Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Síða 36
40 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 ! IV Jólaundirbúningur í Fellahelli: Emilíana, jólasveinar og Krakkarnir í Fellahelli hafa ekki látið sitt eftir liggja að undanfómu við að undirbúa jólin og eyddu í það heilli viku áður en jólaprófin hófúst fyrir alvöru. „Krakkarnir hafa ofsalega gam- an af þessu, finnst okkur sem störf- um í Fellahelli. Þeir hófu vikuna á því að fondra jólakort sem þeir skreyttu eftir kúnstarinnar reglum og tóku síðan með sér heim. Þeir ætluðu síðan að senda vinum og vandamönnum kortin og gerðu aukalega kort sem við sendum út fyrir Fellahelli,“ segir Arna Krist- jánsdóttir, starfsmaður Fellahellis, sem ásamt öðrum starfsmönnum skipulagði jólavikuna. Krakkarnir tóku sig einnig til og bökuðu piparkökur í vikunni við mikinn fögnuð og var þátttaka mjög góð. Þeir klæddu síöan félags- miðstöðina í jólabúning með skreytingum sem þeir bjuggu til sjálfir að mestu leyti. „Föstudagskvöldið var lokakvöld hin hliðin jólavikunnar og var það svokaUað kósíkvöld. Yfir eitt hundrað krakkar á aldrinum 13-15 ára mættu í Fellahelli og borð- uðu pip- arkök- ur sem þeir höfðu bakað sjálfir og drukku heitt kakó. Það var mjög vel heppnað og meira að segja komu jólasveinar í heimsókn til þeirra. Þeir voru mjög skemmtilegir og sungu fyr- krakkana og gáfu þeim epli. Krökkunum fannst sniðugt að fá jólasveinana þótt þeir séu í raun og veru vaxnir upp úr því,“ segir Ama. Lokahnykkur- iim á kvöld- inu var þegar átrúnaðargoð krakkanna, Emilíana Torrini, sté á r svið og söng nokkur lög. Að sögn Ömu tókst vikan öll mjög vel og var góður endir á góðri önn. Gunnar Helgason sýnir á sár hina hliðina: Már finnst leiðinlegast að vinna mikið Gunnar Helgason er flestum Islendingum að góðu kunnur þar sem hann leikur um þessar mundir í Jóla- dagatali Sjónvarpsins. Gunnar leikur auk þess í Birt- ingi í Hafnarfjarðarleikhúsinu sem hefur fengið frá- bæra dóma. Aðstandendum Birtings hefur veriö boðið á leiklistarhátíðir í Litháen og Noregi á næsta ári. Gunn- ar lauk nýverið við að leika í áramótaskaupinu auk þess sem hann er rithöfundur. ?101 Reykjavík. Hver útvarpsrásanna þykir þér best? Rás 1 og X-ið. Uppáhaldsútvarpsmaður: Þórhallur Guðmundsson miðill og Valgerður Matthíasdóttir. Hvaða sjónvarpsstöð horfir þú mest á? Jafnt á Stöð 1 og Stöð 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Logi Bergmann Eiðsson. Uppáhaldsskemmtistaður/krá: Fjörakráin. Uppáhaldsfélag i íþróttum: Þróttur. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíð- inni? Að gera bíó- mynd. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég fór norður í Þistilfjörð. Fullt nafn: Gunnar Helgason. Fæðingardagur og ár: 24.11.1965. Maki: Björk Jakobsdóttir. Böm: Ásgrímur, 3ja ára. Bifreið: Izuzu Troober 1987. Starf: Leikari, leikstjóri, aðstoðarleikhússtjóri Hafnar- íjarðarleikhússins og rithöfundur. Laxm: Milljónir á ári. Áhugamál: Fótbolti, skíði og að keyra jeppann minn. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Já utan- landsferð fyrir fimmtán árum með svindli. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Spila fót- bolta með syni mínum og að fara í leikferðir til útlanda. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Mér finnst leið- inlegast að vinna mikið. Uppáhaldsmatur: Toppönd með lyngsósu og piri-piri kjúklingur. Uppáhaldsdrykkur: Maltöl. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Bjarni Þórðarson. Uppáhaldstímarit: Ekkert. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð? Ég hef ekki séð neina fallegri en Björk ennþá. Ertu hlynntur eða andvígur ríkisstjóminni? Tek ekki afstöðu. Hvaða persónu langar þig mest til hitta? Woody Allen. Uppáhaldsleikari: Jim Carey. Uppáhaldsleikkona: Björk Jakobsdótt- ir. Uppáhaldssöngvari: Michael Jackson. Uppáhaldsstjómmálamaður: Magnús Kjartansson. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Axel í Tasmaníu skollanum. Uppáhaldssjónvarpsefni: Markaregn og Kynlífsráðgjafinn. Uppáhaldsmatsölustaður/veitinga- hús: Skólabrú. _ „ , .. ...... Hvaða bók langar þig mest að lesa-Gunnar Helgason er onnum kaf.nn le.kari og rithofundur. Emilíana Torrini skemmti krökkunum í félagsmiðstöðinni síðasta kvöldið fyrir jólaprófin. Krakkarnir í Fellahelli létu sig ekki muna um að baka piparkökur sem þeir borðuðu af bestu lyst með heitu kakói á kósíkvöldinu. Unglingarnir voru ánægðir að fá jólasveininn í heimsókn þótt þeir séu hættir að trúa á hann. Þeir græddu allavega epli. Krakkarnir skemmtu sér mjög vel á kósíkvöldinu en vikan fór í jólaund- irbúning.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.