Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Page 21
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
33
Fréttir
Sjálfstætt starfandi læknar ósáttir við stöðu sína:
Spyrja hvort leggja
eigi niður störf þeirra
„Við erum mjög ósáttir við að hér-
aðslæknir talar þvert um hug sinn
því hann sagði 13. ágúst síðastliðinn
að þörf væri á fleiri heimilislæknum
í Reykjavík. í umsögn hans frá 20.
nóvember telur hann enga þörf vera
fyrir fleiri heimilislækna í Reykjavík.
Sjálfstætt starfandi heimilislæknum
hefur ekkert fjölgað í sjö ár og við vit-
um ekkert hver okkar framtíð er,
fáum við nýja menn inn í okkar rað-
ir eða á að leggja niður sjálfstæða
starfsemi heimilislækna í Reykja-
vík?“ spyr Ólafur F. Magnússon, for-
maður Félags sjálfstætt starfandi
heimilislækna.
Tveir sérmenntaðir heimilislækn-
ar hafa sótt um að fá að reka heimil-
islæknaþjónustu í Reykjaví^í sam-
ræmi við samning Tryggingastofn-
unar og Læknafélags íslands þar að
lútandi. Þeirri beiðni hefur enn ekki
verið svarað frá því í maímánuði síð-
astliðnum.
Kúvending ummæla
„Settur héraðslæknir í Reykjavík
virðist vilja að heilsugæslustöðvar
komi alfarið í stað þeirrar þjónustu
sem við veitum. Við erum mjög hissa
á því ef héraðslæknir er að blanda sér
í pólitík. Hann á sem fagaðili að tjá
sig um það hvort þörf sé á fleiri heim-
ilislæknum eða ekki. Héraðslæknir
virðist með þessari kúvendingu í um-
mælum vera að sýna andúð sína á
okkar starfi í verki og það flnnst okk-
ur óviðunandi," segir Ólafur.
Ekki breytt afstöðu minni
„Það er alrangt að ég hafi sýnt and-
stöðu við einkarekstur og það er líka
rangt að ég hafi breytt afstöðu minni
á milli bréfa. í fyrra bréfinu fjallaði
ég almennt um að fjölga þyrfti heim-
ilislæknum samkvæmt lögum um
heilbrigðisþjónustuna en í seinna
bréfinu lýsti ég því nánar að ekki sé
skynsamlegt að ráða sjálfstætt starf-
andi lækna þar sem þeir vinni ekki
við sömu aðstæður og læknar á
heilsugæslustöðvum," segir Lúðvík
Ólafsson, starfandi héraðslæknir í
Reykjavík.
Lúðvík segir að undanfarin ár hafi
heilsugæslan í landinu verið byggð
upp í kringum heilsugæslustöðvam-
ar og ekkert bendi til annars en að
það sé skynsamleg og rétt þróun.
Hann segir að fjölmargir læknar sem
hann hafi rætt við hafi sagt sér að
þeir myndu ekki kæra sig um að
vinna við þær aðstæður sem samn-
ingur Tryggingastofiiunar býður upp
á fyrir sjálfstætt starfandi lækna.
Þeir myndu þó velja þann kost ef eng-
inn annar byðist.
Mikill aðstööumunur
Aðspurður um aðstöðumuninn seg-
ir Lúðvík að sjálfstætt starfandi
læknar séu ekki í sömu tengslum við
heilsuvemd, heimahjúknm, skóla-
heilsugæsluna og heilsugæslustöðv-
amar og síðan séu þeir ekki eins í
stakk búnir að sinna víðfeðmum
vandamálum.
Kylfuárásin:
Gæslu-
varðhald
fram-
lengt
Hæstiréttur framlengdi í gær
gæsluvarðhaldið yfir unga mannin-
um sem réðst á Lúðvík Halldórsson
á dansleik í Miðgarði um síðustu
helgi. Pilturinn hafði verið úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 19. desem-
ber og var þeim úrskurði áfrýjað til
Hæstaréttar. í gær var svo úrskurð-
ur Hæstarréttar kveðinn upp og
þarf strákurinn að dúsa inni til 13.
janúar. -sv
Páll Rósinkranz flutti ásamt hljóm-
sveitinni Christ Gospel Banda
gospel-tónlist af mikilli innlifun.
DV-mynd Sigrún
Jesú-rokk í Kópavogi
Fjölmenni var á tónleikum í
Krossinum í Kópavogi undir heit-
inu Jesú-rokk á dögunum. Fjöl-
margir þekktir kappar komu þar
fram, eins og Páll Rósinkranz og
Bubbi Mortens, auk þekktra hljóm-
sveita, og var þeim mjög vel tekið.
-SLS
„Við höfúm ekki lokið við að
byggja upp heilsugæslustöðvamar og
heilbrigðiskerfið er enn í mótun.
Samkvæmt lögum er heilsugæslan
grunneining og við eigum ekki að
flölga utan hennar ef við getum ekki
fjölgað innan hennar. Þegar lokið
verður við uppbygginguna getur vel
verið að menn sjái að óhætt verði að
fjölga þeim sem starfa sér á stofu,“
segir Lúðvík Ólafsson.
„Hluti skýringarinnar á því af
hveiju dregist hefúr að senda þessum
læknum svar við umsókn sinni er sú
að þeir drógu umsókn sína til baka í
miðjum klíðum. Eitthvað stóð á um-
sögn Læknafélags Reykjavíkur og síð-
an hefur vitaskuld verið heldur mik-
ill dráttur á þessu hjá ráðinu," segir
Bolli Héðinsson, formaður Trygginga-
ráðs.
Bolli segir varðandi framhald
málsins að Tryggingaráð hafi ályktað
að honum yrði falið að hafa forgöngu
um að ráðuneytið, héraðslæknar
Reykjavíkur og Reykjaness, læknafé-
lögin og Tryggingastofnun ríkisins
hefji viðræður um það hvernig þessi
tvö kerfi, sjálfstætt starfandi læknar
og heilsugæslustöðvar, skuli starfa
samhliða. -sv
.^nnriknnnn hm
-+ T n' §- er Islensk Verðið kemur á óvart Rétt verð 24.900. Margir litir og stœrðir, Fríar Póstkröfur ffCáþusalan gSnorrabraut 56 S 562 4362
The Art of Entertainment
1« > ÍH A
‘Samkvæmt skoðanakönnun Hagvangs í desember 1995
VSX 804-Heimabíómagnari • m/ útvarpi 2x120w RMS
■ RMS 3x80w • 2x40 • 30 stöðva minni
VSX 405-Helmabíómagnarl • m/ útva
RMS 3x50 • 2x25w • 30 stöðva minni
SX 254 Útvarpsmagnarl • 2x35,w RMS
P0104 Geislaspllarl • 1-Bit • Forritanlegur
Handahófsspilun • Endurtekning 1
24 stöðva minni • Fjarstýring • Útvarpsmagnari
PDM 423 Gelslaspllari • 6 diska • 1-Bit
Forritanlegur • Handahófsspilun • Endurteknii
PD 204 Gelslaspllari • 1-Bit • Forritanlegur
Handahófsspilun • Endurtekning • Fjarstyrim
mnnm
jamo'
CS7030 hátalarar
190w Din þriskiptur
CS 5030 hðtalarar
140w Din þrískiptur
Jamo Studio 180
170w þrískiptur
Jamo 477
140w þrfskiptur
CS130 hátalarar
120w Din þrfskiptur
Umboðsmenn
Reyk]av(k: Byggt & Búlð.Krlnglunni. Vesturland: Málnlngarþjónustan Akranesi. Hljómsýn, Akranesi. Kf.Borgfirðinga, Borgarnesi.
Blómsturvellir, Hellissandi. Guðnl Hallgrlmsson, Grundarfirði. Ásubúð, Búðardal Vestflrðir: Gelrseyrarbúðin, Patreksfirðl. Rafver,
Bolungarvfk.Hljómborg, (safirði. Norðurland: Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blðnduósi.Verslunin Hegri, Sauðárkróki.
Hljómver, Akureyri. Kf. Þingeyinga, Húsavfk. Lónið Þórshðfn Austurland: Kf. Héraðsbúa, Egilsstððum. Verslunln Vfk, Neskaupsstað.
Suðurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshðfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboginn.Keflavfk. Rafborg, Grlndavfk^
34.900,
28.900,
*
I
f
f
I
I