Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Side 17
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996 17 I>V Fréttir Nýjar rotþrær valda illa lyktandi gasmengun í húsum í V-Landeyjum: Einföld afleiðing af fúski þar sem spara átti peninga - segir heilbrigöiseftirlitiö - þekki engin dæmi um þetta, segir verktakinn „Rotþrærnar voru ekki rétt tengdar þannig að loftunin á þrón- um virkar öfugt. Fólk fær því ólykt- ina inn í hús. Þetta er einfóld afleið- ing af fúski þar sem ekki voru fag- menn að verki við að setja þetta nið- ur. Ég veit ekki til þess að menn hafi veikst af þessu en það segir sig sjálft að þetta er auðveld smitleið fyrir pestir," segir Birgir Þórðarson hjá Heilhrigðiseftirliti Suðurlands á Selfossi um gasmyndun í húsum í Vestur-Landeyjum sem stafar af því að rotþrær voru ekki rétt tengdar þegar þær voru settar niður við 17 bæi í sveitinni. Birgir segir að svona hlutir eigi að gerast undir leiðsögn löggilts pipulagningameistara, byggingafull- trúa eða heilbrigðiseftirlits. Enginn þessara aðila hafi verið kvaddur til i þessu tilviki. „Ástæðan er þessi hefbundna, að menn þykist vera að spara ein- hverja peninga. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands er með átak, í samvinnu við sveitarfélögin, undir nafninu Hreint Suðurland. I því felst meðal annars úttekt á rotþróm, eftirlit og ráðgjöf en þessi hreppur, Vestur- Landeyjahreppur, kaus að taka ekki þátt heldur standa að þessu sjálfur. Mér sýnist það vera að koma í bak- ið á mönnum því mér skilst að þetta séu lélegar rotþrær og þar á ofan bætist fúskvinna," segir Birgir. Aðspurður um þessa gasmyndun segir Birgir að um sé að ræða hefð- bundna skítalykt, gerjaða að vísu, og að heilbrigðiseftirlitið muni fylgjast með því að þessu verði kippt í liðinn. Ábyrgðin sé sveitarfé- lagsins, þeirra sem kaupa vinnuna og síðast en ekki síst verktakans. Kærusjúkur maður „Hér er kærusjúkur maður og mengun frá slíku fólki er erfitt að kveða niður. Það voru ágætir menn sem unnu að þessu verki, iðnaðar- menn frá Hvolsvelli, allt saman hæf- ir menn. Það er ekki rétt að ekki hafl verið pípulagningameistarar, byggingafulltrúi eða menn frá heil- brigðiseftirliti. Allir þessir menn unnu við verkið," sagði Eggert Haukdal, oddviti Vestur-Landeyja- hrepps, þegar DV spurði hann um málið í gær. Magnús Halldórsson er eigandi K.R.-þjónustunnar á Hvolsvelli en fyrirtækið sá um að setja rotþrærn- ar niður. Hann sagðist ekki hafa fengið eina einustu kvörtun varð- andi lykt frá rotþrónum, sagðist reyndar vita um bilaðan vatnslás í vaskahúsi en það komi rotþrónum ekki við. „Ég held að á bak við þessar sög- ur sé eitthvað annað en að við höf- um ekki unnið okkar verk. Ég hef sjálfur talað við Birgi hjá heilbrigð- iseftirlitinu og hann hefur ekki minnst á þetta við mig einu orði,“ segir Magnús Halldórsson. -sv Framkvæmdastjóri póstsviðs Pósts og síma, Einar Þorsteinsson, er ný- tekinn við embætti og þar eð hann hefur ekkert starfað að póstmálum fyrr en nú ákvað hann að bregða sér í hlutverk hins almenna starfs- manns til þess að kynna sér málin. í gær var hann að bera út jólapóstinn í Jörfabakka og Kóngsbakka en hann hefur einnig brugðið sér í flokkunina. Uppátæki framkvæmda- stjórans hefur mælst mjög vel fyrir hjá samstarfsmönnum hans. DV-mynd S Sighvatur Elefsen við einn sniglanna sem er aðalsmerki framleiðslunnar. DV-mynd ÞÖK Viðhaldsdeild SR-Mjöls á Siglufirði: Helmingurinn af velt- unni nýsmíði fyrir aðra - segir Sighvatur Elefsen forstöðumaður DV, Siglufirði: „Við tökum að okkur nýsmíði fyr- ir fjölda aðila utan þessa fyrirtækis. Helmingurinn af veltunni er ný- smíði fyrir aðra. Ég get nefnt sem dæmi Granda í Reykjavík, Vinnslu- stöðina í Vestmannaeyjum og aðrar SR-verksmiðjur. Það hefur verið nóg að gera hjá okkur,“ segir Sig- hvatur Elefsen, forstöðumaður við- haldsdeildar SR-Mjöls á Siglufirði. Deildin, sem stofnuð var um 1935, sér um allt viðhald eigin verk- smiðju en sækir auk þess helming allra sinna verkefna út fyrir bæjar- félagið. Alls vinna 20 manns í deildinni en fyrir 6 árum var öllum sagt upp vegna verkefnaskorts. „Við störtuðum hérna árið 1991 með 10 mönnum. Síðan hefur verið vaxandi drift í þessu og góð stígandi og stöðugt vaxandi velta. Við byggj- um þetta mikið á smíði snigla og er- um langstærstir á því sviði í land- inu. Við erum með þetta í gangi allt árið og það má segja að lífið snúist um snigla hér,“ segir Sighvatur. -rt 'Nyhmuó jráltalm Leðurskór Litir: svartlbrúnt Stærðir: 36-41 Verðkr. 6.790 ^Skóverslun ÞÖRRAR GÆÐI & ÞjÓNUSTA LAUGAVEGI 40A SÍMI 551-4181 r Jölvukjör !.’ u tVLÍr verslun heimííanna Fjölskyfdan gerrr goða ferð' trl okkarl áttar jólatilboð! J) ^Stóra margmiðlunartölvan á tilboðsverði! ) N V H É R J I / C E P E Trust Pentium 166 16 Mb EDO minni Intel Triton HX kubbasett 15" PV litaskjár 1280 Mb diskur 2 Mb S3 Virge 3D skjákort 16 bita hljóðkort 8 hraða geisladrif SoundWave 240 hátalarar Windows 95 AðÉns kr. 139400 ) mat Faxafeni 5 ! 108 Reykjavík ■m Sími 533 2323 Fax 533 2329 tolvukjor@itn.is Opió virka daga 12:00-18:30 fimmtudaga 12:00-22:00 og laugardaga 10:00-16:00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.