Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
Utlönd
DV
Kveðst saklaus
af njósnum
fyrir Rússa
Earl Edwin Pitts, útsendari
Bandarísku alríkislögreglunnar,
FBI, sem handtekinn var á mið-
vikudaginn fyrir að hafa selt
Rússum ríkisleyndarmál, heldur
fram sakleysi sínu.
Alríkislögreglan fullyröir að
Pitts hafi byrjað njósnir fyrir
fyrrum Sovétríkin 1987 þegar
hann starfaði hjá deild hennar í
New York sem bai' ábyrgð á hand-
tökum rússneskra njósnara.
Forstjóri FBI, Louis Freeh, seg-
ir rússnesku leyniþjónustuna
hafa eflt tilraunir sínar til að
njósna um Bandaríkin og þá sér-
staklega um efnahagsmál. Freeh
fullyrðir að leyniþjónustur að
minnsta kosti 23 landa njósni um
Bandaríkin og uppbyggingu efna-
hagsmála. Hann segir hins vegar
gagnnjósnir Bandarikjanna hafa
aukist. Reuter
Engin lausn í sjónmáli fyrir 400 gísla skæruliöa í Perú:
Sofa enn á gólfinu
í fínu sparifötunum
Engin lausn er í sjónmáli fyrir
um 400 gísla sem vinstrisinnaðir
skæruliðar hafa haldið í bústað jap-
anska sendiherrans í Lima, höfuð-
borg Perú, frá því á þriðjudags-
kvöld. Skæruliðamir hafa hótað að
drepa gíslana ef stjórnvöld ganga
ekki að kröfum þeirra um að láta
allt að 500 félaga þeirra lausa úr
fangelsi.
Gíslarnir, sem eru enn í sparifot-
unum sem þeir klæddust fyrir hana-
Blaðberar
óskast
Röskir blaðberar óskar á Stór-Reykjavíkursvæðinu
sem allra fyrst.
Upplýsingar í síma 800 70 80. Ingibjörg eða Júlía.
JOagurÁIImtmtt
stélsveislu sendiherrans á þriðju-
dag, hafa þurft að sofa á gólfinu. Þá
eru matar- og vatnsbirgðir þeirra af
skomum skammti.
Sérfræðingar segja að aldrei fyrr
hafi gíslatökumenn skæruliða kom-
ist í jafn feitt og hér þar sem marg-
ir fangar þeirra séu hátt settir dipló-
matar, erlendir kaupsýslumenn og
menn úr æðstu embættum perúska
ríkisins.
Á götunni fyrir utan sendiherra-
bústaðinn stóðu tugir Perúbúa með
kerti í alla nótt og íbúar í grennd-
inni drógu þjóðfánann að hún. Þá
eru hundmð lögregluþjóna, ættingj-
ar gíslanna og blaðamenn fyrir utan
bústaðinn og biða eftir næsta skrefi
skæruliðanna tuttugu úr hreyfing-
unni Tupac Amaru (MRTA).
„Það em 24 milljónir Perúbúa
sem munu ekki líða að lifi gíslanna
verði ógnað. Við fordæmum þetta
mannrán en við vonumst jafnframt
eftir að lausn finnist," sagði þing-
maðurinn Manuel Lajo, einn þeirra
sem skipulagði varðstöðuna við
sendiherrabústaðinn.
Alberto Fujimori, forseti Perú,
hefur ekki komist í hann krappari
síðan hann tók við embætti. Hann
lofaði því í bréfi til Bills Clintons
FRIÐARIJOS
VERÐA SELD VIÐ EFTIRTALDA KIRKJUGARÐA
UM JÖL OG ÁRAMÓT:
Gufunes- og Fossvogskirkjugarður:
23. des. kl. 13-17* 24. des. kl. 9-17*31. des. kl. 13-17
Ki rkj ugarður Akureyrar:
24. des. kl. 10-17 • 31. des. kl. 10-17
Kirkjugarður Akraness:
21.-23. des. kl. 13-16 • 24. des. kl. 12-15
Ki rkjugarðu r Hafn arí j arðar:
24. des. kl. 10-17
<SlT hjálparstofnun
Vnr} kirkjunnar
Itlnn! Ii!61
- meö þlnni lijálp
Bandaríkjaforseta að öryggi gisl-
anna yrði haft að leiðarljósi í leit að
lausn málsins.
Fujimori hefur haldið þrjá neyð-
arfundi með ríkisstjóm sinni síðan
á þriðjudag en hann hefur ekki enn
tjáð sig opinberlega um gíslatökuna.
Skæruliðar höfðu gefið honum frest
til miðvikudags til að taka sjálfur
þátt í viðræðunum við þá en forset-
inn lét frestinn líða án þess að að-
hafast nokkuð.
Fujimori ræddi við Yukihiko
Ikeda, utanríkisráðherra Japans, í
eina klukkustund í gærkvöld en
ráðherrann kom til Perú fyrr um
daginn til að aðstoða við lausn gísla-
tökumálsins. Hvorugur sagði orð
þegar þeir komu af fundinum í
stjómarráðinu í miðborg Lima.
Talsmaður japönsku ríkisstjóm-
arinnar sagði í gær að ágreiningur
væri milli stjóma Japans og Perú
um hvemig bæri að reyna að leysa
gíslamálið og það tefði fyrir því að
lausn fyndist. Hann fór ekki nánar
út í hver ágreiningurinn væri.
Reuter
Þessi Perúmaður hrópaði „friöur“ um leið og kunningi hans dró perúska
þjóðfánann að hún á byggingu nærri japanska sendiherrabústaðnum í Lima.
Sjónvarpsstöðvar í Perú báðu landsmenn um að draga fánann að hún til að
sýna gíslunum í sendiherrabústaðnum samstöðu. Símamynd Reuter
Lífstíðarfangelsi fyrir
að kviksetja barn sitt
Tuttugu og þriggja ára Banda-
ríkjamaður í Tennessee, Billy
Stockwell, var í gær dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi fyrir að hafa kviksett
nýfætt barn sitt.
Saksóknarar segja morðið hafa
verið framið í maí 1995, rétt eftir að
unnusta Stockwells, Lisa Murphy,
hafði fætt barnið í hrörlegu hjól-
hýsi.
Murphy, sem nú er 19 ára, bar
fyrir rétti í gær að Stockwell hefði
tekið barnið úr fangi hennar. Hann
hefði síðan grafið grátandi bamið í
holu á skítugu hlöðugólfi. Murphy,
sem siðan hefur gifst Stockwell, er
nú barnshafandi á ný. Hún er sökuð
um að bera einnig ábyrgð á morð-
inu. Réttað verður í máli hennar
síðar. Reuter
Semja um eftirlit með
veiðum úr geimnum
Sjávarútvegsráðherrar Evrópu-
sambandsins, ESB, samþykktu í nótt
eftir 16 klukkustunda viðræður
málamiðlunartillögu íra um minni
skerðingu kvóta en upphaflega hafði
verið lagt til.
Samkvæmt málamiðlunartillög-
unni verður horfið frá áætlunum um
að setja kvóta á túnfisk í Miðjarðar-
hafi og Atlantshafi og sverðfisk í Atl-
antshafi. ítalir og Grikkir höfðu bent
á að kvóti á þessa stofna væri órétt-
látur þar sem þetta væru helstu stofn-
arnir sem þeir nytjuðu. í málamiðl-
unartillögu íra var einnig gert ráð
fyrir að tillögur Evrópusambandsins
um takmörkun sardínuveiða við
Spán og Portúgal yrðu mildaðar.
Eitt helsta ágreiningsmálið var út-
hlutun kvóta samkvæmt nýju sam-
komulagi við Eystrasaltsríkin i kjöl-
far inngöngu Svíþjóðar og Finnlands
í Evrópusambandið. Veiðiheimild-
um í Eystrasalti verður endurúthlut-
að eftir að tvíhliða samningar Svía
og Finna við Eystrasaltsríkin féllu
úr gildi. Þjóðverjar, Danir og Finnar
mótmæltu tillögum um endurúthlut-
un kvóta fyrir næsta ár.
Sjávarútvegsráðherrum Evrópu-
sambandsins tókst að semja í gær
um að hefja gervihnattaeftirlit með
veiðum fiskiskipa um mitt ár 1998.
Reuter