Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1996, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1996, Blaðsíða 48
—-- Alla taugardaga f Vetrtu uiðhúinfnj uinningit Vinningstölur 27.12, 14)OI5}{20) KIN FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,óháð dagblað LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 Dularfullt kjöthvarf: Stal Kjöt- krókur 10 " hangilær- um á Látrum? - feitu bitarnir eftir Dularfullt kjöthvarf varð á bæn- um Látrum í Vesturbyggð nú fyrir jólin. Þaðan var stolið einum tíu hangilærum úr skúr við hlið reyk- hússins á bænum án þess að nokk- ur skýring hafi fengist á verknaðin- um. Engu er líkara en Ketkrókur hafi átt þar leið um á ferð sinni til -—^byggða. Aðalsteinn Guðmundsson og Guðbjört Þórdís Ásgeirsdóttir eru ábúendur á Látrum. Guðbjört, sem sveitungamir þekkja trúlega betur sem Stellu á Látrum, sagði í samtali við blaðamann að ekki hefði tekist að upplýsa þetta dular- fulla kjöthvarf sem talið er hafa átt sér stað aðfaranótt 18. eða 19. des- ember. Ábúendur á Látrum urðu fyrst varir við hvarfið að morgni fimmtudagsins 19. desember og var tilkynnt um málið til lögreglu. Guð- björt sagði að svo virtist sem engir ' 'væru lengur óhultir fyrir þjófum. Sagði hún að þar hefði farið kjötið sem átti að nota í jólamatinn. „Það var allt horfið nema frampartar og feitir bitar og kjötið sem hvarf var hirt með járnkrókunum í,“ segir Guðbjört. Hún telur líklegt að einhver eða einhverjir kunnugir hafi samt verið þama á ferð. I fyrsta lagi hafi við- komandi þurft að vita af hangikjöt- inu og í öðra lagi að rata á réttan skúr á sveitabæ á hjara veraldar um miðja nótt í svartasta skamm- deginu. -HK ÞETTA HEFUR VERIÐ HÁLFGERÐUR „DIET" JÓLASVEINN! Meöferö áfrýjunarréttar í Ankara ólík tveimur fyrri afgreiðslum: Dómurinn Halim í hag - tveir dómarar hliöhollir Sophiu neituðu aö fylgja knöppum meirihluta Miðað við upplýsingar sem borist hafa frá Tyrklandi virðist ljóst að áfrýjunarréttur í Ankara ákvað þegar þann 18. nóvember að Halim A1 skyldi fara með forsjá dætra hans og Sophiu Hansen. Samkvæmt upplýsingum DV fór málið þannig við fyrstu afgreiðslu að tveir dómarar dæmdu fóður í hag, tveir móðurinni í hag en einn vildi koma dætrunum til vanda- lausra. Þar sem enginn dómar- anna sem tóku afstöðu með öðru hvora foreldranna vildi sam- þykkja niðurstöðu fimmta dómar- ans ákvað hann að fylgja ákvörð- un þeirra tveggja dómara sem vildu ákvarða foðurnum forsjá. Þeir sem fylgdu móðurinni héldu hins vegar fast við sína afstöðu þrátt fyrir að meirihluti hefði myndast hjá hinum þremur dóm- urunum. Ailir dómaramir fimm skrifa síðan undir lokaniðurstöðuna en þar kemur í raun fram að niður- staða undirréttardómarans í Istan- búl er staðfest. Dómararnir sem voru hliðhollir Sophiu vísuðu til þess að faðirinn hefði ekki sýnt áreiðanlega framkomu með því að hindra umgengni móður og barna frá árinu 1991. í séráliti staka dóm- arans kom fram að hann teldi að börnunum væri best borgið hjá vandalausum í ljósi þess að vel- ferð þeirra fari halloka vegna ósættis foreldranna. DV hefur ekki fengið nákvæmar upplýsing- ar um forsendur dómaranna sem dæmdu Halim A1 í vil en eins og fyrr segir var að miklu leyti vísað til forsendna héraðsdóms. Þegar DV fór í prentun í gær var utanríkisráðuneytið að vinna í því að fá úr því skorið nákvæm- lega hvað dómurinn kveður á um. Þó er rétt að árétta að Hasip Kapl- an, lögmaður Sophiu, fer með all- an málarekstur þar sem dómstólar eiga í hlut. Eins og fram kom í DV í gær fór Hasip til Ankara um há- tíðamar til að reyna að telja ein- hvem eða einhverja dómaranna á að endurskoða málið. Síðasta afgreiðsla Hæstaréttar í Ankara - sú þriðja frá því að málareksturinn hófst - er talsvert frábrugðin fyrri dómsuppkvaðn- ingum. Skemmst er að minnast þess að í réttarhaldi í Istanbúl í sakamáli yfir Halim A1 þann 20. nóvember lýsti hann því yfir að hann hefði unnið forsjármálið. I kjölfar þess, þegar íslensk stjórn- völd óskuðu þess að áfrýjunarrétt- urinn skýrði þessar óstaðfestu fregnir, var því svarað að endan- leg niðurstaða lægi ekki fyrir, ver- iö væri að vinna við forsendur dómsins og haldinn yrði annar fundur dómaranna þegar störfum lyki. Niðurstaða Hæstaréttar hlýtur að vera vonbrigði fyrir Hasip Kaplan, lögmann Sophiu. Hann lýsti því m.a. yfír í október 1994 að lokadómur yrði kveðinn upp á fyrri hluta árs 1995 - jákvæður dómur fyrir Sophiu. Hann sló þó reyndar þann varnagla að ef það gerðist ekki myndi hann skjóta málinu til Mannréttindadómstóls- ins í Strasbourg. -Ótt Frá afhendingu viöskiptaverðlaunanna á Hótel Holti í gær. Frá vinstri á myndinni eru Óli Björn Kárason, ritstjóri Við- skiptablaðsins, sem ásamt DV og Stöð 2 stóð að verðlaununum, Kári Stefánsson, prófessor í erfðavísindum, frum- kvöðull ársins, hjónin Arngrímur Jóhannsson og Þóra Guðmundsdóttir hjá Atianta, menn ársins í viöskiptalífinu, og loks Finnur Ingólfsson, iönaðar- og viðskiptaráöherra, sem afhenti verðlaunin. DV-mynd Hilmar Þór Viðskipta- verðlaunin 1996 afhent Viðskiptaverðlaunin 1996 voru afhent við hátíðlega athöfn i Þing- holti að Hótel Holti í gær af Finni Ingólfssyni, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra. DV, Stöð 2 og Viðskipta- blaðið standa sameiginlega að verðlaununum sem veitt voru í fyrsta sinn en þau skiptast í tvennt. Eins og kom fram í DV í gær vora hjónin Amgrímur Jóhanns- son og Þóra Guðmundsdóttir hjá flugfélaginu Atlanta útnefnd menn ársins 1996 i íslensku viðskiptalífi og Kári Stefánsson prófessor var útnefndur framkvöðull ársins. Fyrir utan viðurkenningarskjöl og veglega blómvendi fengu verð- launahafamir forkunnarfögur listaverk sem myndlistarkonan Æja (Þórey Magnúsdóttir) hannaði og smíðaði. -bjb - sjá bls. 2 Veðrið á morgun: Veðrið á mánudag: Léttskýjað austan til Á morgun verður fremur hæg vestlæg átt og snjó- eða slydduél um landið vestanvert en léttskýjað austan til. Hiti verður á bilinu 0 til 3 stig. Hiti nálægt frostmarki Á mánudag verður hæg sunnanátt. Dálítil él verða sunnan til en létt- skýjað norðan til og hiti nálægt frostmarki. Veðrið í dag er á bls. 49.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.