Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996 Fréttir Skattahækkunin veldur hvelli á Alþingi: Skattar einstaklinga munu hækka en fyrirtækja lækka - hneyksli hvernig að þessu er staðið, segir Steingrimur J. Sigfússon alþingismaður „Einhverjar alvarlegustu upplýs- ingarnar sem koma fram núna eru þær aö við endurskoðaða tekjuá- ætlun ríkissjóðs í desember kemur fram að skattskil fyrirtækja fara lækkandi sem nemur hátt í 800 milljónum króna. Á sama tíma er tekjuskattur einstaklinga orðinn rúmlega fjórum miiljörðum króna meiri á þessu ári en gert var ráð fyrir í áætlunum. Og um leið og þessi staðreynd blasir við er gert ráð fyrir að tekjuskattur fyrir- tækja fari enn lækkandi á næsta ári og verði lægri en fjárlagafrum- varpið gerir ráð fyrir,“ sagði Stein- grímur J. Sigfússon, fúlltrúi í efha- hags- og viðskiptanefnd Alþingis, í samtali við DV. Stjórnarandstaðan gagnrýnir harðlega þá ákvörðun ríkisstjóm- arinnar að hækka ekki persónuaf- sláttinn nú um áramótin og hækka þar með tekjuskatt einstaklinga. Steingrímur segir það mjög sér- kennilegt að sjá tekjuskatt fyrir- tækja og að nokkm leyti virðis- aukaskatt lækka núna á milli mán- aða, miðað við áætlanir, í öllu góð- ærinu og veltunni sem því fylgir. Á sama tíma em einstaklingar að taka á sig mjög aukna skattbyrði með því að persónufrádráttur er ekki færður upp í takt við hækk- andi verðlag eða hækkandi laun og það veldur þyngri skattbyrði. Skattamál valda nú ólgu ó Alþingi og segir Steingrímur J. Sigfusson alþingis- maður það vera hneyksli hvernig ríkisstjórnin stendur að málum. Hann segir að hugsanlega sé verið að búa til skiptimynt fyrir næstu kjarasamninga með þvf að hækka skatta á einstaklinga. Hér er Steingrímur ásamt Lúðvík Bergvins- syni og það er greinilega eitthvað annað en skattamál til umræðu ef marka má þann jólasvip sem lýsir upp ásjónur þeirra. DV-mynd Hilmar Þór „Og yflrlýsing um að hækka ekki persónufrádráttinn um ára- mót, í ljósi þess að laun mimu hækka á næsta ári, þýðir gífurleg- ar hækkanir á tekjuskatti," sagði Steingrímur. Hann segir að með þessu hafi verið gefin sú skýring að menn séu að skapa svigrúm sem geti nýst til ráðstafana vegna breytinga á svo- nefndum jaðarsköttum. En þar sem nefnd sem að því er að vinna hafi ekki skilað niðurstöðum sé ákveðið að gera þetta svona. „Mér þykir þetta afar tortryggi- legt. Bæði er að menn hafa áður notað þá afsökun fyrir tekjuöflun í ríkissjóð að verið væri að safha í sarpinn til að mæta áhrifum vegna minni jaðaráhrifa. Eins hafa menn drepið þessu jaðarskattamáli á dreif og ekkert gert í því árum saman og maður er orðinn mjög tortrygginn. Ég óttast að hér sé enn einu sinni verið að leika sama leikinn. Hugsanlega er þarna verið að búa til skiptimynt fyrir kom- andi kjarasamninga. Ef svo er bendi ég þar með á að láta verka- lýðshreyfínguna semja um kosn- ingaloforð stjórnarflokkanna. Ég tel það hneyksli hvemig að þessu er staðið,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon. -S.dór Tekist á um þýska kvótann Eldur kom í upp í fimm tonna báti á Breiðafirði þegar olíurör gaf sig: Mikil sprenging þegar ég ætlaði að hringja - segir Arnar Þór Ragnarsson, skipstjóri á Snarfara DV, Akureyri: Samherjamenn á Akureyri segja að kæra þýska útgerðarfélagsins Mecklenburger Hochseefischerei til Stjómsýsludómstólsins í Hamborg vegna kvótaúthlutunar til Deutsche Fiscfang Union á þorski i Barents- hafi hafi valdið báöum fyrirtækjun- um miklum skaða. Mecklenburger er í meirihlutaeigu Útgerðarfélags Akureyringa en Samherji á helm- ing í hinu þýska fyrirtækinu. Deutsche Fiscfang Union fékk um 6 þúsund tonna þorskkvóta í Barentshafi á yfirstandandi ári en Mecklenburger um 1200 tonn. For- svarsmenn Samherja og DFFU lýsa furðu sinni á að kærunni hafi ein- ungis veriö beint gegn einu fyrir- tæki og segjast margítrekað hafa reynt aö fá Jakob Bjömsson bæjar- stjóra til að hafa áhrif á málið en Akureyrarbær var meirihlutaeig- andi í ÚA og Mecklenburger þegar kæran var lögð fram og segja Sam- herjamenn hlut bæjaryfirvalda í aö skaða starfsemi þessara fyrirtækja á erlendri grund forkastanlegan. Úrskurður dómstólsins í Ham- borg var á þá leið að úthlutunin skuli standa og kröfu Mecklen- burger um breytingar var hafnað. -gk DV, Hellissandi: „Við vomm að byrja aö draga, Krisiján, skipsfélagi minn, var ný- búinn að taka baujuna og ég var að fara að klæða mig í gallann þegar ég sá að farið var í sundur olíurör við vélina. Ég fór í símann til þess hringja en í því varð mikil sprenging í stýrishúsinu og allt varð alelda. Við sett- um björgunarbátinn út í snarhasti og náðum í neyöarblys sem við skutum á loft. Síðan snerum við okkur að því að reyna að slökkva eldinn og það tókst að mestu,“ segir Amar Þór Ragnars- son en eldur kom upp í um 5 tonna báti sem hann hafði á leigu, ásamt Kristjáni Þóris- syni, á Breiðafirði í gærmorgun. Báturinn, Snarfari SH 226, skemmdist mikið að innan af völd- um elds og sóts, tæki í stýrishúsi em líklega öll ónýt en skrokkurinn heill. Neyðarblys sem þeir félagar skutu á loft sáust víða að og nær- staddir bátar voru snöggir á vettvang. Það var Fanney SH 248 sem dró Snar- fara í land í Ólafs- vik þar sem slökkvi- liðsmenn tóku á móti skipverjum og sáum um að slökkva glóð sem eftir liföi. Amar og Kristján sluppu alveg án meiðsla og héldu strax út aftur til þess að draga lín- una. Þeir vom með um 20 bala í sjó. -ÆÞ/-sv Eldur kom upp í Snarfara, 5 tonna trillu, á Breiðafirði í gærmorgun. Trillan skemmdist nokkuð mikið að innan en skrokkurinn er heill. DV-mynd ÆÞ Forseti ASÍ: Þvert á al- menn við- horf „Ef það er svo að verið sé að auka skattbyrðina þá er það alveg þvert á almenn viðhorf í verkalýðs- hreyfingunni. Ef sú er ætlunin ligg- ur það alveg fyrir að við sættum okkur ekki við aukna skattbyrði. Það er deginum ljósara," segir Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ. í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fýrir því að hækka núverandi skattaprósentu, sem er 41,94%, upp í 42% og á hækkunin að koma sveitarfélögunum til góða vegna yfirtöku grunnskólans. Grétar Þorsteinsson segir að áður en hann hafi fengið gögn um ákvarðanir sem verið sé að taka í ríkisstjóm og á Alþingi geti ekki orðið um formleg viðbrögð af hans hálfu eða ASÍ að ræða. „Almennt séð þá liggur það fyr- ir að hreyfingin er auðvitað and- víg skattahækkunum. í henni hafa einnig verið uppi mjög harð- ar kröfur um leiðréttingar varð- andi jaðarskatta en menn hafa nánast litið svo á að fyrir lægi af hálfú stjórnarflokkanna að þar ætti að færa til betri vegar." -SÁ Akranes: Herdís í Sjálf- stæðisflokknum Missagt var í DV í gær að Herdís Þórðardóttir, systir Guðjóns Þórðar- sonar þjálfara, hefði sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum á Akranesi og nefndum þar á vegum flokksins. Svo er ekki. Herdís er beðin afsök- unar á þessum mistökum fréttarit- ara DV á Akranesi. -DVÓ Stuttar fréttir Ný byggingavísitala Byggingavísitala fyrir janúar 1997 er 218 stig miðað við 100 í júní 1987. Hún hefur hækkað um 0,2% síðustu þijá mánuöi sem jafngildir 0,9% verðbólgu á ári. 424 milljóna hagnaöur Flugleiðir högnuðust nýlega um 424 milljónir króna á því að selja eina Boeing 757 flugvél fé- lagsins. Félagið leigir véltna af hinum nýju eigendum. Tveggja milljarða biölaun Ríkisbankamenn gætu átt rétt til biðlauna verði bankarnir einkavæddh’, enda þótt þeir haldi áfram að vinna í bankanum eftir það. Ein ástæða þessa eru breytt lífeyrisréttindi. Þess vegna vilja bankamenn ríkisbankanna ekki breyta lífeyrissjóði sínum að svo stöddu. RÚV sagði frá. Skattleysismörk lækka Ljóst verður hver skattleysis- mörk verða síðar í dag en líkur eru á að skattleysismörk lækki og skatthlutfail stefnir í 42,99% af tekjum, að sögn Morgunblaðsins. Marel burt úr Reykjavík Marel hefur sótt um lóð í Garðabæ á nýju iðnaðarsvæði við Reykjanesbraut, að sögn Morgun- blaðsins. -SÁ j rödd FOLKSINS 904 1600 Er rétt að skera niður vegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu? San Antonio vann í Houston Sjö leikir fóru fram í NBA-deild- inni í nótt og urðu úrslit þessi: Toronto-Milwaukee........96-93 Charlotte-Chicago .......72-93 Miami-Utah...............87-94 Houston-San Antonio . . . 101-115 Vancouver-Dallas........98-105 LA Clippers-Washington . 93-102 Sacramento-Minnesota . . 112-105 Michael Jordan skoraði 35 stig fyrir Chicago gegn Charleotte í nótt. Liðið hefur unnið 22 leiki og tapað þremur í vetur. Glen Rice skoraði 23 stig fyrir Charlotte. San Antonio er að vakna til lífsins ef marka má útisigurinn gegn Houston. Wilkins gerði 24 stig fyrir San Antonio og David Robinson 20 og tók níu fráköst. Drexler og Maloney skoruðu 19 stig hvor fyrir Houston. Karl Malone og félagar i Utah geröu góða ferð til Miami. Malone gerði 35 stig og tók 16 fráköst og er 11. leikmaðurinn í NBA sem fer yflr 20 þúsund stig og hiröa yfir 10 þúsund fráköst. Toronto vann sinn annan sigur í vetur gegn Miwaukee. Damon Stoudamire skoraði 19 stig fyrir Toronto. Chris Webber og Juwan Howard gerðu hvor sín 25 stig fyrir Washington gegn Clippers og var þetta þriðji sigurinn í röð hjá liðinu. Chris Gatling var með 25 stig fyrir Dailas í jöfnum leik gegn Voncouver. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.