Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1996, Blaðsíða 20
32
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996
íþróttir
Leikur HK og ÍBV
settur á í kvöld
Mótanefnd HSí ákvað á fundi
sínum í gær aö leikur HK og ÍBV
í 1. deild karla í handknattleik
yrði settur á í kvöld klukkan 20
í Digranesi. Leikurinn átti að
fara fram í fyrrakvöld. Eyja-
menn mættu ekki til leiks og
leikurinn var flautaður á og slð-
an af og úrslitin skráð 10-0, HK í
vil. Eyjamenn komust ekki til
lands i fyrrakvöld vegna ófærðar
í flugi en láðist að láta HSÍ vita.
Ólíöandi dónaskapur
„Við erum sáttir við að spila
í- leikinn því við viljum frekar
vinna Eyjamenn á vellinum en
að fá stigin gefins. Hins vegar
var það ólíðandi dónaskapur hjá
Eyjamönnum að láta ekki vita af
sér og það er tómur uppspuni
sem formaðurinn þeirra sagði i
DV í gær að þeir hefðu sent
mann í Digranesið klukkan
19.30,“ sagði Rögnvaldur Guð-
mundsson, formaður handknatt-
leiksdeildar HK, við DV í gær.
„Við fréttum klukkan 19.50 að
lið ÍBV kæmi ekki til leiks og
það var að okkar eigin frum-
kvæði, við hringdum þá til Eyja.
Eyjamenn hafa ítrekað dæmt
okkur og fleiri liðum leiki í
, yngri flokkum tapaða ef við höf-
um ekki komist til Eyja vegna
ófærðar. Það vantar lög um
svona atvik en ég held að móta-
nefndin hefði allavega mátt láta
Eyjamenn hafa fyrir því að kæra
til að fá leikinn spilaðan," sagði
Rögnvaldur. -GH/VS
Hrafnkell góður
með Herkules
Hrafnkell Halldórsson skoraði
t 9 mörk fyrir Herkules þegar lið-
ið sigraöi Urædd, 25-21, í norsku
1. deildinni í handknattleik á
sunnudagskvöld. Hrafnkell, sem
er bróðir Kristjáns Halldórsson-
ar, fyrrum landsliðsþjálfara
kvenna, hefur leikið vel með
Herkules i vetur en hann lék
áður meö Breiðabliki.
Það gekk ekki eins vel hjá
Gunnari Gunnarssyni og læri-
sveinum hans í Elverum en þeir
töpuðu fyrir Norröna, 22-28, á
heimavelli. Þegar 10 umferðum
er lokið er Drammen efst í deild-
inni með 18 stig. Herkules er í 9.
sæti með 8 stig en Elverum er
næst neðst meö 2 stig.
-GH
•i,
Nike með risasamning
íþróttavöruframleiðandinn
Nike gerði stærsta íþróttavöru-
samning sinn um helgina þegar
það samdi við brasilíska knatt-
spyrnulandsliðið. Samningurinn
er til 10 ára og er að jafnvirði 400
milljón dollara. Samningurinn
gefur Nike rétt til að sjá um
landsleiki fyrir brasilíska lands-
liðið og semja um beinar sjón-
varpsútsendingar af leikjum
landsliðsins.
Þorbjörn Jensson spáir í 1. deildina í handboltanum:
Lélegt gengi Vals hefur
komið mér mest á óvart
„Afturelding er með feikilegan sterkan mannskap og mér fyndist þaö óeðlilegt ef liðinu tækist ekki að hampa
deildarmeistaratitlinum," segir Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari. DV-mynd Brynjar Gauti
Nú, þegar fyrri umferðinni er rétt
að ljúka í 1. deild karla í handknatt-
leik, bendir fátt til annars en að lið
Aftureldingar í Mosfellsbæ hampi
deildarmeistaratitlinum i fyrsta
skipti í sögu félagsins. Afturelding
hefur tekið afgerandi forystu í deild-
inni og handboltasérfræðingar, sem
DVhefur rætt við, telja öruggt að
liðið haldi toppsætinu. Einn þeirra
er Þorbjörn Jensson landsliðsþjálf-
ari en DVfékk hann til að spá í
stöðuna í deUdinni.
Valur og FH koma ekki til
með aö falla
Hvað hefur komið þér mest á
óvart í vetur?
„Það sem hefur eiginlega komið
mér mest á óvart er hversu neðar-
lega Valsmenn eru á stigatöUunni.
Ég bjóst við að þeir yrðu ofar nú
þegar deildin er hálfnuð og það
sama get ég sagt um Gróttuna. Vals-
menn eru kannski ekki búnir að
segja sitt síðasta orð og það hefur
oft verið þannig hjá Val að félagið
hefur spilað betur eftir áramót.
Það gæti alveg farið svo að gömlu
stórveldin, Valur og FH, kæmust
ekki í úrslitakeppnina en ég held að
hvorugt liðið komi til með að falla.
Hefðin á bak við þessi félög er aUt of
sterk til að þau fari niður. Þau hafa
bæði lent í ákveðnu sjokki. Liðin
misstu bæði leikmenn og þau virð-
ast enn vera að jafna sig á þeim
missi.
Gróttan var að standa sig vel í
fyrravetur og því hélt ég að það
væri komin ákveðinn stöðugleiki í
liðið. Gróttumenn voru mjög sterkir
á heimaveUi í fyrra en þeir virðast
hafa dalað núna og ég hef enga skýr-
ingu á því.
Ég hélt því fram fyrir mótið að
liðin myndu reyta stig hvert af öðru
og það hefur að mestu leyti gengið
eftir nema hvað lið Aftureldingar
áhærir.
Liö Aftureldingar viröist
hafa smolliö saman
Gengi Aftureldingar kemur mér
ekki á óvart. Liðið er með feikUega
öflugan mannskap og þetta virðist
hafa smoUið saman hjá þeim. Úr
þessu og það sem liðið hefur verið
að sýna fyndist mér það mjög óeðli-
legt ef það endaði ekki í fyrsta sæti
í deildinni. Síðan kemur að úrslita-
keppninni og þar kemur að allt öðr-
um kapítula. Þá verður ekkert hægt
að stóla á fyrri árangur og þar geta
óvæntir hlutir hæglega gerst.
KA má passa sig aö sofa
ekki á verðinum
Um KA-liðið er það að segja að
það virðist hvUa ákveðin deyfð yfir
liðinu þessa dagana. Ég er hissa á
þeim að sofa á verðinum með það
því þeir eiga gífurlegan sterkan
heimavöU og ég er hræddur um að
ef liðið fer ekki að sýna á sér betri
hliðar en það hefur gert þá muni
fólk mæta í minna mæli í KA-heim-
Uið. Þá hættir þetta að vera þessi
mjög svo sterki heimavöllur og
þessi ógn sem hefur verið fyrir hin
liðin.
Eyjamenn eru spútnikliðiö
Ef á að tala um eitthvert
spútniklið þá held ég að það verði
að nefna Eyjamenn í því sambandi.
Þeir hafa verið að gera meira en
menn bjuggust við en það sem
Eyjaliðið hefur kannski umfram
mörg önnur lið er að það hefur
verið með efnilega stráka í mörg ár
sem eru í dag orðnir góðir. ÍBV er
farið að spila meira „stabílan"
handbolta og þeir hafa að mörgu
leyti komið á óvart með það að þeir
hafa verið að vinna þessi stórlið.
Eyjamenn verða að mínu mati orðn-
ir mjög skólaðir þegar kemur að úr-
slitakeppninni og þá gætu þeir orð-
ið til alls líklegir.
Engin stórbreyting á röö liö-
anna
Ég sé enga stórbreytingu fyrir
mér á röð liðanna eins og hún er
núna. Eins og siglingin hefur verið
á Aftureldingu tel ég það nokkuð
víst að það endi í efsta sætinu.
Haukar, KA og ÍBV og jafnvel Fram
koma tU með berjast um annað sæt-
ið. Stjörnumenn eru óútreiknanleg-
ir. Þeir verða í efri kantinum og
Valur, FH, ÍR, Grótta, Selfoss og HK
munu berjast um að komast í úr-
slitakeppnina og um leið að forðast
faU.
Hlynur og Reynir lofa góöu
Eru einhverjir leikmenn sem
hafa vakið sérstaka athygli hjá þér?
„Mér tlnnst tveir ungir mark-
verðir, Hlynur Jóhannesson úr HK
og Reynir Þór Reynisson úr Fram,
hafa verið að standa sig alveg ágæt-
lega og þeir lofa báðir mjög góðu
upp á framtíðina. Þá get ég nefnt
Eyjastrákana Gunnar Berg Viktors-
son og Arnar Pétursson sem báðir
hafa átt mjög góða leiki innan um.
KA-leikmaðurinn Sævar Árnason
hefur komið skemmtilega á óvart.
Hann er mikUl baráttukarl og lunk-
inn hornamaður. Þá get ég nefnt tvo
stórefnUega stráka, Ragnar Óskars-
son úr ÍR og Þorvarð Tjörva Ólafs-
son sem leikur með Haukum. Það
eru örugglega einhverjir Ueiri og
það segir manni að það kemur aUtaf
maður í manns stað þegar
einhverjir fara.
-GH
J5£
0 4* 5 0 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
Þú þarft aðeins eitt símtal
í Lottósíma DV til að fá nýjustu
tölur í Lottó 5/38, Víkingalottó
ogKínó *
> LOTTÖs/m/
9 0 4 * 5 0 0 0
Verkefni landsliösins fyrir HM:
Tveir leikir gegn Þjóð-
verjum í Þýskalandi
Þorbjörn Jensson hefur í nógu
að snúast þessa dagana en hann er
púsla saman undirbúningi lands-
liðsins fyrir heimsmeistaramótið
sem fram fer í Kumamoto í Japan
17. mai til 1. júní á næsta ári.
Erfitt að losa Dag og Óiaf
„Ég er að vinna í þessum málum
og sjá hvar strákamir sem spUa
erlendis eru lausir. Þeir era mjög
uppteknir, að Júlíusi Jónassyni
undanskUdum, en Svisslendingar
þurfa að taka þátt í undankeppnn-
inni fyrir Evrópumótið. Mér sýnist
að það verði mjög erfltt að losa
Dag og Ólaf því þeir era að spila í
þýsku 1. deildinni," sagði Þorbjöm
í samtali við DV.
Þorbjöm sagði að það væru 90%
líkur á að leikið yrði tvívegis gegn
Þjóðverjum í Þýskalandi 1. og 2.
febrúar. Hann vonaðist tU að geta
teUt fram sínu sterkasta liði í þess-
um leikjum en sennUega gæti fyr-
irliðinn Geir Sveinsson aðeins
leikið annan leikinn.
Leikið gegn Egyptum
„Þá erum við að reyna að koma
fyrh' leikjum gegn Egyptum hér
heima. Þeir hafa að vísu boðið
okkur að koma út í lok aprU en ég
er hræddur um að það hitti á úr-
slitakeppnina hér heima. Það er
verið að reyna að púsla þessu sam-
an eins og hægt er en það er fyrir-
sjáanlegt að við höfðum ekki lang-
an tíma til undirbúnings fyrir
keppnina. Síðasti undirbúningur-
inn verður í þrjár vikur. Það er
sami undirbúningur að aUir aðrir
fá og viö sitjum því bara við sama
borð og öll önnur landslið," sagði
Þorbjöm. -GH