Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1996, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1996, Blaðsíða 21
13 \ r LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 yiðtal Nýtt andlit á fjölum Þjóðleikhússins: Leiklistin varð að þráhyggju í Herranótt „Starf leikarans getur verió mjög skemmtilegt en þetta er auðvitað bara vinna og dagarnir geta veriö misjafnir eins og hjá öðrum,‘‘ segir Valur Freyr Einarsson. í „Þegar leiklistin varð að þráhyggju hjá mér var ég í Herranótt í menntaskóla. Ég sé ekki eftir því á þessum tímapunkti," segir Valur Freyr Einarsson, leikari hjá Þjóðleikhúsinu. Hann er 27 ára gamall, ættaður úr Garðabænum og hefur verið ráðinn til nokkurra verkefna hjá Þjóðleik- húsinu. Hann leikur lítið hlutverk í jólaleikritinu Villiöndinni eftir Henrik Ibsen. Einnig mun hann sjást á fjölunum í bamaleikritinu Litla Kláusi og Stóra Kláusi, sem frumsýnt verður í vetur, og í Fiðlaranum á þakinu sem einnig verður frumsýndur eftir áramót. Valur Freyr er sonur hjónanna Einars H. Ágústsson- ar, kennara í Vélskóla íslands, og Herdísar Hergeirs- verður að hafa trú á sjálfum sér og reyna að mikla ekki fyrir sér hlutina," segir Valur Freyr. Tólf ára í Gullna hliðinu Þegar Valur Freyr fyrst gat hugsað sér að leggja fyrir sig leiklist var hann tólf ára gamall. Þá lék hann Jón í barnasýningunni Gullna hliðinu. Valur Freyr leikstýrði leikritinu Skvaldri i fyrra í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti en það segir hann mjög algengt með lausráðna leikara. Hann var einnig beðinn TEftTUTiLBOft dóttur, eiganda Há-búðarinnar. Hann á fjóra bræður og völdu þeir sér frekar praktískara nám heldur en Valur Freyr eða viðskiptafræði og læknisfræði. Valur lærði leiklist í Manchester í Englandi og kom heim fyrir einu og háifu ári og hefur haft í nógu að snú- ast síðan. Sambýliskona Vals Freys heitir Ilmur María Stefánsdóttir myndlistarkona og eiga þau dótturina Sölku, sextán mánaða, og óskírðan son sem er mánaðar- gamall. Það er því nóg að gera við bleiuskipti og vökunætur hjá hinum unga leikara. Einleikur í Kaffileikhúsinu Þegar Valur Freyr kom heim hljóp hann í skarðið í ýmsum hlutverkum eins og íslensku mafíunni i Hafnar- fjarðarleikhúsinu. Hann lék síðan einleik í Kaffíleikhús- inu sem Viðar Eggertsson leikstýrði en það hét Heilt ár og þrír dagar. Auk þess hefur hann unnið við hljóðsetn- ingu á bamaefni. „Það tekur meiri tíma og þolinmæði að koma sér á framfæri þegar maður hefur verið í leiklistarnámi er- lendis. Maður þarf meira að sýna sig og vinna að því að koma sér á framfæri. Þetta hefur samt gengið miklu bet- ur en ég bjóst við. Ég reiknaði jafnvel með að það tæki fjögur til fimm ár að komast inn í leikhúsin. Maður að vera Baltasar Kormáki til aðstoðar við leikstjóm á Skækjunni í haust. Það segir hann hafa verið mjög skemmtilegt þar sem hann hafi unnið með mjög finum leikurum og leikstjóra. Bleiuskipti og næturvökur „Þetta var mjög fin reynsla en ég var hálfgerður áhorfandi að leikstjórninni. Baltasar Kormákur er mjög klár og hugmyndaríkur sem leikstjóri og það er skemmtilegt að horfa á hvernig hann vinnur," segir Val- ur Freyr. Að sögn Vals Freys gefst ekki mjög mikill tími til frí- stunda og áhugamála þar sem hann er faðir lítilia bama. Bleiuskipti eru ofarlega á lista þessa stundina. Valur Freyr nýtur þess að slappa af fyrir framan enska fótboltann á laugardögum þegar tími vinnst til. Einnig þykir honum skemmtilegt að fara með konunni sinni á myndlistarsýningar. „Starf leikarans getur verið mjög skemmtilegt en þetta er auðvitað bara vinna og dagarnir geta verið mis- jafnir eins og hjá öðmm. Leikarar, sem hafa mikið að gera, starfa í sumum tilfellum á þremur stöðum í einu þar sem starfið er ekkert sérstaklega vel borgað. Þegar maöur er lausráðinn er maður tregur til þess að sleppa hendi af verkefni sem fást,“ segir Valur Freyr. -em Stærri fjölskyldupakkar Það er meira i fjölskylaupökkunum en f fyrra! 1. Barnapakkinn 1.500 kr. 2. Sparipakkinn 2.200 kr. 3. Bæjarins besti 3.500 kr. £ 4. Trölli 5.600 kr. Tertutilboð Tvær tertur og risagos. Aðeins 2.800 kr. V,t>t,Pö//9o Þýskar risarakettur Hinar frábæru þýsku risarakettur í miklu úrvali. Paierpúiupíþeim! Sími: 5115515 Qnlliotohin' KR'he'mil'nu/ Frostaskjóli UulUolUUIl • Bilasölunni Skeiíunni. Skeifunni 11 eldar ÖFLí. T UPPHilS STJIF Fáöu þér kraltmikla KR-llugelda og styrktu íþróttastarl barna og unglínga uin leiö. HVÍTA HÚSIÐ / SÍA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.