Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1997, Side 11
-f
DV LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1997
^íkustríð n
sem þurft hafa að drepa fyrir máí-
staðinn. Eins og gefur að skilja er
Qöldi Vítisengla í fangelsi og hafa
þeir stofnað með sér styrktarsjóð,
svokallaðan „Defence Fund“ til
hjálpar þeim, enda er setningin
„Frelsum alla Vítisengla“ eitt af
þeirra æðstu boðorðum. Samtals
voru sex meðlimih í Bullshits vegn-
ir af Vítisenglum á þessum árum
auk 7 annarra sem komist höfðu í
ónáð hjá englum vítis.
Voðaverkin byrja
Fljótlega eftir uppjörið mikla fór
að bera á uppgangi klúbbs er nefnd-
ist Dirty Drággles í Svíþjóð en mark-
mið hans er að verða fyrsti Vít-
isengla-klúbburinn þar. Reyndar
höfðu þeir keppendur um titilinn
eins og klúbbinn White Trash sem
var klofningshópur frá Morbids sem
seinna verður Banditos. Á næstu
árum voru meðlimir Dirty Drággles
ákærðir fyrir mörg voðaverk eins og
morðtilraun á tveimur félögum í
mótorhjólaklúbbnum MC Sinners og
grófa líkamsárás á blaðamanninn
Anders Westenius en hann hafði
skrifað harðorðar greinar um mótor-
hjólagengin. Eitt af hlutverkum til-
vonandi Vítisengla-klúbba er að
„hreinsa til“ fyrir þá í viðkomandi
landi. Hlutverk þeirra er þá að
banna öðrum klúbbum að nota sömu
liti í merkjum sínum og Vitisengla
og að banna notkun enskra heita,
sérstaklega í nafni viðkomandi
lands, en það fá þeir einir að nota
sem eru til reynslu eða orðnir full-
gildir Vítisenglar. Árið 1993 verða
Dirty Drággles fyrsti klúbbur Vít-
isengla í Svíþjóð.
Næsta ár, 1994, fer að bera mikið á
ofbeldi og það sérstaklega meðal svo-
kallaðra stuðningsklúbba. Skotið er
á höfuðstöðvar Morbids (seinna
Banditos) í Helsingborg, og 23 ára
áhangandi Vítisengla úr stuðnings-
klúbbnum Rednecks er skotinn til
ólífis á Roof Top Club í Helsingborg.
Nokkrum mánuðum seinna er 34 ára
Banditos meðlimur frá Danmörku
skotinn í bakið á næturklúbbi í Vax-
jö. Þá heldur klúbburinn Morbids
upp á það að þeir séu orðnir
Banditos í Svíþjóð. Við rassíu í
klúbbhúsinu sama kvöld flnnast
vopn og eru 6 meðlimir handteknir.
Skömmu seinna fremur svo einn
þeirra morð á samfanga i Berga-
fangelsinu.
Snemma á næsta ári, 1995, fer svo
að bera á aukinni notkun allskonar
vopna í átökum þessara klúbba og
má þar t.d nefna skammbyssur,
handsprengjur og flugskeyti af þeirri
gerð sem notuð eru til aö granda
skriðdrekum. Flugskeytum þessum
hafði verið stolið úr vopnageymslum
sænska hersins og hafa ekki öll kom-
ið í leitarnar ennþá. í apríl særa
meðlimir í Undertakers MC, finnsk-
um styrktarklúbbi Banditos, Vítis-
engil í skotbardaga í ffelsingborg.
Flugskeytum er einnig skotið að
bandamönnum Vítisengla í Finn-
landi en þar er nokkurskonar griða-
staður Banditos.
Næstu tvö ár fara svo í hönd blóð-
ugustu erjur slíkra hópa sem þekkst
hafa, með þegar átta látnum. Ballið
byrjar með laundrápi. Þróunin er
rakin nánar á meðfylgjandi grafi.
Skipulögð glæpastarf-
semi vestanhafs
í Bandaríkjunum og Kanada hefur
sannast skipulögð glæpastarfsemi á
vegum þessara klúbba. Auk þess
hafa þeir verið viðriðnir framleiðslu
og sölu eiturlyfja, vopnasölu, vændi,
handrukkanir, skipulögð innbrot og
morð. í Skandinavíu er svipað uppi á
teningnum nema bara í minna
magni. Bent hefur verið á barátta
þeirra tengist hugsanlega yfirráðum
yfir smyglleiðum og koma þar inn í
hugsanleg tengsl þeirra við mafiur í
Rússlandi og Póllandi.
Um tengsl þeirra við ísland er það
að segja að þau eru meiri heldur en
umboðssala á konum til erótískra
sýninga. Hver þau eru skal ósagt lát-
iö, til að styggja ekki þá sem það til
sín taka, en þau eru fyrir hendi þó
að í litlum mæli sé. Hvort Vítisengl-
ar eigi einhvemtíman eftir að ná fót-
festu hér á landi mun framtíðin leiða
í ljós.
Áhrif stríðsins á mótor-
hjólasamfálagið
Óheppileg notkun orða og orða-
sambanda meðal fjölmiðla og
málsvara hins opinbera hafa leitt til
almennrar vanþóknunar á mótor-
hjólasamfélaginu á Norðurlöndum.
Vanþekking fjölmiðla og slæmt
orðaval hafa leitt til þess að skiln-
ingur almennings er sá að „stríð“
geisi á milli alls mótorhjólafólks í
Skandinavíu. Ekkert gæti verið
fiarri raunveruleikanum. Reyndar
er það hið almenna mótorhjólasam-
félag sem hefur þjáðst mest vegna
baráttu klúbba eins og Vítisengla,
Banditos og Outlaws.
Notkun skotvopna og flugskeyta
innan um íbúðasvæði hafa auðvitað
neytt framkvæmdavaldið til þess að
bregðast á einhvern hátt við og
ijöldi tillagna í þá átt hafa orðið til.
Samt hafa EMA-löndin (Evrópska
mótorhjólasambandið) á Norður-
löndunum ekki stutt þá viðleitan
hins opinbera þar sem þær eru
byggðar á misskilningi og fáfræði
gagnvart mót-
orhjólafólki.
í Danmörku
hefur þingið
sett á ný lög til
að torvelda að-
gang klúbbfé-
laga að þeirra
eigin húsnæði.
Þótt að líklega
sé meint vel
með þess hátt-
ar aðgerðum
hafa lög þessi
valdið hinum
almenna klúbbfélaga sem hefur ekk-
ert með útlagahópa að gera, vand-
ræðum. í Noregi hafa þeir jafnvel
gengið enn lengra. Nóvember síðast-
liðinn var gefm út tillaga að lögum
sem leyfa það að hægt sé að sækja
heilan mótorhjólaklúbb til saka.
Þannig væri það í reynd nóg að ein-
hver félagi hans fremdi glæp til þess
að allur
klúbburin
þyrfti að
svara fyrir
hann.
Önnur
tillaga er sú
að banna
notkun bak-
merkja eða
„colors". Á
Norður-
löndunum
er löng hefð
fyrir notk-
un þeirra þannig að mótorhjólasam-
félagið skilur ekki svona hugsunar-
hátt og bregst illa við þessháttar til-
lögum. Klúbbarnir hafa rökstuddan
grun um að valdhafar geti ekki
greint á milli venjulegra og ofbeldis-
hneigðra mótorhjólaklúbba.
99 prósent löghlýðnir
Þessir ofbeldishneigðu glæpa-
klúbbar merkja sig með stolti 1%, en
það er mjög mikilvægt að almenn-
ingur og valdhafar skilji að 99% mót-
orhjólafólks er almennur löghlýðinn
borgari rétt eins og þeir sjálfir, með
þá löngun eina að fá aö keyra mótor-
hjólin sín í friði. EMA, sem Sniglarn-
ir eru aðili að, hafa lýst sig and-
snúna tengingu mótorhjóla við of-
beldi og glæpi og því er það von
þeirra að það verði ekki litið á það
sem glæpsamlegt að eiga mótorhjóla-
klúbb og vilja hjóla úti með vinum
sínum. Hvort þaö sé framtíðin verð-
ur tíminn að leiða í ljós.
Njáll Gunnlaugsson
Eftir flugskeytaárásina á höfuðstöðvar
Vítisengla í Hasslarp í Svíþjóð.
Oxeladín: Notkunarsvið: Oxeladín er hóstastillandi mixtúra og er mýkjandi við ertingu í öndunarfærum. Frábendingar: Gæta þarf
varúðar við notkun hóstamixtúra hjá litlum börnum, því mikilvægt er að þau geti hóstaö upp slími og óhreinindum sem kunna aö
setjast í öndunarfæri. Aukaverkanir: Ekki þekktar. Athugið: Lyfið inniheldur 7,9% alkóhól. Dexómet: Eiginleikar: Lyfið hefur
hóstastillandi verkun í líkingu við kódein, en hefur ekki aðrar verkanir kódeins og engin ávanahætta fylgir notkun þess.
Notkunarsvið: Dexómet er hóstamixtúra, sem hefur áhrif á hósta sem stafar af minni háttar ertingu í hálsi eða berkjum.
Varúðarreglur: Um 3% einstaklinga geta ekki umbrotiö lyfið í lifur og geta þeir fengið verulegar aukaverkanir af venjulegum
skömmtum. Lyfiö skal ekki nota lengur en í viku í senn. Aukaverkanir: Einstaka sinnum geta komiö fram útbrot. Einnig ógleöi og
uppköst. Aö auki hefur verið vart við þreytu, svima, ofskynjanir og hjartslátt. Pektólín: Notkunarsvið: Pektólín er hóstastillandi
mixtúra og verkar á ofnæmi. Aukaverkanir: Athugið að lyfiö hefur róandi verkun. Því ber aö vara viö stjórnun vélknúinna tækja
samtímis notkun lyfsins. Tússól: Notkunarsvið: Tússól er hóstastillandi mixtúra. Aukaverkanir: Viö ofskömmtun geta komiö
uppköst og truflun á jónavægi líkamans. Athugið: Lyfiö inniheldur 7,5% alkóhól. Skömmtun: Nákvæmar leiðbeiningar um
skömmtun fylgja lyfjunum. Ekki má taka stærri skammta en mælt er með. Lesið vandlega leiðbeiningar, sem fylgja lyfjunum.
Fástf
apótekum
og
lyfjabúðum
t