Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Side 30
42
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
Afmæli
Sunna Borg
Sunna Borg, leikkona og formað-
ur LA, Byggðavegi 95, Akureyri, er
flmmtug í dag.
Starfsferill
Sunna fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hún lauk námi frá Leiklist-
arskóla Þjóðleikhússins 1970, stund-
aði framhaldsnám í leiklist í Banda-
ríkjunum 1972 og fékk til þess styrk
frá Rotaryhreyfingunni, og hefur
sótt ýmis leiklistarnámskeið, m.a.
við The Actors Center í London
1985.
Sunna hefur verið leikari hjá
Leikfélagi Akureyrar frá 1979 en
hún hefur leikið þar á sjötta tug
hlutverka. Þá hefur hún fengist við
leikstjóm hjá LA en þessa dagana
er hún að leikstýra leikritinu Koss-
um og kúlissum sem sýnt er í tilefni
áttatiu ára afmælis LA og jafnframt
níutíu ára afmælis samkomuhúss-
ins sjálfs.
Sunna er nú formaður Leikfélags
Akureyrar og leikhúsráðs.
Fjölskylda
Eiginmaður Sunnu er Þengill
Valdimarsson, f. 25.12. 1951, hús-
gagna- og húsasmíðameistari. Hann
er sonur Valdimars Jóhannssonar,
húsgagnasmiðs á Akur-
eyri, og k.h., Ástu Þeng-
ilsdóttur húsmóður.
Böm Sunnu eru Berg-
ljót Borg, f. 15.2. 1975,
nemi; Valdimar Þengils-
son, f. 3.5. 1987, nemi.
Systkini Sunnu: Kjart-
an Borg, f. 21.2. 1939,
kennari í Reykjavík; Ste-
fanía Svala, f. 24.11. 1940,
sjúkraliði, búsett í Garða-
bæ; Áslaug Borg, f. 16.9.
1948, kaupmaður á Akur-
eyri.
Foreldrar Sunnu: Geir Borg, f.
24.2.1912, fyrrv. forstjóri Kol og salt
og síðast Saltsölunnar sf. í Reykja-
vík, og f.k.h., Guðrún Ragnars, f. 2.7.
1917, sjúkraliði.
Ætt
Systur Geirs voru leikkonumar
Anna, Þóra og Emelía Borg, og Ás-
laug ljósmyndari. Geir var sonur
Borgþórs, hæjargjaldkera í Reykja-
vík, bróður Jóns Bachmann, b. í
Steinsholti, föður Hallgríms ljósam-
eistara, föður Helgu Bachmann
leikkonu, en systir Hallgríms var
Rósa, amma Guðmundar Gunnars-
sonar, formanns Rafiðnaðarsam-
bands íslands, föður Bjarkar Guð-
mundsdóttur söngkonu.
Borgþór var sonur Jós-
efs, b. í Skipanesi Magn-
ússonar og Halldóra Guð-
laugsdóttur, b. í Geita-
gerði Sveinbjörnssonar.
Móðir Halldóru var Sig-
riður Bachmann, systir
Ingileifar, móður Hall-
gríms landsbókavarðar.
Hálfbróðir Sigríðar var
Jón Borgflröingur, afi
Agnars Klemenzar Jóns-
sonar ráðuneytisstjóra.
Sigríður var dóttir Jóns
Bachmann, prests á Klausturhólum
Hallgrímssonar, læknis í Bjarnar-
höfn og ættföður Bachmannættar-
innar. Móðir Jóns var Halldóra
Skúladóttir landfógeta Magnússon-
ar. Móðir Sigríðar var Ragnhildur
Bjömsdóttir, systir Sigurðar Thor-
grímssonar landfógeta.
Móðir Geirs var Stefanía Anna
Guðmundsdóttir leikkona, dóttir
Guðmundar Jónssonar, trésmiðs á
Elliðavatni, og Önnu Stefánsdóttur,
prests í Viðvík Björnssonar.
Guðrún er systir Kjartans sendi-
ráðunautar, föður Áslaugar Ragn-
ars, móður Andrésar blaðamanns.
Annar bróðir Guðrúnar var Ólafur,
faðir Gunnars Ragnars, fyrrv. for-
seta bæjarstjórnar Akureyrar.
Þriðji bróðir Guðrúnar er Sverrir,
faðir Rögnu Ragnars sendiherrafrú-
ar. Guðrún var dóttir Ragnars,
kaupmanns á Akureyri ÓlafssonEU',
gestgjafa á Skagaströnd Jónssonar,
b. á Helgavatni Ólafssonar. Móðir
Ragnars var Valgerður Narfadóttir,
systir Valentínusar, langafa Erlu,
móður Þórunnar Valdimarsdóttur
sagnfræðings. Móðir Guðrúnar var
Guðrún Jónsdóttir, sýslumanns I
Eskifirði Johnsen, bróður Þóru,
móður Ásmundar Guðmundssonar
biskups. Jón var sonur Ásmundar,
prófasts í Odda Jónssonar og Guð-
rúnar Þorgrímsdóttur, systur Gríms
Thomsen. Móðir Guðrúnar Jóns-
dóttur var Kristrún Hallgrímsdótt-
ir, prófasts á Hólmum Jónssonar,
ættföður Reykjahlíðarættarinnar
Þorsteinssonar. Móðir Kristrúnar
var Kristrún Jónsdóttir, systir Mar-
grétar, ömmu Ólafs Friðrikssonar
verkalýðsleiðtoga, og langömmu
Ragnheiðar, móður Friðriks Páls
Jónssonar fréttastjóra. Systir
Kristrúnar var Guðný, langamma
Jónasar Haraldz, fyrrv. bankastjóra.
Sunna tekur á móti gestum á
Renniverkstæðinu, Strandgötu 49,
sem er nýtt leiksvið fyrir starfsemi
LA, laugardaginn 21.12. milli kl.
17.00 og 19.00.
—
Sunna Borg.
Jóhann Óskar Jósefsson
Jóhann Óskar Jósefsson, bóndi,
harmóníkuleikari og tónskáld, Orm-
arslóni í Þistilfirði, er áttatíu og
fimm ára í dag.
Starfsferill
Jóhann er fæddur í Ormarslóni í
Þistilfirði og ólst þar upp. Hann
varð strax tónelskur og fór ungur að
leika á hljóðfæri. Jóhann kynntist
norskum sjómönnum á Raufarhöfn
og þeir létu honum í té nótnabækur
sem hann fór að spila eftir. Auk
þess að vera einn af brautryðjend-
um harmóníkunnar hérlendis og
þvi að fylgjast með þróun hennar í
heiminum var Jóhann mikill hag-
leiksmaður á bæði tré og jám.
Jóhann kenndi í Tónlistarskóla
Raufarhafnar i átta ár og fjögur ár á
Þórshöfn, auk þess að hafa marga
nemendur í einkakennslu í gegnum
árin. Hann hefur fengist mikið við
tónsmíðar og eftir hann liggja mörg
verk. Jóhann spilaöi fyrstur manna
einn inn á harmóníkuplötu árið
1933 en þar var um að ræða tvö
frumsamin lög eftir hann sjálfan.
Fleiri verk hans hafa verið gefin
út á plötum, auk þess sem Jóhann
hefur flutt verk sín bæði í útvarpi
og sjónvarpi. Jóhann hélt fjölda tón-
leika um landið fyrir og eftir síðari
heimsstyrjöldina ásamt Þorsteini
Pétri bróður sínum en þeir vora þá
þekktir sem Ormarslónsbræður. Jó-
hann hefur síður en svo sagt skilið
við harmóníkuna og spilar á hana á
hverjum degi.
Fjölskylda
Sambýliskona Jóhanns í átta ár
var Ellen Ludvigsen, f. 1911, d. 1994,
húsfreyja, af dönskum ættum.
Systkini Jóhanns:
Hólmgrimur, f. 12.4. 1906,
d. 10.6. 1946, prestur á
Skeggjastöðum við
Bakkafjörð og síðar á
Raufarhöfn; Kristjana
Sigríður, f. 16.2. 1909, d.
2.2.1982, húsmóðir í Orm-
arslóni og síðar á Raufar-
höfn; Þorsteinn Pétur,
f.11.9. 1914, d. 4.4. 1970,
bóndi í Ormarslóni og síð-
ar í Vogi.
Foreldrar Jóhanns:
Jósef Kristjánsson, f.
20.12. 1881, d. 18.5. 1972,
bóndi, og k.h., Halldóra Þorgríms-
dóttir, f. 16.4. 1875, d. 13.7. 1958, hús-
móðir.
Ætt
Jósef var sonur Kristjáns Jó-
hannssonar bónda, sem
ættaður var úr Skaga-
firði, og konu hans, Sig-
ríðar Jónasdóttur, hús-
móður úr Þistilfirði, en
þar bjuggu þau sinn bú-
skap.
Halldóra var dóttir Þor-
gríms Kristjánssonar,
bónda frá Leirhöfn á
Melrakkasléttu, og konu
hans, Hólmfríðar Péturs-
dóttur húsmóður, frá
Oddsstöðum á Melrakka-
sléttu. Ein af systram
Halldóru var Jóhanna,
húsmóðir í Reykjavík, móðir Láras-
ar Pálssonar leikara og Hólmfríðar
systur hans sem oft dvöldu í Orm-
arslóni.
Jóhann er að heiman á afmælis-
daginn.
Jóhann Óskar
Jósefsson.
Ásmundur Jóhannes Aðalsteinsson
Ásmundur Jóhannes Aðsteinsson
sjómaður, Hafnarstræti 18 B, Akur-
eyri, er sjötíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Ásmundur fæddist í Þinghól í
Glæsibæjarhreppi og ólst þar upp
fyrstu tíu árin en síðar að Skútum á
Þelamörk. Hann var í barnaskóla í
Þelamörk. Um fermingaraldur fór
Ásmundur að Sílastöðum í Glæsi-
bæjarhreppi þar sem hann var
vinnumaður í fimm ár. Hann stund-
aði síðan sjómennsku, einkum frá
Akureyri, fyrst á mótorbátum en
síðan háseti á toguram hjá Útgerð-
arfélagi Akureyrar.
Ásmundur kom í land 1973. Hann
starfaði við fiskimóttöku hjá Út-
gerðarfélagi Akureyrar næstu tíu
árin og loks við skinnaiðnaðinn á
Akureyri í sjö ár.
Fjölskylda
Ásmundur kvæntist 1943 Guð-
rúnu Jónsdóttur, f. 13.11. 1922, hús-
móður. Hún er dóttir Jóns Jóhanns-
sonar og Kristínar Sigurðardóttur.
Böm Ásmundar og Guðrúnar eru
Sigríður Alda, f. 30.12. 1943, starfs-
maður við Skattstofuna á Akureyri,
gift Guðmundi Friðfinnssyni húsa-
smið og eiga þau tvö börn, Ásrúnu
og Friðfinn; Nanna Guörún, 25.8.
1946, húsmóðir og sjúkraliði í Hafn-
arfirði, gift Bjama Róbertssyni, vél-
virkja í Straumsvík, og eiga þau
fimm böm: Róbert, Guðrúnu, Þór-
laugu, Kristínu og Lísu; Jón, f. 15.8.
1949, vélvirki á Akureyri, kvæntur
Katrínu Sverrisdóttur húsmóður og
eiga þau þrjú böm, Auði Elvu, Guð-
rúnu Lilju og Sverri Má; Gylfi, f.
21.10.1950, leigubílstjóri á Akureyri,
kvæntur Guðnýju Sigurhansdóttur
húsmóður og eiga þau þrjú böm,
Jón Helgason, Ásmund Rúnar og
Heiðbjörtu Unni; Þröstur, f. 26.5.
1952, kennari við VMA, búsettur á
Akureyri, kvæntur Aðalheiöi Stein-
grímsdóttur kennara og á hann þrjú
börn, Skarphéðin, Guðrúnu Ástu og
Rannveigu; Ásdís, f. 18.9. 1953, hús-
freyja að Ártröð V í Hrafnagili, gift
Oddi Guðmundssyni kennara og
eiga þau þrjá syni, Guðmund Ævar,
Ásmund Hrein og Bjarka Ármann.
Ásmundur átti níu systkini og
komust sjö þeirra á legg. Hann á nú
sex systkini á lifi.
Foreldrar Ásmundar vora Aðal-
teinn Jóhannsson, bóndi að Skútum
á Þelamörk, og k.h., Sigríður Sigur-
jónsdóttir húsfreyja.
staðgreiðslu- og greiðslu-
kortaafsláttur og stighœkkandi
birtingarafsláttur
a\\t mi!/í
v,
%
u
Smáauglísingar
DV
550 5000
DV
Til hamingju
með afmælið
20. desember
75ára
Pálína Guðvarðardóttir,
Birkihvammi 15, Kópavogi.
70 ára
Sigurrós Sigurðardóttir,
Bergstaðastræti 48 A, Reykja-
vík.
60 ára
Runólfur Þór Eiríksson,
Hverafold 21, Reykjavík.
Sesselja Þorsteinsdóttir,
Hraunholti, Kolbeinsstaða-
hreppi.
Inga Marianne Ólafsson,
Grenimel 38, Reykjavík.
50 ára
Arthur Karl Eyjólfsson,
Holtsgötu 14 A, Reykjavík.
Elísabet Jóna Sveinbjörns-
dóttir
leikskóla-
kennari,
Austur-
brún 2,
Reykja-
vík.
Hún er nú
stödd á
Flórída
um þessar
mundir en
ar þar er:
6018 SE Grand Cay CT
Emerald Lakes
Stuart 34997
Florida USA
s: 561 781 0026.
Ester Sigurðardóttir,
Reynibergi 3, Hafnarfirði.
Ólafur Gíslason,
Bakkaseli 4, Reykjavík.
Erla Eyþórsdóttir,
Hjaltabakka 2, Reykjavík.
Sigurður Steingrímsson,
Ysta-Mói, Fljótahreppi.
Sveinn Sigurðsson,
Indriðastöðum, Skorradals-
hreppi.
40 ára
Lárus Einarsson,
Hörgsholti 11, Hafnarfirði.
Sverrir Hjaltason,
Lágholtsvegi 15, Reykjavík.
Soffía Hjördis Guðjónsdótt-
ir,
Breiðvangi 56, Hafnarfirði.
Sigurjón Gunnarsson,
Lambastaðabraut 9, Seltjarn-
amesi.
Þorleifur Geirsson,
Þórólfsgötu 12, Borgamesi.
Sigurður Ingi Gunnarsson,
Brekkulæk 6, Reykjavík.
Jóhann Hauksson,
Logafold 150, Reykjavík.
Margrét S. Kristjánsdóttir,
Stapasíðu 15 E, Akureyri.
Guðrún Katrín Jónsdóttir,
Vatnsnesvegi 21, Keflavík.
Bjöm Ragnar Morthens,
Háaleitisbraut 48, Reykjavík.
heimlisfang henn-
Á NÆSTA
SÖLUSTAÐ
EÐA
IÁSKRIFT
ÍSÍMA
550 5752