Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1996, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1996, Blaðsíða 28
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 36 Allir mættu á svæðið og sumir nutu skemmtunarinnar úr kerrunni sinni. Jólaball hjá Frjálsri fjölmiðlun hf. á Hótel íslandi: Glaumur og gleði hjá krökkunum Krakkarnir kunnu að sjálfsögðu að dansa Macarena. Mikill glaumur og gleði var á jólaballi, sem Frjáls fjölmiðlun hf. hélt fyrir starfsmenn sína og börn þeirra á Hótel islandi um síðustu helgi, enda ákaflega vel mætt á bal- lið. Húsið troðfylltist af bömum og fullorðnum, pöbbum, mömmum, öf- um og ömmum eins og vera ber. Litlu krakkamir voru í aðalsalnum að dansa kringum jólatréð en stóru krakkamir voru með diskótek í hliðarsal. Dansinn dunaði undir styrkri stjóm söngvaranna André Bac- hmann og Helgu Möller. Tígri, Dansinn dunaði og fullorðnu krakkarnir skemmtu sér alveg jafnvel og allir hinir. DV-mynd Pjetur Jólasveinarnir komu á jólaballið og heilsuðu upp á krakkana. uppáhaldiö úr Krakkaklúbbnum, mætti á svæðið og Tóki trúður heilsaði upp á krakkana milli þess sem þau fengu sér kók og prins póló. Þeir fullorðnu gæddu sér hins vegar á ljúffengum kökum og kafii. Og jólasveinamir, Kertasníkir og Hurðaskellir, gerðu sér ferð á ballið til að hitta gestina. -GHS Bragi Guðmundsson dansar við einn lítinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.