Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1996, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1996, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 Útlönd Stuttar fréttir i>v Friðarverðlaun Nóbels afhent við hátíðlega athöfn í Ósló í gær: Tímabært að ró færist yfir lífið á Austur-Tímor - segir Carlos Belo biskup, annar tveggja verðlaunahafanna Friöarverölaunahafar Nóbels, rómversk-kaþólski biskupinn Carlos Belo og útlaginn José Ramos Horta frá Austur- Tímor ásamt norsku nóbelsnefndinni. Friðarverölaunin voru afhent í ráöhúsi Óslóborgar í gær að viöstöddu fjöl- menni, m.a. þremur konum frá Kvennalistanum. Símamynd Reuter „Það er svo sannarlega tímabært að þaggað verði niður í stríðsbyssun- um á Austur-Tímor í eitt skipti fyrir öll. Það er tími til kominn að ró fær- ist aftur yfír líf fólksins í heimalandi mínu. Það er tími kominn til þess að ræða ærlega saman. Það er einlæg von mín að friðarverðlaun Nóbels fyrir árið 1996 muni stuðla að því,“ sagði rómversk- kaþólski biskupinn Carlos Belo frá Austur-Timor þegar hann þakkaði fyrir friðarverðlaun Nóbels sem hann og landi hans, út- laginn og sjálfstæðisbaráttumaður- inn José Ramos Horta, veittu við- töku í Ósló í gær. Verðlaunin nema um sjötíu milljónum íslenskra króna. Verðlaunahafarnir eru báðir 48 ára gamlir. Bæði Belo og Horta hvöttu stjóm- völd í Indónesíu, sem innlimuðu Austur-Tímor, sem var fyrrum port- úgölsk nýlenda, árið 1976, að hefja þegar í stað viðræður um friðsam- lega lausn frelsisbaráttu Austur- Tímora sem hefur kostað um 200 þúsund mannslíf. íbúar landsins eru milli 600 og 700 þúsund. Verðlaunaafhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í ráðhúsi Osló- borgar að viðstöddum nokkur hund- ruð gestum, þar á meðal Haraldi Noregskonungi. Kvennalistakon- umar Kristín Ástgeirsdóttir, Anna Ólafsdóttir Bjömsson og Kristín Einarsdóttir vora við athöfnina í boði Ramos Hortas en Kvennalist- inn stakk upp á Horta sem verð- launaþega árið 1994, Belo ári síðar Kofi Annan. Frakkar taldir beita neitunar- valdi Ghanamaðurinn Kofi Annan, sem er aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fékk í gær nægilegan atkvæðafjölda til þess að geta orðið næsti framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna í próf- kjöri hjá Öryggisráðinu. Talið er þó líklegt aö Frakkar muni beita neitunarvaldi. Sljómarerindrekar segja aö breyti Frakkar um skoð- un sé möguleiki á að Annan verði kjörinn í þessari viku. Boutros Boutros- Ghali, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sem Banda- ríkjamenn beittu neitunarvaldi gegn, dró framboö sitt til baka tímabundið fyrr í mánuðinum. Barnaklám í varnarmálaráðu- neytinu Vísindamaður í varnarmála- ráöuneyti Kanada hefur verið ákærður meðal annars fyrir dreif- ingu á bamaklámi eftir að lög- regla fann yfir 20 þúsund tölvu- skrár með bamaklámi á skrif- stofu hans. Hafði efninu verið dreift á Intemetinu og er talið að stór alþjóðlegur hringur hafi ver- ið móttakandinn. Reuter og loks þeim báðum fyrir verðlaun þessa árs. Stjómvöld í Indónesíu, sem for- dæmdu þá ákvörðun norsku nóbel- nefndarinnar að veita Ramos Horta einnig verðlaunin, sendu ekki full- trúa sinn til athafnarinnar í Ósló í gær. Antonio Guterres, forsætisráð- herrá Portúgals, var hins vegar meðal viðstaddra en stjóm hans styður sjálfstæðiskröfur íbúa Aust- ur- Tímor. Sameinuðu þjóðirnar hafna kröfum Indónesa um yfirráð á Austur-Tímor. Ramos Horta hvatti þjóðir heims, þar á meðal Evrópusambandið, Bandaríkin og samtök Suðaustur- Asíuríkja (ASEAN), til að leggja Austur-Tímoram lið í sjálfstæðisb- aráttu þeirra. „Við réttum Indónesum og öðrum nágrönnum okkar í ASEAN vináttu- hönd og forum þess á leit við þá að þeir aðstoði okkur við að koma á friði og frelsi á Austur-Tímor,“ sagði Horta við verðlaunaafhend- inguna. Francis Sejersted, formaður nób- elsnefhdarinnar, veittist harkalega að Indónesum, svo og þjóðum heims, í ræðu sinni og sagði að frelsisbarátta Austiu--Tímora hefði aldrei fengið mikla athygli. Önnur nóbelsverðlaun vora af- hent í Stokkhólmi í gær og þar var það pólska skáldkonan Wislawa Szymborska sem stal senunni með heillandi framkomu sinni. Reuter Vesturlönd hjálpi Stjómarandstaðan í Serbíu hef- ur beðið Vesturlönd um að þrýsta á stjórnvöld til að viðurkenna kosningasigur stjórnarandstæð- inga. Mobutu snýr heim Háttsettur embættismaður í sijómarflokkn- um í Saír til- kynnti í gær að Mobuto Sese Seko, for- seti landsins, myndi snúa heim: í byijun næstu viku. Mobuto hefur dvalið mánuðum saman í Sviss og Frakklandi vegna krabbameinsmeðferðar. Flóttamenn veikir Þúsundir flóttamanna hafa hi-akist frá A-Saír um 200 km í vestur og þjást þeir af niðurgangi, malaríu og vannæringu, að sögn Rauða krossins. Verra ástand á Kýpur Aöalframkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, Boutros Bout- ros-Ghali, segir að ástandið á Kýpur, sem er skipt milli Tyrkja og Grikkja, hafi versnað síðasta hálfa árið. Efnavopn fundust Bandarískir þingmenn og her- menn, sem tóku þátt í Persaflóa- stríðinu, segja að efnavopn, sem fundust á meðan á stríðinu stóð, kunni að hafa skaðað heilsu þeirra. Fundað um Di Rupo Aðstoðarforsætisráðherra Belg- íu, Elio Di Rupo, sem sak- aður hefur verið um kyn- mök við barn- unga drengi, sætir enn gagnrýni þrátt fyrir að Hæsti- réttur hafi ekki talið ástæðu til að rannsaka málið frekar. Þingflokk- ar fúnduðu fram á nótt um hvern- ig bregðast skuli við vegna ásakananna en engin niðurstaða fékkst. Fundað verður áfram i dag um framtíð ráðherrans. Sítar sökudólgar Sádi-Arabar hafa látið Banda- ríkjamenn fá gögn sem styðja þá kenningu þeirra að öfgamenn síta hafi staðið á bak við sprengjuárás á bækistöð bandarískra her- manna. Þrengja aö aröbum Skipulagsnefnd Jerúsalem- borgar hefur samþykkt að reisa 132 hús fyrir gyðinga i hjarta arabahverfis í austurhluta borg- arinnar. Múslímum smalað Franska lögreglan handtók fimmtán manns í gærmorgun í leit sinni að þeim sem stóðu fyr- ir sprengjutilræðinu í París um daginn. Vilja fá plútóníum Kanadísk stjórnvöld segjast gjarnan vilja fá plútóníum frá ameríska hemum til að nota í kjamorkuveram sínum. Havel á batavegi Vaclav Havel, forseti Tékk- lands, er á góðum bata- vegi eftir skurðaðgerð fyrir níu dög- um þar sem illkynja æxli var fjarlægt úr öðra lunga hans. Forset- inn var nógu hraustur til að drekka dálítinn bjór í gær. Hjartsláttur lagaður Læknar gáfu móður Teresu vægt raflost í morgun til að leið- rétta óreglulegan hjartslátt henn- ar. Reuter A-Erópuríkjum boðin aðild að NATO næsta sumar: Primakov fundar með NATO um framtíðarsamskipti Búist er við að Jevgení Prima- kov, utanríkisráöherra Rúss- lands, færi utanríkisráðherrum Atlantshafsbandalagsins, NATO, bæði góðar fréttir og slæmar á fundi í Brassel í dag. Það er að segja að Rússar séu enn mót- fallnir stækkun bandalagsins til austurs en vilji ræða frekari framtíðarsamskipti. Primakov fór fram á fund með ráðherranum aðeins nokkram klukkustundum eftir að þeir til- kynntu að haldið yrði áfram áformum um stækkun NATO í austur. Utanríkisráðherrar NATO ákváðu í gær stað og stund fyrir leiðtogafund á næsta ári og verð- ur hann haldinn í Madrid 8. til 9. Jevgení Primakov. júlí. Verður þá fýrstu Austur- Evrópuríkjunum boðin aðild. Ráðherrarnir reyndu að blíðka Rússa með því að lýsa því yfir að ekki yrði komið fyrir kjamorku- vopnum í nýjum aðildarríkjmn. Rússar telja öryggi sínu ógnað verði fyrram bandamenn þeirra í Evrópu aðilar að NATO. Á fundi sínum í gær sam- þykktu ráðherramir einnig að senda nýtt friðargæslulið til Bosníu sem dvelja á þar í 18 mánuði. Lýstu ráðherramir jafn- framt yfir óánægju sinni með það að Slobodan Milosevic, for- seti Serbíu, skuli ekki virða úr- slit sveitarstjórnarkosninganna í nóvember. Reuter Ekki búið að semja um afnám tolla á hátæknivörum hjá WTO Samkomulag hefur ekki enn tekist um afnám tolla á tölvum og öðrum upplýsingatækni- búnaði á fundi Heimsvið- skiptastofnunarinnar sem haldinn er í Singapore. Samn- ingamenn Bandaríkjanna og Evrópusambandsins áformuðu að halda viðræðum sínum áfram í dag. „Það er ekkert samkomulag í höfn enn,“ sagði Len Brittan, sem fer með viðskiptamál í framkvæmdastjóm ESB, eftir fund sinn með Charlene Bars- hefsky, viðskiptafulltrúa Bandaríkjanna, í morgun. „Samkomulag hefur tekist um nokkra liði en ágreiningur er enn um nokkra. Við eram að Leon Brittan. reyna aö leysa þá,“ sagði Britt- an. Bandaríkjunum er mjög í mun að komist verði að sam- komulagi um aukið frelsi í viðskiptum með tölvur, hug- búnað og annan hátæknibún- að fyrir árið 2000 og njóta þau stuðnings Japana. Viðskipti með þennan vaming nema 600 milljörðum dollara á ári. En þótt samkomulag um upplýsingatækni sé kannski ekki langt undan á fundi WTO deila þróunarlöndin á fundin- um enn hart á hugmyndir vestrænna ríkja um að stofn- unin beiti sér í vinnuvemdar- málum, m.a. í baráttunni gegn bamaþrælkun. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.