Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1996, Page 25
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996
25
Beðið eftir
kollu
Nei, þetta er ekki biðröð eftir hár-
kollu heldur er þetta hinn þekkti
tennisleikari Andre Agassi (t.h.)
ásamt kynbombunni Demi Moore.
Moore rakaði af sér allt hárið fyrir
kvikmyndina G.I. Jane sem við
fáum að sjá á næsta ári.
Hún var ein af 800 gestum Agassis
sem hann bauð í samkvæmi til
styrktar fátækum bömum. Alls söfn-
uðust tæpar 140 milljónir um kvöldið
sem hófst með allsérstöku uppboði.
Þar bauð fólk í eins fágætan hlut og
að fá tækifæri til að vera myrt af
Bruce Willis í næstu kvikmynd hans
og að fara á næturrölt með Dennis
Rodman. Kærasta Agassis, Brooke
Shields, seldi flík af sér á einar 4
milljónir króna. Það hefur enginn
haldið því fram að frægðin sé ódýr!
Þau Demi Moore og Andre Agassi tóku sig vel út í samkvæminu, bæði jafn
hárlítil en samt sem áður glæsileg. Minni myndin sýnir Agassi með kærustu
sinni, Brooke Shields.
Tákn fyrii
trúna á hip
j ákvæQa
Sérstæður silfurkross
með kúptum steini
(grænum, rauðum eða bláum)
VerQ meQ fesl
kr. 4.850
Slærð 2,8 cm
Hönnuður: Axel Eiríksson
gull-úriQ
AXEL EIRÍKSSON
Álfabakka 16, Mjóddinni, s. 587-0706
Aðalstræti 22, ísafirði, s. 456-3023
Svaf
ekki hjá
honum
Fyrrum eiginkona rokkkóngsins,
Priscilla Presley, hefur höfðað mál
gegn manni að nafni Lavem Currie
Grant, 65 ára. Hún segir að hann
hafi fullyrt í viðtölum að þau hafi
sofið saman þegar hún var táning-
ur, þ.e. áður en hún kynntist Elvis.
Hin 51 árs gamla leikkona neitar
þessu alfarið og krefst 35 milljóna
króna skaðabóta fyrir ummælin.
Inn með
magann!
Hin fimmtuga Goldie Havm var
glæsileg þegar hún mætti á frum-
sýningu nýjustu myndar sinnar,
The First Wives Club, í London ný-
lega. Hér gantast hún við einn að-
dáanda sinn sem kallaði að henni
að hún yrði að muna að halda niðri
í sér andanum því kjóllinn hennar
væri svo þröngur.
Ert þú búin(n) að tryggja
þér eintak!
KRINGLAN
- opið virka daga til kl. 21
Laugardaga og sunnudaga til kl. 18
Sími 525 5030
Sendum í póstkröfu