Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Side 39
JLjV LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996
43
Forseti Rauöa krossins í Perú, Mitchel Mining, meö
hvíta friöarveifu á leiö í japanska sendiráöiö í Lima.
Lögregla í viðbragösstöðu viö japanska sendiráöiö.
Skæruliðasamtökin Tupac Amaru:
léku á forsetann
)
l
Víkingasveitir lögreglunnar í
Perú sögðu eitt sinn að Nestor Cerpa
Cartolini, stofnandi og helsti leiðtogi
byltingarhreyfingarinnar Tupac
Amaru, MRTA, væri ósigrandi. Er
samtök hans höfðu tekið mörg hund-
ruð gísla i japanska sendiráðinu í
Perú á miðvikúdaginn fannst mönn-
um sem þeir hefðu reynst sannspáir.
Forseti landsins, Alherto Fujimoro,
haíði þó verið sigurviss. Gíslatakan
var því mikið áfall fyrir hann.
Lögreglan í Lima aöstoðar gísla sem skæruliöar létu lausa.
Fréttaljós
á laugardegi
Skæruliðaleiðtoginn Cartolini
kom fyrst fram í sviðsljósið í febrúar
1979 þegar hann fór fyrir verka-
mönnum sem tóku Cromotexverk-
smiðjuna. í átökum við lögregluna
létu Qórir lifíð. Cartolini var stungið
inn og sat í fangelsi fram á miðjan
síðasta áratug. Er hann var látinn
laus gekk hann til liðs við skæruliða.
Cartolini varð leiðtogi Tupac Am-
aru ásamt Miguel Rincon eftir að
leiðtogi samtakanna, Victor Polay
Campos, var gripinn 1992. Þegar Rin-
con var svo handtekinn 1995 hélt
Cartolini einn um stjórntaumana. Yf-
irvöld töldu að með handtöku
Camposar og Rincons hefði sigur náðst i barátt-
unni við Tupac Amaru. Cartolini lék hins vegar
á þau.
Aðstoð frá skæruliðum
íChile
Grunur leikur á að síðustu tvö árin hafi Cartol-
ini þjálfað sveitir skæruliða í Bólivíu og hafið
samvinnu við skæruliða í Chile. Leyniþjónustan
í Perú fullyrðir að skæruliðar frá Chile hafi að-
stoðað við árásina á sendiráð Japans í Lima.
Undanfarin ár, eða frá handtöku leiðtoganna
fyrrnefndu, hafa Tupac Amaru látið fara lítið fyr-
ir sér. Samtökin komust þó á forsíður dagblaða í
janúar síðastliðnum þegar rúmur tugur liðs-
manna þeirra var handtekinn í skyndiárás lög-
reglunnar á hús í Lima. Meðal hinna handteknu
var bandarísk kona, Lori Berenson. Hún var
leidd fyrir herrétt og dæmd fyrir þátttöku í sam-
særi um árás á þingið í Perú. Berenson var gefið
að sök að hafa undirbúið skæruliða Tupac
Amaru andlega, flutt vopn og stundað njósnir
með því að þykjast vera blaðamaður tímarits.
Hún var dæmd í lífstíðarfangelsi.
Þegar mest fór fyrir Tupac Maru samtökunum
réðust þau á sendiráð vestrænna ríkja, rændu
kaupsýslumönnum og gerðu sprengjuárásir á
skyndibitastaði. Samtökin, sem kenna sig við síð-
asta konung Inkanna, sækja hugmyndafræði sína
til Kúbu.
Berjast um tolla af kókaínsölu
Þau hafa að mestu verið í skugga annarra hylt-
ingarsamtaka, Skínandi stígs, sem stofnuð voru á
sjöunda áratugnum og hafa maóisma að leiðar-
ljósi. Leiðtogar Skínandi stígs fyrirlíta Tupac
Amaru og saka samtökin um hugmyndafræðilega
villu. Segja leiðtogar Skínandi stígs Tupac
Amaru svikja kommúnisma.
En byltingarhreyfingamar tvær greinir ekki
bara á um hugmyndafræði. Þær eru sagðar berj-
ast um réttinn til að tolla kókainviðskiptin í Hu-
allagadalnum i austurhluta Perú þar sem fram-
leiðsla og sala á fíkniefnum eru einn helsti at-
vinnuvegurinn. Talið er að fíkniefnaræktendur
og smyglarar láti byltingarsamtökin fá vopn og
peninga gegn því að þau verndi ræktunarsvæðin.
Ræktun kókarunna er víða í Perú eina tekjulind
bænda.
Bylting í anda Maós
Skæruliðasamtökin Skínandi stígur berjast fyr-
ir byltingu í anda Maós sem byrji á landsbyggð-
inni og nái smátt og smátt til borganna. Þau létu
fyrst til skarar skríða í kosningunum í mai 1980.
Hryðjuverk samtakanna voru af ýmsum toga. Þau
tóku af lífi embættismenn og unnu skemmdar-
verk. Samtökin ollu miklum usla undir lok niunda
áratugarins.
Alberto Fujimoro forseti, sonur japanskra inn-
flytjenda, sem var kjörinn 1990, gerði það að helsta
Símamyndir Reuter
markmiði sínu að brjóta skæruliða á bak aftur. í
þeim tilgangi lokaði hann þinginu i apríl 1992, rak
nær helming dómara í hæstarétti og greip til ein-
ræðislegra aðgerða til að bæla niður starfsemi
skæruliða og koma á efnahagsumbótum sínum.
Tveimur árum eftir að Fujimoro var kjörinn
forseti tókst yfirvöldum ekki bara að hafa hendur
í hári leiðtoga Tubac Amaru heldur einnig leið-
toga Skínandi stígs, Abimael Guzman.
Handtaka Guzmans var áfall fyrir Skínandi stíg
en samtökin hafa sótt í sig veðrið á þessu ári. Hafa
þau staðið á bak við bílasprengjuárásir, morð og
barist við öryggissveitir.
Skæruliðar beggja byltingarhreyfínganna segja
efnahagsumbætur forsetans engan árangur bera
og heimta betra réttarkerfi.
30 þúsund fallið í átökum
Yfir 30 þúsund manns, flestir óbreyttir borgar-
ar, hafa fallið fyrir hendi hermanna og skæruliða
frá því að átök skæruliða og lögreglu hófust í
upphafi síðasta áratugar. Yfirvöld segjast hafa
handtekið yfir 8 þúsund liðsmenn Tupac Amaru
og Skínandi stígs á þessu tímabili.
Á þessu ári segjast yfirvöld hafa handtekið
rúmlega 1300 skæruliða.
Að sögn lögreglunnar hefur barátta yfirvalda
gegn fíkniefnasölu, sem skæruliðamir hagnast
vel á, leitt til handtöku yfir 10 þúsund aðila það
sem af er þessu ári. Alls hafa verið gerð upptæk
25 tonn af fíkniefnum. Reuter, AP
\
n t 't
17J • tOÍ tlYKÍAlj
^JKENWOOD#.
^Matvinnsluvél 400 V\^
með ávaxta- og v**
jé grænmetispressu j nlr
&KENWOODÍ*
-4*. Matvinnsluvél 400Wv**
z*
KENWOÖR^
Matvinnsluvél 500W3hk
Kennslumyndband^^
á íslensku fylgir. *
• 5KENWOODV
*** Handþeytari
*T
fKENWOODi
it^-HandþeytariJ standi#
•» -
-S.
í