Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1996, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996
17
DV
Akureyrarbær greiðir skuldir með ÚA-peningunum:
Fréttir
Nettolc*ve,
FATASKÁPAR á fínu verði
Fjárhagsstaðan verður
sú besta á landinu
i l
Flæð: 206 cm
Dýpt: 60 cm
Breiddir:
50 cm
8.550,-
60 cm
9.140,-
80 cm
11.630,-
100 cm
DV, Akureyri:
„Við ætlum okkur ekki á neitt
fjárfestingarfyllirí heldur ætlum við
að nota svo til alla þessa peninga til
að borga niður skuldir," segir Gísli
Bragi Hjartarson, bæjarfulltrúi Al-
þýðuflokksins í meirihluta bæjar-
stjórnar Akureyrar. Akureyrarbær
hefur á árinu selt af hluta sínum i
Útgerðarfélagi Akureyringa fyrir
um 1,1 milljarð króna og er ekki
lengur meirihlutaeigandi í fyrirtæk-
inu.
Gísli Bragi segir að af þessum
peningum verði um 500 milljónum
varið til að greiða að fullu skuldir
framkvæmdasjóðs bæjarins en að
auki verða lagðar um 100 milljónir
króna í sjóðinn. Þetta þýði einnig
tekjuaukningu fyrir sjóðinn vegna
vaxta og þá hafi sjóðurinn eigin
tekjur, m.a. vegna aðildar hans að
ýmsum félögum en sjóðurinn á t.d.
enn um 20% af hlutafé í Útgerðarfé-
lagi Akureyringa og í fleiri fyrir-
tækjum. Þeim peningum sem þarna
fást verður varið til atvinnuskap-
andi verkefna.
„Þá ætlum við að greiða niður
skuldir bæjarsjóðs um 400 milljónir
króna. Að þvi loknu held ég að ekk-
ert sveitarfélag geti státað af
annarri eins stöðu hvað varðar fjár-
málin. Fjárhagsstaðan verður sú
besta meðal sveitarfélaganna í land-
inu. Það að við greiðum niður
skuldir hæjarsjóðs og framkvæmda-
sjóðs um 900 milljónir króna þýðir
líka að við höfum 30-40 milljónum
króna meira til ráðstöfunar á ári
vegna lægri fjármagnskostnaðar,"
segir Gísli Bragi.
Konurnar í Landsbankanum. Frá vinstri Björg Stefa Sigurðardóttir, Regína
Fanný og Þorbjörg Ósk Pétursdóttir. DV-mynd Hafdís
Djúpivogur:
Nýr stjóri í
Landsbankanum
DV, Djúpavogi:
Regína Fanný Guðmundsdóttir tók
nýverið við starfi útibússtjóra Lands-
bankans á Djúpavogi af Gísla Borg-
þóri Bogasyni. Hann var í níu ár úti-
bússtjóri Landsbankans hér en er nú
farinn til Ólafsvíkur þar sem hann
verður útibússtjóri Landsbankans.
Regína er viðskiptafræðingur að
mennt, fædd og uppalinn á Djúpa-
vogi en bjó i 13 ár í Hafnarfirði.
Eins og í flestum öðrum opinberum
stofnunum hér er kvennaríki í
Landsbankanum, eingöngu konur
sem þar vinna. -HEB
Skyldleiki íslenska og norska þorskstofnsins:
Merkingar sýna
engan samgang
- segir Sigfús Schopka fiskifræðingur
„Þrátt fyrir merkingar á þorski í
áraraðir hefur nánast ekki neitt
fundist af merkjum sem sýna ferðir
þorsks af íslandsmiðum í Barents-
haf. Sömuleiðis sýna merkingar við
Noreg að fiskur af þeim miðum
kemur ekki hingað. Ég vil í þessu
sambandi benda á að þegar þorsk-
göngur hafa farið á milli íslands og
Grænlands kom alltaf fram mikill
flöldi merkja enda merkjum við
þúsundir fiska hér við land árlega,"
sagði Sigfús Schopka Fiskifræðingur
um þá kenningu að íslenski þorsk-
urinn og sá norski væru af sama
stofni og því líkur á að þeir fari á
milli fiskimiöa.
Einar Ámason prófessor hefur
sýnt fram á þennan skyldleika með
DNA-rannsóknum og skýrði frá nið-
urstöðu sinni í erindi fyrir helgina.
Sigfús Schopka segir að vel geti
verið um skyldleika stofnanna að
ræða en samgangur þama í milli sé
enginn það sýni merkingar.
„Ég efast um að hægt sé að nota
DNA-rannsóknir til að sýna fram á
samgang stofna þótt hægt sé að
sanna skyldleika með aðferðinni,"
sagði Sigfús Schopka.
Fiskifræðingar Hafrannsóknastofn-
unar hafa ævinlega haldið því ákveð-
ið fram að enginn samgangur sé á
milli þessara þorskstoflia. -S.dór
Akureyringar munu reyndar
verða varir við aukin umsvif strax
á næsta ári vegna sölu bæjarins á
ÚA-bréfunum. Þannig er t.d. áform-
að að verja strax á næsta ári um 40
milljónum króna til umhverfismála,
að fegra bæinn á ýmsan hátt og
leggja göngustíga, svo eitthvað sé
nefnt, og þessi málaflokkur fær
einnig meiri athygli og meira fjár-
magn árið 1998.
-gk
FYRSTA FLOKKS FRÁ
iFOmx
HÁTÚNI 6A REYKJAVÍK SlMI 552 4420
Kr£ l.f UUstgr
Ferðatækí m/geislaspilara
AZ 8052
Uvarpsvekjaraklukka
RM 5080
Hármásari 1650 w
HP 4362
Supertech-vekjaraklukka
AC 2300
PHIUPS
SA0O
Krl£.UatUstgr
lafmagnsrakvél m/hleðslu
L HQ 4850
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt.