Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1996, Blaðsíða 50
æ fréttir
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 UV
Óánægja í Kaupmannahöfn vegna forsetaveislu þar sem selt er inn:
Það botnar enginn í þessu
og fólk er hneykslað
- segir Sigrún Halldórsdóttir - vegleg menningarveisla, segir forsetaritari
„Það botnar enginn í þessu og fólk
er mjög hneykslað. Þegar Vigdís
kom í heimsókn hingað á embættis-
ferli sínrnn þá var Islendingum boð-
ið að hitta hana. Þar voru léttar veit-
ingar á boðstólum og fólki gefinn
kostur á að hitta forseta sinn. Nú er
haldin veisla þar sem aðgöngumið-
inn kostar um 1700 krónur íslenskar.
Auðvitað vill maður fá að hitta ný-
kjörinn forseta en samkvæmt þessu
er það ekki hægt,“ segir Sigrún Hall-
dórsdóttir, félagi í Félagi íslenskra
námsmanna í Kaupmannahöfh, um
fyrirhugaða heimsókn Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta íslands, til
Kaupmannahafnar i næstu viku og
veislu sem haldin verður í tengslum
við heimsóknina.
Sigrún segir að veislan sé auglýst
í Hafnarpóstinum þar sem tilgreint
er hveijir eigi rétt á að sitja hana.
Þar séu tilgreind þrjú félög íslend-
inga í Kaupmannahöfn en Félag ís-
lenskra námsmanna í Kaupmanna-
höfn sé ekki á meðal þeirra. „Þetta
er mjög einkennilegt veisluboð og
svolítið snobbað. Þama er eingöngu
um að ræða dönsk skemmtiatriði,
svo sem dönsk þjóðlög, og lesin upp
völuspá á dönsku. Þá flytur Uffe Elle-
mann-Jensen, vægast sagt umdeild-
ur stjómmálamaður, ræðu,“ segir
hún.
Komelíus Sigmundsson forsetarit-
ari sagöi í samtali við DV að öllum
væri opinn aðgangur að veislunni og
enn væm til aðgöngumiðar. Hann
segir ástæðu þess að aðeins era til-
greind þijú félög íslendinga trúlega
vera þá að félögin tækju þátt í kostn-
aði að miklu leyti.
„Þama er um að ræða menningar-
samkomu þar sem öllum er frjálst að
koma. Þama er matur og diykkur
þar sem fólk fær eins mikið og það
getur i sig látið. Allt þetta er fyrir
150 krónur danskar og í kaupbæti
fær fólk síðan forsetann. Þetta era
ekki slæm kaup miðað við annað
sem fólk fær fyrir peningana," segir
Komelíus.
„Þaö yrði talsverðum vandkvæð-
um bundið að vera með veislu sem
ekkert kostaði fyrir þátttakendur
þar sem í Danmörku era búsettir
yfir 6 þúsund íslendingar og þar af
2.688 í Kaupmannahöfn einni. Sam-
koma sem kostaði ekki neitt kallaði
á gífurlega stórt húsnæði og af því
hlytist mikiil kostnaður. Við teljum
að þessi samkoma sé mjög vegleg
menningarsamkoma sem við erum
mjög ánægðir með aö þessir aðilar
skuli efna til,“ segir Komelíus. ^-rt
A Austurvelli
Það var líf og fjör á Austurvelli í gær þar sem námsmenn héldu útifund en gengu síðan á fund ráðherra og formanna
stjórnmálaflokkanna í Alþingishúsinu og afhentu þeim áskoranir. Nánar segir frá mótmælum námsmanna víða um
land á bis. 2. DV-mynd GVA
Bjarna boðið
til Newcastle
- Keegan hefur áhuga á Skagamanninum
Kevin Keegan, ffam-
kvæmdastjóri enska úr-
valsdeildarliðsins
Newcastle, hefur boðið
Bjama Guðjónssyni,
knattspymumanni frá
Akranesi, að koma til fé-
lagsins. Samkvæmt
heimildum DV hefúr
hann mjög mikinn áhuga
á að fá Bjama til félags-
ins og hreifst mjög af
frammistöðu hans í ung-
lingalandsleik írlands og
íslands á dögunum í
Dublin.
Bjarni mun dvelja hjá
Newcastle í viku til að
byrja með og það fer eft-
ir frammistööu hans
hvort um frekari dvöl og
samning verður að ræða.
„Þetta er óneitanlega
spennandi og verður
skoðað vandlega. Þórður
fer út þann 24. nóvember
og æfir með unglinga- og
aðalliöi Newcastle. Það
er þó langt frá því að eitt-
hvaö sé öraggt með fram-
tiðina. Það er ekkert ör-
uggt í þessum efnum fyrr
en allir hlutir era komn-
ir á pappír," sagöi Guð-
jón Þórðarson, þjálfari
íslandsmeistara Skaga-
manna og faðir Bjarna, í
samtali við DV í gær.
Bjami varð annar
markahæsti leikmaður 1.
deildarinnar sl. sumar og
skoraði 13 mörk fyrir
Skagamenn. Bjarni er að-
eins 17 ára gamall og gíf-
urlega efhilegur. Hann
skoraði sigurmark ís-
lenska unglingalands-
liðsins, skipaö leikmönn-
um 21 árs og yngri, gegn
íram á dögunum í und-
ankeppni Evrópukeppn-
innar. -SK
Ný bók um samskipti íslands og USA:
Hertaka atti Is-
land ef sósíalistar
rændu völdum
- áætlun undirrituð af Harry S. Truman
Bandaríski herinn gerði áætlanir
um að hertaka ísland á árunum
1948-1951 ef svo færi að sósíalistar
rændu völdum. Þetta kemur fram í
nýrri bók eftir Val Inghmmdarson
sagnfræðing, í eldlínu kalda stríðs-
ins. í bókinni er fiallað um sam-
skipti íslands og Bandaríkjanna á 5.
og 6. áratugnum.
í bók Vals kemur fram að Banda-
ríkjamenn, einkum þó Bandaríkja-
her, gerðu ráð fyrir þeim möguleika
að sósíalistar rændu völdum á ís-
landi og ef svo færi var ætlunin að
senda hingað hermenn með skipum
auk fallhlífahermanna með flugvél-
um til að bæla niður uppreisnina og
verja Keflavíkurflugvöll. Þjóðarör-
yggisráð Bandaríkjanna lagði bless-
un sina yfir þessi áform sumarið
1949 og vora þau staðfest með und-
irskrift Harrys S. Trumans forseta.
Áætlanir þessar féllu ekki úr
gildi fyrr en árið 1951 þegar vamar-
samningur íslands og Bandaríkj-
anna var gerður en eftir að banda-
rískt herlið var komið til landsins
hafði sendiherra Bandarikjanna á
íslandi úrslitavald um beitingu her-
valds ef til valdaráns kæmi. -SÁ
Dagur íslenskrar tungu:
Handrit Halldórs
Laxness afhent
í dag verða handrit Halldórs Lax-
ness afhent til varðveislu á hand-
ritadeild Landsbókasafns íslands-
Háskólabókasafhs við hátíðlega at-
höfn í Þjóðarbókhlöðu. Afhendingin
fer fram á Degi íslenskrar tungu og
afhendir Auður Laxness handrit
eiginmanns síns. Þá mun Baldvin
Halldórsson leikari lesa úr áður
óbirtu bréfi sem Halldór skrifaði
móður sinni árið 1919. -rt
Skífan átti nýlega 20 ára afmæli. Mikið hefur verið um dýrðir vegna afmælis-
ins og efndi fyrirtækið m.a. til verðlaunasamkeppni meðal viðskiptavina
sinna. Meðal vinninga er þessi glæsilegi sportjeppi af Suzukigerð sem dreg-
inn verður út um áramót. í verslunum Skífunnar eru eyðublöð sem viðskipta-
vinir fylla út. Bíllinn er sýndur í Kringlunni. DV-mynd S