Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1997, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
Fréttir
5
DV
Ferðamannafjöldi í Noregi:
Stórjókst eftir
að hvalveiðar
hófust á ný
- segir Guðjón Guðmundsson alþingismaður
„Það mæla öll rök með því að hefja
veiðar, hvort sem um er að ræða
efnahagsleg eða vísindaleg rök,“
segir Guðjón Guðmundsson, alþing-
ismaður Sjálfstæðisflokks á Vestur-
landi, um hvalveiðar. Eins og DV
skýrði frá í gær er starfshópur sem
skipaður var til að skoða hvort
hefja eigi hvaíveiðar á ný sammála
um að leggja til einum rómi að
veiðar verði hafnar sem fyrst. Guð-
jón hefur lengi barist fyrir því að
veiðarnar yrðu leyfðar að nýju og
hann segir engan vafa leika á því
að slíkt sé skynsamlegt.
„í fyrsta lagi er það álit vísinda-
manna að þessi takmarkalausa
ijölgun hvalanna í hafinu leiði af
sér mikið álag á fiskistofnana. Það
er talið að hvalir éti yfir milljón
tonn af fiski árlega. Þá er mikill
möguleiki á miklum útflutnings-
verðmætum og mörgum störfum í
tengslum við veiðar og vinnslu.
Þama voru á sínum tíma um 150
ársverk í kringum veiðar og
vinnslu á hval,“ segir Guðjón.
„Vísindamenn hafa sýnt fram á
það með ákveðnum skotheldum rök-
um að ákveðnir stofnar þoli mjög
vel veiði. Það er því engin spuming
um að hefia þessar veiðar,“ segir
hann.
Guðjón segist ekki óttast afleið-
ingar þess fyrir ferðamannaþjónust-
una að hefja veiðar á hval.
„Það hefur komið fram hjá norsk-
um aðilum að ferðamennska stórj-
ókst eftir að Norðmenn ákváðu að
byrja hvalveiðar að nýju. Ferða-
mannafjöldi tvöfaldaðist m.a. frá
Þýskalandi þar sem áróðurinn var
hvað mestur. Allar greinar útflutn-
ings þeirra döfnuðu árin eftir að
þeir hófu veiðar að nýju,“ segir
Guðjón. -rt
Hættulegt hverasvæði:
Engar girðingar
komnar enn þá
um svæðið
Það er verið að hefja framkvæmd-
ir hér og er stefnt að þvi að byrgja
fyrir alla hættulegustu hverina hér
Tvo inn-
brot í
Fiðlarann
upplýst
DV, Akuieyri:
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri hefur upplýst tvö innbrot í
veitingastaðinn Fiðlarann.
Fyrra innbrotið var framið
fyrir nokkrum vikum en það síð-
ara nú í vikunni og var þá stolið
um 10 flöskum af áfengi. Um sól-
arhring eftir að tilkynnt var um
það innbrot hafði lögreglan haft
upp á 16 ára pilti sem játaði
þann verknað á sig en tveir aðr-
ir aðilar hafa játað að hafa verið
að verki í fyrra skiptið. gk
á svæðinu. Það hefur framkvæmda-
aðili verið að skoða aðstæðurnar og
ég á von á því að hann hefjist þegar
handa. Þetta er allerfitt og mikið
verk því hverirnir eru á stóru svæði
og því þýðir ekki að girða það af í
heilu lagi. Þá eru margir eigendur
að þeim jörðum sem hverimir eru
á,“ segir Þórður Jónsson, oddviti
Reykhólahrepps, aðspurður um þær
varúðarráðstafanir sem hreppurinn
ætlar að gera vegna mikillar slysa-
hættu við heitu hverina á Reykhól-
um. Það hefur vakið nokkra athygli
að enn hefur ekkert verið gert til að
fyrirbyggja að fleiri slys verði á
þessum stað.
Sem kunnugt er varð mjög alvar-
legt slys á Reykhólum um áramótin
þegar lítill drengur féll ofan í sjóð-
heitan hver og brenndist illa. Dreng-
urinn er á batavegi en slysið vakti
mikil viðbrögð margra íbúa á svæð-
inu.
„Þetta eru að sjálfsögðu nauðsyn-
legar varúðarráðstafanir en það sem
er mikilvægast er að foreldrar og
aðrir fullorðnir brýni vel fyrir börn-
um sínum þá hættu sem felst í því
að fara óvarlega á hverasvæðinu,"
segir Þórður.
-RR
NSX-V210
fermingartilboð kr.
35.900
NSX-V700
fermingartilboð kr.
45.900
3 diska geislaspilari
Super T-bassi
Tengi fyrir auka bassahátalara
Tvöfalt segulband
Stafrænt útvarp m/32 stöðva
minni
20+20W RMS magnari
Tónjafnari m/Rock-Popp-Jazz
Fjarstýring
Hljómmikil og falleg tæki
3 diska geislaspilan
Super T-bassi
Tengi fyrir auka bassahátalara
Tvöfalt segulband
Stafrænt útvarp m/32 stööva minni
Fullkomið Karaokekerfi
Tvo hljóönematengi
40+40W RMS surround magnari
Tónjafnari m/Rock-Popp-Classic
Segulvarðir hátalarar
Fjarstýring
ÝJUto
Handhöfum Eurocard og Visa
býðst nú að greiða fyrir öll
flugfargjöld og pakkaferðir
með raðgreiðslum til allt að
24mánaða.
Leiðin
út í heim
Flugleiða
FLUGLEIÐIR
Traustur islenskur ferðafélagi