Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Blaðsíða 32
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 I I ! i I « 1 ; í í v 36 bókarkafíi ik -_________ Lífsgleði Herdísar Þorvaldsdóttur leikkonu: Hjörtu okkar slógu örar þegar nær dró frumsýningu svo heppin að flugvélar sem flugu milli Evrópu og Ameríku þurftu að millilenda í Keflavík. Sftmdum var hægt að semja við listamenn og leik- hópa sem voru á leið til Bandaríkj- anna að stoppa hér í 2-3 daga og halda sýningar í leiðinni. Með þessum hætti fengum við oft frægar og dýrar sýn- ingar sem við hefðum aldrei annars haft ráð á að flytja hingað til lands. Var þetta sannkallaður listaveislutími og má nefna meðal annars kínversku ópenma, japanska dansara, þýska og sænska óperu og ballett, hinn fræga Robbins ballett úr Westside story og þannig mætti lengi telja. Þetta var eins og ferskur andblær í okkar fá- tæklega menningarlífi sem þá var. Eftirminnilegt. Vestur um haf Næsta leikferð til útlanda sem ég tók þátt í var farin til Vesturheims í íslendingabyggðirnar þar. Við flugum til Winnipeg og þaðan til Gimli við Winnipegvatn þar sem eru margir afkomendur Vestur-ís- lendinga. Margir skildu íslensku og þó nokkrir töluðu hana einnig sæmilega. Man ég þar meðal annars eftir hjónum einrnn sem ráku þar verslun og töluðu íslensku mjög vel. Dagskráin sem við fluttum var sett saman af brotum úr þjóðlegum leikritum, til dæmis Pilti og stúlku, Guilna hiðinu og fleiri atriðum í þessum dúr. En auk þessa var lesið úr íslenskum verkum og mikið sungið þar sem Þjóðleikhúskórinn var með í þessari ferð. Ég heyrði á tali fólks sem kom á sýningamar að það hefði ekki átt von á svo vand- aðri dagskrá. Frá Gimli ókum við í stórum rútubíl þvert yfir Kanada til Vancouver. Á leiðinni stönsuðum við á slétftmni í litlum bæ sem heit- ir Saskatchewan, en þar bjó fólk af íslenskum ættum sem stimdaði komrækt. Okkur þótti fróðlegt að skoða þessar óendanlegu sléttur sem við höfðum heyrt svo mikið um en aldrei litið eigin augum. Við Guðrún Stephensen vorum svo heppnar að lenda á bæ hjá hjónum sem áttu litla verksmiðju þar sem komið var malað fyrir bænduma í nágrenninu. Bóndinn sýndi okkur verksmiðjuna og sagði okkur frá lífi kombóndans. Hann tjáði okkur meðal annars að aldrei væri sáð í sömu reiti nema annað eða þriðja hvert ár. Moldin þyrfti sinn tíma til að jaftia sig og endumýjast. Hjónin töluðu svolitla íslensku, en hana höfðu þau lært af eldra fólkinu á bænum þegar þau vora að alast upp. Þau höfðu engan sérstak- an áhuga á málinu eða íslandi og höfðu aldrei komið til íslands né hugsað sér það. Mér finnst það eftirmmnilegt við þessa ferð hvað okkur var tekið vel alls staðar. Fólk var mætt á staðinn þegar við ókum í hlað. Okkur var boðin gisting á heimilum þeirra. Við vorum boðin upp! Sumir gátu tekið einn eða tvo til gistingar og aðrir fleiri. Á þennan hátt hittum við fólk úr mörgum stéttum og lent- um á ólíkum stöðum. Allir vom mjög gestrisnir og vildu allt fyrir okkur gera. Mér er ofarlega í minni sú mikla fegurð sem blasti við okkur þegar við ókum yfir Klettaíjöllin og kom- um við á nokkrum af fallegustu stöðum jarðar eins og í Banff þjóð- garðinn og Lake Louise, Hliði hel- vítis (Hellgate) og fleiri slíkum ógleymanlegmn stöðum. Við lukum ferðalagi okkar í Seattle og höfðum sýningu þar, en víða þar sem við komum lékum við og sungum á eUi- heimflum þar sem dvaldist fólk af islenskum ættum. Hörpuútgáfan á Akranesi hefúr gefið út bókina Lífsgleði eftir Þóri S. Guðbergsson. Bókin hefúr að geyma minningar og frásagnir þjóðþekkts fólks. Birt verður kaflabrot úr kafla Herdísar Þorvaldsdóttur leikkonu með góðfúslegu leyfi útgáfunnar. Sumar miUifyrirsagnir eru blaðsins. Þjóðleikhúsið - Draumar rætast Það er næsta ómögulegt að lýsa þeirri miklu eftirvæntingu og tU- hlökkun sem opnun Þjóðleikhússins vakti hjá okkur leikurunum og reyndar öUum almenningi. Nýr áfangi var að hefjast í menningar- sögu höfuðborgarinnar og landsins aUs. Grettistaki hafði verið lyft. Margir lögðu hönd á plóginn. Glæsi- legt hús var tekið í notkun. Eftir- væntingin var ólýsanleg. Ráðning Guðlaugs Rósinkranz í stöðu þjóðleikhússtjóra var mjög umdeUd, en hann reyndist á marg- an hátt stórhuga og úrræðagóður og svo mikinn metnað hafði Guðlaugur fyrir hönd starfsins og starfsmanna ailra að hann veðsetti jafnvel húsið sitt tU þess að geta bjargað tíma- bundnum fjárskorti fyrir hom. Það þurfti sannarlega dirfsku tíl að opna húsið með þremur stórsýningum á stóra sviöinu, sem vora frumsýndar þrjú kvöld í röð! Æfingatíminn reyndist langur. Gert hafði verið ráð fyrir að opna húsið 1. september, en það dróst fram að 20. aprU, sem bar upp á sumardaginn fyrsta. Húsið var ekki tflbúiö fyrr. Fram á síðasta dag var unnið af fuUum krafti bæði viö æf- ingar og byggingu. Hávaði af raf- magnsboram, hamarshöggum, dun- um og dynkjmn var stöðugt undir- spil við æfingar okkar leikaranna. Oft reyndi það á, en viö létum það ekki á okkur fá. Tilhlökkimin og gleðin hjálpaði okkur tíl að yfirstíga aUa erfiðleika og síöustu vikumar unnum við oft tU klukkan 3 og 4 á nóttinni. Hjörtu okkar slógu sífeUt örar eftir því sem nær dró framsýn- ingum. Ég held að enginn sem var á opn- unarsýningu fyrsta kvöldið á Nýár- snóttinni gleymi þeim sterku áhrif- um þegar fjaldið var dregið frá í fyrsta sinn og við blasti logndrífa á snæviþakið landslagið. HvUík tækni, hvUíkt ævintýri. AUt gekk eins og í sögu. Næsta kvöld var Fjalla-Eyvindur frumsýndur og þriöja kvöldið íslandsklukkan sem reyndar átti eftir að vekja mesta at- hygli og fá flesta áhorfendur. Ég gleymi aldrei þeim tíma þegar verið var að velja í hlutverk leikritanna. Ég held að það sé ein af stærstu stundum lífs míns þegar ég var beð- in um að leika Snæfríði íslandssól í ' íslandsklukkunni. Frá fyrstu kynn- um mínum af þessari sérstöku per- sónu elskaði ég hlutverkið og naut þess að vinna með þeim frábæra leikurum sem vora bókstaflega eins og kjömir hver í sitt hlutverk. Ég held að flestir þeir sem muna eftir þessari sýningu séu sammála mér um það. Næstu ár vora afar annasöm með mörgum stórum hlutverkum. Og á sama tíma eignaöist ég bömin mín. Það gustaði bæði um starfið og þjóð- leikhússtjóra á þessum árum og oft fannst mér gagnrýni á hann óverð- skulduð. Þannig hlýtur það auövit- að að vera um listastofnanir. Ég segi ekki meira að þessu sinni frá árunum í Þjóðleikhúsinu. Sú saga yröi alltof löng. Þess í stað langar mig til þess að segja örlítið frá 4 leikferðum til útlanda sem famar voru á vegum Þjóðleikhúss- ins og einni danssýningarferð! „Það er næsta ómögulegt að lýsa þeirri miklu eftirvæntingu og tilhlökkun sem opnun Þjóðleikhússins vakti hjá okk- ur leikurunum og reyndar öllum almenningi," segir Herdís Þorvaldsdóttir. Gullna hliðið í Dan- mörku og Noregi Árið 1955 var Þjóðleikhúsinu boðið að koma með gestaleik til Noregs og Danmerkur. Gullna hliðið varð fyrir valinu þar sem það er sjónrænt og auðvelt að fylgjast með atburða- rásinni án þess að skilja málið. Leiksfjóri var sjálfúr Lárus Pálsson og lék hann jafnframt skrattann. Brynjólfur Jóhannesson, Amdís Bjömsdóttir, Valur Gíslason, Gestur Pálsson, Jón Aöils og fleiri vora í sín- um gömlu hlutverkum frá því í Iðnó. Bryndís Pétursdóttir lék Maríu mey í stað öldu Möller sem var dáin, en ég lék Gabríel erkiengil í fyrsta þætti og í þriðja þætti vinkonu kerlingarinnar sem hún hittir á Betlehemsvöllum. í Danmörku bjuggum við á góðu hóteli, okkur voru haldnar ógleyman- legar veislur, fóram í skoðunarferðir og heimsóttum meðal annars Carls- berg-verksmiðjumar. En ljúfu lífi fylgja stundum smá slys eins og geng- ur og gerist. Daginn sem sýningin átti að vera voram við í síðdegisveislu hjá Erik Bidsted sem var með ballettskóla Þjóðleikhússins á vetrum en fór heim til Danmerkur á sumrin. Þetta var ekta dönsk veisla með smáréttum og snafsi. Sumir urðu svo þreyttari en aðrir og einn leikaranna ætlaði að hvíla sig fyrir sýningu og sofnaði uppi í herbergi. Enginn tók eftir þvi að hann vantaði fyrr en kom að hans hlutverki í sýningunni. En þá var of seint í rassinn gripið. Gjörsamlega útilokað að hefja leit að honum. Sýn- ingin varð að halda áfram. Hvað átti til bragðs að taka? Hvemig var unnt að bjarga málum? Óhugsandi var að stöðva sýningu. Ákveðið var að hlaupa yfir hlut- verk hans og tengja atburðarásina saman án hans. Þetta varð okkur mik- ið taugastrið og vonbrigði eins og skiljanlegt er. Ekkert var okkur eins ofarlega í huga eins og að sýna frænd- um okkar að við værum engir viðvan- ingar þó að fyrsta atvinnuleikhúsið á íslandi væri aðeins nokkurra ára. Þegar litið er til baka er þetta aðeins skondið atvik sem gefúr ferðinni lit. í Noregi gekk allt vel og vorum við þar á þjóðhátíðardaginn 17. júní og var okkur boðið í íslenska sendiráðið af því tilefni. Það var á einni af þess- um ótal eyjum sem eru á Oslóarfirði og sigldum við þangað í steikjandi sól og hita. (Seinna fréthun við að rignt hefði heima eins og oftast á þjóðhátíð- ardaginn!) Þetta var reyndar mín fyrsta ferð til Norðurlanda, en þær áttu eftir að verða margar á næstu árum til að skoða leiksýningar, sérstaklega í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi og kom ég þá oft við í London líka. Á stríðsárunum hafði allt verið lokað og við einangrað hér heima svo að okk- ur þyrsti eftir að fá að víkka sjón- deildarhringinn og kynnast nýjum straummn í leiklistinni. Guðlaugur þjóðleikhússtjóri var sérstaklega útsjónarsamur við að fá hingað gestaleiki og fræga listamenn sem opnuðu okkur glugga út I hinn stóra heim. Á þessum tíma vorum við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.