Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Blaðsíða 12
leikhús
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 JjV
Leikfálag Akureyrar tekur í notkun nýtt svið á næstunni:
Leiksviðið er
þríhyrningur
DV, Akureyri:__________________________
„Viö fengum í hendumar í vor
gífurlega gott leikrit sem við ákváð-
um að taka til sýninga. Við nánari
skoðun kom í ljós að þetta leikrit fer
miklu betur á sviði sem er ekki
hefðbundið í þeim skilningi sem
svið og salur eru hefðbundin heldur
þarf að haga rýminu meira í þágu
verksins sjálfs. Við fórum að svipast
um eftir húsnæði og í sem
skemmstu máli sagt þá vannst þetta
mjög hratt og svo lipurlega að það
gafst aldrei ráðrúm til að láta sig
dreyma drauminn um nýtt leiksvið,
hann varð að veruleika áður en til
þess kom,“ segir Trausti Ólafsson,
leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akur-
eyrar.
Jólaverkefni Leikfélags Akureyr-
ar, sem að þessu sinni er leikritið
„On the Open Road“ eða Undir ber-
um himni, verður sýnt á „Renni-
verkstæðinu" sem er nýtt leiksvið á
Akureyri í einni af byggingum
Gránufélagsins á Oddeyri. Þar
standa nú yfir lokaframkvæmdir
viö hið nýja leiksvið sem veldur
straumhvörfum í leiklistinni í bæn-
um.
Sviðið er þríhyrningur
„Þetta svið er afskaplega sígilt í
raun og veru því fyrirmyndina að
því má rekja allt aftur til forngríska
leikhússins. Sígildara leikhús er því
ekki hægt að fá þótt það virki að
einhverju leyti nýstárlegt því hlutir
af þessum toga hafa verið gerðir um
allan heim á ýmsum tímum.
Áhorfendur sitja ekki í hálíhring
eins og í gríska leikhúsinu heldur á
ská báðum megin við sviðið sem
myndar þríhyrning fram í rýmið.
Þeir sitja á pöllum sem hækka
nokkuð bratt og er hugsað þannig
að allir áhorfendur eigi að sjá leik-
ara frá toppi til táar sem stendur
uppréttur á þríhymingnum þar sem
hann er breiðastur. Áhorfendur
missa hvergi alveg af leikaranum
en sjá hann mismikið eftir því hvar
á sviðinu hann er,“ segir Trausti.
Leiddir inn í leikinn
Hann segir að um 140 manns
muni komast fyrir á áhorfendapöll-
unum í Renniverkstæðinu en áhorf-
endarýmið sé í rauninni hluti af
leikmyndinni og áhorfendur séu
leiddir inn í leikinn. „Þetta leiksvið
er mjög spennandi og gefur mjög
mikla möguleika," segir Trausti.
Leikritið „Undir berum himni“
eftir Steve Tesich í þýðingu Hall-
gríms Helga Helgasonar gerist und-
ir berum himni í borgarastyrjöld í
ónefndu landi. Tveir vegamóðir
göngumenn leita leiða til að bjarga
lífi sínu við óblíðar aðstæður. Fyrir-
heitna landið, þar sem frelsið ríkir,
er áfangastaður þeirra en leiðin
ekki greið. Göngumennina vega-
móðu leika þeir Arnar Jónsson og
Þráinn Karlsson en í öðrum hlut-
Nýja leiksviðið í „Renniverkstæði" Leikfélags Akureyrar. DV-mynd gk
verkum eru Stefán Öm Arnarson,
Aðalsteinn Bergdal og Eva Signý
Berger. Leikstjóri er Eyvindur Er-
lendsson, Magnús Pálsson gerir
leikmynd, Hróðmar Ingi Sigur-
bjömsson velur tónlist til flutnings
og Jóhann Bjami Pálmason hannar
lýsingu.
erlend bóksjá
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Dlck Francls:
Come To Grlef.
2. John Grlsham:
The Runaway Jury.
3. Rob Grant:
Backwards.
4. Danlelle Steel:
[Rve Days In Parls.
5. Terry Pratchett:
Maskerade.
6. Wilbur Smlth:
The Seventh Scroll.
!7. Catherlne Cookson:
The Obsesslon.
8. Nlcholas Evans:
The Horse Whlsperer.
9. Nick Hornby:
Hlgh Fldellty.
10. Clive Cussler:
Shockwave.
Rit almenns eðlis:
1. Blll Bryson:
Notes from a Small Island.
2. Andy McNab:
Immediate Actlon.
3. Carl Giles:
Glles 50th.
4. Gary Larson:
Last Chapter and Worse.
5. Prlvate Eye:
Best of Prlvate Eye Annual.
6. David Wlld:
Frlends: The Book.
7. B. Watterson:
There's Treasure Everywhere.
8. S. Nye & P. Dornan:
A-Z of Bahavlng Badly.
9. S. Coogan & H. Normal:
The Paul and Paullne Calf Book.
10. Fergal Keane:
Letter to Danlel.
Innbundnar skáldsögur:
1. Terry Pratchett:
Hogfather.
2. Maeve Blnchy:
Evenlng Class.
3. Dlck Francls:
To the Hllt.
4. James Herbert:
‘48.
5. Tom Clancy:
Executlve Orders.
Innbundln rit almenns eðlls:
1. R. Harrls, M. Lelgh & M. Leplne:
True Anlmal Tales.
2. Darnon Hlll:
My Champlonshlp Year.
3. Vlz Comlc:
Vlz Volume 11: The Turtle’s Head.
4. Jack Charlton:
Autoblography.
5. Kenny Dalgllsh:
Dalglish: My Autoblography.
(Byggt á The Sunday Times)
1
Lést tveimur dögum
eftir níræðisafmælið
Suður-afríski rithöfundurinn og
umhverflsverndarsinninn Laurens
van der Post lést um síðustu helgi,
aðeins tveimur dögum eftir að
hann varð níræður.
Hann varð fyrstur hvítra Suður-
Afríkumanna af hollenskum upp-
runa, svokallaðra Afríkana, til að
senda frá sér bók þar sem ráðist
var gegn kynþáttamisréttinu í
heimalandinu. Síðar varð hann
heimskunnur fyrir ritstörf sín,
bæði skáldsögur og fræðibækur.
Sérstakra vinsælda nutu þó rit
hans og heimildarkvikmynd um líf
búskmanna í Kalaharíeyðimörk-
inni.
Ólst upp með
innfæddum
Van der Post var af ættum Hol-
lendinga og húgenotta. Hann fædd-
ist 13. desember árið 1906 á búgarði
foreldra sína í Orange-fylki, sá
þrettándi í röð fimmtán systkina.
Faðir hans var bóndi og stjómmála-
maður sem féll frá þegar drengur-
inn var aðeins sjö ára gamall.
Á æskuárunum hafði hann fyrst
og fremst samneyti við innfædda.
Hann var í reynd alinn upp af búsk-
konu og svaf til dæmis alltaf utan
dyra, jafnt sumar sem vetur, eins og
búskmennirnir. Þannig kynntist
hann náið lifnaðarháttum þeirra.
Það átti eftir að móta hann sem
ákafan talsmann umhverfisvemdar.
Hann var sá eini systkina sinna
sem ákvað að fara ekki í háskóla-
nám. Þess í stað gerðist hann á
unga aldri blaðamaður í Durban.
Árið 1928 hélt hann til London og
átti upp frá því lengst af heima á
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
Bretlandi, þótt hann færi oft til í
heimsókn til Suður-Afríku og ferð-
aðist reyndar víða um heimsbyggð-
ina.
Stríðsfangi Japana
í London komst van der Post fljót-
lega í kynni við hóp listamanna sem
kenndur er við Bloomsbury-hverfið.
Leiðtogar þess hóps, hjónin Leonard
og Virginia Woolf, gátu út fyrstu
skáldsögu hans, In a Province,
árið 1934.
Þegar síðari heimsstyrjöldin
hófst gekk van der Post þegar í
breska herinn. Hann gegndi fyrst
herþjónustu í Eþíópíu og Mið-
Austurlöndum, en var síðan send-
ur til Jövu í Indónesíu. Þar var
hann handtekinn af Japönum og
sat í þrjú og hálft ár í fangabúðum
þeirra við afar illan kost.
Þegar hann slapp loks úr prís-
undinni gerðist van der Post fúll-
trúi Mountbatten lávarðar á Jövu.
Vinfengi hans við Mountbatten
entist alla ævi þess síðarnefnda og
varð m.a. til þess að van der Post
varð náinn vinur Karls Bretaprins
og hafði að sögn meiri áhrif á hug-
myndaheim ríkisarfans en nokkur
maður annar. Hann var aðlaður
árið 1981.
Van der Post reyndi að skrifa eitt-
hvað á hverjum einasta degi. Hann
vaknaði yfirleitt um fimmleytið á
morgnana en eyddi fyrsta klukku-
tímanum eða svo í að rifja upp
drauma sína og velta þeim fýrir sér.
Skrá yfir ritverk hans er mikil að
vöxtum en hann hlaut fyrst frægð
fyrir bókina Venture to the Interior,
sem er lýsing á leiðangri hans um
eyðimerkur buskmannanna. Ára-
tugum síðar gerði hann kunna út-
tekt á þeim miklu breytingar sem
orðið höfðu á heimkynnum búsk-
manna í The Lost World of Kala-
hari.
Van der Post hélt góðri starfsorku
allt fram á þetta ár og lauk við síð-
ustu bók sína 88 ára að aldri. Sú
nefnist The Admiral’s Baby og segir
frá því þegar breski herinn hrakti
Japani aftur frá Indónesíu.
Metsölukiljur
Bandaríkin
i
Skáldsögur:
1. Nlcholas Evans:
i The Horse Whlsperer.
12. Jane Hamllton:
The Book of Ruth.
3. Tonl Morrlson:
Song of Solomon.
4. Robert Ludlum:
The Cry of the Halldon.
5. James Patterson:
Hlde and Seek.
6. Cllve Cussler:
Shock Wave.
7. Johanna Llndsey:
Love Me Forever.
8. Mlchael Ondaatje:
The Engllsh Patient.
9. Amy Tan:
The Hundred Secret Senses.
10. Mary Higgins Clark:
Sllent Nlght.
11. Mlchael Crlchton:
The Lost World.
12. Dean Koontz:
Intenslty.
13. David Guterson:
Snow Falling on Cedars.
14. Davld Baldaccl:
Absolute Power.
: 15. Sandra Brown:
Breakfast in Bed.
Rit almenns eölis:
11. Mary Pipher:
Revivlng Ophella.
2. Jonathan Harr:
A Clvil Actlon.
3. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
4. Dava Sobel:
Longttude.
5. Barbara Klngsolver:
Hlgh Tlde ln Tucson.
6. Thomas Cahlll:
How the Irish Saved Civillzatlon.
7. B. Gates, Myhrvold & Rinearson:
The Road Ahead.
8. MTV/Melcher Media:
The Real World Dlarles.
9. Mary Karr:
The Llar's Club.
10. Al Franken:
Rush Limbaugh Is a Blg Fat Idlot.
11. Hlllary Rodham Cllnton:
It Takes a Vlllage.
12. Betty J. Eadle & Curtis Taylor:
Embraced by the Llght.
13. M. Scott Peck:
The Road Less Traveled.
14. Jonathan Kozol:
Amazlng Grace.
15. Thomas Moore:
Care of the Soul.
(Byggt á New York Times Book Review)