Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1996, Blaðsíða 59
DV LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996
ir 75
K V I K MJf ^ D fl
§
Regnboginn/Laugarásbíó - Hetjudáð.
í leit að sannleikanum irki-
Edward Zwick sýndi það í Glory og
Legends of the Fall að honum fer einkar
vel að eiga við dramatískar sögur sem
endurspegla miklar tilfinningar og hon-
um bregst ekki bogalistin i þeim efhum í
Hetjudáð (Courage under Fire), byggir vel
upp kvikmynd sem segir tvær sögur af
bardögum í Persaflóastríðinu sem eiga
það sameiginlegt að sannleikurinn kemur
óþægilega við suma þátttakendur.
Önnur sagan er um ofurstann Nat Serl-
ing sem stýrir skriðdrekasveit sinni í
eyðimörkinni gegn írökmn svo hressilega
að hann grandar skriðdreka úr eigin sveit þar sem innanborðs er besti vin-
ur hans. Ofurstinn er miður sín en fylgir fyrirmælum um að láta sannleik-
ann ekki uppi. Hann fær það starf að rannsaka annan atburð sem átti sér
stað í eyðimörkinni þegar þyrluflugstjóri sýndi mikla hetjudáð en fórst sjálf-
ur. Flugmaðurinn var kona og nú á að veita henni æðsta heiðursmerki fyr-
ir hugrekki á vígaslóðum. Serling kemst fljótt að því að þeir sem komust lífs
af segja ekki sannleikann. Um leið og hann grefur dýpra í þennan atburð
þarf hann að eiga við eigin samvisku og á snjallan hátt tengjast þessar sög-
ur þótt óbeint sé.
Handritið er ákaflega vel skrifað og myndin er í heild góð skemmtun al-
veg fram að lokaköflum, en þá missir Zwick tökin á sögunni og veltir sér
upp úr melódramanu. Denzel Washington sýnir virkilega góðan leik.en aft-
ur á móti er Meg Ryan ekki í sínu besta formi enda hlutverkið alls ekki í
hennar deild. Þessari mjúku og skemmtilegu leikkonu fer ekki vel að leika
harðjaxl í fremstu víglinu.
Leikstjóri: Edward Zwick. Handrit: Patrick Sheane Duncan. Kvikmyndataka: Roger
Deakins. Tónlist: James Horner.Aðalleikarar: Denzel Washington, Meg Ryan, Lou
Diamond Phillips, Michael Moriarty, Scott Glenn og Regina Taylor. HE
Háskólabíó - Verndarenglarnir: ★★
Barist við bófa og samviskuna
Stundum kemur fyrir að það skemmtilegasta í bíómyndinni, sem maður
hefur verið að horfa á, er einmitt það sem ekki var í henni, þótt við vitum
sjaldnast neitt um það. Þannig er því farið með Vemdarenglana. Hér er um
að ræða misheppnaðar tökur sem kvikmyndagerðarmennirnir hafa verið
svo elskulegir að leyfa okkur að sjá á meðan aðstandendalistinn rennur yflr
tjaldið í myndarlok. Án þessara myndbrota hefðu Vemdarenglarnir verið
heldur rýr skemmhm.
Ekki vantar það að mynd þessi skartar tveimur ágætum leikurum, þeim
Gérard Depardieu og Christian Clavier. Depardieu leikur næturkiúbbseig-
anda í París, mann sem hugsar bara um sjálfan sig, hálfberar píur og pen-
inga. Clavier leikur aftur á móti prest sem er háifgerður dýrlingur. Leiðir
þessara manna liggja saman í Hong Kong þar sem næturklúbbseigandinn
er kominn til að bjarga syni og auðævum fyrrum félaga síns úr landi und-
an kínversku mafíunni. Presturinn er hins vegar að snúa heim til Frakk-
lands með hóp af drengjum sem höfðu verið í sumarbúðum í Hong Kong.
Klúbbeigandinn fær prestinn til að aðstoða sig en þegar til Frakklands kem-
ur þurfa þeir ekki aðeins að kljást við útsendara kínversku mafíunnar held-
ur einnig eigin samvisku sem birtist þeim sem tvífarar þeirra og andstæð-
ur. Tvífari klúbbarans er því algjör engill en tvífari prests ffeistarinn sjálf-
Húmorinn í Vemdarenglunum er af þeirri sortinni sem dauðrotar frekar
en bara rotar, ef þess er nokkur kostur. Og það gerir hann svo sannarlega.
Ærslin eru þvi mikil. Stundum virka þau ágætlega og létta lundina en yfír-
leitt eru þetta bara fremur ófyndin fíflalæti. Það er þó sjálfsagt smekksat-
riði. Depardieu og Clavier em hins vegar ágætir, sá síðamefndi í meira
stuði.
Leikstjóri: Jean-Marie Poiré. Handrit: J-M Poiré og Christian Clavier. Leikendur:
Gérard Depardieu, Christian Clavier, Eva Herzigova, Eva Grimaldi, Yves Renier.
Stjörnubíó - Hættuspil:
Van Damme í miklum ham ★*•
Belgíski slagsmálaleikarinn Jean-Claude
Van Damme hefúr verið iðinn við kolann
undanfarin misseri og hefúr hver myndin á
fætur annarri komið úr smiðju hans og all-
ar hafa þær verið sama marki brenndar,
með stanslausan hasar. Lítið hefúr farið fyr-
ir gæðum i sambandi við söguþráð eða
handrit, enda er það sjálfsagt besta lausnin
fyrir Van Damme. Honum er margt betur
gefið en að fara með dramatískan texta.
Hættuspil (Maximum Risk) er engin und-
antekning hvað varðar litt merkilegan sögu-
þráð og slakt handrit en nú bregður svo við að fenginn hefur verið leikstjóri
frá Hong Kong, Ringo Lam og sá kann nú aldeilis til verka í þeim flölda
áhættuatriða sem er að fmna i myndinni. Er greinilegt að þama er enginn
byrjandi á ferðinni í þeim efnrnn. Af miklu öryggi stýrir hann Van Damme
í gegnum hvert hasaratriðið af öðru með miklum tilþrifum og sá mikli hraði
og sérlega vel sviðsett atriðin gefa myndinni aukið gildi.
Van Damme í hlutverki fyrrum leyniskyttu franska hersins er nákvæm-
lega eins og hann hefur verið i síðustu myndum sínum, eini munurinn er
að nú þarf hann ekkert að eiga í erfiðleikum með amerískan hreim, getur
státað af sínum eigin. Hann stendur sig vel í áhættuatriðum eins og fyrri
daginn en verður eins og vélræn brúða þegar hann þarf að sýna tiifinning-
ar.
Hættuspil er tvímælalaust ein af betri myndum Van Damme. Það er þó
alls ekki honum að þakka heldur leikstjóranum, Ringo Lam, sem virðist oft
hugsa fýrir hverju smaátriði.
Leikstjóri: Ringo Lam. Handrít: Larry Ferguson. Kvikmyndataka: Alexander
Gruszynski. Tónlist: Robert Folk.
Aðalleikarar: Jean-Claude Van Damme, Natasha Henstridge, Jean- Hugues
Anglade, Zack Grenier og Stephane Audran.
Bönnuð börnum innan 16 ára. Hilmar Karlsson
L
Skuggi í Laugarásbíói:
Gegn spillingu og grimmd
Billy Zane leikur teiknimyndahetjuna Skugga í samnefndri kvikmynd.
Þeir sem fylgst hafa með teikni-
myndasögum í dagblöðum og tíma-
ritum vita allir hver Skuggi er en
allt frá því Lee Falk skapaði þessa
teiknimyndahetju árið 1936 hafa æv-
intýrin um Skugga birst í yfir 500
blöðum í heiminum. Sagan um
Skugga byrjar fyrir 400 árum þegar
ættfaðir Skugganna ákveður að
berjast gegn öllu því illa sem þrífst
í heiminum. Síðan hefur sonur tek-
ið við af föður og Skuggi nútímans
er ekkert ööruvísi en forfaðir hans í
hugsun og hetjudáðum.
í leiknu kvikmyndinni Skuggi
(The Phantom), sem Laugarásbíó
frumsýndi í gær, er helsti óvinur-
inn Xander Drax sem hefur mikinn
áhuga á því að eignast mikil verð-
mæti sem falin eru í frumskógum á
eyjunni Bengalli. Hann fer með liðs-
menn sína til eyjunnar og það sem
átti að vera auðveldur stuldur verð-
ur að óvinnandi þraut þegar þeir
komast að því að verndari eyjunnar
kann ráð við öllum þeirra véla-
brögðum, en vemdarinn er að sjálf-
sögðu Skuggi.
Með hlutverk Skugga fer Billy
Zane en í öðrum hlutverkum eru
Treat Williams, Kristy Swanson,
Catherine Zeta Jones, James Rem-
ar, Samantha Eggar og Patrick Mc-
Goohan. Leikstjóri er Ástralinn
Simon Wincher sem hefur lengi
starfað vestan hafs en til Bandaríkj-
anna fór hann eftir að hann hafði
leikstýrt verðlaunamyndunum The
Man from Snowy River og Phar
Lap. Meðal kvikmynda sem eftir
hann liggja má nefna Free Willy,
Lightning Jack, Operation Dumbo
Drop, Quigley down Under, Harley
Davidson & The Marlboro Man og
hin rómaða mínisería, Lonesome
Dove.
Billy Zane, sem leikur Skugga,
fæddist og ólst upp í Chicago. Hann
hefur leikið í sextán kvikmyndum
frá því hann vakti fyrst athygli í
ástralska tryllinum Dead Calm.
Myndimar sem hann hefur leikið í
eru allt frá versta b-myndadrasli
upp í úrvalsmyndir á borð við Or-
lando, Memphis Belle, Back to the
Future II og Only You. Þá lék hann
gestahlutverk í sex þáttum í hinni
vinsælu sjónvarpsseríu Twin Peaks.
-HK
Kevin Bacon leikstýrir
í byrjun desember verður
fmmsýnd fyrsta kvikmyndin sem
Kevin Bacon leikstýrir, Losing
Chase. í fyrstu átti myndin að-
eins að vera fyrir sjónvarp en
hún vakti það mikla athygli að
hún verður sýnd í kvikmynda-
húsum. I myndinni leikur Helen
Mirren húsmóður sem er sett á
spítala eftir að hafa fengið
taugaáfall. Þegar hún kemur
heim neitar sonur hennar að
tala við hana og eiginmaðurinn
hefur ráðið fallega bamfóstra.
Beau Bridges leikur eiginmann-
inn og Kyra Sedwick barnfóstr-
una en hún er eiginkona Kevin
Bacons.
Jerry Maguire
Tom Craise er, eins og eigin-
konan Nicole Kidman, í frumsýn-
ingarklæðum í desember. 13. des-
ember verður nýjasta kvikmynd
hans, Jerry Maguire, frumsýnd
og kveður við annan tón hjá
Cruise en í síðustu myndum
hans. Um er að ræða róman-
tíska gamanmynd um umboðs-
mann íþróttamanna sem skyndi-
nlega er rekinn frá stóru umboðs-
mannafyrirtæki. Meðleikarar
Craise era Cuba Cooding jr.,
Renee Zellweger og Kelly
Preston. Leikstjóri og handrits-
höfundur er Cameron Crowe.
Allir segja að ég elski þig
Það eru margir sem bíða
spenntir eftír að sjá nýjustu kvik-
mynd Woody Allens, Everyone
Says I Love You en hún veröur
frumsýnd 6. desember. Ástæðan
er að um söngleik er að ræða.
} Þótt ekki hafi spurst mikið út
um innihald myndarinnar þá er
vitað hvað lögin heita og þar má
nefna Cuddle Up a Little Closer
og Chinatown, My Chinatown.
Sem fyrr er fjöldi þekktra leikara
í vinnu hjá Allen. Auk hans sjálfs
leika Julia Roberts, Alan Álda,
Goldie Hawn og Drew
Barrymore í myndinni.
lémawtískw aldamétastlll
Húsgagnaverslanirnar vinsælu „The Bombay company" hafa slegið í gegn
í Bandaríkjunum. Verslunin Colony getur nú boðið sömu vörur á íslandi.
Gullfallegar kommóður, marmara-smáborð, sófaborð og fleiri gerðir.
Óskajólagjöf konunnar: skartgripakommóða eða dömuskrifborð/snyrtiborð.
Ennffemur fallegar gjafavörur og íslenskir listmunir
Laufásvegi 17 - símar 562 4510 - 562 4513
Afgreiðslutími fylgir miðbæjarverslununum.