Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1997, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997
5
Fréttir_____________________________________________________dv
Skoðanakönnun DV á afstöðu kjósenda til smásölu áfengis:
Sex af hverjum tíu vilja
afnema einkarétt ríkisins
- andstaðan meiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu
Sex af hverjum tíu kjósendum
vilja afnema einkarétt ríkisins á
smásölu áfengi. Þetta eru helstu nið-
v urstöður skoðanakönnunar DV sem
I gerð var sl. laugardag af markaðs-
deild Frjálsrar fjölmiðlunar hf. á af-
stöðu fólks til smásölu áfengis.
Stjórn ÁTVR hefur sem kunnugt er
komið með þær tillögur að innan
tíðar verði rekstur vínbúða boðinn
út og léttvín og bjór verði fáanlegt í
matvöruverslunum.
Úrtakið í skoðanakönnun DV var
600 manns. Jafnt var skipt á milli
kynja sem og höfuðborgarsvæðis og
landsbyggðarinnar. Spurt var:
„Ertu fylgjandi eða andvígur því að
einkaréttur ríkisins á smásölu
áfengis verði afnuminn?“ Skekkju-
mörk í könnun sem þessari eru tvö
til þrjú prósentustig.
Sé tekið mið af svörum allra í
könnuninni sögðust 54,8 prósent
fylgjandi þvi að afnema einkarétt-
>
i
□ Fylgjandi □ Andvígir
§H Óákveðnir □ Svara ekki
Á að afnema einkarétt ríkisins á smásölu áfengis ?
- niðurstöður skoðanakönnunar DV 1. febr. 1997 -
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar:
Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu
verða niðurstöðurnar þessar:
inn, 35,5 prósent voru því andvíg,
9,3 prósent voru óákveðin og 0,3 pró-
sent neituðu að svara spurning-
unni. Afstöðu tóku því 90,3 prósent
úrtaksins.
Ef aðeins eru teknir þeir sem af-
stöðu tóku sögðust 60,7 prósent vera
fylgjandi afnámi einkaréttar ríkis-
ins á smásölu áfengis og 39,3 pró-
sent voru því andvíg.
Þegar afstaða kjósenda er skoðuð
eftir húsetu þeirra kemur berlega í
ljós að mun fleiri eru fylgjandi frels-
inu í áfengissölu á höfuðborgar-
svæðinu en á landsbyggðinni, eða
55 prósent á móti 45 prósent. Að
sama skapi eru andstæðingar af-
náms einkaréttar ríkisins fleiri á
landsbyggðinni.
Óverulegur kynjamunur
Sé litið á afstöðu kynjanna eru
karlar heldur fleiri en konur í hópi
fylgjenda en í hópi andstæðinga eru
kynjahlutfóllin svipuð. Heldur fleiri
konur en karlar voru óákveðnar í
afstöðu sinni til spurningarinnar.
-bjb
Vinnuvélanámskeið
hefst 12. feb. kl. 18.
Námskeiðið næryfirallar
gerðir vinnuvéla og er bæði
bóklegt og verklegt. Nám-
skeiðið er kvöld og helgar-
nám og kostar 29.900 kr.
Landmælinoar
Námskeið í hæðarmæling-
um, ætlað starfsmönnum
verktaka.
Námskeiðið er áætlað 28.
feb. og kostar 12.000 kr.
36 ára karlmaður sem var gestur í heimahúsi á Suðureyri síðastliðið sumar:
Aukin ökuréttindi
Í
í
i
i
i
i
i
i
I fangelsi fyrir aö
misnota 2ja ára dreng
- móðirin vaknaði upp við að barnið var horfið og lá nakið í öðrum sófa
Fjölskipaður Héraðsdómur Vest-
fjaröa dæmdi í gær Reyni Ragnars-
son, 36 ára íbúa á Selfossi, í 8 mánaða
fangelsi fyrir að hafa haft í frammi
kynferðislega tilburði gagnvart 2ja
ára dreng í heimahúsi á Suðureyri í
ágúst síðastliðnum.
Reynir kom til Suðureyrar þann
22. ágúst til að vinna í fiski og leigði
hann sér herbergi í verbúð. Tveimur
dögum síðar var honum boðið í
heimahús til fólks sem kannaðist við
hann. Var áfengi haft um hönd en
síðan hélt fólkið á skemmtistaðinn
Vagninn á Flateyri þar sem það var
til lokunar klukkan þrjú. Þegar liða
tók á nóttina fór fólkið aftur heim í
framangreint heimahús á Suðureyri.
Húsráðendur gengu til náða en
ákærði fékk að leggja sig í tveggja
sæta sófa í stofunni. í þriggja sæta
sófa í stofunni var einnig kona með
tveggja ára dreng sinn sem hún hafði
gætt heima ásamt öðrum bömum um
kvöldið. Þegar klukkan nálgaðist
fimm um nóttina vaknaði konan við
það að drengurinn var ekki í sófan-
um. Móðirin heyrði í baminu og við
nánari athugun sá hún hvar litli
drengurinn lá allsnakinn á sæng í
tveggja sæta sófanum. Ákærði var
þar fáklæddur að hafa kynferðislega
tilburði í frammi við barnið.
Konan lét heimilisfoðurinn vita
sem kom fram, tók gestinn hálstaki
og henti honum út. Lögreglan kom
stuttu síðar á vettvang og handtók
manninn. Við lögregluyfirheyrslu
sagði maðurinn að mjög ólíklegt væri
að hann hefði brotið af sér gagnvart
drengnum en hann væri alkóhólisti
og ætti það tO að missa úr minni at-
burði þegar hann væri ölvaður. Fyr-
ir dómi neitaði hann hins vegar al-
farið sakargiftum.
Dómurinn tók mið af staðfóstum
framburði móðurinnar og heimilis-
fóðurins. Sannað þótti að Reynir
klæddi drenginn úr náttsamfestingi
og lagði hann nakinn á sæng í sófa
sínum. Þá var einnig talið sannað að
hann hefði haft í frammi kynferðis-
lega tilburði gagnvart litla drengn-
um.
Við ákvörðun refsingar var m.a.
Jitið til alvarleika brotsins, sem fram-
ið var gagnvart ósjálfbjarga bami á
meðan heimilisfólk var í fastasvefni.
Á hinn bóginn þótti ekkert benda til
að ásetningur hefði vaknað um að
fremja brotið fyrr en síðla nætur og
þá þótti heldur ekkert fram komið
sem benti til að barnið hlyti varan-
legan skaða af. Refsingin þykir hæfi-
leg 8 mánaða fangelsi og kom ekki til
álita að skilorðsbinda hana vegna
brotaferils ákærða og alvarleika
brotsins.
Jónas Jóhannsson, héraðsdómari
Vestfjarða, var dómsformaður en Ól-
afur Ólafsson og Sverrir Einarsson
vom meðdómsmenn. -Ótt
Leigubifreið, vörubifreið
og hópferðabifreið.
Námskeiðið er kvöld-
og helgarnám.
Námskeiðið áætlað 22. feb.
Skráning og nánari
upplýsingar gefur Svavar
Svavarsson vinnuvélastjóri
í síma 588 4500 frá 8 til 22
alla daga.
Klettagörðum 11 - Sundahöfn
Frábærir ttHAIKCDK vetrarhjólbarðar!
145R12
155R12
135R13
145R13
155R13
165R13
175/70R13
175R14
185R14
p \ n pi
•5.T89
-s^es-
4390-
-5^00-
-5309-
-5333-
5333-
-e?T3e-
3.113 stgr
3.233 stgr
2.990 stgr
3.120 stgr
3.233 stgr
3.320 stgr
3.590 stgr
3.850 stgr
4.280 stgr
185/60R14
195/60R14
175/70R14
185/70R14
185/65R15
195/65R15
1^278-
-&369-
-63f8"
4.367 stgr |
4.660 stgr
4.193 stgr 4
4.127 stgr ~
4.657 stgr
5.300 stgr
Ne9ld snjódekk
Jeppadekk 25% afsl.
235/75 R15 kr.405=60 kr. 8.025 stgr. • 30-9.50 R15 kr. 44356kr. 8.737 stgr.
31-10.50 R15 kr. 40356 kr. 9.487 stgr. • 33-12.50 R15 kr. 45356 kr. 11.662 stgr.
NYBARÐI
GOÐATÚN! 4-6, GARÐABÆ
SÍMI 565 86 00
Sendum í póstki\öi
SKÚTUVOGI 2
SÍMI 568 30 80