Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1996, Qupperneq 6
6 útlönd
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996 IjV
Franskir bílstjórar
fjarlægja vegartálma
Istuttar fréttir
Ráðherrar á dauðalista
Aðskilnarhreyfing Baska á
Spáni, ETA, ráðgerði að myrða
innanrikisráöherra Frakklands,
Jean- Louis Debre, og fyrirrenn-
ara hans Charles Pasqua. Nöfn
þeirra fundust á dauöalista
ETA.
Draga úr spennu
Indland og Kina undirrituðu í
gær samkomulag sem miöar að
því að draga úr spennu á landa-
mærum landanna.
Havel á sjúkrahúsi
Forseti
Tékklands,
Vaclav Havel,
dvelur nú á
sjúkrahúsi í
Prag þar sem
gerð verður
aðgerð á
lungum hans
■ í byijun næstu viku í rannsókn-
arskyni.
Losað um stíflu
Læknar í Kalkútta á Indlandi
Ilosuöu í gær um stiflu í tveimur
slagæðum í móður Teresu.
Orrustuþotur um kyrrt
Bandarísk yfirvöld ætla að
láta 8 F-117A orrustuþotur vera
um kyrrt í Kúveit, írönum og
írökum til viðvörunar.
10 ára fangelsi
Stríðsglæpadómstóll Samein-
uðu þjóðanna dæmdi í gær Kró-
ata, sem játaði á sig aðild að
fjöldamorðum Bosníuserba á
múslímum, í 10 ára fangelsi.
Brjóta samkomulag
Bosníukróatar brjóta Dayton-
friöarsamkomulagiö með því að
reka múslíma og Serba frá
heimilum sínum í vesturhluta
Mostars, aö því er Sameinuðu
þjóðirnar greina frá.
Opnar bílasýningu
Hertogaynj-
an af Jórvík,
Sara Fergu-
son, sem
einnig gengur
undir nafninu
Fergie, opn-
aði í gær al-
þjóðlega bíla-
sýningu í Essen í Þýskalandi á
bjagaðri þýsku. Fergie auglýsir
nú sjálfsævisögu sína. Hún er í
miklum ijárhagskröggum en
ekki er vitað hvort hún fékk
eitthvað greitt fyrir að koma
fram á bílasýningunni.
Stúdentar mótmæla
Stúdentar í Belgrad héldu
áfram mótmælum sínum á göt-
um úti i Belgrad í gær vegna
meintra kosningasvika.
Lögreglustjórar reknir
Ríkisstjórn Ungverjalands
rak í gær yfirmenn ríkislögregl-
unnar og lögreglunnar í Búda-
pest fyrir að hafa mistekist að
stöðva sprengjutilræði og
skotárásir glæpahópa í höfuð-
borginni. Reuter
Erlendar kauphallir:
Metin fuku víða
Hlutabréfavísitölur í kauphöllun-
um i New York, Frankfurt og Hong
Kong settu söguleg met í vikunni.
DAX vísitalan í Frankfurt fór í 2817
stig á fimmtudg og Hang Seng vísi-
talan í Hong Kong í 13530 stig á
þriðjudag. Síðan þá hefur talan
lækkað lítillega. Dow Jones í New
York náði ellefta sögulega metinu í
þessum mánuði sl. mánudag en hef-
ur verið á hægri niðurleið síðan.
Óttast var að verð á eldsneyti á
heimsmarkaði myndi hrapa þegar
Irökum var leyft að selja olíu á ný
en sú varð ekki raunin nema að
litlu leyti. Bensín lækkaði lítillega
en hráolíutunnan er enn í kringum
23 dollara. Deyfð hefur ríkt yfir
„Norðursjávarmarkaðnum" svokall-
aða. -Reuter
Vörubílstjórar fiarlægðu vegar-
tálma um allt Frakkland í gær eftir
að stéttarfélög þeirra undirrituðu
samkomulag við atvinnurekendur
um að eftirlaunaaldur yrði lækk-
aður. Einnig náðist talsverður ár-
angur í samningaviðræðunum um
launahækkun og styttingu vinnu-
tíma. Voru bílstjórar famir að láta
hjólin snúast áður en samningavið-
ræðunum lauk í París síðdegis í
gær.
Hryllingssaga bresku Westfiöl-
skyldunncU' komst aftur í sviðsljósið
í gær er John West, bróðir
fiöldamorðingjans Freds Wests,
fannst með snöru um hálsinn í bíl-
skúr við heimili sitt. Hann bjó í um
5 kílómetra Qarlægð frá húsinu þar
sem Fred og Rosemary nauðguðu,
misþyrmdu og myrtu telpur og ung-
ar konur. Þykir víst að John hafi
fyrirfarið sér.
John West beið eftir dómi vegna
ákæra um nauðgun á bróðurdóttur
Yfirvöld í Frakkland lofuðu í gær
að gefa út tilskipun innan tveggja
vikna um greiðslu fyrir allar unnar
stundir ef samningaaðilum tekst
ekki að ná samkomulagi þar sem
vinnutími er skilgreindur. Vörabíl-
sfiórar segja að þeir fái ekki greitt
fyrir tugi vinnustunda á mánuði
sem meðal annars fara í að hlaða og
afhlaða bílana og skylduhvíld. Segja
þeir greiðslu fyrir þessar stundir
jafngilda 10 prósenta launahækkun.
sinni, Anne Marie Davis, og annarri
konu. Anne Marie, sem var dóttir
Freds og sfiúpdóttir Rosemary, seg-
ir John hafa nauðgað sér 300 sinn-
um og hafi misnotkunin byrjað þeg-
ar hún var 10 ára. John neitaði öll-
um sakargiftum. Anne Marie sagði
við réttarhöldin yfir Rosemary að
faðir sinn hefði nauðgað sér þegar
hún var 9 ára. Hún greindi jafn-
framt frá því að foreldrar sínir
hefðu beitt hana svo oft kynferðis-
legu ofbeldi aö hún hefði ekki gert
Forsætisráðherra Frakklands,
Alain Juppe, lýsti yfir ánægju sinni
með endalok verkfallsins sem lamað
hafði vöruflutninga um Frakkland í
tólf daga. „Ástandið verður að kom-
ast í eðlilegt horf eins fljótt og
mögulegt er þar sem verkfallið hef-
ur bitnað illa á mörgum fyrirtækj-
um,“ sagði forsætisráðherrann.
Loka hafði þurft fiölda fyrirtækja
vegna hráefniskorts af völdum verk-
falls vörabílstjóranna. Reuter
sér grein fyrir því að föðurbróðir
hennar hefði verið að gera rangt.
Rosemary afþlánar nú 10 lífstíðar-
fangelsisdóma fyrir glæpina sem
hún framdi en Fred hengdi sig í
fangaklefa áður en réttarhöld hófust
yfir honum.
Áður en Fred dó sakaði hann
bróður sinn um að hafa aðstoðað
við tuttugu önnur morð. Að sögn
lögreglunnar er enn verið að rann-
saka hvað hæft var í þessum ásök-
unum. Reuter
Vörubílstjórar veifa til starfsbróður síns sem ekur af stað eftir 12 daga verkfall. Símamynd Reuter
Bróðir Freds Wests hengdi
sig í bílskúr sínum
- ákærður fyrir að hafa nauðgað bróðurdóttur sinni
IHasssmyglari
flaug Rushdie
til Danmerkur
Danskur hasssmyglari bar
ábyrgð á þvi að rithöfundurinn
Salman Rushdie, sem hótað hefur
verið lífláti af írönskum yfirvöld-
um, kæmist hedu og höldnu til
■ Danmerkur fyrir tveimur vikum
I til að taka á móti bókmenntaverð-
I launum. Dönsk yfirvöld, sem í
fyrstu vildu ekki taka á móti
Rushdie af öryggisástæðum,
í sögðu öryggisráðstafanimar
vegna komu Rushdies þær mestu
j sem gerðar hefðu verið í landinu.
j Samt sem áður lét danska leyni-
þjónustan flugmann, sem síðast-
liðið sumar lauk afþlánun tæplega
þriggja ára fangelsisdóms fyrir
í hasssmygl, fljúga með Rushdie
ásamt öðrum flugmanni í einka-
leiguþotu, að því er danska blaðið
j Jyllands-Posten greinir frá. Flug-
1 maðurinn, sem var dæmdur, hafði
j við átta tilfelli smyglað samtals
190 kílóum af hassi tO Noregs.
Atvinnulausir
spyrji barns-
hafandi hvar
þær starfi
Sænska ríkisatvinnumiðlunin
I sætir nú harðri gagnrýni fyrir
ráð sem hún gaf fólki í atvinnu-
leit; nefnOega að ávarpa bamshaf-
; andi konur, spyrja þær hvar þær
j starfi og hvort þær ráðgeri að
j taka fæðingarorlof. Hópur at-
vinnulausra kvenna hefur nú
j kvartað vegna þessa ráðs til um-
■ boðsmanns sænska þingsins en
i ráðið var birt i blaði atvinnumiðl-
j unarinnar.
„Þetta er niðurlægjandi. Hvað
j kemur næst? Á maður að standa
i á slysavarðstofunni?" spyr ein
j kvennanna sem kvörtuðu tO um-
j boðsmanns.
Samkvæmt sænskum lögum
I geta mæður og feður skipt á miOi
; sín fæðingarorlofi á nær fullum
iaunum í eitt ár. Atvinnurekend-
um ber skylda tO að iáta mæöum-
ar fá sambærOegt starf þegar fæð-
ingarorlofinu er lokið.
Greiða fyrir
bíómiðann
með eggjum
Yfirvöld í litlum bæ í suður-
; hluta Síberíu eru farin að taka
p við eggjum sem greiöslu fyrir
j bíómiða vegna skorts á reiðufé,
j að því er Itar- Tass fréttastofan
j greinirfrá.
Verkamenn á samyrkjubúi í
; bænum sem, eins og margir aörir
r rússneskir verkamenn, hafa ekki
I fengið greidd laun svo mánuðum
I skiptir, greiða nú fyrir bíómiðann
með tveimur eggjum. Kerfið virð-
' ist ganga upp því uppselt er á
j kvikmyndasýningar. Talsmaður
; kvikmyndahússins segir það við-
skiptaleyndarmál hvað verður
| umeggin.
Finnskt kaffi-
hús býður upp
á Ijós gegn
þunglyndi
Kaffihús í Helsinki í Finnlandi
lýsir þvi yfir að það sé fyrsta
kaffihúsið í heiminum sem býður
viðskiptavinum upp á Jjósameð-
j ferð gegn þunglyndi. Á þessum
tima ársins nýtur dagsljóss ekki
nema í sex og hálfa klukkustund
| á sólarhring í Helsinki og enn
skemur þegar norðar dregur í
Finnlandi. Eigendur kaflfihússins
Ivilja létta á vetrardrunganum
sem sagður er eiga þátt í tíðum
sjálfsvígum Finna.
„Ljósalampamir eiga að gefa
fólki orku tO þess að það þrauki
þetta drungalega skammdegi,"
Ísegir UOa- Maija Kangas sem
stendur fyrir tiiraunimii. „Fólk
fer héðan ánægt á svip.“
Jyllands-Posten, Reuter