Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1996, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996
13
Fréttir
Sjoppur í framhaldsskólum skila ekki virðisaukaskatti:
Það sama á yfir
alla að ganga
- segir formaður Kaupmannasamtakanna
Sjoppur i skolum hafa veriö undanþegnar skatti. Þaö finnst formanni
Kaupmannasamtakanna óeölilegt. Myndin er tekin í Hlíöaskóla.
DV-mynd Hilmar Þór
„Við munum taka þetta upp og
óska skýringa á því hvemig á þessu
stendur. Þótt ríkisskattstjóri hafi
gefið einhverjar undanþágur á
þessu þá tel ég afskaplega mikil-
vægt að það sama sé látið yfir alla
ganga. Það þurfa allir að horga
skatta," segir Benedikt Kristjáns-
son, formaður Kaupmannasamtaka
íslands, um það að nemendafélög
borgi ekki virðisaukaskatt af
sjoppurekstri i skólunum.
Samkvæmt upplýsingum sem DV
aflaði sér frá ríkisskattstjóra hefur
hann litið svo á, samkvæmt bréfi,
dagsettu þann 12. desember 1991, að
félagasamtök, s.s. stjómmálaflokkar
og nemendafélög, séu undanþegin
skráningarskyldu samkvæmt lögum
um virðisaukaskatt vegna sölu á
vöm og skattskyldri þjónustu þegar
salan er eingöngu til félagsmanna
þeirra samtaka sem í hlut eiga.
„Gildir þetta um verslun með sæl-
gæti, gosdrykki og skyldar vörur
(sjoppur) á vegum félagasamtaka,
enda sé eingöngu selt til félags-
manna,“ segir í bréfi ríkisskattstjóra.
„Mér var hreinlega ekki kunnugt
um að þetta væri með þessum hætti
en við höfum talað þannig að það sé
eðlilegt að borga skatta af þeirri
starfsemi sem fer fram á vegum
kaupmanna og það á vitaskuld að
gilda um aðra sem em með sams
konar starfsemi. Við höfum marg-
bent á að það á ekkert að mismuna
mönnum með það,“ segir Benedikt.
Hann segir engu máli skipta þótt
verið sé að safna fyrir utanlands-
ferð eða öðru slíku. Þama sé verið
að kaupa vörur með virðisauka-
skatti og að sjálfsögðu eigi að selja
þær með virðisaukaskatti og skila
virðisaukaskatti. -sv
Borgara
fundur
Ahrif fjármagnstekjuskatts
á sparífjáreigendur
Fundarstaður: Hótel Loftleiðir
Fundartími: Fimmtudagur 12. desember kl. 17.15
Dagskrá
Opnun
Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON
Hvers vegna Jjármagnstekjuskattur?
Steingrímur Ari Arason, aðstoðarmaður fjármálaráðherra
Hvernig verður Jjármagnstekjuskattur
innheimtur af sparifér
Ólafur Haraldsson, aðstoðarsparisjóðsstjóri SPRON
Skattalegt jafnrœði fjárfestingarkosta
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ
Áhrif fjármagnstekjuskatts á einstakar
tegundir verðbréfa
Magnús Guðmundsson Kaupþingi
Áhrif fjármagnstekjuskatts á framtöl einstaklinga
Tryggvi Jónsson, löggiltur endurskoðandi
Pallborðsumrœður
H
SPARISJOÐUR
REYKJAVIKUR OG NAGRENNIS
Guömundur Guðmundsson sveitarstjóri á skrifstofu sinni. DV-mynd ÞÖK
Jafnvægi í byggð á Hvammstanga:
Vérðum að heyja
varnarbaráttu fyr-
ir svæðið í heild
- segir Guðmundur sveitarstjóri
DV, Hvammstanga:
„Við búum ekki við þá sveiflu
sem víðast er í sjávarþorpum. Bol-
fiskvinnsla er hér hverfandi en
rækjuvinnsla er snar þáttur í at-
1 vinnulífinu. Þá eru mörg störf í
kringum sjúkrahúsið og heilsugæsl-
una. Skatttekjur eru ekki háar á
hvem íbúa en atvinnulífið er í nokk-
uð góðu jafnvægi hér,“ segir Guð-
mundur Guðmundsson, sveitarstjóri
á Hvammstanga þar sem búa um 700
manns.
Hann segir mikla fólksfjölgun
hafa orðiðð fyrir tveimur árum en
heldur hafi fækkað á síðasta ári og í
ár.
„Það hafa flutt héðan barnmargar
fjölskyldur og aðrar fámennari kom-
ið í staðinn. Það er þó ekki hægt að
segja annað en jafnvægi sé í mann-
fjölda,“ segir Guðmundur.
Hann segir að þrátt fyrir að
Hvammstangi búi við nokkurn stöð-
ugleika þá blasi við að svæðið í
heild, Norðurland vestra, eigi nokk-
uð undir högg að sækja.
„Við verðum að heyja vamarbar-
áttu fyrir svæðið í heild þar sem
þrátt fyrir fjölgun hér hefúr orðið
fækkun. Við þurfum að slást heil-
mikið til að verjast en við erum mið-
svæðis milli Akureyrar og Reykja-
víkur sem gefur okkur ýmsa mögu-
leika til þess að verja hér byggðina.
Hér em ýmis sóknarfæri sem þarf
að nýta og ég nefni sem dæmi rækju-
þurrkunina sem hér var komið á
laggimar," segir Guðmundur. -rt
Þeir kalla hann" Loveseat" í Ameríku og eru það orð að sönnu.
Það er ekki hægt annað en að láta sér líða vel í sjónvarpsófunum
frá Lazy-boy. Þetta eru miklir og vandaðir sófar -og engin ástæða
til að rífast um hver á að sitja hvar! Nóg er plássið og báðir aðilar
hafa skemil sér til þæginda. Komdu og skoðaðu þessa frábæru sófa
Þeir eru til í mörgum gerðum, stærðum, áklæða og leðurlitum.
Tegund. Cardinal er 2ja sæta sófi með ruggu og skammel báðum megin
Gott borð er á milli og rúmgóð hirsla fyrir t.d. spólur og þ.h.
Cardinal kostar kr. 151.130,- # 5 % staðgreiðsluafsláttur.
Þáðiáiháyt
HUSGAGNAHOLLIN
Bildshöfði 20 - 112 Rvik - S:587 1199