Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Blaðsíða 36
Verta víðbúin(n) vínningi KIN FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Helgarblað DV: Biskupinn í þessu næstsíðasta blaði fyrir jól er helgarviðtalið við herra Sigur- björn Einarsson biskup en 15 ár eru síðan hann lét af störfum. Sig- urbjöm segir frá lífi sínu og ræðir trúna, kirkjuna og jólin. I blaðinu er einnig fjöldi viðtala vegna jólahátíðarinnar, meðal annars við nokkra þekkta einstakl- inga. Þá eru svipmyndir frá rebba- veislunni á Patreksfírði um siðustu helgi, erlend fréttaskýring, ítarleg menningarumfjöllun, íþróttir unglinga og margt fleira. -GHS Sjö teknir eftir kóka- ínfund Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík lagði í gær hald á nokkur grömm af amfetamíni og handtók sjö manns eftir húsleit. Grunur manna beindist að því að fíkniefna væri neytt í húsi í miðborginni. Alls fundust tæp sex grömm af kókaíni, e-töflur og gramm af amfetamíni. Eftir yfirheyrslur var gerð húsleit hjá einum mannanna og þar fund- /* ust rúm tíu grömm af amfetamíni til viðbótar. Málið telst upplýst. -sv Fangi slapp af Sogni Fangi slapp út af Réttargeðdeild- inni á Sogni rétt fyrir klukkan sjö í morgun. Lögreglan á Selfossi og í Reykjavík leituðu að manninum rétt fyrir klukkan níu í morgun og bentu spor eftir hann til þess að hann væri kominn til Hveragerðis. Engar upplýsingar fengust í morg- un um það hvernig maðurinn slapp -rát en að sögn lögreglu er hann ekki talinn hættulegur. -sv L O K I -v-------- Miklar sviptingar og órói á lyfsölumarkaðnum í kjölfar breyttra viðskiptahátta: Eitt apótek í sölu önnur í biðstöðu - rekstrargrundvöllur Reykjavíkurapóteks kannaður og þriðja apótekið metið Eitt rótgrónasta og elsta apótek landsins, Laugavegsapótek, er komið í sölu, ný stjóm Reykjavík- urapóteks er að kanna möguleika í rekstri þess í Ijósi breytinga á lyfjamarkaðnum og þriðja apótek- ið í Reykjavík hefur verið „metið“ en er þó ekki til sölu. Jón Guð- mundsson, formaður félags fast- eignasala, segir að miklar svipt- ingar séu nú orönar á lyfjasölu- markaðnum miðað við þá rót- grónu hefð sem ríkt hefur í lyfsölu hér á landi. „Ég veit að margir apótekarar era að komast á aldur og það eru alls konar sviptingar og miklar breytingar í loftinu varðandi lyfjasölu og lyfjaverslun," sagði Jón við DV. Ingjaldur Hannibalsson, stjóm- arformaður Reykjavíkurapóteks, sem er í eigu Háskóla íslands, seg- ir að verið sé að kanna stöðu mála með rekstur apóteksins. „Það hafa orðið breytingar á ís- lenskum lyfjamarkaði og ný stjórn apóteksins er að skoða alla möguleika í þessum rekstri," sagði Ingjaldur í samtali við DV. „Ég þori kannski ekki að svara því afgerandi með jái eða neii en margur er að skoða sín mál,“ sagði Ingolf Petersen, formaður Apótekarafélags íslands, við DV i gær. „Við getum ekki haldið okkar vörum fram með pallatilboðum," sagði Ingolf. Hann sagði jafnframt að hækkaður hlutur sjúklinga í lyflaverði, lækkun álagningar og miðstýrð verðlagsákvörðun yfir- valda, þar sem ekki væri hugsað um heildarmynd, væri einnig ástæðan fyrir þeim óróa sem nú ríkti á lyfjamarkaðnum. Jón Guðmundsson sagði aö hús- næði Laugavegsapóteks væri til sölu á 110 milljónir króna - versl- unarhæðin og þrjár hæðir þar fyr- ir ofan auk kjallara. Jón sagði að apótekið sjálft væri síðan til sölu aukalega en hann vildi ekki gefa upp kaupverð þess - það væri háð tilboðum hvemig það væri af- greitt. Þeir sem DV hefur rætt við um breytingar á lyfjasölu í landinu voru sammála um að þróun sem orðið hefur með því að koma á fót apótekum í stórmörkuðum, versl- unin Lyfja og fleiri aðilar, sem vissulega eru famir að selja lyf á lægra verði en verið hefur, sé ástæða fyrir breytingum á lyfja- markaðnum. -Ótt Völundur Snær Völundarson matreiðslumaður verður með sýningu á klakalistaverkum á Laugaveginum á Þorláks- messu. Völundur segist vera að leika sér að þessum kúnstum með ísinn og hann segir sýninguna á Laugaveginum geta orðið að mjög skemmtilegri uppákomu ef veðriö verður hagstætt. Stefnt er aö því að hafa sýninguna fyrir fram- an Dressmann og að hún standi frá 16-23. DV-mynd S Þingmenn voru orðnir fremur rislág- ir undir morgun. DV-mynd S Alþingi: Afgreiðslu fjárlaga lýkur I dag Þriðja og síðasta umræða um fjárlög næsta árs hefst á Alþingi í dag. Stefnt er að því að þingið ljúki störfum í kvöld en þó gæti verið að atkvæðagreiðsla um fjárlögin færi ekki fram fyrr en á morgun. Þingfundir stóðu í alla nótt. Á þessum næturfundi var meðal ann- ars frumvarpið inn ráðstafanir í rík- isfjármálum afgreitt. Líka umdeilt frumvarp um að einkavæða raf- magnseftirlitið í landinu, sem sam- tök rafverktaka um allt land hafa lagst gegn. -S.dór /n/ oq qrrfj/tí/'kl kaniaiu)/ ár n/cr) finkk ijijár yidskiplin á árinn cc/n cr rr)) i/án. ||| -é-C

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.