Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1997, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
37
Jóhanna Jónas og Hinrik Óiafsson
í hlutverkum sínum.
Fagra veröld
í kvöld sýnir Leikfélag Reykja-
víkur á Stóra sviði Borgarleik-
hússins Fögru veröld sem er eftir
Karl Ágúst Úlfsson og byggir
hann leikritið á ljóðum Tómasar
Guðmundssonar úr Ijóðbaókinni
Fagra veröld. Leikstjóri er
Brynja Benediktsdóttir og tónlist
semur Gunnar Reynir Sveinsson.
Sögusviðið er Reykjavík
snemma á fjórða áratugnum. Við
kynnumst hópi fólks af býsna
ólíkum toga - einhvers konar
þversniði samfélagsins. Miðdep-
ill atburðarásar er kaffihús.
Þangað rekast flestar persónur
leiksins og eiga spjall saman, en
hinir miklu atburðir gerast ann-
ars staðar í bænum. Ekki er þó
reynt að bregða upp nákvæmri
samfélagsmynd þessa tíma en við
kynnumst sögu nokkurra ein-
staklinga býsna náið. Skáldinu
sjálfu bregður fyrir á sviðinu
sem áhorfandi og oft og einatt er
hann umræðuefni.
Leikhús
Meðal leikara eru Þórhailur
Gunnarsson, Jóhanna Jónas,
María Ellingsen, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Pétur Einarsson,
Sóley Elíasdóttir, Ellert A. Ingi-
mundarson, Hinrik Ólafsson,
Ámi Pétur Guðjónsson og Kjart-
an Guðjónsson.
Skáld lesa úr
verkum sínum
Upplestur á vegum Ritlistar-
hóps Kópavogs verður i kaffi-
stofu Gerðarsafhs í dag, kl. 17.
Anton Helgi Jónsson, Bragi
Ólafsson og Elísabet Kristín Jök-
ulsdóttir lesa úr birtum og óbirt-
um verkum sínum.
Birtan og myrkrið...
Á vegum námsbrautar i hjúkr-
unarfræði heldur dr. Marga
Thome dósent fyrirlestur sem
hann nefnir Birtan og myrkrið -
um líðan mæðra með óvær ung-
börn til 6 mánaða aldurs, í stofu
101 í Odda, kl. 17 í dag.
Guðmundur Rúnar
á Ránni
í kvöld heldur trúbadúrinn
Guðmundur Rúnar tónleika á
Ránni í Keflavík. Tónleikarnir
verða teknir upp og gefnir út síð-
ar á árinu.
Trjá- og runna-
klippingar
Vegna mikillar aðsóknar mun
Kristinn H. Þorsteinsson garð-
yrkjufræðingur endurtaka fyrir-
lestur sinn um trjá- og runna-
klippingar i kvöld, kl. 19.30, í
húsnæði Landgræðslusjóðs, Suð-
urhlíð 38.
Samkomur
Dúett á Fógetanum
í kvöld og næstu kvöld munu
þeir Ingvar Valgeirsson og Sig-
urður Már skemmta á Fógetan-
um.
Kammertónleikar
Kammertónleikar Tónlistar-
skólans í Reykjavík verða haldn-
ir í kvöld, kl. 20.30, í Grensás-
kirkju. Leikin verða verk eftir
Schubert, Haydn og Beethoven.
Tvímenningur
Bridge, tvímenningur, verður
-spilaður í Risinu i dag, kl-13.
Skíðagönguleið við Nesjavelli
Nú vantar ekki snjóinn á
suðvesturhorninu til skíða-
iðkana, honum hefur kyngt
niður að undanfomu og því
lítið mál fyrir göngugarpa
að fmna sér skíðagönguleið.
Fyrir þá sem vilja fara út úr
bænum og út í náttúruna er
upplagt að fara að Nesja-
vallavirkjun og taka góðan
göngutúr þar en á kortinu
má sjá skemmtilegar leiðir
sem ættu að vekja áhuga.
Umhverfi
Fyrir þá sem vilja vera
innanbæjar eða á bæjar-
mörkunum má benda á
Fossvogsdalinn sem er slétt-
ur og góður til skíðagöngu
og Laugardalinn fyrir þá
sem búa þar í nágrenninu.
Fyrir þá sem vilja erfiða
meira er Heiðmörk gott
göngusvæði sem býður upp
á marga möguleika.
SKYRINGAR
Vegir
m m m ■ Gönguskíöa-
leiöir
Til
Þingvalla
EES
ÞINGVALLAVATN
Þorsteinsvík
>**
* Grámelur
Nesjahraun •
Botna- • Ha&vik
Lambhagi
Ölfusvatns-
vík
Dyradalur P'
♦* dalur
■
■ /a\
#
Nesbúð
g*a
Mælifell
♦ ♦
* - 7- %
0
♦
í Olfus-
* vatu*'
.r
•mmmmm^
Vittinga- ■ £
vatn ♦
♦ «
*
■
•
Skeggi
Hengill
♦
■
0
Súlufell
Krossfjöll
^Hrómundar^
0 .Ulfljóts-’
vatn.
!«■
i ■ ■ ■ mf
0
♦
tindar^*
▲
2000 metrar
w 0
.♦*Laki.« * •*
*•*.♦*
Dagmála-
fell
Klóarfjall
Bpí
Tll
Hveragerðl
Sir Oliver:
Bjartmar kominn heim
Það verður gamalkunnugt andlit sem treður
upp á Sir Oliver í kvöld, en enginn annar en
trúbadorinn góðkunni, Bjartmar Guðlaugsson,
er kominn heim á klakann, en hann hefur und-
anfarin ár hreiðrað um sig í Danaveldi. Nú er
Bjartmar sem sagt kominn í heimsókn og er
meðal annars í plötuhugleiðingum. í kvöld
mætir hann á sviðið hjá Ladda á Sir Oliver
með gítarinn að vopni og syngur örugglega
gömlu vinsælu lögin auk þess sem hann kem-
ur til með að syngja nýtt efhi.
Skemmtanir
Prince-kvöld á Astró
Head, samtök áhugamanna um Prince á ís-
landi, efha til kynningar á tónlistarmanninum,
sem eitt sin hét Prince, á veitingastaðnum
Astró í kvöld og hefst samkoman kl. 21.00. Með-
al annars verður sýnt á risaskjá glænýtt sjón-
varpsviðtal sem Prince veitti Ophru Winfrey
og þar sýnir hann á sér áður óþekkta hlið.
Þetta er fyrsta sjónvarpsviðtal Prince 1 rúman
áratug og aðeins hans annað á ferlinum.
Einnig verður kikt á ýmislegt efni frá ferli
Prince sem spannar tvo áratugi, þar á meðal
efni sem ekki hefur komið fyrir sjónir almenn-
ings.
Bjartmar Guðlaugsson skemmtir gestur á Sir Oliver í kvöld.
Vegir víðast
færir
Vegir í nágrenni Reykjavíkur eru
færir. Fært er um Suðumes og fyr-
ir Hvalfjörð, einnig er fært um upp-
sveitir Ámessýslu. Fært er til Akur-
eyrar en víðast hvar er snjór og
hálka á vegum. Fróðárheiði er ófær
og Kerlingarskarð einnig en fært er
Færð á vegum
um Heydal. Brattabrekka er ófær.
Fært er um Gilsfjörð til Reykhóla,
ófært um Kleifarheiði. Fært er með
suðurströndinni austur um að Höfn
i Homafirði. Þar fýrir austan er
þungfært, snjókoma og vonskuveð-
ur.
Systir Andreu
Ýrar
Litla stúlkan, sem er í
fanginu á stóru systur
sinni, fæddist á Akers-
sjúkrahúsinu í Ósló 21.
desember. Hún var 3.480
Barn dagsins
grömm að þyngd við fæð-
ingu og 51 sentímetrar á
lengd. Hún hefur fengið
nafniö Anita Rún. For-
eldrar hennar eru Bára
Tómasdóttir og Óskar
Krisfjánsson. Fjölskyldan
er búsett í Romrös í Nor-
egi.
Laurel Ayres (Whoopi Goldberg)
kemur sér í vandræöi þegar hún
tekur upp á því aö búa til persónu.
Meðeigandinn
Háskólabíó hefur haflð sýn-
ingar á Meðeigandanum (The
Associate), sem er nýjasta kvik-
mynd Whoopi Goldberg. Leikur
hún hina bráðgreindu Laurel
Ayres sem er fjármálaráðgjafi
hjá fyrirtæki í Wall Street. Hún
hefur lengi gert sér vonir um
stöðuhækkun og þegar ein staða
losnar telur hún sig eiga rétt á
henni en keppinautur hennar,
sem er karlmaður, fær stöðuna.
Við þessi tímamót gerir Laurel
sér grein fyrir því að hún muni
aldrei fá stöðuhækkun innan
fyrirtækisins þar sem hún er
kona. Hún verður þvi að beita
brögðum til að komast áfram í
hinum harða heimi fjármálanna
og það gerir hún svo sannarlega
á mjög eftirminnilegan hátt.
Kvikmyndir
Auk Whoopi Goldberg leika
margir þekktir leikarar í mynd-
inni. Má nefha Dianne Wiest, Eli
Wallach, Tim Daly, Bebe
Neuwirth, Austin Pendleton og
Lainie Kazan.
Nýjar myndir:
Háskólabíó: Áttundi dagurinn
Laugarásbíó: Koss dauðans
Kringlubíó: Ævintýraflakkarinn
Saga-bíó: Sonur forsetans
Bíóhöllin: Ærsladraugar
Bíóborgin: Að lifa Picasso
Regnboginn: Sú eina rétta
Stjörnubíó: Tvö andlit spegils
Krossgátan
Lárétt: 1 hindra, 6 hætta, 8 lát-
bragð, 9 skoðun, 10 úrgangur, 11
spíra, 12 áreitir, 13 kliður, 15 þvær,
16 eyktamark, 17 heiðursmerki, 18
kraftlitlir.
Lóðrétt: 1 hreinn, 2 fyrrum, 3
skránar, 4 tungan, 5 sting, 6 loforð,
7 fæða, 11 púkar, 12 jafnt, 14 eyðir,
15 dufl, 17 gat.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 borgun, 8 ófær, 9 nót, 10
kátínan, 12 öln, 13 pati, 15 smits, 17
er, 18 lura, 20 tif, 22 ar, 23 álag.
Lóðrétt: 1 bók, 2 of, 3 rætni, 4 gríp,
5 unnast, 6 nóa, 7 ýtnir, 11 álmur, 12
ösla, 14 teig, 16 tal, 19 rá, 21 fá.
Gengið
Almennt gengi Ll nr. 51
13.02.1997 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 70,400 70,760 67,130
Pund 114,810 115,400 113,420
Kan. dollar 51,930 52,250 49,080
Dönsk kr. 10,9820 11,0400 11,2880
Norsk kr 10,6290 10,6880 10,4110
Sænsk kr. 9,5020 9,5550 9,7740
Fi. mark 14,1890 14,2720 14,4550
Fra. franki 12,3930 12,4630 12,8020
Belg. franki 2,0275 2,0397 2,0958
Sviss. franki 48,6600 48,9300 49,6600
Holl. gyllini 37,2800 37,5000 38,4800
Þýskt mark 41,8500 42,0700 43,1800
ít lira 0,04259 0,04285 0,04396
Aust. sch. 5,9450 5,9820 6,1380
Port. escudo 0,4161 0,4187 0,4292
Spá. peseti 0,4944 0,4974 0,5126
Jap. yen 0,56730 0,57070 0,57890
írskt pund 111,590 112,290 112,310
SDR 96,47000 97,05000 96,41000
ECU 81,4400 81,9300 83,2900
Simsvari vegna gengisskráningar 5623270