Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Blaðsíða 22
34
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
Fréttir
Tökum lokið á heimildarmynd Elínar Hirst:
Þýsku hjónin
brenndu leyniskjöl
- viðtöl við ekkjur og skyldmenni Þjóðverjanna
„Viö sviðsettum og tókum í gær
upp tvö atriði frá hernámsnóttinni
frægu, 10. maí 1944, atriði sem ger-
ast i og við þýska sendiráðið, Tún-
götu 18. Þar var húsráðandi dr.
Werner Gerlach, aðalræðismaður
Þjóðverja og hátt skrifaður nasisti,"
segir sjónvarpskonan Elín Hirst
' sem í fyrradag lauk að mestu við
tökur á heimildarmynd sinni, Fang-
arnir á Mön, sem fjallar um hand-
tökur þýskra manna sem búsettir
voru á íslandi þegar Bretar her-
námu landið. Margir þeirra áttu ís-
lenskar eiginkonur og fjölskyldur.
Reiknað er með að vinnslu myndar-
innar ljúki endanlega í janúar.
Elín segir að annars vegar hafi
verið myndaður atburður sem segir
frá því að ibúi við Túngötu tilkynn-
ir um reyk í þýska ræðismannsbú-
staðnum. Maðurinn hélt að húsið
væri að brenna en í raun voru
þýsku hjónin aðeins að brenna þýsk
leyniskjöl rétt áður en Bretarnir
knúðu dyra til að handtaka þau.
Hitt atriðið segir frá manni með
hatt og í frakka sem kom hlaupandi
til þess að gera ræðismanninum
viðvart um Bretana. Þessi maður
var Wemer Schulze- Stentrop, veð-
urfræðingur og náinn samstarfs-
maður Gerlachs.
Skömmu eftir áðurnefnda atburði
gengu Bretamir á land og marsér-
uðu vitaskuld beint upp í Túngötu
til þess að handtaka helstu menn
Þjóðverja. Næstu vikiu1 og mánuði,
alveg fram í júlí, handtóku þeir síð-
an smátt og smátt nær alla Þjóð-
veija á íslandi og fluttu þá burt.
„Ég fór til eyjarinnar Manar á Ir-
landshafi en þangað vom flestir ís-
lensku þýsku fangarnir fluttir og ég
hef leitað uppi ekkjur og skyld-
menni þeirra manna. Síðan var ég
svo heppin að finna einn þessara
manna í Þýskalandi og ég talaði við
hann,“ segir Elin, en Ríkissjónvarp-
ið hefur fest kaup á myndinni til
sýninga hér á landi. Meðframleið-
andi er Frostfilm. -sv
iólagjöfin
til íslendinga
eriendis
• * -’áskríft aö'
daglegum fréttum •
frá íslandi
Faxfréttir úr fjölmiölum eru fréttir frá
íslandi og færa lesandanum á stuttu og
aögengilegu formi þær fréttir sem eru
efst á baugi hverju sinni. Faxfréttir koma
út 5 daga vikunnar á tveim síóum,
mánudaga til föstudaga, kl. 13 aö
íslenskum tima.
Dreifileiöir.
• Fax
• Tölvupóstur
FAX
'iÐLUM
Þverholt 11. Sími 550 5000. Fax 550 5999.
Netfang: faxfrettir@ff.is
Reyk leggur frá ræðismannsbústaðnum þar sem þýsku hjónin brenndu mikilvæg skjöl áður en Bretarnir komu. Á
innfelldu myndinni má sjá að það var heldur kalt á tökustað í Reykjavík í fyrradag og Elín Hirst hefur því klætt sig
vel. Úlfur Hróbjartsson mundar kvikmyndavélina.
Breiðdælingar komu saman á Bakkanum á Breiðdalsvík til að kveikja á jólatrénu. Grýla mætti á staðinn með nokkra
af sonum símum, jólasveinunum. Heimilisdýrið, jólakötturinn, var þarna Ifka og hafði greinilega elt eigendur sína til
byggða. Þessir góðu gestir sungu og gengu í kringum jólatréð með heimafólkinu, stóru og smáu. DV-mynd Hl
Kristjana tekur lagið fyrir áheyrendur.
DV-mynd Kristján
KÁ á Selfossi:
Umferðar-
truflun
vegna
jóla-
sveina
DV, Selfossi:
Sunnlendingar fjölmenntu í
Vöruhús KÁ á Selfoss um helg-
ina og þar voru kunnir jóla-
sveinar á ferð sem skemmtu
fólki. Kvartett Kristjönu Stefáns
spilaði og söng lög af nýrri jóla-
plötu sinni og þá var troðið út
úr dyrum. Öll bílastæði fylltust
og elstu menn - og þeir eru
minnugir á Suðurlandi - muna
ekki eftir annarri eins umferð
og fólksmergð og þama var.
-Kr.Ein.