Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1997, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1997, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997 Spurningin Finnst þér skemmtilegt að vinna í loðnufrystingu? - spurt á Eskifirði Hjálmar Gísli Rafnsson: Það er allt í lagi, þokkalegt. Kristján Már Ólafsson: Þaö er best á fimmtudögum. Þá fáum við út- borgað. Guðrún Jónína Guðjónsdóttir: Já, já, það er fínt. Hafsteinn Þorsteinsson: Já, mjög. Virkilega gaman. Óli Geir Sverrisson: Já, já, það er alltaf nóg að gera. Hulda Björk Rósmundsdóttir: Já, það er mjög gott. Lesendur________________________ Athugasemd við frétt um launagreiðslur: Laun mín snöggt um lægri en ráðu- neytisstjóra „Mér var ungum kennt að segja aldrei annaö en sannleikann..." segir Svein- björn Dagfinnsson m.a. f bréfi sínu. Sveinbjöm Dagfinnsson skrifar: Hr. ritstjóri, Jónas Kristjánsson Dagblaðinu Vísi í blaði þínu 28. janúar var á for- síðu gulletruð frásögn, auk myndar af imdirrituðum, um launagreiðslur til mín. Skv. fyrirsögn blaðsins er ég sagður fá greiddar 5,5 milljónb: króna á ári úr Jarðasjóði. Á innsíðu kemur fram skv. viðtali við mig, sem Stefán Ásgrímsson átti, að 5,5 millj. fjárveitingaliður á fjárlögum sé not- aður til margvíslegra annarra greiðslna en til mín. Mér var ungum kennt að segja aldrei annað en sann- leikann og fyrir þá sem vilja trúa frá- sögn minni er forsíðufrétt blaðs þins röng - ósannindi. Ekki er aö efa að fréttin er birt til að ófrægja mig. Samt er svo að mis- munandi viðbragða má vænta við henni, m.a. þeim að ekki þyki mikið til koma að greidd séu 5,5 millj. kr. árslaun, þó svo væri fyrir ríkisstarfs- menn, einnig má þess vænta að ein- hverjir hneykslist á slíkum greiðsl- um, en til þess eru refimir væntan- lega skomir. Þá er einnig sá hópur, sem veit betur en það sem frá er greint í fregn blaðs þíns, en hann er því miöur minnstur. í von um að þú hafir þann metnað persónulega og fyrir hönd blaðs þíns að fara aðeins með það sem sannast er og réttast skrifa ég þér þessar lín- ur með ósk um að þú birtir frásögn mína á sambærilegan hátt við frétt- ina 28. janúar. Þá skal þar fyrst frá greint að ég hef engar greiðslur þegið úr Jarða- sjóði sem starfar skv. sérstökum lög- um. Laun mín era greidd úr ríkis- sjóði af fjárveitingum til Jarðadeild- ar rikisins og ná hvergi nærri þeim upphæðum, sem segir í frétt blaðs þíns. Laun mín em snöggt um lægri en ráðuneytisstjóra, þó ég hafi átt kost á að halda launum sambærileg- um við ráðuneytisstjóra. Ég bað um að vera leystur frá stjómandastarfi eftir 22 ár af heilsu- farsástæðum (höfuðveiki), ekki heilsubrestsástæðum, eins og segir í blaði þínu. Ég hef eftir þau starfs- skipti sinnt fullu starfi við hin að- skiljanlegustu verkefni, þar sem starfsreynsla mín hefur oft komið að gagni, en streita síður komist að. Risamynd sú af mér, sem fylgdi fféttinni í blaði þínu, vakti athygli konu minnar. Hún vissi ekki að svo góð mynd væri til af mér eftir að árin hafa sett sitt mark á karl. Hún klippti myndina út til geymslu, en mér leiðist áletrnn hinnar gulu röngu fréttar. Það er ósk min að þú gefir mér myndina. Ég væri jafn- framt þakklátur fyrir mynd af þeim starfsmanni þínum, Stefáni Ásgríms- syni, sem vann frétt blaösins og setti upp hina ósönnu risaffétt. Ég hef hug á að sjá mynd af honum, rétt eins og þið emð með myndir af mér. Ég vona að þú sjáir ástæðu til að birta afsök- unarbeiðni í blaði þínu. Dómarar og siðferðið Halldór Ólafsson skrifar: Nýjustu fréttir frá Noregi um að þarlendur dómari hefði verið látinn víkja fyrir það að vera félagi í Frí- múrarareglunni rótuðu eilítið upp í þessum málum hér á landi. Ekki höfðum við þó frumkvæðið. Það eitt og sér segir nokkuð um afskipta- leysi okkar og hægfara siðferðis- þroska. Já, vel að merkja, siðferðis- þroskinn, hvar er hann? Hví hefur engum dottið í hug að dómarar sem era félagar í t.d. Frí- múrarareglu séu vanhæfir til að sitja í dómarasæti? Það er lítil stoð í því fyrir okkur að segja að til þessa hafi enginn hér gert athuga- semd við þátttöku dómara í hinu al- menna félagslífi. Hér áður var sið- ferðið í stjómsýslunni heldur ekki upp á marga fiska, og enn eimir af því siðferði. Því miður. Nú er öldin einfaldlega önnur. Við höfum smitast lítillega af sið- ferðisþroska nágrannaþjóðanna sem láta það t.d. ekki afskiptalaust í dag að dómarar fjalli um mál félaga sinna í hinum og þessum samtökum og félögum. Þannig mun þaö ekki tíðkast í framtíðinni hér á landi að dómarar eða aðrir í embættisstöð- um geti hagað sér líkt og áöur tíðk- aðist. En þá var einfaldlega valtað yfir almenning sem var fáfróður um réttindi sín og hafði sig lítt eða ekki í frammi og bar ekki við að rugga bátnum. Þetta er smám saman að færast í annað og eðlilegra horf á ís- landi. Sem betur fer. Einföldun á launahækkunum - til útreiknings í kjaradeilum Launþegi meö 85 þús. 70x10 + 85 = 93,2 þús. greidd laun 85 Launþegi meö 100 þús. 700 + 100 = 107 þús. greidd laun 100 Launþegi meö 150 þús. 700 + 150 = 154 þús. greidd laun 150 Launþegi með 200 þús. 700 + 200 = 203,5 þús. greidd laun 200 Launþegi með 300 þús. 700 + 300 = 302,3 þús. greidd laun 300 Launþegi meö 500 þús. 700 + 500 = 501,4 þús. greidd laun 500 €33 Tölurnar 70 þúsund og 10 þúsund geta svo breyst eftir geöþótta hvers og eins, segir Þorsteinn f bréfi sínu. Þorsteinn skrifar: Þar sem enn er deilt um kaup og kjör og ekki séð fyrir endann á vandanum langar mig til að koma hugmyndum mínum á framfæri ef einhver vildi gefa þeim gaum. Væri ekki hægt að nota eftirfar- andi einfaldan útreikning á kaupi: - Þannig fengju háttlaunaðir mjög litla hækkun, en það skeður ekki ef prósentuútreilmingi er beitt yfir alla „línuna“. Ef við hugsum okkur að 70 þús- und kr. á mánuði sé algjört lág- mark og jafnframt skattleysismörk, þá er auövelt að reikna út hækkun þeirra með laun hærri en 70 þús. á mánuði. . i v: > j i; t - Best skýrist þetta með nokkrum dæmum, sem ég læt fylgja hér með, og ef 16,7% hækkun kæmi á 60 þús. kr. yrði það um 70 þús. þ.e.a.s. 10 þús. kr. kaka sem skipta skal. Bjarni Ara og tónlist hans Dagný Jónsdóttir hringdi: Ég vil senda þakklæti til Bjama Arasonar fyrir tónlist hans í sjón- varpsþætti sl. laugardag. Þama var ekki garg eða öskur heldur þessir frábæra og þægilegu tónar sem Bjami Ara er svo þekktur fyrir. Þetta var einstaklega notalegt kvöld með Bjama og tónlist hans og félaga. Skattur á sparn- að eldra fólks Hólmfríöur skrifar: Undrandi varð ég er ég heyrði að sá skattur sem lagður hefur verið á spamað eldri borgara sé til kom- inn vegna kröfu verkalýðsforyst- unnar. - Við eldri borgarar höfum með þrældómi og afheitun byggt upp velferðarkerfí þjóðfélagsins. Við gerðum engar kröfur til ann- arra en sjálfra okkar. Engin náms- lán eða húsnæðislán, engar bama- bætur, fæðingarorlof, leikskólar eða tekjutryggingar, og fjölskyldu- feður fóra í aðra landsfjórðunga á vertíð. Við lærðum snemma að ef engir peningar vora til, þá voru þeir ekki tiL Engir almennilegir vegir, brýr né hafriir, engar flugvél- ar og fáir skólar. Þetta höfúm við byggt upp. Nú á það að vera krafa okkar að enginn yfir 70 ára borgi neina skatta. Við höfum greitt okk- ar hlut og meira til. Okkur vantar áhugamenn í forystu eldri borgara eins og Sverri Hermannsson og Halldór Þorsteinsson. Vonandi fer velferðarkerfið ekki dvínandi í höndum unga og menntaða fólks- ins í dag. Hátíðisdagar og launamál Jóhannes hringdi: Einhver umræða hefúr verið um að færa sumardaginn fyrsta og tengja hann við helgina, þ.e. á undan laugardegi eða eftir sunnu- degi. Jaflivitlaust hvort tveggja. Má þá ekki rétt eins halda páska og jól annað hvert ár? Ég er hins vegar sammála því að laun hér era allt of lág. Ég er atvinnurek- andi og borga mönnum laun og þekki því vel til málanna. En hvemig er hægt að koma nokkru heim og saman í þessu snarrugl- aða kerfi sem hér hefúr verið búiö til án nokkurrar fyrirhyggju, og það af mönnum sem lítið þekkja til atvinnulífs af eigin raun? íslensku tón- listarverðlaunin Ásta Valdimarsdóttir skrifar: Nú styttist í afhendingu íslensku tónlistarverðlaunanna og þá lítur maður yfir sl. ár og sér að margt stendur upp úr. Ég er sammála tilnefriingunum, en eitt finnst mér vanta: í þátt Gísla Rúnars rétt fyr- ir áramót kom ungur maður með gítarinn sinn, Ingólfúr að nafni og lék af fingrum fram. Ég hef e.t.v. ekki mikið vit á tónlist, en ég fekk gæsahúð, svo glæsileg var frammistaða hans, og meira að segja sonur minn, 10 ára, varð yfir sig hrifinn. Mér finnst sorglegt ef þessi ungi maður, með þessa hæfi- leika, kemst ekki einu sinni á blað. Sífellt undir manna höndum Þórður P. hringdi: Ömurlegt er til þess að vita hve margir íslendingar komast undir manna hendur, úti um allan heim. Hvaðanæva berast fréttir um að íslenskur maður eða kona hafi verið handtekin fyrir eitt og ann- að. Og svo á ríkiö að aðstoða við að koma þessu fólki hingað heim! Ég segi: Þetta kann að vera ekki verra fólk almennt en hér býr, en leyfum því bara að sitja af sér .dómana.erlendis. ..i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.