Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Side 6
6
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
Neytendur
Öryggismerkingar á leikfongum:
Strangar reglur i gildi
Þau eru eflaust mörg börnin sem
hlakka til að fá harða pakka um jól-
in, fulla af nýjum leikfóngum. En
foreldrar og aðrir, sem vilja gleðja
böm með leikfóngum, ættu að huga
að hvort leikfóngin, sem gefin eru af
góðum hug, uppfylli þá öryggisstaðla
sem settir eru bömum til vemdar.
Eðlileg hegðun barna
Til er reglugerð um öryggi leik-
fanga og hættulegar eftirlíkingar og
í þriðju og fjórðu grein þar segir
m.a.: „Óheimilt er að setja leikfóng á
markað hér á landi ef hætta er á að
þau geti stofnað öryggi eða heilsu
notenda og annarra í voða þegar þau
eru notuð eins og til er ætlast eða
fyrirsjáanlegt er miðað við eðlilega
hegðun barna.“ Sömuleiðis segir:
„Eigi er heimilt að setja leikfong á
markað nema þau séu annað hvort
hönnuð og framleidd í samræmi við
samhæfða evrópska staðla eða hönn-
uð og framleidd í samræmi við ein-
tak sem hefur hlotið gerðarviður-
kenningu tilnefnds aðila (prófunar-
Það er vissulega margt spennandi að leika sér við þegar maður er á þess-
um aldri en foreldrar og aðrir forráðamenn ættu að gæta sín á að fyllstu ör-
yggiskröfum sé fylgt þegar leikföng eru keypt.
stofu) innan Evrópska efnahags-
svæðisins. Framleiðandi skal lýsa
yfir að leikfang uppfylli allar kröfur
reglugerðarinnar með samræmisyf-
irlýsingu.“
Merkingar á íslensku
Leikfong ber að auðkenna með
nafni eða merki framleiðanda
ásamt heimilisfangi eða nafni og
merki ábyrgðaraðila með heimilis-
fangi. Á leikfanginu eða notkunar-
leiðbeiningum sem því fylgir skal
varað við þeirri hættu sem fylgir
tilteknum leikföngum ásamt upp-
lýsingum um hvemig skuli brugð-
ist við þeirri hættu. Það ber að at-
huga að þessar viðvaranir skulu
vera á íslensku.
Eingöngu er heimilt að setja á
markað leikföng sem merkt eru
með CE- merki.
Hvert skal leita?
Það er Aðalskoðun hf„ Hjalla-
hrauni 4 í Hafnarfirði, sem annast
eftirliti í samráði við stjómvöld.
Þar er tekið við ábendingum um
leikfóng sem almenningur, seljend-
ur eða aðrir telja ekki uppfylla
kröfur reglugerðar um leikfong.
Aðalskoðun sendir síðan niður-
stöður allra skoðana til Löggilding-
arstofunnar sem tekur nauðsynleg-
ar ákvarðanir í kjölfar niðurstöðu
skoðunar, hvort sem um er að
ræða sölubann og/eða innköllun.
-ggá
Börnin og brunaslysin
í desembermánuði ár hvert verða
mörg böm fyrir því óláni að brenna
sig og fá slæm brunasár. Slysin
verða m.a. af völdum eldfæra, log-
andi kerta og kertaskreytinga,
heitra bakarofna, hitaveituvatns og
flugelda. Þessi slys væri hægt að
koma í veg fyrir með aukinni aö-
gæslu. Framkvæmdastjóm átaksins
„Öryggi bama, okkar ábyrgð" vill
af þessu tilefhi koma á framfæri við
foreldra og alla þá sem umgangast
böm eftirfarandi ábendingum:
Kerti krefjast varúðar
Gætið ávallt fyllstu varúðar ná-
lægt kertum og kertaskreytingum.
Hafið kertin ekki á lágum borðum
þar sem börnin ná auðveldlega til.
Eldspýtur og kveikjarar bjóða hætt-
unni heim. Geymið því slíkt þar
sem börnin geta ekki náð til. Aldrei
ætti að skilja bömin ein eftir í her-
bergi þar sem kerti logar. Munið að
jólaskrautið er mjög eldfímt og eld-
urinn breiðist fljótt út.
Jólabaksturinn
Ef bömin taka þátt í jólabakstrin-
um verður að segja þeim frá hætt-
um, m.a. að heitir ofnar og bökun-
arplötur em varhugaverðar.
Þegar þrifið er
Sjóðandi heitt vatn til hreingem-
inga er mjög hættulegt. Lítið bam á
skriðaldri getur t.d. náð til skúring-
arfótunnar sem stendur á gólfmu og
velt henni um koll. Besta vömin er
að hafa vatnið einungis volgt og
hafa börnin á öruggum stað meðan
verið er að þrífa.
Skrautið freistar
Passið smábömin nærri jólaserí-
um. Skrautlegu perumar freista og
hugsanlegt er að þau bíti í þær.
Gamlar og úr sér gengnar jólaseríur
geta verið hættulegar og því ráðlegt
að taka þær úr umferð.
Varist eldfim efni
Forðast skal að hafa bömin í eld-
fimum fatnaði sem getur fuðrað
upp. Föt úr gerviefni era eldfim og
brenna auðveldlega. Bómullar- og
ullarföt brenna ekki eins hratt.
Flugeldar
Þegar áramótin nálgast þarf að
gæta mikillar varúðar í tengslum
við flugelda. Kynnið ykkur vel allar
leiðbeiningar sem fylgja flugeldun-
um og notið hlíföarbúnað sem mælt
er með, s.s. hlífðargleraugu og
hanska. Fræðið börnin vandlega
um hættuna sem fylgir óvarlegri
meðferð flugelda og blysa. Hafið eft-
irlit með börnunum þegar verið er
að skjóta upp
flugeldum.
Gott er að
hafa flösku
með vatni við
höndina til
kælingar þar
sem verið er
að skjóta upp
flugeldum.
Skyndihjálp
vegna
brunaslysa
1. Komið í veg fyrir frekari
branaáverka, t.d. með því að fjar-
lægja strax fot sem glóð er í. Ef eld-
ur kemst í fot leggið þá viðkomandi
á jörðina og veltið honum rólega
þar til eldurinn kafnar.
2. Kælið brennda svæðið með
vatni, 15-20° heitu, í u.þ.b. hálfa
klukkustund, eða þar til sviði er
horfinn.
3. Búið um sárið með hreinum
umbúðum.
4. Leitið læknishjálpar við alvar-
legum branasárum.
Frosin paprika
íslenskt meðlæti hf. hefur sett
á markað blandaða frosna pa-
priku í 300 g neytendapakkning-
um. Hér er um að ræða papriku-
strimla í þremur litum, gula,
rauöa og græna. Paprikan er
snöggsoðin og síðan fryst sem
tryggir ferskleika. Blönduð
paprika er kærkomin kjarabót
fyrir neytendur því öllum era
kunnar þær miklu sveiflur á
verði ferskrar papriku hér á
landi.
Vísitala neyslu-
verðs
Hagstofa íslands hefur tekið
saman vísitölu neysluverðs í
byijun desmeber. Grænmeti og
ávextir lækkuðu um rúmlega
19% sem lækkaði vísitölu neyslu-
verðs um 0,3%. Síðastliðna 12
mánuði hefur vísitala neyslu-
verðs hækkað um 2,2%. Undan-
farna þijá mánuði hefur vísitala
neysluverðs lækkað um 0,3% sem
jafhgildir 1,3% verðhjöðnun á ári.
Merkingarkönnun
Eiturefnasvið Hollustuverndar
ríkisins gerði könnun á merking-
um þvottaefna fyrir þvottavélar
og fór hún fram sumarið og
haustið 1995. Sjö af sextán vöru-
tegundum vora eingöngu með er-
lendar merkingar og fimm voru
ýmist merktar á íslensku eða er-
lendu máli. Einungis íjórar teg-
undir vora alltaf rétt merktar.
Rúmlega helmingur vörategunda
var í plastbrúsum með öryggis-
loki. Farið var á stað á haustmán-
uðum 1996 og kannað hvort breyt-
ing hefði orðið. í heild reyndist
ástandið svipað en nokkrar teg-
undir voru horfnar af markaði.
Þess í stað voru komnar fram
nýjar tegundir sem einungis vora
merktar á erlendu máli.
AAAAAAAAAAAAAAAAAAA
Láttu senda þér heim
:
í 1
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
Komdu og sœktu
12" pizza m. 3 áleggsteg.
kr.1000.“ aukaálegg kr. 100
16" pizza m. 3 áleggsteg.
kr.1200.- aukaálegg kr. 150
18" pizza m.2áleggsteg.
568 4848 ^
Dalbraut 1
kr.1200,- aukaáleggkr. 200 'FjÖlSkyIdUtílbOð
12" pizza m. 2 áleggsteg.
Kr. 690.-
16" pizza m. 2 áleggsteg.
Kr.790.-
18" pizza m.2áleggsteg.
Kr. 890.-
18"pizza m. 3 áleggsteg.
12" hvítlauksbrauð,
hvítlauksolía &
21 Coke
Kr.1790.-
^oto-oiir*
vvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvv