Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1997, Síða 33
LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1997
41
Náttúruvæn ferðaþjónusta:
Gegn neikvæðri fjöldaferðamennsku
Græn ferðamennska byggist á
hugmyndafræði er skotið hefur rót-
um víða um heim sem andsvar við
neikvæðum áhrifum ijöldaferða-
mennsku. Eyðilegging og hrun fá-
gætra ferðamannastaða er byggjast
á náttúru- og menningarauðlindum
hefur vakið fólk til umhugsunar um
gildi þess að vemda það umhverfí
sem ferðamennskan byggist á. Jafn-
framt leita ferðamenn í æ ríkari
mæli eftir ákveðinni tegund af ferð-
um sem bjóða nánari snertingu við
lífið í landinu, náttúruupplifun og
framandi menningarheima.
Á grundvelli þessara sjónarmiða
var ferðaskrifstofan Landnáma ehf.
stofnuð en hún starfar undir for-
merkjum grænnar, náttúruvænnar
ferðamennsku. Aðstandendur henn-
ar hafa kosið að nefna hana Land-
námu, með tilvísun í elstu heimild
um upprana íslendinga sem skráð
er í Landnámabók. Landnáma er
einkahlutafélag í eigu einstaklinga
og fyrirtækja og stærsti einstaki
hluthafinn eru Flugleiðir.
Takmarkaður fjöldi
Meðal þeirra þátta sem starfsemi
ferðaskrifstofunnar grundvallast á
er að byggja upp vistvænan rekstur
innan skrifstofunnar, jafnframt því
sem leitast er við að skipta ein-
göngu við þjónustufyrirtæki sem til-
einka sér umhverfisvænan rekstur.
Ejöldi þátttakenda í hverri ferð er
takmarkaður og ferðirnar eru
skipulagðar meðal annars með það í
huga að kveikja og dýpka áhuga og
skilning ferðamannsins á ólíkum
menningarheimum, náttúru og vís-
indum.
Landnáma mun fyrst um sinn
Þaö er komin hefð fyrir því að Ferðahátíð Flugleiða sé haldin í Kringlunni.
Ferðahátíð Flugleiða í Kringlunni:
Búist við á annan tug
þúsunda gesta
Árleg Ferðahátíð Flugleiða verð-
ur haldin í kringlunni sunnudaginn
9. febrúar. Jóhann Gísli Jóhannsson
er verkefnisstjóri hátíðarinnar.
„Ferðahátíðin stendur yfir á milli
klukkan 13 og 17. Ferðahátíðin hef-
ur verið haldin í áraraðir og þetta
er held ég i 6. sinn sem hún er hald-
in í Kringlunni. Hún hefur verið
mjög vinsæl og oftast mæta á milli
10 og 15 þúsund manns. Fyrir tveim-
ur árum vorum við mjög heppnir
með veður en þá komu 17 þúsund
manns,“ sagði Jóhann Gísli.
Spennandi tilboð
„Flugleiðabæklingur ársins verð-
ur kynntur til sögunnar eins og
alltaf á Ferðahátíð og þar verða
mörg ný spennandi tilboð kynnt. í
Kringlunni verður fjöldi erlendra
ferðamannaráða sem kynna sína
staði. Þau eru frá Danmörku, Ham-
borg, Trier, Þýskalandi, Lúxem-
borg, London og Stóra-Bretlandi,
Glasgow, Halifax og Nova Scotia,
Baltimore og Maryland, Frakklandi
og Spáni. Þetta eru þeir staðir sem
eru vinsælastir af áfangastöðum
Flugleiða.
Þama verða ýmis innlend fyrir-
tæki tengd ferðaþjónustunni, trygg-
ingcifélögin Visa, Eurocard og
Trygging. Af ýmsum deildum Flug-
leiða, sem verða kynntar, eru Saga
Boutique, Vildarklúbburinn, innan-
landsflugið og flugeldhúsið mun
gefa fólki að smakka á sinni fram-
leiðslu.
í tilefni 60 ára afmælis áætlunar-
flugs á íslandi verður kynnt saga
Flugfélags Akureyrar (sem stofnað
var 1937), Flugfélags íslands, Loft-
leiða og síðar Flugleiða. Síðan verð-
ur sýning í Suður-Kringlunni þar
sem verða yfir 100 gamlar ljósmynd-
ir og flögur myndbönd í gangi sem
sýna söguna.
Við munum selja happdrættis-
miða á hátíðinni og allir ágóði af
sölu þeirra rennur til styrktar íbúð-
arkaupum Bamaheilla. Þar verða 10
millilandamiðar fyrir 2 í verðlaun
og alls yfir 500 vinningar. Fjölmarg-
ir erlendir aðilar verða einnig með
getraunir og flugmiða í verðlaun.
Það verður einnig mikið um
skemmtiatriði, hljómsveit frá Hali-
fax, Götuleikhúsið verður á svæð-
inu, lúðrasveit og harmónikkuleik-
ari til að skapa skemmtilega götu-
stemningu. Ýmis fyrirtæki verða
með tilboð á Ferðahátíðinni, Penn-
inn með tilboð á ferðatöskum, Hans
Petersen á myndavélum, Eymunds-
son á ferðabókum og svo framvegis.
Nýja kökuhúsið verður með danskt
smorrebrod og franskar pönnukök-
ur og þannig mætti lengi telja,“
sagði Jóhann. -ÍS
Eyðilegging og hrun fágætra ferðamannastaöa, sem byggjast á náttúru- og
menningarauðlindum, hefur vakið fólk til umhugsunar um gildi þess aö
vernda það umhverfi sem feröamennskan byggist á. Mývatnssvæðið er nátt-
úruperla sem umgangast verður með varúð.
eingöngu
bjóða skipu-
lagðar ferðir
með leiðsögn
um ísland og á
erlenda grund.
Hins vegar er
stefnt að meiri
fjölbreytni í
framboði í ná-
inni framtíð.
Skrifstofan
hefur einnig
aflað sér um-
boðs til að
selja ferðir
með ferða-
skrifstofum er-
lendis sem sér-
hæfa sig í
göngu- og nátt-
úruskoðunar-
ferðum, ævin-
týraferðum,
menningar-
ferðum og öðr-
um þemaferðum.
Til dæmis verða í boði þrjár mis-
munandi ferðir um Reykjavík er
gefa innsýn í sögu landnáms Ingólfs
Arnarsonar, menningarsögu borg-
arinnar, byggingarlist, sjávarútveg
og vinnslu sjávarafurða og líf fólks-
ins í borginni fyrr og nú. Einnig
verða ferðir þar sem lögð verður
áhersla á vistvænan landbúnað,
kynningu á störfum bænda, ferðir
með aðaláherslu á jarðfræði og sjáif-
bæra nýtingu jarðhita.
Hvalaskoðun og fuglaskoðun
skipa stóran sess í ferðum Land-
námu, ásamt því að lögð er áhersla
á að kynna ferða-
manninum land-
ið sem mest úti í
guðsgrænni nátt-
úrunni í stað
þess að sitja í
rútu allan dag-
inn.
Costa Rica
Costa Rica er
fyrsti áfangastað-
ur Landnámu er-
lendis. Þangað
verður boðið upp
á ferð í lok febrú-
ar og önnur ferð
er á dagskrá um
páskana. Costa
Rica býr yfir
óendanlegum fjöl-
breytileik náttúr-
unnar og varð eitt
fyrsta ríki heims
til að tileinka sér
kenningar grænn-
ar ferðamennsku. Um fjórðungur
landsins fellur undir þjóðgarða og
náttúruverndarsvæði. Þar kemst
ferðamaðurinn í snertingu við hita-
beltisfrumskóga, fjölbreytt dýra- og
fuglalíf, virk eldfjöll, heitar jarðhita-
uppsprettur og hreinar strendur.
-ÍS
-c