Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Side 11
JL>V FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 199„
11
*’r
menning
Beethoven gítarsins
Kristinn Ámason gitarleikari
hefur sent frá sér geisladisk með
verkum eftir þá Femando Sor og
Manuel Ponce.
Manuel Ponce (1882-1948) var
ekki aðeins tónskáld heldur pí-
anóleikari lika. Þjóðleg, latnesk
tónlist var honum hugleikin og
eyddi hann miklum tíma í að
rannsaka tónlistarlegan þjóðar-
arf Mexíkó og Kúbu. Ponce
samdi mörg verk fyrir gítar og
eru flest þeirra hin áheyrileg-
ustu, þó tónskáldinu verði seint
skipað meðal höfuðsnillinga sí-
gildrar tónlistar.
Fernando Sor fæddur í
Barcelona árið 1778 og lést árið
1839 í Paris. Hann var mikill gít-
arsnillingur og samdi fjöldan all-
an af verkum fyrir hljóðfæri sitt.
Sor hefur verið kallaður Beet-
hoven gítartónlistarinnar.
Femando Sor er mun merki-
legra tónskáld en Ponce. Það er auð-
heyrt þegar geisladiskurinn með
Kristni Ámasyni er settur á fóninn.
Fyrsta verkið á efniskránni er Grand
Solo eftir Sor, og er það grand í orðs-
ins fyllstu merkingu. Bæði er það
greinilega innblásið og falleg+ eftir
því, og svo er flutningur Kristins frábær. Verkin
sem á eftir koma, þrjár æfíngar og Grand Sonata nr.
2 opus 25 eru einnig eftir Sor og er unun að hlusta
á þau. Tækni Kristins er með miklum ágætum; hver
nóta er skýr og tónninn syngjandi. Kristinn er afar
næmur fyrir hinu ljóðræna i tónlist og töfrar ein-
staklega fagrar laglínur
út úr gítamum. Eigin-
lega hefði maður óskað
sér að Sor hefði átt öll
verkin á disknum, en
því miður er því ekki að
heilsa.
Tvö verk era eftir
Manuel Ponce á efnis-
skránni, svíta í a-moll
og sónata nr. 3. Svítan
er aulaleg skrumskæl-
ing á tónlist Bachs og
leikur Kristinn tvo þætti
úr henni. Flutningurinn
er góður en Kristni hef-
ur samt ekki tekist að
lappa upp á þessa and-
legu fátækt. Ekki heldur
i seinna verkinu, sónöt-
unni, sem er ekki
skrumskæling á neinu
en aulaleg samt. Hún er
svo sem ágætlega sam-
in en einhvem veginn ger-
ist ekkert í henni. Það er
helst miðkaflinn sem er
fallegur - en ekki þannig
að maður grípi andann á
lofti. Maður hefur líka á
-------------------- tilfinningunni að Kristinn sé
ekkert ýkja hrifinn af henni heldur, þó það séu auð-
vitað bara getgátur. Að minnsta kosti er ekki mikil
sannfæring í túlkuninni; Kristinn hefði kannski get-
að gert verkið áhugaverðara með því að draga and-
stæður þess betur fram og leikið af meiri krafti.
Kristinn Árnason gítarleikari.
Hljómplötur
Jónas Sen
Leirker á íslandi
Hið íslenska fornleifafélag og Þjóð-
minjasafn íslands hafa gefið út ritið
Leirker á íslandi eftir Guðrúnu
Sveinbjamardóttur.
Þetta er fyrsta yfirlitið
yfir leirker sem fundist
hafa í jörðu á íslandi og
byggist á rannsókn allra
leirmuna sem vitað var
um í Þjóðminjasafni og
Árbæjarsafni í árslok
1991. Markmiðið var að
fá yfirlit yfir tegundir leirkera sem hafa
verið notaðar hér á landi, flokka þær
eftir formgerð og rannsaka dreifingu
þeirra. Ritið er á íslensku og ensku og í
því er fjöldi litmynda, ljósmynda og
teikninga.
Háskólaútgáfan sér um útgáfu og
dreifingu.
Er vit í vísindum?
Ritgerðasafnið Er vit í vísindum? -
sex ritgerðir um vísindahyggju og
vísindatrú - er byggt á sam-
nefndri fyrirlestraröð sem
haldin var í febrúar og mars á
þessu ári við fádæma góðar
undirtektir. Höfundar koma úr
ólíkum fræðigreinum, en þeir
era: Atli Harðarson heimspek-
ingur, Einar H. Guðmundsson
stjameðlisfræðingur, Sigurður
J. Grétarsson sálfræöingur, Þorsteinn
Gylfason heimspekingur, Þorsteinn Vil-
hjálmsson eðlisfræðingur og Þorvaldur
Sverrisson vísindaheimspekingur.
Háskólaútgáfan gefur bókina út.
'Sh
OLUSTI
Faxafeni 14 og Miðbæ Hafnarfirði
Símar 588-Ö505 og 565-0165
-.-ja
1 ims h jífe flR -1 ' -
Lítill og
þœgilegur
Audiovox 680
GSM handsími
235 g með rafhlöðunni
Rafhlaða endist í allt að
22 klst. í bið
Númerabirting 10
síðustu númera
PÓSTUR OG SÍMI
Söludeild Ármúla 27, sími 550 780(
Þjónustumiðstöö í Kirkjustræti, slmi 800 700
Söludeild Kringlunni, sími 550 6690
Póst- og símstöðvum um land allt
100-802