Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1997, Blaðsíða 16
16
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
25
íþróttir
1. DEILD KARLA
Haukar 18 13 2 3 466-424 28
Afturelding 18 14 0 4 468-434 28
KA 18 12 1 5 485-462 25
Fram 18 8 4 6 422-397 20
ÍBV 16 9 1 6 400-369 19
Valur 18 8 3 7 419416 19
Stjaman 17 7 2 8 447-440 16
FH 18 7 1 10 459480 15
Grótta 18 5 2 11 429461 12
ÍR 17 5 1 11 417-420 11
Selfoss 18 4 2 12 439495 10
HK 18 4 1 13 409446 9
Markahæstir:
Valdimar Grimsson, Stjörnunni . 139
Róbert Duranona, KA ...........145
Zoltán Belánýi, ÍBV............118
Guðmundur Pedersen, FH........117
Juri Sadovski, Gróttu .........114
Sigurður V. Sveinsson, HK .... 108
Alexei Demidov, Selfossi ......102
Oleg Titov, Fram...............101
Bjarki Sigurösson, Aftureldingu . 99
Þrjá leikmenn vantaði í lið Aftureld-
ingar i gærkvöld gegn HK. Berg-
sveinn Bergsveinsson markvörður
var með flensu, Þorkell Guðbrands-
son meiddur og Einar Gunnar Sig-
urösson einnig.
Dómararnir í Mosfellsbæ voru sér-
lega slakir og stuðningsmenn beggja
liða hrópuðu út af með dómarana og
segir þaö meira en mörg orð um
dómgæsluna að stuðningsmenn lið-
anna skuli hafa verið sammála um
frammistöðu þeirra.
Menn voru miskunnarlaust reknir
út af i leik Aftureldingar og HK og í
einar fjórar mínútur voru aðeins þrir
útileikmenn í liði Aftureldingar.
Alsírmaðurinn Aziz Mihoubi náði
sér ekki á strik með liöi Vals gegn
KA í gærkvöld. Hann gerði strax mis-
tök í upphafi leiksins og kom nánast
ekkert meira við sögu. Greinilegt var
að Valsmenn hafa ekki mjög mikla
trú á Mihoubi sem gerði 10 mörk fyr-
ir Val gegn Haukum á dögunum.
Jón Þórðarson, Gróttu, meiddist illa
þegar hann skoraði annað mark sitt í
leiknum gegn ÍR og lék ekki meira
með félögum sinum i Seljaskólanum í
gærkvöld.
Eyjamenn gerðu afdrifarík mistök
á lokasekúndunum gegn FH. Eftir að
þeir misstu mann út af 12 sekúndum
fyrir leikslok hljóp annar inn á í leyf-
isleysi. Fyrir vikið misstu Eyjamenn
annan leikmann út af og þurftu því
að verjast 4 gegn fullskipuðu liði FH
sem jafnaði.
Stefán Guðmundsson skoraði
tvö glæsimörk fyrir FH gegn ÍBV,
vatt upp á líkamann og negldi knett-
inum með tilþrifum í netið. Þessi tví-
tugi strákur á ekki langt aö sækja
hæfileikana en Guðmundur Sveins-
son, faðir hans (bróöir Sigga Sveins),
gerði garðinn frægan með Fram og
FH á árum áður.
„Mjög ánægðir
meö Teit“
„Við erum ánægðir meö okk-
ar lið, mjög ánægðir með það
sem Teitur Þórðarson er að gera
og teljum að liðið sé í mikilli
framför," segir Mart Tarmak,
varaforseti eistneska knatt-
spyrnusambandsins.
Leikmenn liðsins, sem náðu
mjög óvænt stigi gegn Skotum í
fyrrakvöld, fá umbun fyrir hvert
stig sem þeir fá í undankeppni
HM. Fyrir stig fær hver leikmað-
ur 28.000 krónur þannig að hver
leikmaður hefur þegar fengið 112
þúsund krónur það sem af er
undankeppninni. Leikmenn liðs-
ins eru flestir atvinnumenn í
heimalandi sínu en launin eru
ekki há. Flestir þeirra eru með
um 28.000 krónur á mánuði á
meöan venjuleg laun verka-
manna eru um 11.500 krónur.
-SK
NBAínóttog
fleiri íþrótta-
ftéttir á bls. 26
Gísli Rúnar varði
fimm vítaköst
- en Haukar unnu þó á Selfossi, 21-27
DV, Selfossi:
„Ég er ekki ánægður með spilið
hjá okkur, við misstum tökin í
seinni hálfleik, lékum ómarkvisst
og dauðafærin nýttust illa. En ég er
ánægður með stigin," sagði Sigurð-
ur Gunnarsson, þjálfari Hauka, eft-
ir sigur á Selfossi i gærkvöld, 21-27.
Haukar höfðu undirtökin mestall-
an leikinn, sjö mörk í hálfleik. Sel-
fyssingar bitu frá sér í seinni hálf-
leik en misstu leikinn úr höndum
sér á lokakaflanum.
Gisli Rúnar Guðmundsson, hinn
18 ára gamli markvörður Selfoss,
átti frábæran leik og varði fimm
vítaköst frá Haukunum. Með því
hélt hann heimamönnum inni í
leiknum í seinni hálfleik.
Aron Kristjánsson stóð sig mjög
vel hjá Haukum og Þorkell Magnús-
son einnig, annars var Haukaliðið
jafnt. -GKS
„Við gengum frá þeim
í fyrri hálfleiknum"
- Grótta vann góðan sigur á ÍR
„Við gengum alveg frá þeim í
fyrri hálfleiknum, keyrðum þá upp
hraðaupphlaupin og þeir brotnuðu.
Þetta var mjög dýrmætur sigur og
vonandi merki um uppsveiflu hjá
okkur,“ sagði Sigtryggur Alherts-
son, markvörður Gróttu, en hann
lagði grunninn að stórum sigri á ÍR
með stórbrotinni markvörslu.
Lengi vel leit út fyrir jafna viður-
eign liðanna í Seljaskólanum en
leikmenn Gróttu hrukku heldur bet-
ur i gang og náðu níu marka for-
skoti fyrir leikhlé.
Þessi munur var of mikill fyrir
ÍR-inga sem reyndu allt hvað þeir
gátu til að minnka muninn með þvi
að taka tvo Gróttumenn úr umferð í
upphafi síðari hálfleiks en þá var
munurinn þegar orðinn of mikill á
liðunum. Gróttuliðiö lék mjög vel í
þessum leik og uppskar samkvæmt
því.
-JKS
Guðjón bjargaði FH
- jafnaði gegn ÍBV í lokin, 26-26
Guðjón Árnason tryggði FH-ing-
um jafntefli, 26-26, gegn ÍBV i Krik-
anum í gærkvöld þegar hann jafn-
aði með laglegu undirhandarskoti 2
sekúndum fyrir leikslok.
Eyjamenn virtust vera á leið
heim með bæði stigin. Þeir höfðu
tveggja marka forskot skömmu fyr-
ir leikslok en FH náði að jafna og
tryggja sér mikilvægt stig.
Úrslitin verða að teljast sann-
gjörn. Heimamenn voru betri í fyrri
hálfleik og léku oft á tíðum mjög vel
en eftir að Eyjamenn náðu að þétta
vörn sína í síðari hálfleik óx þeim
ásmegin.
Guðjón átti stórleik í liði FH og
Lee var góður á milli stanganna en
hjá Eyjamönnum, sem aldrei þessu
vant virkuðu hálf stemningarlausir,
bar mest á Zoltán Belánýi og Sig-
mar Þröstur var að vanda góður í
markinu.
„Ætli maður verði ekki að telja
þetta sanngjörn úrslit. Ég var afar
óhress með mína menn í fyrri hálf-
leik og vömin var mjög slök. Þetta
lagaðist en eftir að við náðum að
komast yfir var eins og menn væru
ekki nógu kaldir að fylgja þvi eftir,“
sagði Þorbergur Aðalsteinsson,
þjálfari ÍBV, við DV. -GH
Mistakaleikur í Mosfellsbæ
Þaö var einkennilegur leikur sem Afturelding og HK buðu upp á í gær-
kvöldi þegar liðin mættust í Mosfellsbæ. Afturelding sigraði, 25-22, eftir að
HK minnkaöi muninn í eitt mark undir lokin.
Bæði liö gerðu aragrúa mistaka auk þess sem boðið var upp á ansi skraut-
lega dómgæslu. Afturelding lék sterka 3-2-1 vöm sem HK átti ekkert svar við
og Sigurður Sveinsson og Gunnleifur Gunnleifsson skoruðu ekki mark í fyrri
hálfleik. Hlynur hélt hins vegar HK inni í leiknum með frábærri markvörslu.
„Við gerðum okkur þetta miklu erfiðara en viö þurftum. Hlynur gerði okk-
ur lífið leitt og tók m.a. sex færi maður á móti manni. Þetta er þó ánægjuleg-
im sigur og vonandi erum við komnir á rétta braut aftur,“ sgði Gunnar Andr-
ésson, leikmaður Aftureldingar.
Gunnar, Bjarki og Sigurður léku vel hjá Aftureldingu og Páll átti ágæta
spretti. I liði HK vom það Óskar Elvar og Hlynur sem stóðu upp úr en liðið
verður að fara að taka sig á og spila betur eins og þaö hefur burði til. -RS
Selfoss (9) 21
Haukar (16) 27
1-0, 2-3, 4-4, 5-6, 7-8, 8-10, (9-16),
13-17, 15-21, 19-22, 21-24, 21-27.
Mörk Selfoss: Sigfús Sigurðsson
5, Alexei Demidov 4, Hjörtur Leví
Pétursson 4, Björgvin Rúnarsson 2,
Valdimar Þórsson 2, Örvar Jónsson 2,
Haraldur G. Eðvaldsson 1, Erlingur
Klemenzson 1.
Varin skot: Gísli Rúnar Guð-
mundsson 17/5.
Mörk Hauka: Aron Kristjánsson
8/1, Gústaf Bjamason 7, Þorkell Magn-
ússon 5, Rúnar Sigtryggsson 2, Petr
Baumruk 2/1, Sigurður Þórðarson 1,
Óskar Sigurðsson 1, Jón F. Egilsson 1.
Varin skot: Bjarni Frostason 9,
Siguröur Sigurðsson 1/1.
Brottvlsanir: Selfoss 20 mín.,
Haukar 10 mín.
Dómarar: Gísli Jóhannsson og Haf-
steinn Ingibergsson, skemmdu leikinn.
Áhorfendur: Um 200.
Maður leiksins: Gisli Rúnar
Guðmundsson, Selfossi.
Aftureld. (11)25
HK (6) 22
1-0, 7-3, 9-4, (11-6), 12-6, 13-8, 15-10,
17-13, 19-16, 20-18, 23-21, 23-22, 25-22.
Mörk Aftureldingar: Siguröur
Sveinsson 7, Bjarki Sigurðsson 5,
Gunnar Andrésson 4, Sigurjón
Bjamason 3, Páll Þórólfsson 2, Jón
Andri Finnsson 2, Ingimundur Helga-
son 2/1.
Varin skot: Sebastian Alexander-
son 8.
Mörk HK: Óskar Elvar Óskarsson
9/5, Sigurður Sveinsson 5, Alexander
Amarsson 2, Jón B. Erlingsson 2,
Hjálmar Vilhjálmsson 2, Gunnleifur
Gunnleifsson 1, Guðjón Hauksson 1.
Varin skot: Hlynur Jóhannesson
16/3.
Brottvísanir: Afturelding 16 mín.,
HK 8 mín.
Dómarar: Bjami Viggósson og
Valgeir Ómarsson, afspymuslakir.
Áhorfendur: 150.
Maöur leiksins: Hlynur Jóhann-
esson, markvörður HK.
Iþróttir
Skúli Gunnsteinsson var ótrúlega drjúgur á línunni hjá Valsmönnum gegn KA en hér vita þeir Skúli og Sergei Ziza varla hvar
knötturinn er niöur kominn.
DV-mynd Brynjar Gauti
Malmö
hefur
áhuga á
Heiðari
Sænska úrvalsdeild-
arliðið Malmö hefur
sýnt áhuga á að fá
Heiðar Sigurjónsson,
knattspymumanninn
efnilega úr Þrótti í
Reykjavík, til sín. Sam-
kvæmt heimildum DV
vilja forráðamenn Mal-
mö komast í samband
við Heiðar sem fyrst en
hann æfir þessa dag-
ana með enska 2. deild-
ar liðinu Preston og
fyrirhugað er að hann
fari þaðan til skosku
félaganna Partick og
Raith Rovers.
-VS
Eiður Smári í
uppskurð í dag
- frá keppni í þrjá mánuði til viðbótar
Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaðurinn ungi hjá PSV Eindhoven í Hollandi,
verður skorinn upp í dag og verður frá æfingum og keppni í þrjá mánuði í viðbót.
Eiður fótbrotnaði fyrir níu mánuðum, í unglingalandsleik á írlandi, og hefur aldrei
komist almennilega af stað síðan vegna stöðugra verkja í fætinum. Fyrir skömmu kom
í ljós að nýtt bein hafði myndast út frá brotinu og það verður fjarlægt í dag. Það er því
ljóst að fótbrotið afdrifaríka kostar hann alla vega eins árs fjarveru frá knattspymunni.
Það er dr. Martens, læknir í Antwerpen í Belgíu, sem sker Eið Smára upp en hann
gerði vel heppnaðar aðgerðir á Amóri föður hans á sínum tíma.
Örebro og Malmö hafa áhuga á aö fá Eiö Smára
Sá möguleiki er fyrir hendi að Eiður spili í sænsku úrvalsdeildinni í sumar því
Örebro og Malmö hafa bæði sýnt mikinn áhuga á að fá hann til sín og þá væntanlega á
leigusamningi. Hann gæti því hugsanlega leikið við hlið föður síns með Örebro. Allar
ákvarðanir í þvi sambandi verða þó lagðar í salt þar til í ljós kemur hvernig til tekst
með uppskurðinn og ennfremur hefúr málið ekki verið rætt við stjóm PSV en samning-
ur Eiðs þar rennur út í júní. -VS
Bjarni
skoraði og
meiddist
Bjarni Guðjónsson,
knattspyrnumaðurinn
ungi, kom heim til Akra-
ness í gær eftir vikudvöl
hjá enska úrvalsdeild-
arliðinu Newcastle. Fyr-
irhugaðri för til Glasgow
Rangers í Skotlandi var
frestað þar sem Bjami
varð fyrir meiðslum á
ökkla í leik sem settur
var upp fyrir hann í
fyrrakvöld. Bjama gekk
ágætlega í þeim leik og
skoraði eitt mark.
Ekkert formlegt tilboð
hefur borist í Bjarna,
hvorki frá Newcastle eða
Liverpool, en reiknað er
með að félögin láti heyra
frá sér á næstu dögum.
-VS
„Fengu eitt færi
og nýttu það“
- Ítalía sigraöi England, 0-1, á Wembley
ftalir unnu sætan sigur á Englend-
ingum, 0-1, í undankeppni HM á
Wembley í gærkvöldi. England tapaði
þar í fyrsta skipti í sögunni heimaleik
í undankeppninni og ítalir unnu sinn
13. sigur á Englendingum í síðustu 15
viðureignum þjóðanna.
Gianfranco Zola skoraði glæsilegt
mark á 19. mlnútu og ítalir vörðust síð-
an með kjafti og klóm til leiksloka en
enska liðið sótti látlaust, fékk mörg góð
færi og var óheppið að ná ekki að
minnsta kosti að jafna.
„Þetta var frábær leikur, liðið spilaði
eins og lagt var upp og náði ffábærum
úrslitum gegn ffábæm liði. Leikmenn
okkar fá hæstu einkunn hjá mér fyrir
aga og einbeitingu," sagði Cesare Mald-
ini sem stjómaði ítölum í fyrsta skipti.
„Þetta er áfall en ekki stórslys. Von-
brigðin eru mikil, þeir fengu eitt færi
og nýttu það en við hefðum varla getað
ógnað þeim meira og hefðum náöi betri
úrslitum með smáheppni," sagði Glenn
Hoddle, þjálfari Englendinga.
David Seaman, Paul Gascoigne og
Tony Adams léku ekki með Englend-
ingum vegna meiðsla.
England: Walker - G.Neville, Campbell,
Pearce - Beckham, Batty (Wright 89.), Ince,
McManaman (Merson 77.), Le Saux - Le Tis-
sier (Ferdinand 60.), Shearer.
Ítalía: Peruzzi - Di Livio, Ferrara, Canna-
varo, Costacurta, Maldini - Dino Baggio, Al-
bertini, Di Matteo - Casiraghi (Ravanelli 77.),
Zola (Fuser 90.)
-VS
ítalir vörðust vel á Wembley í gærkvöld og hér reyna Cannavaro
og Di Matteo að halda aftur af David Beckham. Símamynd Reuter
Valsmenn á uppleið
£ ÍuNDANKEPPNI HM
2. riöill:
England-ítalla.........0-1
0-1 Zola (19.)
- unnu sanngjarnan sigur á KA og stefna í úrslitakeppnina
Valsmenn komu mjög á óvart í gær-
kvöld og unnu sanngjarnan sigur á
KA í Nissan-deildinni í handknattleik
að Hlíðarenda. Eins marks sigur varð
lokaniðurstaðan, 23-22, i leik þar sem
markverðir liðanna komu mikið við
sögu og áttu mjög góðan leik.
í upphitun fyrir leikinn virtust KA-
menn öryggir með sig og alvaran ekki
mikil. Valsmenn voru hins vegar ein-
beittir og óttuðust andstæðinginn.
Markverðimir Guðmundur A. Jóns-
son og Guðmundur Hrafnkelsson
héldu leiknum jöfnum lengst af. KA
hafði þriggja marka forskot í leikhléi
og getur þakkað það Guðmundi mark-
verði og Leó Emi Þorleifssyni sem
skoraði grimmt af línunni.
Sigur Valsmanna var ömggur þrátt
fyrir lokatölumar. Allir leikmenn liðs-
ins börðust eins og ljón, ekki síst í
varnarleiknum sem á löngum köflum
var mjög góður. Og eins og venjulega
fylgdi góð markvarsla í kjölfarið. Guð-
mundur markvörður var bestur Vals-
manna, en Ari Allansson skoraði mjög
mikilvæg mörk í síðari hálfleik og lék
einn sinn besta leik fyrir Val.
Frammistaða KA var slök miðað við
allan mannskapinn. Duranona var lat-
ur og sóknarleikur liðsins var mjög
fálmkenndur, aga- og marklaus. Miklu
púðri var eytt í röfl í dómurum og allt
var þetta þeim að kenna.
Guðmundur A. Jónsson varði mjög
vel. Leó Öm var góður í fyrri hálfleik,
en aðrir leikmenn langt frá sínu besta
og í raun mjög lélegir, ekki síst homa-
mennimir.
Valsmenn em komnir í sjötta sæti
deildarinnar og enginn skyldi van-
meta þá. Ekki eru mjög margar vikur
síðan liðið var í fallsæti.
KA situr enn öruggt í þriðja sæti en
liðið lék langt undir getu í gærkvöld.
KA verður í allra fremstu röð í vor en
það hlýtur að valda mönnum áhyggj-
um hversu agalaust liðið getur leikið.
Og liðsstjóri liðsins verður að gera sér
grein fyrir því aö hann getur ekki
stjórnað öllum hlutum varðandi leik-
inn. Kannski allra sist dómurunum. í
gærkvöld reyndi hann að stjóma sín-
um mönnum, áhorfendum og dómur-
um en fórst það illa úr hendi.
-SK
England 4 3 0 1 7-2 9
Ítalía 3 3 0 0 5-1 9
Pólland 2 1 0 1 3-3 3
Georgía 2 0 0 2 9-3 0
Moldavía 3 0 0 3 2-8 0
6. riöill:
Spánn-Malta ................4-0
1-0 Guardiola (25.), 2-0 Alfonso (40.),
3-0 Alfonso (47.), 4-0 Pizzi (90.)
Spánn 6 5 1 0 19-3 16
Júgóslavía 5 4 0 1 18-4 12
Slóvakia 4 3 0 1 12-5 9
Tékkland 3 111 6-1 4
Færeyjar 5 0 0 5 5-22 0
Malta 5 0 0 5 0-25 0
ÍR (8)26
Grótta (17) 30
1-2, 3-3, 4—4, 4-8, 6-12, (8-17), 10-20,
18-23, 20-27, 23-27, 24-29, 26-30.
Mörk ÍR: Ólafur Sigurjónsson 6,
Ólafur Gylfason 5, Magnús Þórðarson
4, Ragnar Óskarsson 4/1, Matthías
Matthlasson 2, Frosti Guölaugsson 2,
Jóhann Ásgeirsson 2/2, Brynjar
Steinarsson 1.
Varin skot: Hrafn Margejrsson 4,
Baldur Jónsson 12.
Mörk Gróttu: Jens Gunnarsson 7,
Róbert Rafnsson 6, Davíð Gislason 5,
Guðjón V. Sigurðsson 4, Juri
Sadovski 3/2, Jón Þórðarson 2, Haf-
steinn Guðmundsson 2, Einar Jóns-
son 1.
Varin skot: Sigtryggur Aibertsson
23.
Brottvísanir: ÍR 4 mín., Grótta 10.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og
Rögnvald Erlingsson, góðir.
Áhorfendur: 220.
Maður leiksins: Sigtryggur
Albertsson, markvörður Gróttu.
FH (17) 26
ÍBV (13) 26
0-1, 4-1, 7-4, 9-8, 13-10, (17-13), 18-13,
19-15, 19-20, 22-23, 24-26, 26-26.
Mörk FH: Guðjón Ámason 10,
Guðmundur Pedersen 6/1, Sigmjón
Sigurðsson 3, Stefán F. Guðmundsson
3, Hálfdán Þórðarson 2, Gunnar Bein-
teinsson 2.
Varin skot: Suk Hyung Lee 18/1,
Jónas Stefánsson 1/1.
Mörk ÍBV: Zoltán Belánýi 11/7,
Svavar Vignisson 4, Erlingur Ric-
hardsson 4, Gunnar B. Viktorsson 3,
Guðfinnur Kristmannsson 1, Sigurð-
ur Friöriksson 1, Haraldur Hannes-
son 1, Amar Pétursson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Ósk-
arsson 15.
Brottvísanir: FH 6 mín., ÍBV 10
mín.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson
og Ólafúr Haraldsson, frekar slakir.
Áhorfendur: Um 250.
Maður leiksins: Guðjón Áma-
son, FH.
Valur (8)23
KA (11) 22
0-1, 2-2, 3-4, 4-6, 6-6, 6-8, 6-9, 8-9,
(8-11), 9-11, 11-13, 12-14, 12-15, 15-15,
17-17, 19-19, 22-19, 23-20, 23-22.
Mörk Vals: Ari Allansson 5, Jón
Kristjánsson 5/3, Skúli Gunnsteins-
son 3, Davið Ólafsson 3, Valgarð
Thoroddsen 2, Daníel S. Ragnarsson
2, Ingi Rafn Jónsson 1, Aziz Mihoubi
1, Kári Marís Guðmundsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafn-
kelsson 15/1.
Mörk KA: Róbert Duranona 8/4,
Leó Örn Þorleifsson 5, Sergei Ziza 4,
Heiðmar Felixson 2, Jakob Jónsson 1,
Svavar Ámason 1, Jóhann G. Jó-
hannsson 1.
Varin skot: Guömundur A. Jóns-
son 16/2.
Brottvisanir: Valur 4 mín., KA 8.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og
Sigurgeir Sveinsson, mjög slakir.
Áhorfendur: Um 250.
Maður leiksins: Guðmundur
Hrafnkelsson, markvörður Vals.
1. deild kvenna í handknattleik:
FH skellti Haukum
FH-stúlkur komu
skemmtilega á óvart í
gærkvöldi með þvi að
skella erkifjendunum, ís-
landsmeisturum Hauka,
24-22, í Kaplakrika.
Leikurinn var hörku-
spennandi og FH var yfir
í hálfleik, 12-11.
Mörk FH: Hrafnhildur
Skúladóttir 6, Þórdís Brynj-
ólfsdóttir 6, Björk Ægisdóttir
4, Dagný Skúladóttir 3, Hild-
ur Erlingsdóttir 2, Drífa
Skúladóttir 1, Hafdís Hinriks-
dóttir 1, Guðrún Hólmgeirs-
dóttir 1.
Mörk Hauka: Judit Eszt-
ergal 7, Hulda Bjamadóttir 5,
Thelma Ámadóttir 3, Harpa
Melsteð 3, Hanna G. Stefáns-
dóttir 3, Ragnheiður Guð-
mundsdóttir 1.
Stjarnan vann stórt
Stjarnan vann yfir-
burðasigur á Val, 35-20,
eftir 21-7 í hálfleik.
Mörk Stjömunnar: Ragn-
heiður Stephensen 12, Sigrún
Másdóttir 10, Herdís Sigur-
bergsdóttir 3, Ásta Sölvadótt-
ir 3, Nina Bjömsdóttir 3, Inga
Björgvinsdóttir 1, Margrét
Theodórsdóttir 1, Rut Stein-
sen 1, Björg Gilsdóttir 1.
Mörk Vals: Sigurlaug
Rúnarsdóttir 5, Hafrún Krist-
jánsdóttir 3, Sonja Jónsdóttir
3, Gerður Jóhannsdóttir 3,
Dagný Pétursdóttir 2, Lilja
Valdimarsdóttir 2, Dögg L.
Sigurgeirsdóttir 1, Eva Þórð-
ardóttir 1.
Góöur sigur Fram
Fram vann góðan sigur
á Víkingi í Víkinni, 16-23,
eftir að hafa verið 8-13
yfir í hálfleik.
Mörk Víkings: Heiða Er-
lingsdóttir 8, Kristín Guð-
mundsdóttir 3, Guðmunda
Kristjánsdóttir 2, Elísabet
Þorgeirsdóttir 2, Heiðrún
Guðmundsdóttir 1.
Mörk Fram: Hekla Daða-
dóttir 7, Sigurbjörg Kristjáns-
dóttir 6, Svanhildur Þengils-
dóttir 3, Þórann Garðarsdótt-
ir 3, Þuríður Hjartardóttir 2,
Steinunn Tómasdóttir 1, Guð-
ríður Guðjónsdóttir 1. -VS
Argentína vann
Argentína vann góðan útisig-
ur á Kólumbíu, 0-1, í und-
ankeppni HM í knattspyrnu í
gærkvöldi. Claudio Lopez skor-
aði sigurmarkið á 9. mínútu.
Ekvador vann óvæntan stór-
sigur á Uruguay, 4-0, en þrír
leikmanna Uruguay fengu að líta
rauða spjaldið.
Bólivía og Chile skildu jöfn,
1-1.
Kólumbía er efst með 17 stig,
Ekvador er með 15, Paraguay 14,
Argentína 13, Bólivía 11, Chile
10, Uruguay 10, Perú 9 og Venes-
úela 1 stig. Fjórar efstu þjóðimar
verða fulltrúar Suður-Ameriku í
lokakeppninni í Frakklandi
ásamt Brasilíu. -VS
1. DEILD KVENNA
Haukar 14 10 2 2 366-273 22
Stjarnan 13 11 0 2 312-235 22
FH 13 7 2 4 270-256 16
Víkingur 13 7 2 4 233-229 16
Fram 14 6 3 5 265-252 15
KR 13 4 1 8 225-263 9
Valur 14 3 2 9 240-300 8
ÍBA 11 2 2 7 207-256 6
ÍBV 13 2 0 11 236-290 4
Island númer 62
ísland er í 62. sæti af 190 þjóð-
um á nýjum styrkleikalista Al-
þjóða knattspyrnusambandsins
sem var birtur í gær. ísland var
í 60. sæti í desember en hefur
ekki spilað síðan.
Brasilía er á toppnum sem
fyrr en forystan hefur þó aldrei
verið naumari. Þjóðverjar eru
aðrir og Frakkar þriðju og Danir
hafa skotist upp fýrir Kólumbíu
í fjórða sætið. -VS
Schillaci á heimleið
Salvatore Schillaci, marka-
kóngur HM á Ítalíu 1990, er á
heimleið síðar á árinu eftir
þriggja ára dvöl í Japan. Hann
ætlar að enda ferilinn í heimabæ
sínum með Palermo í 2. deild.
Vialli til Southampton?
Gianluca Vialli, ítalinn snjalli
hjá Chelsea, ræddi í gær ítarlega
við Graeme Souness, fram-
kvæmdastjóra Southampton. Vi-
alli er mjög ósáttur hjá Chelsea
þar sem hann hefur fengið fá
tækifæri í byrjunarliðinu að
undanfömu. Hann og Souness
léku saman með Sampdoria á
sínum tíma og eru miklir vinir.
Firma- og hópkeppni Fram í innanhúss-
knattspyrnu verður haidin í íþróttahúsi'
Fram við Safamýri þann 22. og 23. febrúar.
Vegleg verðlaun - Öll fyrirtæki velkomin.
Upplýsingar í síma 568 0342 og 896 6343