Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1997, Side 26
42
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997
Fólk í fréttum____________
Böðvar Guðmundsson
Böövar Guðmundsson skáld, sem
búsettur er í Nivá í Danmörku, hlaut
í gær íslensku bókmenntaverðlaunin
í flokki fagurbókmennta fyrir bók
sína Lífsins tré.
Starfsferill
Böðvar fæddist á Kirkjubóli í Hvít-
ársíðu 9.1.1939 og ólst þar upp. Hann
lauk stúdentsprófi frá MR 1962 og
lauk cand.mag.-prófi í íslenskum
fræðum við HÍ 1969.
Böðvar var stundakennari við
Réttarholtsskólann í Reykjavík
1962-63, við Christians Albrechts
Universitát í Kiel 1964-65, við MR
1965-66, við heimspekideild HÍ
1970-72 og 1983, við Leiklistarskóla
Islands 1981-83, var settur kennari
við MH 1969-74, við MA 1974-80 og
síðan íslenskur sendikennari við Há-
skólann í Bergen 1983-87. Auk þess
hefur hann lengst af stundað ritstörf
og þýðingar og vinnur nú við það
eingöngu.
Út hafa komið eftirfarandi rit Böð-
vars: Austan Elivoga, útg. 1964, ljóð; í
mannabyggð, útg. 1966, ljóð; Burtreið
Alexanders/Burt reið Alexander, útg.
1971, ljóð; Sögur úr seinni stríðum,
útg. 1978, smásögur; Vatnaskil, útg.
1986, ljóð; Heimsókn á heimaslóð,
útg. 1989, ljóð; Bændabýti, útg. 1990,
skáldsaga; Kynjasögur, útg. 1992,
smásögur; Þijár óðarslóðir, útg. 1994,
ljóð; Híbýli vindanna, útg.
1995, skáldsaga; Lifsins
tré, útg. 1996, skáldsaga.
Leikrit hans eru Loki þó!,
1973; Krummagull, 1976;
Skollaleikur 1977; Grísir
gjalda, 1979; Úr aldaannál,
1982; Þórdís þjófamóðir,
1982; Ættarmótið, 1990;
Kvennaskólaævintýrið,
1995. Þá hefur hann verið
afkastamikill þýðandi.
Fjölskylda
Böðvar er fjórkvæntur. Fyrsta
kona hans var Hjördís Hákonardótt-
ir, f. 28.8.1944, héraðsdómari við Hér-
aðsdóm Reykjavíkur.
Önnur kona Böðvars var Kristín
Á. Ólafsdóttir, f. 3.1. 1949, borgarfúll-
trúi og kennari.
Þriðja kona Böðvars var Helga
Kress, f. 21.9. 1939, prófessor við HÍ.
Eiginkona Böðvars er Eva Rode, f.
10.7. 1945, ritstjóri við Fomíslenska
orðabók Stofnunar Áma Magnússon-
ar við Kaupmannahafnarháskóla.
Hún er dóttir Thomasar Nielsen for-
stjóra og k.h., Tove Nielsen, fyrrv.
setjara.
Systkini Böðvars eru Kristin, f.
27.5. 1932, lengst af húsmóðir í Hafn-
arfirði og Keflavík; Sigurður, f. 20.4.
1937, bóndi á Kirkjubóli.
Foreldrar Böðvars voru Guðmund-
ur Böðvarsson, f. 1.9.1904,
d. 3.4.1974, skáld og bóndi
á Kirkjubóli i Hvítársíðu,
og k.h., Ingibjörg Sigurð-
ardóttir, f. 20.4. 1911, d.
21.5.1971, húsfreyja.
Ætt
Guðmundur var sonur
Böðvars, b. á Kirkjubóli,
Jónssonar, b. á Leyni og
síðar i Winnipeg, bróður
Einars, afa Stefáns Jóns-
sonar rithöfundar. Systir
Jóns var Hildur, húsfreyja í Ána-
naustum við Reykjavík, langamma
Björns Bjamasonar menntamálaráð-
herra og Markúsar Amar Antonsson-
ar, framkvæmdastjóra RÚV. Hálf-
bróðir Jóns var Helgi á Lambastöð-
um, afi Halldórs Laxness, fóður Guð-
nýjar kvikmyndagerðarmanns. Jón
var sonur Jóns, b. í Fljótstungu,
Böðvarssonar, og Margrétar Þorláks-
dóttur. Móðir Böðvars á Kirkjubóli
var Sigurbjörg, dóttir Steingrims
Guðmundssonar og Benóníu Sigurð-
ardóttur.
Móðir Guðmundar skálds var
Kristín Jónsdóttir, b. í Höll í Þverár-
hlíð, bróður Jóns eldra, langafa Lára,
móður Þórarins yfirlæknis og Péturs
blúsleikara Tyrfmgssona. Annar
bróðir Jóns var Jóhannes á Síðum-
úlaveggjum, faðir Sveins, langafa
Þórs Magnússonar þjóðminjavarðar.
Jón var sonur Sveins b. í Tóftarhring
Jónssonar og Þuríðar Egilsdóttur.
Móðir Kristínar var Halldóra, systir
Guðrúnar í Fljótstungu, langömmu
Sigurðar Helgasonar í menntamála-
ráðuneytinu, og Páls Bergþórssonar,
fyrrv. veðurstofustjóra, föður Berg-
þórs óperusöngvara.
Ingibjörg var dóttir Sigurðar, b. í
Hvammi í Hvítársíðu, bróður Guð-
jóns Helga vegaverkstjóra, föður
Halldórs Laxness. Annar bróðir Sig-
urðar var Ámi, organisti í Grinda-
vík, afi Selmu Guðmundsdóttur pí-
anóleikara. Sigurður var sonur
Helga, b. á Lambastöðum, hálfbróð-
ur, sammæðra, Jóns, b. í Leyni. Helgi
var sonur Böðvars, b. í Fljótstungu
Jónssonar. Móðir Sigurðar var Guð-
rún Sveinsdóttir, smiðs á Beigalda,
Sigurðssonar, og Sigríðar Sigurðar-
dóttur.
Móðir Ingibjargar var Helga Jóns-
dóttir, b. í Lundareykjadal, Jónsson-
ar, og Jórunnar Jónsdóttur, b. á
Breiðabólstað í Reykholtsdal, Páls-
sonar, í Geirshlíð, bróður Þorsteins,
langafa Selmu, forstöðumanns Lista-
safns Islands, og Halldórs stjómarfor-
manns Jónsbama. .Páll var sonur
Jakobs Blrnn Snorrasonar, ættföður
HúsafeOsættarinnar, Björnssonar.
Móðir Jómnnar var Sigríður Þor-
steinsdóttir, b. á Brennistöðum, Þið-
rikssonar, af Klingenbergsætt.
Böðvar
Guðmundsson.
Afmæli
Kristjana Helga Guðmundsdóttir
Kristjana Helga Guðmundsdóttir
sóknarkona, Melgerði 22, Kópavogi,
er sextug í dag.
Starfsferill
Kristjana fæddist á Suðureyri við
Súgandafiörð og ólst þar upp. Hún
flutti með manni sínum til Reykja-
víkur en hefur nú átt heima í Kópa-
vogi í tæp fiörutíu ár.
Fjölskylda
Kristjana giftist 1957 Bjama H. Sig-
urðssyni, f. 22.11. 1929, d.
25.9.1981, bólstrara. Hann
var sonur Sigurðar Krist-
jánssonar listmálara og
Kristjönu Bjarnadóttur
húsmóður.
Börn Kristjönu og
Bjama eru Kristjana, f.
4.1. 1959, húsmóðir í Sví-
þjóð, gift Jóni Gesti Harð-
arsyni og eiga þau fióra
syni; Ólöf, f. 4.1.1959, hús-
móðir í Garðabæ, gift
Bárði A. Gunnarssyni og
eiga þau fiögur börn og
eitt fósturbam; Ása, f. 30.9.
1960, sjúkraliði í Reykja-
vík, gift Árna V. Ámasyni
og eiga þau þrjú böm;
Elín, f. 21.8.1962, húsmóðir
í Borgarnesi, gift Sigurði
Bjömssyni og eiga þau
fiögur börn; Bima, f. 11.1.
1965, sjúkraliði í Reykja-
vik, gift Gísla Ö. Gíslasyni
og eiga þau þrjú börn.
Systkini Kristjönu: Guðni,
f. 1.11. 1922, nú látinn;
Kristjana Helga Kristín Magnea, f. 9.7.1915,
Guðmundsdottir. d 1975; Jóhann Magnús, f.
8.4. 1924; Þorvarður Stefán, f. 5.8.
1925; Guðrún Guðríður, f. 30.7. 1927;
Kristrún, f. 12.3. 1928; Guðmunda, f.
19.4. 1919; Fanney, f. 30.11. 1931; Jak-
obína Jóhanna, f. 21.7.1933.
Foreldrar Kristjönu vom Guð-
mundur Kristinn Guðnason, f. 19.12.
1897, d. 4.8. 1973, sjómaður á Suður-
eyri, og Elín Magnúsdóttir, f. 19.3.
1888, d. 22.8. 1970, húsmóðir.
Kristjana verður að heiman i dag
en tekur á móti gestum i Sóknarsaln-
um, Skipholti 50, laugardaginn 8.2.
nk. kl. 18.00-21.00.
Ingibjörg Sívertsen Jónsdóttir
Ingibjörg Sívertsen Jónsdóttir
bankaritari, Þúfuseli 1, Reykjavík, er
fimmtug i dag.
Fjölskylda
Ingibjörg fæddist i Reykjavík. Hún
giftist 1.10.1966 Guðjóni Þorkelssyni,
f. 2.10. 1945, skrifstofumanni hjá Vél-
um og verkfærum hf. Hann er sonur
Þorkels Guðjónssonar verkamanns
og Óskar Guðmundsdóttur húsmóð-
ur sem bæði eru látin.
Börn Ingibjargar og Guðjóns era
Margrét Ósk, f. 1.10. 1967, sjúkraliði
og löggiltur aðstoðarmaður tann-
læknis, gift Sigurði Guðmundssyni
sölumanni og eiga þau einn son,
Guðjón Inga; Þorkell, f. 11.12.1971, er
að ljúka viðskiptafræðinámi við HÍ
og starfar á endurskoðunarskrif-
stofu, en unnusta hans er Gígja
Gunnarsdóttir, nemi við íþrótta-
kennaraháskóla íslands á Laugar-
vatni; Elísabet Ósk, f. 24.5.1983, nemi
í Ölduselskóla.
Bróðir Ingibjargar er Sveinbjörn
Jónsson, f. 30.10. 1943, en sambýlis-
kona hans er Sigurrós Jóhannsdótt-
ir.
Foreldrar Ingibjargar eru Jón
Sveinbjörnsson, f. 16.4. 1922, oftset-
prentari í Reykjavík, og Margrét Sí-
vertsen, f. 18.8. 1923, húsmóðir.
Andlát
Ágúst Böðvarsson
Sigfús Ágúst Böðvarsson, fyrrv.
forstöðumaður Landmælinga ís-
lands, sem dvaldi síðustu árin á
Hrafnistu viö Skjólvang í Haftiar-
firði, lést þann 27.1. sl. Hann verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni i dag,
miðvikudaginn 5.2., kl. 15.00.
Starfsferill
Ágúst fæddist að Hrafnseyri við
Amarfiörð 3.1. 1906 og ólst þar upp.
Hann lauk námi frá Verslunarskóla
íslands 1925 og stundaði nám í land-
mælingum hjá Geodætisk Institut í
Kaupmannahöfn 1935-37.
Ágúst var bóndi að Hrafnseyri
1926-29 en vann við landmælingar ís-
lands 1930-76 er hann lét af störfum
fyrir aldurs sakir. Hann var forstöðu-
maður Landmælinga Islands 1959-76.
Ágúst samdi texta við ýmis þekkt
dægurlög fyrri tíma, s.s. Skautapolka
og Ljósbrá. Hann sat í stjórn Bygg-
ingasamvinnufélags
starfsmanna ríkisstofn-
ana um árabil frá 1948, í
ömefnanefnd og Hrafns-
eyramefnd um nokkurt
skeið frá 1973.
Á síðasta ári komu út
eftir Ágúst ritið Saga
landmælinga Dana á ís-
landi og ljóðabók, Ljóð-
mæli.
Ágúst var heiðurfélagi
Ferðafélags íslands, var
virkur félagi í Oddfellow-
reglunni, stúku nr. 11., Þorgeiri, og
var heiðursfélagi hennar. Hann var
sæmdur Hinni íslensku fálkaorðu.
Fjölskylda
Ágúst kvæntist 18.12. 1930 Sigríði
Sveinbjömsdóttur, f. 12.6. 1909, d.
24.12.1977, húsmóður. Hún var dóttir
Sveinbjöms Sæmundssonar, fylgdar-
manns í Reykjavík, og k.h.,
Ólafiu Bjargar Jónsdóttur,
húsmóður og saumakonu.
Sonur Ágústs og Sigríðar
var Gunnar Hrafh, f. 18.10.
1931, d. 23.12. 1990, verk-
fræðingur í Hafnarfirði,
sem var kvæntur Önnu
Baur hárgreiðslumeistara
og era synir þeirra tveir;
Ágúst Jóhann, f. 3.6. 1963,
tannlæknir í Hafnarfirði,
og Sveinbjöm Styrmir, f.
19.9. 1965, bakarameistari i
Reykjavík.
Alsystkini Ágústs: Bjami Einar, f.
21.11. 1900, látinn, hljómsveitarstjóri
í Reykjavík; Guðrún, f. 9.7. 1902, dó
ung kona; Þórey Kristín Ólina, f. 4.7.
1904, nú látin, húsmóðir í Reykjavík.
Hálfsystkini Ágústs, samfeðra:
Baldur, f. 7.11. 1921, dó tveggja ára;
Bryndís, f. 13.5. 1923, nú látin, hús-
móðir á Akureyri; Baldur, f. 6.11.
1924, fyrrv. símstjóri á Selfossi.
Foreldrar Ágústs voru Böðvar
Bjarnason, f. 18.4. 1872, d. 11.3. 1953,
prófastur á Hrafnseyri við Arnar-
fiörð, og Ragnhildur Teitsdóttir, f.
22.7. 1877, d. 30.7. 1963, húsfreyja.
Ætt
Böðvar var hálfbróðir Ragnheiðar,
móður Jóns Leifs. Böðvar var sonur
Bjama, b. á Reykhólum, bróður
Gísla, langafa Klemensar Jónssonar
leikara og leikstjóra. Bjami var son-
ur Þórðar, b. í Belgsholti í Mela-
sveit, Steinþórssonar. Móðir Böðv-
ars var Þórey Kristín Ólína Páls-
dóttir, b. á Reykhólum, Guðmunds-
sonar.
Ragnhildur var systir Önnu,
langömmu Guðrúnar Ágústsdóttur,
forseta borgarstjórnar. Ragnhildur
var dóttir Teits, gullsmiðs og veit-
ingamanns á ísafirði, Jónssonar.
Ágúst Böövarsson.
DV
Hl hamingju með afmælið 5. febrúar
90 ára
Margrét Guðmundsdóttir, Akralandi 3, Reykjavík.
80 ára
Björg Antoníusdóttir, Silfurbraut 36, Höfn í Horna- firði. Jóhann Klausen, Bleiksárhlíð 56, Eskifirði.
75 ára
Árni E. Ámason, Tjarnarlundi 13 E, Akureyri. Jón A. Valdimarsson, Suðurgötu 22, Keflavík.
70 ára
Georg Guðlaugsson, Selvogsgötu 22, Hafnarfirði. Þórey E. Kolbeins, Grenimel 33, Reykjavík. Anna S. Jóhannsdóttir, Hvammi, Andakílsvirkjun, Andakílshreppi.
60 ára
Bára Jóhannsdóttir, BlómsturvöUum 27, Neskaup- stað. Ingigerður S. Óskarsdóttir, Grýtubakka 2, Reykjavík. Ólafur Veturliði Þórðarson, Fjarðargötu 52, Þingeyri. Guðni Ingólfur Gestsson, Hlíðargötu 55, Fáskrúðsfirði.
50 ára
Erla Pétursdóttir, Njörvasundi 4, Reykjavík. Ragnheiður S. Aðalsteins- dóttir, Langholtsvegi 80, Reykjavík. Hjördis Ingvarsdóttir, Blómvangi 8, Hafnarfirði. Karl Sigurbjörnsson, Þórsgötu 18 A, Reykjavík. Sigurður Erlendsson, Einibergi 13, Hafnarfirði. Björn Sigurðsson, Þrúðvangi 7, Hellu.
40 ára
Þorlákur Ásmundsson, Stekkjarflöt 2, Garðabæ. Kristín Marteinsdóttir, Hafraholti 30, ísafirði. Guðni Óskar Jensen, Jórufelli 6, Reykjavík. Erla Kamilla HáJfdánardóttir, Amarsmára 4, Kópavogi. Guðmundxu- Þór Kristjánsson, Klapparbraut 6, Garði. Halldóra Jónsdóttir, Hverfisgötu 92 C, Reykjavík. Sveinbjörn F. Pétursson, Lambastaðabraut 1, Seltjarnar- nesi.
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
Smáauglýsingar
SSO 5000