Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1996, Page 38
54
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996
WALL STREET SKÁPASAMSTÆBA
Húsgögn gæði
3000 m2 sýningarsalur
Opið virka daga 9-18
Laugardaga 10-16
Sunnudaga 14-16
Fjölmargir möguleikar
TM - HÚSGÖGN
SíSumúla 30 - Sími 568 6822
W SíSumú
KRAKKAR!
MUNIÐ EFTIR OKKUR
TANNIOG TÚPA
Öll Lionsdagatöl eru merkt:
Þeim íylgir límmiði með Tanna og Túpu og tannkremstúpa,
Allur hagnaður rennur til líknarmála.
skák
Fyrsta íslandsmótið í netskák:
„Frosti" og „Skata"
börðust um sigurinn
Brotið var blað í skáksögunni sl.
sunnudag er fyrsta íslandsmótið í
netskák fór fram. Taflfélagið Hellir í
Reykjavik stóð að keppninni með
stuðningi Einars J. Skúlasonar hf.
en mótið er hið fyrsta sinnar teg-
undar sem fram fer í heiminum.
Teflt var á þráðum Internetsins um
alþjóðlegan skákþjón en keppendur
sátu sjálfir framan við tölvuskjái,
hver á sínum heimavelli. Þátttaka
var góð þótt eflaust eigi margir enn
eftir að koma sér upp þar til gerðum
tæknibúnaði. Kannski hefur knapp-
ur umhugsunartími fælt aðra frá
sem óvanir eru tafli á tölvur.
Nýstárleikinn sveif yfir vötnum
keppninnar. Ekki einasta var fyrir-
komulag með þeim hætti sem að
ofan greinir heldur tefldu keppend-
ur undir dulnefnum! Því var ekki
mögulegt að átta sig á þvi hvort teflt
væri við meistara eða byrjanda,
a.m.k. ekki fyrr en líða tók á skák-
ina. Frumleika gætti i nafngiftum
skákmannanna en keppendur voru
allt frá kettinum Garfields til
Giljagaurs sem hefur væntanlega
stolist í tölvubúnað Grýlu gömlu í
fjöllunum.
Rétt nöfn keppenda voru ekki
kunngerð fyrr en að mótinu loknu.
Kom þá I ljós að fyrsti íslandsmeist-
arinn í netskák varð Þráinn Vigfús-
son sem tefldi undir heitinu
„Frosti“. Staða efstu manna varð
þessi - dulnefni innan sviga:
1. Þráinn Vigfússon (Frosti) 7,5 v.
2. Andri Áss Grétarsson (Skata)7
v.
3. ^4. Davíð Kjartansson (Emilía)
og Björn Þorfinnsson (Tito) 6,5 v.
5.-6. Kristján Eðvarðsson (Whale-
boy) og Bogi Pálsson (Garfield II) 6
v.
7.-9. Hlíðar Þór Hreinsson (Dolli),
Sigurður Ólafsson (Capsalt) og
Gunnar Bjömsson (Finnbogi) 5,5 v.
10.-12. Jóhann Þorsteinsson (Ari),
Daði Öm Jónsson (Kengur) og Jón
Hálfdánarson (Sigga) 5 v.
13.-15. Hrannar Baldursson (Hug-
ur), Bjarni Sæmundssosn
(Giljagaur) og Þórður Harðarson
(Doddi) 4,5 v.
íslandsmeistari áhugamanna
(1800 stig eða minna) varð Davíð
Kjartansson og besti byrjandinn
varð Þórður Harðarson. Þeir sem
luku keppni vora 22 en allmargir
urðu frá að hverfa vegna tæknilegra
vandamála. Halldór G. Einarsson
hjá EJS hf. og stjórnarmaður hjá
Helli hafði veg og vanda af móts-
haldinu.
Lítum á handbragð sigurvegar-
ans. Við skoðun skákarinnar ber að
hafa í huga að umhugsunartími var
aðeins 4 mínútur að viðbættum 2
sekúndum fyrir hvem leik. Þrátt
fyrir þetta er skákin glettilega vel
tefld. Stjómandi svörtu mannanna
kvaðst þó hafa teflt of varfæmislega
þar sem hann stóð í þeirri trú að
hann ætti í höggi við stórmeistar-
ann Þröst Þórhallsson. Dulnefni
hvíts, „Frosti", mun hafa villt um
fyrir honum.
Hvítt: Þráinn Vigfússon
Svart: Kristján Eðvarðsson
Nimzo-indversk vöm.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
Dc2 a6 5. Rf3 c5 6. e3 cxd4 7. exd4
d5 8. Bg5 Rbd7 9. cxd5 exd5 10.
Bd3 Da5 11. 0-0 0-0 12. Re5 h6 13.
Rxd7 Rxd7 14. Bh4 Bxc3 15. bxc3
Dc7 16. Db3 Rb6 17. Bg3 Dc6 18.
Hacl Rc4 19. Ddl Be6 20. Dh5 f5
21. Hfel Dd7 22. Be5 Hf7 23. Bxc4
dxc4 24. f4 Bd5
25. He3! Be4?
Nauðsynlegt var 25.- He8 til að
svara 26. Hg3 með 26,- He6.
26. Hg3 De6
Úr vöndu var að ráða vegna hót-
unarinnar 27. Dxh6. Ef 26. - Kf8 27.
Dg6 og næst 28. Dh7.
27. Hg5 Dd5 28. Dxh6 Dd7 29.
Hel He8 30. Hle3 Kf8 31. Bxg7+!
Ke7
- og svartur gafst upp um leið
vegna 32. Dg5 (h4)+ og mát í næsta
leik.
Suetin varð heims-
meistari
Rússneski stórmeistarinn Alexei
Suetin hrósaði sigri á heimsmeist-
aramóti öldunga, 60 ára og eldri,
sem fram fór í Bad Liebenzell í
Þýskalandi. Suetin, sem hélt upp á
70 ára afmælið meðan á mótinu stóð
þann 16. nóvember sl., var úrskurð-
aður sigurvegari á stigum en hann
hlaut jafnmarga vinninga og
Anatoly Lein, Bandaríkjunum, og
Lettinn Klovans. Suetin er íslend-
ingum að góðu kunnur en hann
dvaldi hér á landi um tveggja mán-
aða skeið sumarið 1981 við skák-
þjálfun. Þekktur er Suetin fyrir fjöl-
margar bækur um skák, jafnt byrj-
andabækur sem lærð rit um
miðtöfl.
Umsjón
Jdn L. Árnason
Ingvar Ásmundsson, skólastjóri
Iðnskólans í Reykjavík, var meðal
þátttakenda, fyrstur íslendinga. Ing-
var náði mjög góðum árangri, tefldi
yfirvegað og vandað og hafnaði að
lokum í deildu 10. sæti af 180 kepp-
endum. Ingvar vann íjórar skákir
og gerði sjö jafntefli - slapp taplaus
frá mótinu. Ingvar varð jafn tveim-
ur stórmeisturum og varð fyrir ofan
jafnmarga. Staða efstu manna:
1.-3. Suetin (Rússlandi), Lein
(Bandaríkin) og Klovans (Lettlandi)
8,5 v.
4.-9. Uhlmann (Þýskalandi),
Baumgartner (Austurríki), Taj-
manov, Kudinov, Shestoperov og
Gruzman (allir Rússlandi) 8 v.
10.-16. Ingvar Ásmundsson, Ign-
ey, Jugov (báðir Þýskalandi), Lubos-
evits (Hvíta-Rússlandi), Vasjukov,
Krogius og Arkhangelsky (Rúss-
landi) 7,5 v. o.s.frv.
íslandsmót drengja og
stúlkna
íslandsmót í drengja- og stúlkna-
flokki, 14 ára og yngri, fór fram um
síðustu helgi í Reykjavík. Þátttak-
endur voru 55 og þar af kom 20
manna hópur utan höfuðborgar-
svæðisins.
Úrslit urðu þau að í drengjaflokki
varð íslandsmeistari Bergsteinn
Einarsson sem hlaut 8,5 v. af 9
mögulegum. Hann sigraði eftir
harða keppni við Braga Þorfmnsson
sem fékk hálfum vinningi minna. í
þriðja sæti varð Davíð Kjartansson
með 6,5 v.
í stúlknaflokki varð Ingibjörg
Edda Birgisdóttir íslandsmeistari
með 5,5 v., Harpa Ingólfsdóttir fékk
5 v. og Anna Lilja Gísladóttir 3 v.
Atskákmót Reykjavíkur
Atskákmót Reykjavíkur fer fram
í dag, laugardag, og hefst kl. 14.
Mótshaldið er að þessu sinni í hönd-
um Taflfélagsins Hellis og verður
teflt í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi. Alls verða tefldar 7 um-
ferðir; fjórar umferðir í dag og þrjár
á morgun, simnudag. Veitt verða
verðlaun, 15 þús., 9 þús. og 6 þús.
krónur. Skráning þátttakenda er á
mótsstað við upphaf keppni en öll-
um er heimil þátttaka.