðust margir hverjir
um nokkra klukkutíma við að
endurheimta farangur sinn.
Tyrkir banna
reykinn
Tyrkir eru
þekktir fyrir að
reykja manna
mest en nú gæti
| orðið breyting
| þar á. Tyrk-
neska þingið
lögfesti bann
við reykingum
á öllum opin-
berum stöðrnn
í landinu og
: setti hörð við-
urlög við því að selja ungling-
um tóbak. Sá sem verður upp-
| vís að slíku ódæði verður um-
Isvifalaust sektaður um 7000
krónur.
Aðstoð
sérfræðinga
Stór hópur bandarískra sér-
fræðinga leitar nú leiða til að
auka öryggi í flughöfninni við
Beirút í Líbanon. Áratugum
saman horfði mjög ófriðvæn-
lega í landinu en nú kappkosta
yfirvöld að bæta ímynd lands-
ins út á við. Eitt af fyrstu skref-
unum hlýtur að vera að gera að-
alflughöfh landsins sæmilega
örugga.
Peking opnast
Yfirvöld í Peking hafa uppi
: áform um viðgerðir 75 gamalla
bygginga í borginni í tilraun til
að viðhalda gamalli frægð borg-
; arinnar. Fjölmargar frægar
eldri byggingar borgarinnar
hafa þurft að víkja fyrir nýjum
byggingum á undanfornum ára-
tugum en nú skal þeirri öfug-
þróun við snúiö og bjarga því
sem bjargað verður. Þessar
áætlanir eru í samræmi við
stefhu stjórnvalda um að auka
ferðamannastraum til Kína.