Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996 Fréttir_____________________________________________________________________________________ pv Jólin leggjast misvel í launafólk: Fjárhagslega eru jólin ekki tilhlökkunarefni - segir Ólafur B. Baldursson, fullvinnandi á háum Dagsbrúnartaxta „Nú þegar Eva er aö Ijúka námi erum við strax byrjuð að líta í kringum okkur eftir störfum erlend- is. Rjör fullvinnandi fólks hér eru þannig að þeir sem eiga þess kost aö fara úr landi, þeir munu gera það ef ekkert breytist. Fjárhagslega séð eru jólin ekki tilhlökkunarefni," segir Ólafur B. Baldursson, bensín- afgreiðslumaður og vaktformaður á bensínstöðinni við Skógarsel. Ólafur er fjölskyldumaður og fyr- irvinna heimilisins, en kona hans, Eva Sigurðardóttir, er aö ljúka námi sem röntgentæknir og sonur þeirra er á leikskólaaldri. „Við rek- um heimilið á núlli við venjulegar aðstæður, eftir að búið er aö greiöa afborganir af íbúðinni og allan kostnað. Ef eitthvað heimilistæki eða bíllinn bilar, þá veröur maður að fara á stúfana og leita að ein- hveijum til að gera við á ódýran hátt. Það verður að taka á þvi hverju sinni," segir Ólafur. Ólafur og Eva vilja ekki segja að þeim finnist jólin nálgast eins og óvættur sem eyðileggi fjárhag heim- ilisins en fjárhagslega séu jólin ekki tilhlökkunarefhi og gæta verði strangs aðhalds til að fjármál heim- ilisins fari hreinlega ekki úr skorð- um. húsnæðis og dagheimilis fyrir böm og byijunarárslaun talsvert á þriðju milljón íslenskra króna eða yfir helmingi meira en hún fær í byrjunarlaun hér heima,“ segir Ólafur. Hann segir að þegar kjör hins al- menna verka- manns í Noregi og Danmörku séu, þegar allt er tekið með í reikninginn, 30-40% betri en hér í dag, þá hijóti fólksflótti að h£dda áfram og færast í aukana. „Eftir að námi Evu er lokið sjá þau afkomu sinni betur borgið ann- ars staðar en á ís- landi í nánustu framtíð. „Við erum strax byij- uð að kíkja í kringum okkur. Við höfum fengið upplýsingar t.d. frá Noregi og þar eru spítalar sem bjóða henni góða starfs- að- stöðu, að- stoð við að afla Eva Siguröardóttir og Ólafur B. Baldursson með son sinn, Emil Örn, á milli sín. DV-mynd ÞÖK Þau Ólafur og Eva eiga litla tveggja herbergja íbúð sem þau festu kaup á eftir að hafa verið i Bú- setakerfinu, sem reyndist þeim dýr- ara en vonir stóðu til í upphafí. Ólafur segir það ganga upp og ofan að lifa af launum hans, sem þó eru samkvæmt hæsta taxta kassamanna á bensínstöövum, sem er um 111 þúsund á mánuði. Eva hefur fengið námslán, en auk þess hefur Ólafur haft einhverjar tekjur af ýmsum fé- lagsmálastörfum. „Ég veit ekki hvort það er hægt að benda á einhvem einn sökudólg í þeim vanda sem við eigum og er afleiðing láglaunastefnunnar sem hér ríkir. En þegar horft er á lægstu launataxtana sem fólk er á í dag, taxta sem gefur 49 þúsund króna mánaðarlaun, þá er það mín skoðun að verkalýðsforystan hafi ekki stað- ið sig í stykkinu. „Hvemig stendur á hinni efnalegu velgengni i Dan- mörku? Þar er rífandi kaupmáttur. Hvemig er hann byggður upp hjá þeim sem engar auðlindir hafa á við okkur? Þeir eiga enga orku, engan fisk. Hvað hafa Danir til að bera sem við höfum ekki? Er það hyggju- vit?“ spyr Ólafur B. Baldursson. -SÁ Trúnaðarmaður verkamanna hjá borginni: Hart þegar full- vinnandi menn eru varla matvinnungar - segir Björgvin Þorvarðarson „Það er mjög slæmt og óeölilegt að fullvinnandi menn skuli ekki vera betur settir heldur þvert á móti jafiivel verr en þeir sem era á félagslega kerfinu," segir Björg- vin Þorvarðarson, trúnaðarmaö- ur verkamanna í hverfisstöð gatnamálastjórans í Reykjavik við Flókagötu. Björgvin segir að vinna verka- manna hjá borginni hafi mjög dregist saman og yfirvinna sé nánast engin orðin, sem var mjög veigamikill þáttur í kjörum verkamanna og almenns launa- fólks yfirleitt. Þegar menn verði aö lifa af dagvinnunni einni sam- an þá sé fjárhagsgrundvöllur fjöl- skyldnanna einfaldlega við það aö hrynja. Það sé því hárrétt sem starfskona Mæðrastyrksnefndar sagði í sjónvarpsviðtali í vikunni að stór hluti þess fólks sem leitar aðstoðar nefndarinnar fyrir jólin sé fullfrískt og vinnandi fólk sem er einfaldlega svo illa launað að það hefur ekki efni á að halda jól. „Ég er sjálfur ekki fjölskyldu- maður en á fullt í fangi meö að láta enda ná saman. Hjá félögum mínum, sem eiga börn á fram- færi, er það nánast ómögulegt og ég get varla sett mig í spor þeirra hvemig þeir fara að. Þegár full- frískir og fullvinnandi menn ná varla eða ekki endum saman um sérhver mánaðamót þá er eitt- hvaö meira en lítið að og það gef- ur augaleið að ekki er um að ræða að þeir geti gefið jólagjafir, gert sér og sínum mikinn daga- mun um jól eöa haldið jólin hátíð- leg nema að eiga góða að, foreldra eða ættingja," segir Björgvin. Sjálfur kveðst Björgvin reka sig á núllinu með því að veita sér fátt utan brýnustu þarfa. Útborguð mánaöarlaun hans em um 80 þús- und og eftir að hafa greitt af íbúð sinni i félagslega kerfinu, keypt lífsnauðsynjar og greitt afborgan- ir af bílnum sé ekkert eftir. -SÁ Lækkandi bætur: Allar skerðingar- smugur notaðar - segir Hjálmfríður Þórðardóttir, fulltrúi hjá Dagsbrún „Allar bætur hafa stórlækkað undanfarin ár og tilhneigingin er sú að ef einhvers staðar er smuga til að skerða þær enn frekar er hún not- uö. - Þú skalt ekki fá meira en 53 þúsund á mánuði - em þau skilaboð sem öryrkjar og atvinnulaust fólk fá,“ segir Hjálmfriður Þórðardóttir, fulltrúi á skrifstofu Dagsbrúnar, í samtali við DV. Hjálmfríður hefur mjög mikla þekkingu á kjörum láglaunafólks, ekki síst þess sem fariö hefur hall- oka af ýmsum sökum og orðið ör- yrkjar og óvinnufært vegna slysa eða sjúkdóma. Fjárútlát Reykjavíkurborgar vegna fjárhagsaðstoöar við fátækari íbúa borgarinnar hafa á hinn bóg- inn vaxið mjög undanfarinn áratug. Árið 1986 námu þau 96,3 miiljónum króna en árið 1995 vom þau hins vegar komin í 682,5 milljónir og höfðu því rúmlega áttfaldast. Samkvæmt reglum félagsmála- stofnunar Reykjavíkurborgar, sem settar voru í maí 1995, er félagsleg aðstoð borgarinnar til þeirra sem sækja um viðbótarframlag við ör- orku- eða atvinnuleysisbætur skert á móti þeim jólabónusi sem Trygg- ingastofnun og Atvinnuleysistrygg- ingasjóður greiða í desembermán- uði en jólabónusinn er hluti kjara- samninga á vinnumarkaðnum. Fjárhagsaðstoð — Félagsmálastofnunar Reykjavíkur — 200 ÍOO — '92 '93 '94 '95 0 - ----- lissa Guðrún Ögmundsdóttir, formað- ur félagsmálaráðs Reykjavíkur, sagði í samtali við DV fyrr í vik- unni að reglur borgarinnar geröu einungis ráð fyrir því að tryggja lág- tekjufólki í borginni lágmarksfram- færslueyri upp að tiltekinni upp- hæð sem er 56 þúsund krónur. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.