Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Side 19
18
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
31
íþróttir DV DV íþróttir
• mim*L i ■ ■ -Á. A- A M4!—■—■——■—
United bauð
i Batistuta
ítalska íþróttablaðið Corriere
dello Sport greindi frá því í gær
að Manchester United hefði boð-
ið Fiorentina 2,1 milljarð í
argentínska sóknarmanninn
Gabriel Batistuta. Fyrr í sumar
framlengdi Batistuta samning
sinn við Fiorentina til ársins
2000.
„Þegar svona tilboð kemur þá
verðum við að hugsa um það
hvort við látum hann fara,”
sagði Vitorio Cecchi Cori, for-
seti félagsins.
AC Milan vill
fá Köpke
AC Milan á Ítalíu hefur í
hyggju að fá tvo þýska landsliðs-
menn til liðs við sig fyrir næsta
keppnistímabil. Þetta eru mark-
vörðurinn Andreas Köpke, sem
í haust gekk til liðs við Real Ma-
drid, og Christian Ziege hjá
Bayern Mtinchen.
„Komið ekki
nálægt Dundee "
Winfried Schafer, þjálfari
Karlsruher, óttast nú að missa
sinn besta leik. Sá sem hér um
ræðir heitir Sean Dundee en
hann öðlaðist í vikunni þýskan
ríkisborgararétt. „Komið ekki
nálægt Dundee," sagði Schafer
og átti þar við Bayern Múnchen.
Hann sagðist ætla að gera allt
sem sínu valdi stæði til að halda
Dundee og vildi helst gera strax
langtimasamning við hann.
River Plate
varð meistari
River Plate varö í fyrrinótt
argentínskur meistari í 25. sinn.
Liðið sigraði Velez Sarsfield i
lokaumferðinni, 3-0, Velez varð
tvöfaldur meistari í fyrra.
Ronaldo með
sigurmarkið
Heimsmeistarar Brasiliu-
manna unnu 1-0 sigur á Bosníu-
mönnum í vináttulandsleik sem
fram fór í Manaus i Brasilíu í
fyrrinótt. Það var Ronaldo, leik-
maður Börsunga, sem skoraði
sigurmarkiö beint úr auka-
spyrnu á 67. mínútu.
Brassarnir þóttu ekki leika
eins og heimsmeisturum sæmir
og skýringin sennilega sú að
megnið af leikmönnum liðsins
var nýkomið úr tveggja vikna
frii. Þetta var 10. landsleikur
heimsmeistaranna á árinu og
hafa þeir aöeins einu sinni beð-
iö lægri hlut en Mexíkóar unnu
þá í janúarmánuði.
-GH
Einar Þór Daníelsson, KR-ingurinn léttleikandi, er að reyna fyrir sér hjá
skoska úrvalsdeiidarliðinu Hibernian.
Einar æfir með
liöi Hibernian
- skoraði eitt og lagði upp annað með varaliðinu
Einar Þór Daníelsson, útherjinn
snjcilli hjá KR, hefur undanfama
daga æft með skoska úrvalsdeildar-
liðinu Hibemian. Einar lék með
varaliði félagsins gegn varaliði
Dundee Utd. í vikunni. Hann skor-
aði eitt mark í 4-0 sigri sinna
manna og lagði upp annað.
„Ég fann mig ágætlega í þessum
æfingaleik en á æfmgunum hef ég
varla fengið að snerta boltann. Það
er ekki mikið um að menn séu að
spila boltanum á milli heldur er
honum kýlt fram. Ég veit svo sem
ekkert um framhaldið hjá mér. Ég á
pantað flug heim á mánudaginn en
ég reikna með að heyra frá forráða-
mönnum Hibemian um helgina,
hvað þeir em að hugsa. Ég gæti vel
hugsað mér að spila héma úti í vet-
ur í stað þess að æfa við lélegar að-
stæður heima í kuldanum,” sagði
Einar Þór í samtali við DV.
-GH
NBA-körfuboltinn:
Smith genginn
í raðir Orlando
Hið meiðslahrjáða lið Orlando
Magic hefur gert samning viö
Kenny Smith, fyrrum leikmann
Houston. Smith er 31 árs gamall
bakvörður sem leikið hefur í 10 ár í
NBA-deildinni. Lengst af hefur
hann leikið með Houston og hefur
tvívegis orðið meistari með liðinu.
Hann gerði frjálsan samning við
Detroit fyrir þetta tímabil en rifti
þeim samningi í síðasta mánuði þar
sem hann fékk lítið að spreyta sig
með liðinu.
Smith, sem skoraði að meðaltali
13,1 stig í leik með Houstonog átti
5,7 stoðsendingar ætti að verða Or-
lando mikill fengur enda hefúr liðið
verið vængbrotið á tímabilinu sök-
um meiðsla nokkurra lykilmanna.
Penny Hardaway hefur lítið sem
ekkert leikið með, svo og Dennis
Scott. -GH
Clark hættur með Forest
Stjóm enska úrvalsdeildarliðisins Nottingham Forest samþykkti á
fundi sinum í gær að veita Frank Clark, framkvæmdastjóra félagsins,
lausn frá störfum.
Liði Forest hefur gengið afleitlega á keppnistímabilinu og situr á botni
úrvalsdeildarinnar með aðeins einn sigurleik í deildinni. Clark hefur
verið orðaður við stjórastöðuna hjá Manchester City en líklegur eftir-
maður Clarks hjá Forest hefur verið nefiidur Stuart Pearce, leikmaöur
Forest og margreyndur landsliðsmaður. _GH
Hepplnti þátHakandí á moguieika á að vinna
íSSSMmeí' irá ELECltt í
Iþróttamaður ársins, 1996, útnefndur 2. janúar:
Hver þeirra hreppir
trtilinn eftirsótta
- atkvæði hafa verið talin í kjörinu sem fer fram í 41. skiptið
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfing-
ur úr Leyni.
Birkir Kristinsson, landsliðs-
markvörður hjá Brann í Noregi.
Geir Sveinsson, landsliðsfyrirliði
hjá Montpellier.
Guðrún Arnardóttir, frjálsiþrótta-
kona úr Ármanni.
Jón Arnar Magnússon, frjáls-
íþróttamaður úr UMSS.
íþróttamaður ársins 1996 verður kjör-
inn í hófi á Hótel Loftleiðum 2. janúar
næstkomandi. Það eru Samtök íþrótta-
fréttamanna sem standa að þessu kjöri í
41. skipti. Tiu íþróttamenn hafa verið út-
nefndir og em þeir eftirtaldir i stafrófs-
röð.
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur ur
Golfklúbbnum Leyni, Birkir Kristins-
son, markvörður hjá Brann, Geir Sveins-
son, handknattieiksmaður hjá Montpelli-
er, Guðrún Amardóttir, frjálsíþrótta-
kona úr Ármanni, Jón Arnar Magnús-
son, frjálsíþróttamaður úr UMSS, Krist-
inn Björnsson, skíöamaður úr Leiftri,
Kristín Rós Hákonardóttir, sundkona úr
íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík, Ólafur
Þórðarson, knattspymumaður úr ÍA,
Teitur Örlygsson, körfuknattleiksmaður
hjá Larissa, Vala Flosadóttir, frjálsí-
þróttakona úr ÍR.
Árið, sem senn er liðið, var fyrir
margra hluta sakir gott íþróttaár. Is-
lenskir þátttakendur á Ólympíuleikun-
um í Atlanta stóðu vel fyrir sínu og urðu
þar þjóð sinni til sóma. Landsliðið í
handknattleik kom sér á nýjan leik í hóp
bestu þjóða í heiminum með glæstmn
sigmm á Dönum í tvígang. Þessir leikir
réðu úrslitum hvor þjóðin kæmist á
heimsmeistaramótið í Japan.
Skíðamenn og kylfingar stóðu sig vel
á árinu og ung stúlka úr röðum frjálsí-
þróttamanna braust fram í sviðsljósið
með frábærum árangri á Evrópumótinu
innanhúss sem haldið var í Stokkhóimi
snemma árs. Fáni íslands var oft
dreginn að hún á ólympíumóti fatlaðra í
Atlanta í sumar.
Birgir Leifur Hafþórsson
Hann hefur verið i hópi fremstu
kylfmga landsins um langt skeið. Á
landsmótinu í Vestmannaeyjum lék
hann frábært golf og þegar upp var stað-
ið voru gullverðlaunin hans. Birgir Leif-
ur lét ekki þar við sitja og náði frábær-
um árangri á opna ítalska meistaramót-
inu. Hér er á ferð mikið efni sem gaman
verður að fygjast með í framtíðinni.
Birkir Kristinsson
Hann hefur verið fremsti markvörður
landsins um langt skeið og fastamaður í
landsliðinu. Birkir lék á síðasta tímabili
með norska liðinu Brann frá Bergen. Á
heildina litið varði Birkir mark norska
liðsins af stakri prýði og liðið fagnaöi
góöum árangri í norsku úrvalsdeildinni.
í UEFA-bikamum hefur Brann svo
sannarlega slegið í gegn og er komið alla
leið í 8-liða úrslit keppninnar, frammi-
staða sem fæstir áttu von.
Segja margir að liðið sé komið þang-
að vegna frábærar markvörslu Birkis
gegn hollenska stórliðinu PSV Eind-
hoven í 16-liða úrslitum. Birkir varði
einnig mark íslenska landsliðsins oft
með stakri prýði á árinu.
Geir Sveinsson
Hann stýrði íslenska landsliðinu í
handknattleik til sigurs í einum af mik-
ilvægustu leikjum íslands um árabil
gegn Dönum. Þeir sigrar gerðu það að
verkum aö ísland leikur í úrslitakeppni
heimsmeistaramótsins i Japan en Danir
sitja eftir méð sárt ennið.
Geir hefur verið stoð og stytta lands-
liðsins um árabil og hefur verið eftirsótt-
ur hjá liðum í Evrópu. Nú um stundir
leikur hann með franska liðinu Mont-
pellier við góðan orðstír.
Jón Arnar Magnússon
Hann var kjörinn íþróttamaöur ársins
í fyrra. Það er ekki djúpt í árinni tekið
að segja að hann sé í hópi sterkustu tug-
þráutarmanna í heiminum í dag. Ólymp-
íuleikunum á sl. sumri hafnaði hann í
10. sæti í tugþrautinni og á Evrópumót-
inu innanhúss í Stokkhólmi hreppti
hann bronsverðlaun eftir að hafa leitt
keppnina lengstum.
Kristinn Björnsson
Enginn vafi leikm- á því að Kristinn
Bjömsson er besti skíðamaður landsins.
Hann hóf keppnisárið mjög vel en var
síðan óheppinn að meiðast daginn fyrir
heimsmeistaramótið. Á síðustu mánuð-
unum hefur hann sýnt mátt sinn og meg-
inn með góðum árangri á erlendum vett-
vangi. Góð ástundun æfinga er smám
saman að koma þessum snjalla skíða-
manni ofar á listann.
Kristín Rós Hákonardóttir
Nafn hennar skein skært á ólympíu-
móti fatlaðra á sl. sumri. Þar sannaðist
enn eina ferðina að hún er í fremstu röð
í sínum flokki í svmdinu. Hún hefur
margsinnis sett íslandsmet og nokkur
heimsmet eru í hennar eigu.
Ólafur Þórðarson
Hann hefur farið fyrir sínum mönnum
í Skagaliðinu sem átt hefur lið í fremstu
röð hér á landi hin síðustu ár. Enn einn
íslandsmeistaratitill bættist í safn Akur-
nesinga á sl. sumri. Ólafur setur alltaf
svip sinn á knattspymuna með einstök-
um vilja og baráttu.
Teitur Örlygsson
Það kom fáum á óvart að félag í einni
bestu deild í körfuknattleik í Evrópu
skyldi falast eftir kröftum Teits Örlygs-
sonar. Hann gerði á sl. sumri tveggja ára
samning við gríska liðið Larissa og hef-
ur staðið sig vel ytra það sem af er vetri.
Eftir forkeppni Evrópumótsins hér á
landi í fyrravor fóru lið í Evrópu að líta
hýru auga til eins sterkasta körfubolta-
manns landsins.
Vala Flosadóttir
Hún er einn besta stangarstökkskona
í heiminum. Framtiðin blasir við þessari
ungu stúlku sem gerði sér lítið fyrir með
því að verða Evrópumeistari inannhúss
í stangarstökki í Stokkhólmi 8. mars sl.
Á mótinu fór hún yfir 4,16 metra en
heimsmet hennar í unglingaflokki utan-
hús er 4,17 metra. Það verður fróðlegt og
spennandi að fygjast með þessari stúlku
i framtíðinni.
Giæsileg verðlaun verða afhent
þann 2. janúar
í hófinu 2. janúar verða allir tíu verð-
lauaðir með glæsilegri bókagjöf frá Máli
og menningu, eins og síðustu ár, og þrír
efstu hljóta verðlaunagripi til eignar.
íþróttamaður ársins fær einnig til varð-
veislu styttuna glæsilegu sem fylgt hefur
nafhbótinni frá upphafi.
Félgar í Samtökum íþróttafrétta-
manna eru nú 22, frá Morgunblaöinu,
DV, Ríkisútvarpi og sjónvarpi, Stöð 2 og
Bylgjunni, Degi-Tímanum, Stöð 3 og
íþróttablaðinu.
Hver félagsmaður tilnefndi tíu
íþróttamenn sem hlutu stig samkvæmt
reglugerð um kjörið.
Vert er að geta þess að öllum fyrrver-
andi íþróttamönnum ársins er boðið í
hófið á Hótel Loftleiðum 2. janúar eins
og venjulega. Sýnt verður frá útnefning-
unni i ríkissjónvarpinu.
-JKS
Kristinn Björnsson, skíðamaður
úr Leiftri.
Kristín Rós Hákonardóttir,
fþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík.
Óiafur Þórðarson,
maður úr ÍA.
knattspyrnu-
Teitur Örlygsson, körfuknattleiks-
maður hjá Larissa.
Vala Flosadóttir,
kona úr ÍR.
frjálsíþrótta-
Michael Johnson er án efa mesti og besti hlaupari allra tíma. Hann náði frábærum árangri á ólympíuleikunum
sumar og setti frábært heimsmet í 200 metra hlaupi þegar hann kom í mark á 19,32.
Johnson bestur í
Bandaríkjunum
Hlaupakóngurinn Michael John-
son, heims- og ólympíumeistari í
200 og 400 metra hlaupi, var í gær
útnefndur besti íþróttamaður
Bandaríkjanna í karlaflokki fýrir
árið 1996.
Johnson, sem einnig varð fýrir
valinu i fyrra, hlaut 929 stig í efsta
sæti. Johnson varð í sumar fyrstur
í sögunni til að vinna sigur í 200 og
400 metra hlaupi á einum og sömu
ólympíuleikum og fékk nú titilinn í
þriðja sinn á síðustu fjórum árum.
Aðeins einn íþróttamaður hefur náð
þessum árangri en skautahlaupar-
inn Eric Heiden fékk titilinn 1977,
1979 og 1980.
íöðru sæti varð sundmaðurinn
Jeff Rouse með 519 stig en hann
vann til tvennra gullverðlauna á
ólympíuleikunum. í þriðja sæti
varð blakspilarinn Karch Kiraly.
Besta íþróttakona Bandaríkjanna
var útnefnd sundkonan Amy Van
Dyken. Hún vann til fernra gull-
verðlauna á Ólympíuleikunum í
Atlanta í sumar -GH
Þorvaldur
í leikbann?
Líkur eru á að Þorvaldur Ör-
lygsson missi af leikjum með
Oldham í ensku knattspymunni
um jólin.
Oldham á aö leika gegn
Manchester City og Birming-
ham. Þorvaldur er kominn með
mikið af gulum spjöldum. Þor-
valdur er einn af lykilmönnum
Oldham og liðiö má illa við því
að missa hann.
-SK
Tveir frá United
í Evrópuliðinu
í gær var tilkynnt hvaða leik-
menn skipa úrval Evrópu sem
mætir liði Afríku í Portúgal
þann 29. janúar á næsta ári.
Tveir leikmenn frá Manchest-
er United eru í liðinu, þeir Peter
Schmeichel markvörður og Gary
Neville, þrátt fyrir að hann hafi
alls ekki náð sér á strik meö
United í síöustu leikjum eins og
flestir leikmenn meistaranna.
-SK
Bonnissell
til Arsenal?
Franski knattspymumaður-
inn Jerome Bonnissell hjá Cor-
una á Spáni kann að vera á leið-
inni til Arsenal.
Arsene Wenger, hinn ft-anski
stjóri Arsenal, hefur mikinn
áhuga á að fá Bonnissell til High-
bury. -SK
Enska knattspyrnan um jólin:
„Verðum að vinna
sigur á Newcastle"
Einn af stórleikjun-
um í ensku knatt-
spyrnunni um hátíð-
ina sem í vændum er
er leikur Liverpool og
Newcastle á Þorláks-
messu.
„Ég ætla að halda
markinu hreinu og
auka þannig mögu-
leika okkar á að vinna
meistaratitilinn,” seg-
ir David James, mark-
vörður Liverpool.
„Það var auðvitað
bónus fyrir okkur að
Coventry skyldi vinna
Newcastle á dögunum
en við verðum að
vinna Liverpool sjálfir
og komast því enn
lengra fram úr þeim.
Við erum að skora
mikið af mörkum og
Collymore og Fowler
er farnir að leika frá-
bærlega saman á
kostnað Patricks
Bergers sem ekki hef-
ur komist í liðið und-
anfarið," sagði James
enn fremur.
Á síðasta tímabili
skoruðu Collymore og
Fowler samtals 55
mörk og þeir eru til
alls líklegir í framlínu
Liverpool í vetur.
-SK
Bifreiðar og landbúnaðarvélar mun verða einn af aðalstyrktaraðilum
Körfuknattleikssambands íslands á tímabilinu. Samningur þess efnis var
gerður á dögunum og hann felur meðal annars í sér að bikarkeppnin í
vetur mun bera nafnið bikarkeppni KKÍog Renault. Á myndinni handsala
Ólafur Rafnsson, formaður KKÍ, til vinstri, og Guðmundur Pálsson,
markaðsstjóri Bifreiða og landbúnaðarvéla, samninginn. -GH