Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Blaðsíða 38
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996
Frumsýning Nemendaleikhúss Leiklistarskóia fslands:
Gyðingaofsóknir í nútíð og fortíð
Æflngar standa nú yfir á öðru
verkefni Nemendaleikhúss Leiklist-
arskóla íslands á þessu leikári. „Há-
tíð“ heitir verkið og er eitt
þekktasta verk ungverska leikrita-
skáldsins George Tabori.
„Þetta er í fyrsta sinn sem verk
eftir Tahori er sett á svið hér á
landi. í leikritinu Hátíð er mikið
um tónlist og við leituðum til Tón-
Höfundur verksins, George Tabori, er landflótta gyðingur frá Búdapest.
Lfkin í gyðingakirkjugarðinum í verkinu Hátíð eftir George Tabori, verk sem Nemendaleikhús Leiklistarskóla Islands
framsýnir í næsta mánuði.
listarskólans í fyrsta sinn um sam-
starf. Þaðan koma fjórir hljóðfæra-
leikarar til þess að leika fjölbreytt
sambland gyðingatónlistar og
þýskrar alþýðutónlistar i verkinu,“
sagði Gunnar Hansson, einn átta
leikara í verkinu.
Hinir leikararnir, auk Gunnars,
eru Atli Rafn Sigurðarson, Baldur
Trausti Hreinsson, Halldór Gylfa-
son, Hildigunnur Þráinsdóttir, Inga
María Valdimarsdóttir, Katla Mar-
grét Þorgeirsdóttir og Þrúður Vil-
hjálmsdóttir. Þau eru öll nemar í
Nemendaleikhúsinu og ljúka námi
næsta vor. Leikstjóri verksins er
Kolbrún Halldórsdóttir en Bjami
Jónsson leikhúsfræðingur er þýð-
andi verksins.
Leika framliðna
„George Tabori er ekki alveg
óþekktur hér á landi því hér var
flutt útvarpsleikrit eftir hann,
„Móðir mín hetjan", í þýðingu Þor-
steins Þorsteinssonar. Það verk var
annars eðlis en Hátíð, útvarpsleik-
ritið var bein frásögn úr stríðinu.
Málefni gyðinga eru Tabori hugleik-
in í verkum hans enda er hann sjálf-
ur landflótta gyðingur.
Framsetning Hátíðar er nokkuð
óvenjuleg. Sögusviðið er kirkjugarð-
ur og gerist í nútímanum. Leikend-
ur eru lík í gyðingakirkjugarði. Það
eru sex lík, fjórir gyðingar og tveir
hommar sem eru að rifja upp ævi
sína og dauðdaga. Inn í söguna kem-
ur frásögn af nýnasista. Þannig er
ekki einungis verið að greina frá
gyðingaofsóknum heimsstyrjaldar-
áranna heldur einnig hvaðá áhrif
gyðingaofsóknir hafa á þjóðfélagið í
dag. Sú sem er „yngst“ af líkunum
lét til dæmis lífið fyrir hendi nýnas-
ista.
Efnistök eru ekki heldur með
hefðbundnum hætti; það er stokkið
fram og aftur í tíma. Mikið er um
tónlist í verkinu og gyðingatónlistin
í því er frábær. Einnig er töluvert
um stríðsáratónlist og söng-
leikjatónlist sem tengist sögunni á
einn eða annan hátt. Leikritið Hátíð
verður frumsýnt þann 8. janúar í
Lindarbæ, leikhúsi Leiklistarskóla
íslands,“ sagði Gunnar.
George Tahori fæddist í Búdapest
1914 en flýði land árið 1933 við
valdatöku nasista. Hann fluttist
fyrst til Bretlands, siðar Bandaríkj-
anna en býr nú og starfar í Vínar-
borg. Tabori skrifar, leikur og leik-
stýrir jöfnum höndum. Hátíð skrif-
aði hann árið 1983 og hefur það, frá
frumsýningu í Bochum í Þýska-
landi, verið sýnt víða um Evrópu
við góðan orðstír.
-ÍS
Það er orðin hefðbundin venja að
glímt sé við bridgeþrautir yfir jóla-
helgina og hér koma tvær úrspils-
þrautir. Þær eru ekki mjög þungar
en menn skyldu varast að vanmeta
varnarspilarana.
Sveitakeppni S/A-V
* Á8
* D942
* ÁKG753
* Á
N
V A
S
* DG10972
«* -
* 642
* G1063
spöðum og norður hækkar í fjóra.
Engin heflr neitt við það að athuga
og vestur spilar út hjartafímmi. Þú
lætur lágt úr blindum, austur lætur
gosann og þú trompar. Hvað svo?
2. Sveitakeppni N/N-S
* ÁD82
3
* ÁK109432
* 6
N
V A
S
♦ G1076
* D7
♦ 85
* KD943
Sagnir eru ekki margbrotnar, Sagnir hafa gengið á þessa leið:
suður opnar í fyrstu hönd á þremur
■'Vffi
ALLAR jOLABÆKURNAR
MEÐ AFSLÆTTI
OG í JÓLABÚNINGI!
OPIÐTIL JÓLA:
Laugardaginn 21. des. kl. 10-22
Sunnudaginn 22. des. kl. I4-I8
Þorláksmessu 23. des. kl. 10—23
Aðfangadag 24. des. kl. I0-I3
Persónuleg þjónusta
Einnig
allir nýjustu,
íslensku
geisladiskarnir
0DC3]|
Bóka-, ritfanga- og gjafavöruverslun
Miðbæ - Háaleitisbraut 58-60 - Sími 553-5230
Norður Austur Suður Vestur
lf 1* 1 *(1) 2*
4 grönd 5* dobl(2) pass
5* pass pass pass
(1) Þið spilið neikvæð dobl en þú
varst með eitt lauf á milli spaðanna.
Það kemur fyrir.
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Engin lykilspil (Fimm ása-Black-
wood).
Vestur spilar út hjartaás. Það
neitar kóngnum. Austur lætur lítið
og vestur skiptir í laufáttu. Austur
drepur á ásinn og spilar meira laufi.
Hvemig spilar þú í framhaldinu?
Svörin birtast í næsta þætti eftir
jól. Gleðilega hátíð.
Áskrifendur
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
Hitti Clinton
Það eru ekki margir íslendingar
sem hafa hitt Bandaríkjaforseta en
það hefur Gísli Thoroddsen, kokkur
í Perlunni, þó gert. Hann fór i ferða-
lag með klúbbnum Club des Chefs
des Chefs til Bandaríkjanna í sumar
og var stjanað við ferðalangana á
allan hátt. Matreiðslumennimir
vom meðal annars boðnir í einka-
samkvæmi í Hvita húsinu þar sem
Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna,
heilsaði upp á þá en sú heimsókn
sýnir náttúrulega hvað matreiðsla
er hátt skrifuð um allan heim.
Kampavín og rósir
Gæðablóðio úr þáttunum Beverly Hills
90210, Ian Ziering, ætlar bráðlega að gift-
ast unnustu sinni, fyrirsætunni Nikki
Schieler. Hann bað stúlkunnar fyrir
skömmu á mjög minnisstæðan hátt fýrir
hana í Los Angeles. Ziering leiddi hana að
forkunnarfógru blómabeði þar sem hann
gaf henni trúlofunarhring með demanti.
Hann bað hennar og hún sagði já. Eftir
bónorðið fóru hin nýtrúlofuðu í bíl Schiel-
ers þar sem biðu hennar sextíu rósir
ásamt tveimur kcunpavínsflöskum.
lan Ziering og Nikki Schieler hafa ástæðu
til að vera hamingjusöm þar sem hann
bað hennar fyrir skömmu og hún játaðist
honum.