Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Blaðsíða 60
I, immmgmr
11 Vertuviðbúin(n)vinningi
@<g}@
Vinningstölur
20,
KIN
FRETTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sðiarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996
Flóttinn af Sogni:
Pilturinn
náðist í
Hveragerði
- fannst í rútu
Pilturinn sem strauk af Sogni
snemma í gærmorgun náðist í
Hveragerði eftir tæplega þriggja
klukkustunda fjarveru. Það voru
starfsmenn Sogns sem fundu
manninn þar sem hann var kom-
inn upp í rútubifreið í Hvera-
gerði á leið til Reykjavíkur.
„Starfsmennirnir ráku slóð
piltsins í snjónum og hún leiddi
þá til Hveragerðis. Pilturinn var
illa klæddur í kuldanum og tölu-
vert þjakaður enda hafði hánn
gengið um 6 kílómetra leið,“ seg-
ir Grétar Sigurbergsson, yfir-
læknir á Sogni.
Lögregla á Selfossi og í Reykja-
vík hafði mikinn viðbúnað vegna
flótta piltsins og voru settir upp
vegatálmar. Að sögn Grétars er
pilturinn ekki talinn hættulegur
og því var hann í lágmarksgæslu
á Sogni. RR
Vestfirðingar:
Hafa ekki
verið færri
síðan 1860
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofu íslands fækkar Vestfirð-
ingum mikið. Þeir eru nú færri en
Garðbæingar og Álftnesingum til
samans. Fara þarf aftur til ársins
1860 til að finna sambærilegar
mannfjöldatölur á Vestjörðum.
Hinsvegar varð talsverð fólksfjölg-
un í Súðavík og lítilsháttar fjölgun
varð á Tálknafirði á árinu. -JHÞ
ÞAÐ TÓKST ÞÁ EKKI AÐ
FRAMLEIPA GLÆPA-
MANN ÚR HRAFNI!
Árás á yfirtollara á Bíóbarnum:
Arásarmaðurinn
dæmdur í þriggja
mánaða varðhald
Þórður Sigurjónsson, 42 ára
gamall Reykvíkingur, var í gær
dæmdur í þriggja mánaða varð-
hald í Héraðsdómi Reykjavikur
fyrir líkamsárás á Hauk Ric-
hardsson yfirtollvörð út af eftir-
lits- og gæslustörfum hans hjá
Töllgæslunni.
Árásin átti sér stað fimmtu-
dagskvöldið 9. maí sl. á Bíóbarn-
um við Klapparstíg. Þórður réðst
með ofbeldi á Hauk og sló til hans
þar sem hann sat á stólkolli við
barborð þannig að Haukur féll í
gólfið og hlaut heilahristing og
skurð á hnakka sem sauma þurfti
með 9 sporum. Þá sparkaði Þórð-
ur í kvið Hauks þar sem hann lá
á gólfmu svo af hlaust mar og
blæðing í kviðvegg hægra megin.
Ákærði hefúr frá árinu 1971
gengist 13 sinnum undir dómsátt,
þar af einu sinni árið 1971 vegna
líkamsárásar. Þá hefúr ákærði
hlotið 10 refsidóma frá árunum
1973 til 1996 vegna líkamsárása og
umferðarlagabrota.
í niðurstöðu dómsins segir að
þegar litið er til þess að árás
ákærða var fautaleg, ekki síst eft-
ir að hann réðst með spörkum að
kæranda er hann lá ósjálfbjarga á
gólfinu, og að hann hefur marg-
sinnis verið dæmdur fyrir lík-
amsárás þyki refsing ákærða
hæfUega ákveðin 3 mánaða fang-
elsi.
Þá var ákærði dæmdur tU að
greiða aUan sakarkostnað, þar
með talin saksóknaralaun í ríkis-
sjóð, 40 þúsund krónur, og
málsvarnarlaun skipaðs verjanda
síns, 40 þúsund krónur.
Ingibjörg Benediktsdóttir hér-
aðsdómari kvað upp dóminn.
-RR
Börnin á barnaheimilinu við Borgarholtsbraut í Kópavogi voru spennt á svipinn meöan þau biðu komu jólaveinanna
■ gær. Þau voru með jólastemninguna á hreinu enda áttu þau von á hvorki meira né minna en sex jólasveinum með
sælgæti og ávexti í poka. DV-mynd S
Veðrið á morgun
og á mánudag:
Úrkomulít-
ið og frem-
ur hlýtt
Fram undan er suðaustan-
gola, skýjað en úrkomulítið og
hiti á bilinu 0 til 4 stig á suðvest-
anverðu landinu. Það verður
hæg, breytileg átt, léttskýjað og
vægt frost á norðan- og vestan-
verðu landinu.
Veðrið í dag er á bls. 57
Stakfell
sigldi á
ísjaka
Stakfellið ÞH sigldi á borgarís-
jaka út af Norðurlandi í fyrrinótt.
Skipið var á heimleið til Þórshafnar
þegar þetta gerðist.
„Það var svartamyrkur þegar
slysið varð. Ég var staddur niðri í
koju þegar ég fann höggið sem var
minni háttar og enginn skipverja
var í hættu. Höggið kom efst á stefn-
ið, um fjóra metra fyrir ofan sjólínu,
og það kom dæld þar. Tjónið er lítið
sem betur fer,“ sagði Karl Baldvins-
son, skipstjóri Stakfellsins, við DV í
gærkvöld.
Stakfellið sigldi heim til Þórshafn-
ar án erfiðleika eftir áreksturinn og
liggur nú við bryggju þar. -RR
Sjötug kona:
Jólagjafa-
peningun-
um stolið
Kona, sem komin er fast að sjö-
tugu, missti veskið sitt fyrir utan
Öryrkjabandalagið fimm mínútur
fyrir átta á fimmtudagskvöldið.
Fimmtán mínútum síðar fær hún
símtal heim þar sem henni er til-
kynnt að veskið hafi fundist. Konan
hafði verið með 30 þúsund krónur
sem hún hafði ætlað til jólagjafa fyr-
ir böm sín en á þeim stutta tíma
sem leið hafði einhver hirt pening-
ana en skilið veskið eftir. -sv
Gæslufangi:
Slapp frá
RLR
Maður slapp úr gæslu rannsókn-
arlögreglumanna þegar leiða átti
hann fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur
um miðjan dag í gær.
Lögreglumenn gerðu þegar í stað
umfangsmikla leit að manninum en
hann var enn ófundinn þegar blaðið
fór í prentun í gærkvöld. -RR
Samkomulag
um net í Hvítá
Samkomulag hefur náðst milli
netaveiðirétthafa í Hvítá í Borg-
arfirði og veiðiréttareigenda berg-
vatnsáa í Borgarfirði um að neta-
veiði verði engin í Hvítá næstu 2
árin. Netaveiðirétthafar fá greidd-
ar 12 milljónir fyrir hvort ár.
- S.dór
Qleðilctj jál úi} tjæ/utikt
kúinandi ár með þökk
fyrir mðskiptin á árinu
sem er að líða.
If KfvTÍ.Í
I |i l< |.i-iOii 111
Sacark&Öa 2
Sémi 526 8000