Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Blaðsíða 2
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 DV
Máli ríkissaksóknara gegn ritstjóra Alþýðublaðsins vísað frá:
Fangelsismálastjóri
sæki mál eins og aðrir
- Héraðsdómur hefur réttilega snuprað Alþingi, segir Hrafn Jökulsson
Máli ríkissaksóknara gegn Hrafni Jökuissyni var vísaö frá Héraösdómi í gær. Hrafn var aö vonum ánægöur meö niö-
urstööuna. DV-mynd Hiimar Þór
„Kjami málsins er sá að Héraðs-
dómur hefiir úrskurðað að nýleg lög
Alþingis, sem kveða á um að rík-
issaksóknari taki að sér meiðyrða-
mál fyrir opinbera starfsmenn, eru
brot á stjómarskránni. Hið sögulega
er aö dómurinn segir skýrt að opin-
berir starfsmenn, eins og Haraldur
Johannessen, njóti ekki sérréttinda
lengur,“ segir Hrafn Jökulsson, rit-
stjóri Alþýðublaðsins, vegna þess að
máli sem ríkissaksóknari höfðaði
gegn honum var vísað frá. Málið
var höfðað vegna greinar sem Hrafn
ritaði í blað sitt þar sem hann kall-
aði Harald Johannessen fangelsis-
stjóra glæpamannaframleiðanda
ríkisins. Haraldur Johannessen
fangelsismálastjóri getur ekki kraf-
ist þess að ríkissaksóknari höfði
sakamál gegn Hrafni Jökulssyni
vegna meintra ærumeiðinga á hend-
ur honum sem opinberum starfs-
manni í Alþýðublaðinu - slíkt er
mismunun og stríðir gegn jafnræö-
isreglu stjómarskrárinnar. Opin-
berir starfsmenn verða því að sækja
mál sjálfír - höfða einkamál eins og
aörir borgarar - telji þeir misgjört
við sig.
Þetta var niðurstaða Héraðsdóms
Reykjavíkur í gær í máli ríkissak-
sóknara gegn Hrafni eftir að Harald-
ur halði krafist þess, samkvæmt
framangreindu lagaákvæði, að
Hrafn yrði ákærður í sakamáli.
Ákæmnni var hins vegar vísað frá
dómi í ljósi þess að lagaákvæði í
hegningarlögunum, sem lýtur að
ærumeiðandi aðdróttunum gegn op-
inberum starfsmönnum, er talið
stríða gegn stjómarskránni.
Haraldur kærði Hrafn eftir að
grein hans um aðbúnað fanga á ís-
landi birtist í Alþýðublaðinu. Þar
kom eftirfarandi m.a. fram:
„Haraldur Johannessen er ekki
fangelsismálastjóri. Hann er glæpa-
mannaframleiðandi ríkisins.“
Héraðsdómur tók ekki efnislega
afstöðu til sakargifta í gær. Dómur-
inn vísaði hins vegar til 65. greinar
stjómarskrárinnar þar sem m.a.
segir að allir skuli jafnir fyrir lög-
um án tillits til kynferðis ... og stöðu
að öðm leyti. Síðan var vísað til b-
liðar 242. greinar hegningarlaganna
þar sem m.a. segir að opinberir
starfsmenn krefjist þess að ríkissak-
sóknari ákæri þá sem hafi í frammi
við þá ærumeiðandi aðdróttanir.
Dómurinn telur að þetta ákvæði
hafi í för með sér þá mismunun að
fjárhagsleg áhætta samfara mála-
rekstri hvíli ekki á opinbera starfs-
manninum sem í hlut á heldur á
ríkissjóði. Síðan segir enn fremur í
dóminum: „Einstaklingar sem til-
heyra öðrum starfsstéttum bera
fjárhagslega áhættu og kostnað sam-
fara málarekstri af þessu tagi þrátt
fyrir að málatilbúnaðurinn tengist
starfi viðkomandi á sama hátt og í
máli þessu.“
Dómurinn telur því þessa mis-
munun eftir starfsstétt ekki sam-
rýmanlega jafnræðisreglu stjómar-
skrárinnar.
Hrafn segir að dómurinn kalli á
alvarlegar umræður um störf Al-
þingis.
„Nýju lögin vom sett vegna þess
að mannréttindadómstóll Evrópu
úrskurðaði að gamla lagagreinin
um sérvemd opinberra starfsmanna
væri brot á stjómarskrá. Þessu ætl-
aði Alþingi að breyta en vinnu-
brögðin vora forkastanleg og nú
hefur Héraðsdómur Reykjavíkur
tekið að sér að snupra Alþingi; ella
hefði Mannréttindadómstóllinn enn
og aftur þurft að áminna íslensk
stjómvöld um hvað ijáningarfrelsi
og jafnrétti þegnanna þýða í raun,“
segir Hrafh.
-Ótt/-rt
Friörik Sophusson um persónuafsláttinn:
Það er ekki um neina
skiptimynt að ræða
- samningamálin í uppnám, segir Ögmundur Jónasson,
Rífandi sala í skötu:
Allt að
helmings
verðmunur
Það er viðbúið að skötu-
anganin muni fylla mörg heim-
ilin á mánudaginn enda hefur
þessi vestfirski siður breiðst út
um allt land. DV hafði sam-
band við nokkrar fiskbúðir og
fékk þær upplýsingar að salan
hefði verið lengi að fara af stað
en hefði byrjað með látum í
gær og væri rífandi stemning.
Fisksalar vom einnig á einu
máli um að þeir sæju nokkra
aukningu í sölu milli ára
þannig að vinsældimar virðast
vera að aukast. Mest er salan í
kæstri og saltaðri skötu en aör-
ar tegundir seljast líka vel.
Verðið er á bilinu 400-790, úr-
valið er nóg og ætla flestir fisk-
salar að hafa opið alla helgina
til að tryggja að enginn missi
af skötuveislu. -ggá
Karlsvaka í
Gamla bíói
Sunnudagskvöldið 29. des-
ember verða haldnir minning-
artónleikar um tónlistar-
manninn Karl J. Sighvatsson
en fimm ár em síðan hann
lést. Á tónleikunum koma
fram margir kunnir tónlistar-
menn, til dæmis Páll Óskar
Hjálmtýsson, Emilíana Torr-
ini og Páll Rósinkranz. Tón-
leikamir em haldnir til
styrktar Minningarsjóði Karls
Sighvatssonar sem notaður er
til að styðja unga íslenska tón-
listarmenn í námi.
-JHÞ
„Þetta hefur ekkert með kjara-
samninga að gera og er því engin
skiptimynt í tengslum við þá. Þeir
sem segja að svo sé em væntan-
lega þeir sem hugsa sér að taka
skattamál upp í komandi kjara-
samningum. Það hefur svo sem
gerst oft áður. Ég hélt satt að segja
að þessir kjarasamningar gengju
fyrst og fremst út á það hvaða kjör
ættu að verða hjá launamönnum
og hvaða kröfur þeir væm að gera
til vinnuveitenda,“ sagði Friðrik
Sophusson fjármálaráðherra í
samtali við DV.
Hann segir að í fjárlögum fyrir
næsta ár sé ekki gert ráð fyrir því
að tekjuskatturinn skili aukninn
tekjiun vegna þess að persónuaf-
slátturinn er ekki færður upp til
verðlags.
„Þeim 800 milljónum króna sem
verða til með þessum hætti verð-
ur skilað út í formi skattalækkun-
ar í tekjuskattskerfinu. Það var
hins vegar álitið eðlilegt að bíða
eftir niðurstöðu nefndar sem er að
skoða hugsanlegar breytingar á
tekju- og eignarskattslögunum,
með tilliti til jaðaráhrifa skatt-
kerfisins. Sú nefnd skilar væntan-
lega af sér i næsta mánuði. Hvem-
ig þessum fjármunum verður ráð-
stafað, hvort það verður gert með
því að hækka persónuafsláttinn
eða með því að draga úr jaðará-
hrifunum hjá fólki með böm á
framfæri, skuldar námsskuldir
eða skuldar vegna húsnæðis-
kaupa, verður ekki ljóst fyrr en
tillögur nefndarinnar liggja fyrir,"
sagði Friðrik.
Hann var spurður hvort það
hefði ekki verið afleikur að koma
með þessa hækkun í upphafi við-
kvæmra kjarasamninga.
„Þetta er hvorki leikur né af-
leikur. Það er ljóst að þeir fjár-
mvmir sem þama er um að ræða,
800 milljónir króna, em til ráð-
stöfunar í lækkun tekjuskattsins
þegar nefndin hefur lokið störf-
um,“ segir Friðrik Sophusson.
Ögmimdur Jónasson, formaður
BSRB, er ekki á sama máli.
„Það þarf enginn að velkjast í
vafa um það að breytingar á skött-
um verða ekki skiptimynt í kjara-
samningum. Það er afdráttarlaust.
Við höfum verið því fylgjandi að
gera breytingar á skattkerfinu en
það er alveg aðskilið kjarasamn-
ingiun. Það er kosningaloforð
stjórnarflokkanna að lækka jaðar-
skatta. Það var hins vegar aldrei
rætt um að gera það með því að
hækka tekjuskatt annarra en
þeirra sem jaðarskattamir snerta
um 800 milljónir króna. Þetta er
loddaraleikur sem fólk sér í gegn-
um en auövitað hleypir þetta
samningamálunum í uppnám,"
sagði Ögmundur Jónasson.
Istuttar fréttir
Fiskiðjusamlagið tapar
Tap Fiskiðjusamlags Húsavik-
ur á þessu ári nam alls 186 millj-
ónum króna. Ástæða tapsins er
sögð vera mikil lækkun á rækju-
afurðum og óarðbærar veiðar á
| Flæmingjagrunni.
Læknafélag gerir kröfur
Læknafélag íslands vill að sér-
menntaðir heimilislæknar fái að
Shefia störf utan heilsugæslu-
stöðva í Reykjavík. Þetta á aö
verða til þess að eðlileg nýliðun
sé tryggð í stéttinni.
jVextir ákvarðaðir
Ríkisstjómin hefur ákveðið að
|vextir á skylduspamaðarreikn-
ingum hjá Byggingarsjóði ríkis-
ins verði 5,5%. RÚV greindi frá.
Reykur úr skóla
Slökkviliðið á Egilsstöðum var
í gær kvatt að Brúarskóla í Jök-
ulsárhlíð en tvær konur sáu
rjúka úr honum. Pottur hafði
jgleymst á eldavél. RÚV sagði frá.
Skip til Namibíu
f Skipin Siglfirðingm- SE og Snæ-
fellingur SH fara til Namibíu til
rækjuveiða 8. janúar næstkom-
andi. Bylgjan sagði frá.
Atvinnu-
leysi
eykst
Alls vom 5.169 manns á atvinnu-
leysisskrá í nóvember, þar af voru
2.147 karlar og 3.022 konur. Þessar
tölur jafiigilda því að atvinnuleysi
hafi verið 4% í nóvembermánuði.
Atvinnulausum flölgaði því um 223 á
landinu sé miðað við októbermánuð.
Atvinnuleysi í nóvembermánuði
1995 nam 4,4%.
-S.dór
Útlendingaeftirlitið:
Kínverjarnir halda heim i dag
„Þessir krakkar hafa búið á
gistiheimili þennan tíma og hafa
verið algerlega frjálsir ferða
sinna. Þeir hafa sjálfir ákveðið
aö þeir vilji fara heim og líklega
fara þeir með flugi á morgun,"
sagði Jóhann Jóhannsson, for-
stöðumaður Útlendingaeftirlits-
ins, í samtali við DV í gær um
Kínverjana sem komu hingað til
lands með folsuð vegabréf.
Kínverjamir em fiórir og á
aldrinum 19-25 ára. Jóhann segir
þá hafa komist yfir folsuðu skil-
ríkin í Hong Kong og að þeir hafi
ekki viljað snúa aftur þangað því
það myndi bara þýða fangelsis-
vist fyrir þá. Héðan ætluðu þeir
að komast til Ameríku.
-sv