Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1996, Blaðsíða 4
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996
Skattabreytingar frá upphafi staögreiöslukerfisins:
Koma hart niður
á lægstu launum
- snerta minnst meöallaun landverkafólks innan ASÍ
Með þeim breytingum sem verða á
persónuafslætti og skattprósentu, og
þar með skattaálögum i kjölfar nýrra
fjárlaga, hefur skattheimta af 80 þús-
und króna heildarmánaöartekjum
12,6-faldast frá því sem hún var við
upphaf staðgreiðslukerfis skatta þann
1. janúar 1988. Áhrifm af þeim breyt-
ingum sem gerðar hafa verið eru mun
minni á hærri tekjur en 80 þúsund.
Þannig hafa skattar á 127 þúsund
króna mánaöartekjur hækkað hlut-
fallslega mun minna eða 1,6 sinnum.
Þetta eru niðurstöður Ásmundar
Hilmarssonar á skrifstofu Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar en hann
hefur farið ofan í saumana á þeim
breytingum sem stjómvöld hafa gert
á staðgreiöslukerfi skatta frá því að
það var tekið í notkun. Niðurstöður
hans eru þær að ef skattkerfi ársins
1988 væri í gildi nú þyrfti að greiða
614 krónur í skatta af 80 þúsund
króna mánaðartekjum. En samkvæmt
þeim breytingum sem nú verða gerð-
ar á skattkerfinu um áramótin verður
greiðslan 7.704 krónur, eða 12,6-falt
hærri.
Þegar skattlagning á 127 þúsund
króna mánaðartekjur er skoðuð á
sama hátt út frá upphaflegum leik-
reglum staðgreiðslukerfisins kemur í
ljós að hún kemur mun vægar niður
á þeim tekjum og hækkunin er „að-
eins“ 1,6-föld.
Ásmundur valdi að bera saman
álagningu beinna skatta á annars veg-
ar 80 þúsund króna mánaðartekjur
vegna þess að láglaunabætur eru ekki
greiddar ofan á þá upphæð heldur
upp að því marki. Hann athugaði hins
vegar 127 þúsund króna mánaðartekj-
ur þar sem þær eru nálægt þvi að
vera meðaltekjur landverkafólks inn-
an ASÍ.
Ásmundur reiknar opinberu gjöld-
in af þessum tveimur tekjuupphæð-
um þannig að hann notar framreikn-
aðan persónuafslátt, 27.546 krónur á
mánuði, og 35% skattprósentu ársins
1988 og ber saman við skattaáform
löggjafar- og ríkisvaldsins sem taka
fgildi 1. janúar nk. Fyrst er dregin frá
laununum 4% lífeyrisgreiðsla, en síð-
an reiknað út 41,99% af því sem þá
stendur eftir, að frádregnum 24.544
króna persónuafslætti.
Forystumenn í verkalýðshreyf-
ingunni segja að þeim eigi ekki eftir
að koma á óvart að stjórnvöld reyni
að verja þessar gerðir sínar með þeim
rökum að láglaunafólk njóti á móti
þessum skattahækkunum meiri
tilfærslna innan velferðarkefisins. Þá
þykir þeim trúlegt að því verði einnig
haldiö fram að vegna jaðarskattanna,
fái láglaunafólk meira i sinn hlut af
bamabótum, barnabótaauka, húsa-
leigubótum os.frv. Hjá Dagsbrún
hefur sá þáttur í kjörum félagsmanna
ekki verið reiknaður nákvæmlega út.
Þegar lögin um staðgreiðslu skatta
tóku gildi var það lögfest að
skattleysismörk ættu að vera fljótandi
og breytast í samræmi við vísitölu, en
mjög fljótlega var farið að skera á
þessi tengsl með sérstökum
lagasetningum í svokölluðum
bandormalögum tengdum fjárlaga-
frumvörpum. Forystumenn í
verkalýðshreyflngunni segja við DV
að umgengni um lög með þessum
hætti sé mjög háskaleg og veiki tiltrú
á almennings á lagasetningum. -SÁ
Fíkniefnainnflutningur um Keflavík:
Munstur og ferli
að breytast
„Munstur og ferli flkni-
efnainnflutnings til lands-
ins um Keflavíkurflugvöll
hefur verið að taka á sig
breytta mynd á sl. árum.
Það virðist sem hann sé nú
mun betur skipulagöur og
tengsl erlendra glæpa-
manna við flkniefnamark-
aðinn hérlendis viröast
mun greinilegri en nokkru
sinni fyrr. Er það því hald
þeirra manna sem að eftir-
litinu koma að breyta þurfi
áherslum og jafnframt auka
eftirlitið stórlega," segir El-
ías Kristjánsson, tollfulltrúi
hjá tollgæslunni á Keflavík-
urflugvelli.
Tollgæslan á Keflavíkur-
flugvelli lagði hald á tæp 16
kíló af hassi á árinu, tæp
fjögur kíló af amfetamíni og
200 grömm af hassolíu. Þá
var lagt hald á rúm 10 þús-
und stykki af ólöglegum
lyfjum í töfluformi. Fíkni-
efni fundust hjá 15 farþeg-
um við komu þeirra til
landsins. Af þeim voru 10 ís-
lendingar, tveir Hollending-
ar og einn Breti, Frakki og
Þjóðverji.
„Mesta aukningin í hald-
lagningu er á amfetamíni og
kannabisefnum og am-
fetamínið virðist vera í
stöðugri sókn hér á landi,“
segir Elías.
-RR
DVI
Handlagðar tegundir ólöglegra efna
- frá '94 til '96 -
18.000 grömm
16.086
16.000
14.000
12.000
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000 !
0
'94
95
Hass
Amfetamín
□ Kókaín
Akureyri:
Leigubíl-
stjóra hót-
að lífláti
DV, Akureyri:
„Maðurinn neitaði að greiða
fyrir aksturinn og þegar ég
hugðist nota talstöðina til að
kalla eftir aðstoð sleit hann
snúru í talstöðinni, tók mig
steinbítstaki og hótaði að drepa
mig,“ segir Gústaf Oddsson
leigubílstjóri á Akureyri sem
varð fyrir árás farþega í fyrri-
nótt.
Gústaf segir að honum hafi
tekist að lokka manninn út úr
bifreiðinni og þá hafi hann getað
komið skilaboðum til lögreglu
sem handtók manninn. Gústaf
segir meiðsli sín ekki alvarleg,
en hann sé marinn á hálsi eftir
manninn. -gk
Atvinnuleysi í nóvember:
Mest í Reykjavík -
minnst á Vestfjörðum
5169 manns án vinnu
Atvinnuleysi í nóvember sl. var
hlutfallslega mest á landinu á höf-
uðborgarsvæöinu, eða 4,5%.
Minnst var atvinnuleysiö á Vest-
fjörðum eða 1,7%. Atvinnuleysi á
landinu öllu var 4,0%. Að meðal-
tali eru um 67% atvinnulausra á
höfuðborgarsvæðinu og 33% á
landsbyggöinni.
Skráöir atvinnuleysisdagar I
nóvembermánuði voru tæplega 112
þúsund á landinu öllu, rúmlega 46
þúsund dagar hjá körlum og tæp-
lega 66 þúsund hjá konum. Skráð-
um atvinnuleysisdögum hefur
fjölgaö um tæplega fimm þúsund
frá mánuðinum á undan en fækk-
aö um tæplega 12 þúsund frá nóv-
embermánuði 1995.
Atvinnuleysisdagar í nóvember
jafngilda því að 5169 manns hafl að
meöaltali verið á atvinnuleysis-
skrá i mánuðinum. Af þeim fjölda
eru 2147 karlar og 3022 konur en í
heild jafngildir þessi fjöldi því að
4% af áætluðum mannafla á
vinnumarkaði hafi verið án vinnu,
eða 2,8% karla og 6,6% kvenna.
í lok nóvembermánaðar voru
3837 manns skráðir á atvinnuleys-
isskrár á höfuðborgarsvæöinu. Þá
voru þeir 390 á Akureyri, 212 í
Reykjanesbæ, 148 á Selfossi, 147 á
Akranesi, 60 á Þingeyri, 59 á Sauð-
árkróki, 54 í Þorlákshöfn, 44 á
Stokkseyri, 42 á Vopnafirði, 36 í
Borgamesi og í Grindavík, 35 í
Snæfellsbæ, 30 í Vogum, 29 í
Hveragerði, 28 á Egilsstöðum, 23 í
Dalabyggð, 22 á Siglufirði, 21 á ísa-
firði, 20 á Eyrarbakka og í Vest-
mannaeyjum en færri en 20 annars
staðar.
-SÁ
Hvar eru þeir atvinnulausu?
70% 67%
(0
</>
3
<
>
•3
E
tfi
2
30/0 3% 2%
DV