Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1997, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1997, Side 27
JLlV LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1997 Komdu í Kringluna, fáðu þátttökuseðil og þú gætir verið á leið til Evrópu. frá morgni til kvölds UM KRINGLUNA í SKEMMTILEGUM LEIK ^USEÐLINUWl GLÆSILEGIR VINNINGAR Ferð fyrir tvo ti! einhverra af áfangastöðum Flugleiða í Evrópu. 40 miðar á „The Preachers Wife“ í Kringlubíói. Vöruúttektir. Það eina sem þú þarft að gera er að taka rúntinn í Kringlunni og eiga við- skipti í bæði norður- og suðurhúsi Kringlunnar. Vöruúttektir frá eftirtöldum aðilum í Kringlunni: Barnakot, Demantahúsið, Dýrðlingarnir, Face, Galleri Fold Gallerí Borg, Gleraugnasmiðjan, Sjónvarpsmarkaðurinn, Steinar Waage, Virgin, Whittard, Lapagayo og íslandsbanki. Pakistanskir karlar: sig við eiginkonurnar því að kveikja í þeim notaði tækifærið í fyrra, þegar mað- ur hennar var fjarverandi stutta stund, til að segja bresku blaða- mönnunum sögu sína. „Ég reifst við manninn minn. Hann hellti steinol- íu yfir mig og kveikti í,“ sagði kon- an sem heitir Amina. „Hann sýndi mér sprautu fyllta með rottueitri og sagðist myndu sprauta því í mig ef ég segði frá því að hann hefði kveikt í mér,“ greindi Amina frá. í janúar síðastliðnum fóru blaða- menn Express aftur í heimsókn á Mayo-sjúkrahúsið í Lahore. Það kom i ljós að morðtilraunirnar halda áfram þrátt fyrir fangelsis- dóma yfir mönnunum þremur. Á sjúkrahúsinu lágu þrjár giftar kon- ur, ein þeirra var aðeins 16 ára, með brunasár eftir meintar sprengingar í eldavélum. Eiginmenn kvennanna hringsóluðu stöðugt í kringum þær. Lögreglan spillt og gerir lítið Furham Iqbal, sem er 26 ára, las læknisfræði í Englandi og er einn af bestu ungu læknunum á Mayo- sjúkrahúsinu. „Allir vita að í mörg- að. Það er leitt vegna þess að það er mjög grunsamlegt," segir einn læknanna á Mayo sjúkrahúsinu. Yasmeena var 21 árs, bamshaf- andi og hafði verið gift í fjóra mán- uði þegar hún skaðbrenndist. Blaða- menn breska blaðsins Express heimsóttu hana nokkrum sinnum á dag þá þrjá daga sem hún lifði eftir slysið. Eiginmaður hennar, Munil, var alltaf við rúmstokk hennar og það voru einnig margir ættingja hans. Breytti framburði sínum mörgum sinnum Munil breytti mörgum sinnum framburði sínum. Fyrst kvaðst hann hafa verið í baðherberginu þegar sprenging varð í eldavélinni. Síðar sagðist hann hafa verið í her- berginu við hliðina á eldhúsinu og í lokin hélt hann þvi fram að hann hefði alls ekki verið í húsinu. ÞegcU- blaðamaður Express var viðstaddur jarðarför Yasminu í þorpinu hennar fann hana eldavélina, sem sögð var hafa sprungið, heila og gallalausa. Byggt á Sunday Express i •*' Firdous var 35 ára og hafði ekki alið manni sínum börn þegar „sprenging varð í eldavélinni hennar". Maður hennar var stöðugt við hliö hennar á sjúkrahúsinu þannig að hún gat ekki sagt frá því sem gerðist í raun og veru. um þessara tilfella er um morð að ræða en lögreglan er spillt og það gerist lítið,“ segir hann. „Það er átakanlegt að sjá þessar konur líða svona miklar þjáningar. Þegar ég tel að einhver þeirra eigi möguleika á að lifa af kaupi ég lyf fyrir mína eig- in peninga," segir læknirinn. Eitt fórnarlambanna, Rezia, sem er 24 ára, er gift hermanni. „Miðað við þau sambönd sem hann hefur er ólíklegt að þetta mál verði rannsak- Losa með Yfirvöld í Pakistan eru loks farin að grípa í taumana gegn grimmi- legri hefð sem hefur valdið dauða fjölda ungra kvenna. í fyrsta skipti hafa þrír menn verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir að brenna eig- inkonu eins þeirra. Fjöldi pakistanskra kvenna hefur látið lífið vegna sprengingar í elda- vél en það er sú skýring sem eigin- menn kvennanna gefa. Eiginmenn- imir setja oft á sviö slys í eldhúsum til að losa sig við eiginkonur sem færa þeim til dæmis of lítinn Erlent fréttaljós á laugardegi heimanmund eða geta ekki alið þeim börn. Skilnaður er aðeins mögulegur í Pakistan veiti eigin- konur samþykki sitt og það gera þær sjaldnast. Árum saman hefur spillt kerfið snúið baki við fómarlömbunum. En nú hafa þrír menn verið dæmdir til samtals 75 ára fangelsisvistar. Hellti olíu yfir eiginkonuna og kveikti í Fyrir nokkrum vikum voru eig- inmaður Maliku Bibi, sem var 21 árs, bróðir hennar og frændi hver um sig dæmdir í 25 ára fangelsi fyr- ir að myrða hana. Meira að segja lögreglustjórum í borginni Lahore, þar sem lítil virðing er borin fyrir lögum, var brugðið við morðið á Maliku. Mennimir þrír höfðu barið hana þar til hún varð nær meðvit- undarlaus. Síðan helltu þeir parafinolíu yfir hana og kveiktu síð- an í. Malika dó viku síðar af bmna- sárunum sem hún hlaut. Eiginmaðurinn, bróðirinn og frændinn héldu því fram að Malika hefði verið að matreiða á frum- stæðri olíueldavél sem hefði spmng- ið. Á Mayo-sjúkrahúsinu í Lahore, þar sem Malika lá, þurfa sjúklingar að greiða íyrir umbúðir og lyf. Fjöl- skylda Maliku kvaðst ekki hafa nægilegt fé til að borga kvalastill- andi lyf. Malika lést eftir miklar þjáningar. Morð í 90 prósentum tilvika Aðstoðaryfirlögregluþjónn í Lahore, Farkhanda Iqbal, sem er kona, hefur tekið upp mál þeirra mörg hundmð eiginkvenna sem brenndar era til bana á hverju ári í Lahore einni. Á bara einu sjúkra- húsi í borginni er árlega tekið á móti um 300 ungum konum sem fullyrt er að hafi brennst er eldavél- ar þeirra sprungu. „Ég tel að í 90 prósentum tilfell- anna, þegar giftar konur eiga í hlut, sé um morð að ræða,“ segir Iqbal. „Þetta var bara fyrsta ákæran en þetta er byrjunin. Þakka ykkur fyr- ir að vekja athygli mína á þessu," segir Iqbal í viðtali við breska blað- ið Express. Að sögn blaðsins leiddi rannsókn þess á hinni grimmilegu hefð meðal annars til þess að menn- imir þrir voru ákærðir. Hótaði að sprauta rottueitri í konuna Fjögurra barna móðir, Amina,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.