Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1996, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996
Fréttir
Jöfnun á tryggingargjaldi:
Ranglæti á kostnað
landsbyggðarinnar
- segir stjórn Útvegsmannafélags Noröurlands
DV, Akureyri:
Stjóm Útvegsmannafélags Norður-
lands gagnrýnir harðlega áform
stjórnvalda um svonefhda jöfnun á
tryggingargjaldi. Gjaldið er ákveðið
hlutfall af launagreiðslum og hefur
verið mismunandi eftir atvinnu-
greinum. Sem dæmi má nefha að
gjaldið hefur verið 3,55% hjá útgerð
en 6,85% hjá versluninni.
I ályktun stjómar Útvegsmannafé-
lags Norðurlands segir að það sé
rangneftii að tala um jöfnun trygg-
ingargjaldsins því áform stjómvalda
sé ójöfhun en ekki jöfnun. Laun em
mismunandi eftir atvinnugreinum og
í dag greiðir verslun og útgerð næst-
um sömu upphæð á viku í trygging-
argjald, útgerðin þó örlítið hærra.
„Ef báðar greinar verða látnar
greiða sama prósentuhlutfall af laun-
um hækka greiðslur útgerðarinnar
og verða tvöfalt hærri en hjá verslun-
inni sem fengi umtalsverða lækkun á
sínum greiðslum. Það er ójöfnun en
ekki jöfiiun," segir i ályktun Útvegs-
mannafélags Norðurlands.
Þar er einnig bent á að tryggingar-
gjaldið sé notað til að fjármagna At-
vinnuleysistryggingasjóð, Vinnueft-
irlit ríkisins og slysa- og lífeyris-
tryggingar hjá Tryggingastofnun.
Bætur þessara sjóða séu greiddar í
fostum krónutölum. Sjómaður fengi
jafnháar atvinnuleysis- eða slysabæt-
ur og verslunarmaður þrátt fyrir að
útgerðin hefði greitt miklu hærri
fjárhæð inn í sjóðinn en verslunin.
Að miða við prósentuhlutfall sé rangt
og það muni á næstu árum kosta út-
gerðina 645 milljónir króna. Þannig
myndi hækkunin ein og sér jafngilda
því að aflaverðmæti tveggja togara
yrði á hveiju einsta ári hirt í hækk-
unina á meðan aðrar atvinnugreinar
fengju lækkun á tryggingagjaldi.
„Stjómin mótmælir harðlega þessu
ranglæti í garð sjávarútvegs og
landsbyggðar," segir í ályktuninni.
-gk
Haraldur og Victor.
DV-myndir Guöfinnur
Hestaferðir vinsælar
á Ströndum
DV, Hólmavík:
„Þetta var i fyrstu frístundagaman
okkar félaganna á vor- og sumar-
kvöldum en sumarið 1995 stigum við
fyrstu skrefin í starfsemi okkar. Á
liðnu vori, þegar Héraðsnefnd
Strandasýslu stóð fýrir átaki við að
skipa ferðaþjónustunni veglegri sess
en verið hefur hér á þessu svæði, var
leitað til okkar. Var þá ákveðið að
við byðum ferðir á hestum hér um
nágrennið," sagði Haraldur V. Jóns-
son á Hólmavík í samtali við DV.
Haraldur og Victor Örn Victors-
son eru í samstarfl um skipulagðar
ferðir á hestum sem þeir kynntu
fyrst í svonefndu athurðadagatali á
sl. sumri. Samstarfið nefna þeir
Strandahesta.
Jón Örn Haraldsson, sex ára, er
með dugmeiri hestamönnum í stn-
um aldursflokki.
Þeir höfðu yfir að ráða 17 hestum
og voru tíu þeirra alþægir og vel
viðráðanlegir hveijum byrjanda. í
ljós kom að mikil þörf var fyrir
þessa þjónustu, aðallega var boðið
upp á stuttar ferðir um nágrennið,
oftast umhverfis Þiðriksvallarvatn,
sem er ofan Þverárvirkjunar, ferð
sem tekur 2-3 klukkustundir. Farin
var ein 3ja daga ferð. Var þá farið
upp frá hænum Bólstað og norður
yfir Trékyllisheiði og komið niður í
Reykjarfjörð, heimleiðina var farið
meðfram ströndinni.
Haraldur segir að jafnan hafi
nokkuð af fólki verið utan við gerðið
þar sem hestar og menn bjuggust til
kvöldferða. Þetta fólk, sem margt var
ungt að árum, hafi skort þjálfun og
æfingu við að sitja hest en ekki
áhugann. Þeir félagar hafi svo reynt
að koma til móts við það með því að
velja því til handa sérlega þæga
hesta og teyma undir því til að byrja
með. Ekki var annað að sjá og heyra
en að þessi aðstoð hafi mælst vel fyr-
ir.
Þátttakendur voru bæði heimafólk
og lengra aö komið, einnig útlend-
ingar. Nokkuð var um að farið væri
með hópa utan við áður útgefna
áætlun.
„Það með öðru sýnir vel að þessi
þáttur ferðaþjónustunnar, hestaferð-
imar, eiga vinsældum að fagna og
geta átt bjarta framtíð fyrir sér sé
rétt á málum haldið," segir Harald-.
ur.
Næsta sumar hyggjast þeir félagar
verða með svipaða þjónustu í boði og
að auki er í athugun og vilji fyrir að
bjóða upp á ferðir um Bjarnarfjörð
og nágrenni. Þar eru nokkrir val-
möguleikar og þá verður haft aöset-
ur við hótelið á Laugarhóli.
Stjórnun til fyrir-
myndar í Hulduhlíö
DV, Eskifirði:
Mjög jólalegt er nú orðið á hjúkr-
unarheimilinu Hulduhlíð hér á
Eskifirði. Aðventuljósin voru sett
upp í glugga í byrjun desember.
Jóladúkar og servíettur hafa verið
teknar í notkun og afar jólalegt yfir-
bragð er á öllu starfi. Við finnum
glöggt nálægð jólahátíðarinnar og
hér ríkir gott andrúmsloft.
Sá mikli kvenskörungur, Katrín
Guðmundsdóttir, hefur umsjón með
jólafondrinu fyrir okkur eldri borg-
arana og stjómar þar af röggsemi á
einkar elskulegan hátt. Þorri vist-
manna er á aldrinum 70 ára og þar
yfir og aldursforsetinn 94 ára gam-
all Reyðfirðingur.
Hér er sérstaklega vel hugsað um
okkur og stjómun heimilisins til
fyrirmyndar. - Regfna
Djúpivogur:
Þorskur í salt
hjá Ósnesi
DV, Djúpavogi:
Nýtt fyrirtæki hefur hafið starf-
semi sína hér á Djúpavogi, Fisk-
verkunin Ósnes sem er í eigu
Tryggva Gunnlaugssonar og Karls
Sigurgeirssonar.
Um er að ræða saltfiskverkun
sem er í 200 fermetra húsnæði og er
góð viðbót viö annars blómlega
smáfyrirtækjaflóm staðarins.
Hjá Ósnesi landa þrír bátar og er
þorskur einungis unninn hjá fyrir-
tækinu en aðrar fisktegundir eru
sendar á fiskmarkað.
-HEB
Eigendur Ósness, Karl til vinstri og Tryggvi.
DV-mynd Hafdfs
KRAKKAR!
í kvöld kemur
Stekkjarstaur til byggða.
A) UPPA) AM
Kvöld- og helgarnám
hefst þann 6. janúar næstkomandi
Námið tekur 1 1/2 ár. Kennt er
klassískt nudd, slökunarnudd,
íþróttanudd.heildrænt nudd og nudd
við vöðvaspennu.
Nuddkennari:
GUÐMUNDUR RAFN GEIRDAL
Útskriftarheiti:
NUDDFRÆÐINGUR.
Námið er viðurkennt af Félagi
íslenskra nuddfræöinga.
Nánari upplýsingar
eftir hádegi virka daga
f símum 567-8921 og 567-8922..
Gildi nudds:
mýkir vöðva, örvar blóðrás,
slakar á taugum og eykur vellíðan.
/\)uddskóli
(Muðmuiadai*
Nilfisk
Silver
Jubile
5.000,-kr.
afmælis- |j|
afsláttur
jjAfmælis-
íj móilel í
§ lúxus-
}j útfærslu,
’ framleidd i
lilcini
% ára
mgiimælis
Nilfisk-
/FOnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígrœn
eðaitré, í hcesta gceðaflokki og prýða þau nú
mörg hundruð íslensk heimili.
7 0 ára ábyrgð Elátraust
>«, 10 stcerðir, 90 - 370 cm Þarfekki að vökva
té, Stáifótur fylgir t*. íslenskar leiðbeiningar
té. Ekkert barr að ryksuga tr Traustur söluaðili
í» Truflar ekki stofubiómin >*. Skynsamleg fjárfesting
-GF