Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Side 32
44 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996 Bækur og kjöt „Við erum ekkert að fara í hangikjötið hjá Griffli, við erum í jólaskapi og seljum bækur og ritföng, það er okkar sérgrein." Jóhanna Jóhannesdóttir versl- unarstjóri, í Degi-Tímanum. Bækur og makkintoss „Við fylgjumst með og svörum samkeppninni, hvort sem það eru bækur eða makkintoss." Jóhannes Jónsson, kaupmað- ur í Bónusi, í Degi-Tímanum. í stórmarkað fer ég ekki „Ég er búin að koma víða við að undanfömu og lesa upp... í stórmarkaði fer ég ekki, ég vil sýna bóksölum stuðning. Ekki svo að skilja að mér fmnist ekki líka vænt um kjöt.“ Vigdís Grímsdóttir rithöfundur, í Degi-Timanum. Ummæli Ungskáldastimpillinn „Ég er nú orðin 29 ára gömul og þessi ungskáldastimpill er leiðigjam. Ég er svo sem ekki sjötug heldur." Margrét Lóa Jónsdóttir Ijóð- skáld, í Alþýðublaðinu. Ríkisskrípó „Mér sýnist þetta eigi að vera hefðbundið „skrípó“ hjá ríkis- stjórninni - að búa til nýjar álög- ur til að geta síðan dregið þær að einhverju leyti til baka af góð- semi sinni." Björn Grétar Sveinsson, for- maður VMSÍ, í DV. Bjúgnakrækir kemur í Þjóð- minjasafnið í dag. Bjúgna- krækir, brögðóttur og snar Á hverjum degi kemur einn jólasveinn til byggða og allir koma þeir við í Þjóðminjasafn- inu. í dag er komið að jólasveini númer níu, Bjúgnakræki. Hann kemur í Þjóðminjasafnið kl. 14 og verður boðinn velkominn þar Blessuð veröldin af hópi gesta. Þá kemur hann einnig við í húsdýragarðinum. Á morgun er svo Gluggagægir væntanlegur. í kvæði Jóhann- esar úr Kötlum um jólasveinana segir um Bjúgnakræki: Níundi var Bjúgnakrækir, brögðóttur og snar. Hann hentist upp í rjáfrin og hnuplaði þar. Á eldhúsbita sat hann í sóti og reyk og át þar hangið bjúga, sem engan sveik. Hæg austlæg átt Yfir Norðaustur-Grænlandi er 1035 mb hæð sem þokast austur. YFir Labrador er vaxandi lægð sem hreyfist norðaustur. Langt suður í Veðrið í dag hafi er 975 mb lægð sem hreyfist suðaustur. í dag verður austlæg átt og skýjað við suðurströndina en hæg breyti- leg átt og víðast léttskýjað í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 4 stig við suð- vesturströndina en annars frost 1 til 13 stig. Á höfuðborgarsvæðinu verður austan gola. Sólarlag í Reykjavík: 15.30 Sólarupprás á morgun: 11.22 Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.08 Árdegisflóð á morgun: 03.43 Veðriö kl. 6 í morgun: Akureyri léttskýjaö - -11 Akurnes Bergstaöir léttskýjað -5 Bolungarvík skýjað -3 Egilsstaðir heiöskírt -9 Keflavíkurflugv. skýjað 1 Kirkjubkl. léttskýjað -0 Raufarhöfn heiðskírt -9 Reykjavík skýjað 3 Stórhöfði alskýjaó 4 Helsinki léttskýjaö -8 Kaupmannah. léttskýjað -8 Ósló léttskýjað - -17 Stokkhólmur léttskýjað - -12 Þórshöfn skýjað 1 Amsterdam alskýjað 1 Barcelona heiðskírt 8 Chicago hálfskýjaó - -14 Frankfurt súld 3 Glasgow skýjað 5 Hamborg skýjað -1 London alskýjað 7 Los Angeles Madrid skýjað 8 Malaga þokumóöa 15 Mallorca léttskýjað 8 París þoka i grennd 10 Róm rigning 12 Valencia rign. á síð.kls. 10 New York skýjað -1 Orlando heiðskírt 2 Nuuk alskýjað -2 Vín súld 3 Washington léttskýjaö 5 Winnipeg alskýjað - -22 Astþór Ingason körfuboltaþjálfari: Bvrjaði í körfubolta þriggja ára DV, Suðurnesjum: „Mitt fyrsta verkefhi verður að þjappa hópnum saman og fara að spila sem ein liðsheild. Það er bú- inn að vera mikil óróleiki í Njarð- vík en nú verður því ýtt til hliðar," sagði Ástþór Ingason, hinn nýráðni þjáifari Njarðvíkinga í körfúknatt- leik. Hann tók við af Hrannari Hólm sem var leystur frá störfum. „Liðið hefur ekki náð slæmum árangri. Við höfum unnið góða sigra og tapað leikjum mjög illa með mun, þetta er of sterkt lið til þess. Það býr miklu meira i þessu liði en það vantar stöðugleika og kannski meira skap í leikmenn." Maður dagsins Ástþór var aðstoðarþjálfari Hránnars. „Ég skipti litlu máli enda var hann þjálfarinn. Ég átti mjög gott samstarf við hann og þar er á ferðinni fær þjálfari en ein- hverra hluta vegna passaði hann ekki inn í þetta umhverfi í Njarð- vík.“ Ástþór segist hafa byrjað að æfa körfubolta 3 ára með Njarðvík. Fað- ir hans, Ingi Gunnarsson, var að þjálfa ÍKF í Krossinum í Njarðvík og var Ástþór meðal annars í Ástþór Ingason. kennslu hjá föður sinum. Ingi var fyrsti landsliðsfyrirliði íslands í körfuknattleik. Ástþór lék alia yngri flokka með Njarðvík nema 2 ár þegar hann fór í nám í Reykholti í Borgarfirði fyrstu fjölbrautaskóla- árin. Þegar hann kom heim 1984 fór hann að spila með meistaraflokki og varð íslandsmeistari sama ár. Ástþór varð fyrir miklu áfalli í byrjun undirbúningstímabilsins í fyrra þegar hann þurfti að hætta að æfa og spila körfuknattleik vegna hnémeiðsla. Hann var fyrirliði liðs- ins og hefur verið einn besti leik- maður þess um langt árabil. Ast- þór, sem er 32 ára, hefur þjálfað yngri flokka félagsins en aldrei meistaraflokk. „Þetta er skrýtin til- finning og enn þá skrýtnara að ég hef þjálfað ýmsa menn í þessu liði þegar þeir voru í yngri flokkum, eins og Friðrik Ragnarsson og Pál Kristinsson. Ég hafði alls ekki hugsað mér að fara út í þetta. Ég kom inn í þetta að beiðni leik- manna og stjómar Njarðvíkur." Ástþór starfar sem deildarstjóri hjá hlað- og ræstideild Flugleiða á Keflavíkurflugvelli. „Ég tók við þessu starfi í maí. Ég er mjög ánægður að vinna hjá fyrirtækinu enda væri ég ekki búinn að vinna þar í 14 ár nema ég væri ánægður. Ég mun láta vinnuna ganga fyrir ef það stangast eitthvað á og síðan kemur körfúboltinn. Ég gæti þetta ekki nema hafa fjölskylduna með. Ég er búinn að vera með eiginkonu minni í 16 ár og hún veit alveg hvað um er að vera.“ En hver era áhugamál Ástþórs, fyr- ir utan körfubolta? „Ég er mikill íþróttafikill. En toppurinn er að fara í veiðitúra og veiða fisk. Þá er það nátt- úrlega einnig fjölskyldan." Eiginkona Ástþórs er Helga Kristín Friðriksdótt- ir og eiga þau tvö böm, Söndru, 6 ára, og Andra, 3 ára. -ÆMK Jólsöngvar Lang- holtskórsins í átján ár hefur Kór Langholts- kirkju sungið jólasöngva og era þeir ávallt sungnir síðasta föstu- dags- kvöld fyrir jól kl. 23.00 og finnst mörgum gott að koma í Lang- holts- kirkju og hlusta á falleg ólöf Kolbrún Harðar- tóg eftir dóttjr buðar- ráp kvöldsins. Vinsældirnar hafa aukist ár frá ári og nú er svo komiö að tónleikamir verða þrjú kvöld og era þeir fyrstu í kvöld, síðan verða þeir endur- teknir á sama tíma annað kvöld og á sunnudagskvöldið kl. 20.00. Tónleikar Einsöngvarar á tónleikunum verða Eiríkur Hreinn Helgason og Ólöf Kolbrún Harðardóttir ásamt félögum úr kómum. Hljóðfæraleikarar eru Bernard S. Wilkinson, sem leikur á flautu, Hallfríður Ólafsdóttir á flautu, Monika Abendroth á hörpu, Jón Sigurðsson á kontra- bassa og Gústaf Jóhannesson leikur á orgel. Gradualekór Langholtskirkju syngur með Kór Langholtskirkju. Stjómandi kór- anna er Jón Stefánsson. Bridge Hvor sagnhafanna skyldi hafa spilað betur úr spilunum í þessu dæmi? Spilið kom fyrir í sveita- keppni í Bandaríkjunum í síðasta mánuði og lokasamningurinn var sá sami á báðum borðum, þrjú grönd spiluð í suður. Á öðru borð- anna gengu sagnir þannig, vestur gjafari og allir á hættu: * G64 * ÁK52 4 G72 * K86 4 ÁD8732 «4 1093 4 84 * D3 4 K5 44 D74 4 ÁD963 * ÁG4 Vestur Norður Austur Suður 2 4 pass 3 4 3 Grönd p/h Austur tók mikla áhættu þegar hann sagði þrjá spaða og hefði getað farið illa út úr því, því hægt er að ná þeim samningi 4 niður (doblað 1100). En suður var í vanda gegn þriggja spaöa sögn austurs og ákvað að skjóta á þrjú grönd. Hann var ekki óheppinn með blindan, en þrátt fyrir mikinn punktastyrk var samningurinn hvergi nærri öragg- ur. Útspilið véu- spaðasjöa og sagn- hafi átti slaginn í blindum á gos£mn. Hann ákvað að spila næst tígulgos- anum og ef austur hefði sett lítið spil er aldrei að vita nema sagnhafi hefði ákveðið að setja ásinn og treysta frekar á hjarta og laufið. En austur lagði eðlilega kónginn á gos- ann og nú gat sagnhafi talið 8 slagi. Þegar hjörtun vora tekin þrisvar sinnum var níundi slagurinn mætt- ur og sá tíundi kom þegar laufið var toppað. Á hinu borðinu opnaði vest- ur á tveimur spöðum sem pössuð voru yfir til suðurs. Suður sagði þrjá tígla, norður þrjá spaða og suð- ur þrjú grönd. Útspilið var það sama, sagnhafi fékk fyrsta slaginn á spaðagosa, tók þrjá hæstu í hjarta og þegar liturinn féll var ljóst að að- eins þurfti einn slag til viðbótar. í fjórða hjartað henti austur laufi og vestur tígli og þá ákvað sagnhafi að gera ráð fyrir þvi að austur ætti lengd í laufi. Hann tók því á lauf- kóng og svínaði gosa og vestur tók 6 næstu slagi. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.