Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1997, Qupperneq 26
26
LAUGARDAGUR 15. MARS 1997
funglíngar
•k ★
Berglind og Benedikt stefna á heimsmeistaratitil í dansi um páskana:
Annað og meira en
spariföt og tjútt
Þau Berglind Ingvarsdóttir, 15
ára, og Benedikt Einarsson, 16 ára,
undirbúa sig þessa dagana fyrir
óopinbert heimsmeistaramót ungl-
inga í dansi sem haldið verður í
Blackpool á Englandi í lok mánað-
arins. Þau ætla sér enga meðal-
mennsku á því móti heldur stefna á
heimsmeistaratitil. Kunnugir segja
möguleika þeirra töluverða en Berg-
lind og Benedikt hafa áður hampað
fyrstu verðlaunum í þessari gleði-
borg á vesturströnd Englands. Þá
voru þau 10 og 11 ára og nýbyrjuö
að dansa saman. Árangurinn vakti
mikla athygli ytra og var mikið
skrifað um þau í blöðin. Síðan hafa
Berglind og Benedikt dansaö sig til
margra verðlauna. Þar má nefna
fyrstu verðlaun í latnesk-amerísk-
um dönsum á Copenhagen Open í
febrúar sl. en það er ein stærsta
danskeppni sem haldin er á Norður-
löndum. Urðu þau 1 fjórða sæti í
standarddönsum í sömu keppni.
Blaðamaður hitti þau Berglindi
og Benedikt í Dansskóla Jóns Pét-
urs og Köru á dögunum þar sem
þau æfa af kappi upp á hvem dag.
Þau segja að þó sigur í keppnum
sé sætur og kastljósið beinist að
þeim á því augnabliki liggi gríðar-
lega harðar og strangar æfingar og
vinna að baki.
„Þegar fólk sér okkur brosandi í
failegum fotum og vel til höfð hefur
það sjaldnast hugmynd um hve mik-
il vinna liggur að baki. Margir
halda að maður fari bara í sparifót-
in og skelli sér í tjúttið. Þegar mað-
ur er i dansi af alvöru verður að
æfa mjög mikið og gefa sig allan í
þetta. Venjulega æfum við þrisvar í
viku en þegar líður að keppnum
æfum við nánast hvem einasta dag
og marga tíma í senn. Það kemst
ekkert annað að en dansinn. Dans
er alvöru íþrótt,“ segja þau Berglind
og Benedikt. Hún er nemi í Garða-
skóla í Garðabæ og hann í Víði-
staðaskóla í Kópavogi.
Eins og systkini
Þau segja aðalmarkmiðið að sigra
í Blackpool en vegna aldurs er þetta
í síðasta skipti sem þau mega taka
þátt í unglingakeppninni. Berglind
hefur dansað sl. 10 ár en Benedikt
fór fyrst að dansa 10 ára gamall.
Hann þekkir ekki annan dansfélaga.
- En hvernig samband er á milli
ykkar? Margir spyrja sjálfsagt hvort
þið séuð saman, séuð kæmstupar?
„Það erum við ekki, viö erum
bara góðir vinir. Ef danspar er líka
kærustupar getur sambandið orðið
mjög eldfimt og orðið þess valdandi
að allt springur, bæði sambandið á
gólfinu og utan þess. Sambandi okk-
ar má reyndar stundum líkja við
hjónaband en nær væri að líkja því
við vináttu systkina."
- En er pláss fyrir önnur áhuga-
mál?
„Við höfum mörg áhugamál en
getum ekki sinnt þeim af neinni al-
vöru. Þegar fólk kemst langt í dansi
er ekki tími fyrir annað og það
verða þeir sem ætla að leggja þetta
fyrir sig að skilja. Dans á keppnis-
plani krefst stöðugra æfinga og mik-
ils sjáifsaga. Það nær enginn ár-
angri með því að dútla í þessu eins
og hverju öðru tómstundagamni.
Æfingamar eru síður en svo ein-
tómur dans á rósum. En aðalatriðið
er að hafa gaman af þessu og þess
vegna erum við að dansa.“
Mömmurnar allt í öllu
En það kostar ekki aðeins tíma
heldur einnig peninga að stunda
dans. Þau eru svo heppin að njóta
góðs stuðnings frá Holtakjúklingi og
eru mjög þakklát fyrir það. Að öðr-
um kosti gætu þau ekki stundað
dansinn af alvöru. En þegar á reyn-
ir kemur enginn í stað fjölskyldna
þeirra beggja, sérstaklega mæðr-
anna.
„Mömmur okkar eru allt í öllu.
Þær sjá um fotin, hafa okkur til,
fara með okkur á keppnir og styðja
okkur á allan hátt. Án þeirra gæt-
um við einfaldlega ekki staðið í
þessu. Pabbar okkar koma einnig á
keppnir en mömmumar eru alltaf
til staðar.“
Talið berst að fatnaðinum og
kröfum tengdum honum. Þau segja
að tískan breytist ekki svo mikið í
Ballroom eða samkvæmisdönsum
en hún sé sífellt að breytast í lat-
nesk- amerískum dönsum eða latin.
Berglind hefur þrjá kjóla með sér í
keppnir og Benedikt tvö sett. Og svo
fylgja nokkur pör af skóm.
Ekki í atvinnumennsku
í maí verður önnur danskeppni í
Blackpool þar sen keppendur eru
eldri og atvinnumennska komin í
spilið. Hafa þau áhuga á atvinnu-
mennsku í dansi?
„Nei, ég held við nennum því
ekki. Það getur varla verið
skemmtilegt starf,“ segir Benedikt.
Þau segja dansinn ekki hafa mik-
il áhrif á tónlistarsmekk, þau spili
sömu tónlist heima og aðrir ung-
lingar. En hvemig er fyrir dans-
snillinga eins og þau að fara á ball?
* hin hliðin
★ ★
„Þaö nær enginn árangri meö því aö dútla í þessu eins og hverju ööru tóm-
stundagamni. Æfingarnar eru síöur en svo eintómur dans á rósum. En aöal-
atriöiö er aö hafa gaman af þessu og þess vegna erum viö aö dansa," segja
Berglind og Benedikt. DV-mynd Pjetur
Setja þau sig í stellingar eða dansa
eins og hinir?
„Við dönsum bara eins og hinir.“
Berglind og Benedikt segja nauð-
synlegt að byrja snemma að taka
dans alvarlega ef áhugi er á að ná
langt.
„Ég var mjög seinn í gang, hefði
ekki mátt byrja mikið seinna en 10
ára,“ segir Benedikt. -hlh
Haukur Guðmundsson, sá er syngur Kvöldin í bænum:
Langar að
renna mér niður
Mælifellshnjúk
Haukur Guðmundsson skaust skyndilega
upp á íslenskan poppstjörnuhimin þegar
Verslunarskólinn setti söngleikinn Saturday
Night Fever eða Laugardagsfárið á svið við
góöar undirtektir. Haukur fór með eitt viða-
mesta sönghlutverkið í Laugardagsfárinu
sem eigandi skemmtistaðarins þar sem hin
frægu Travolta-spor eru stigin. En þó hætt sé
að sýna Laugardagsfárið er Haukur síður en
svo þagnaður. Lagiö Kvöldin í bænum, sem
hann syngur, hefur verið í efstu sætum ís-
lenska listans. Haukur segir geysiskemmti-
legt að taka þátt i uppfærslu á söngleik og
ekki útilokað að hann eigi eftir að syngja
meira á sviöi. Þá segir hann afar skemmti-
legt að leika og aö gaman væri að reyna
fleira á því sviöi.
Fullt nafh: Haukur Guðmundsson.
Fæðingardagur og ár: 11. júní 1977.
Unnusta: Hildur Hallgrímsdóttir.
Börn: Engin.
Bifreið: Landbúnaöarvélin.
Starf: Nemandi í Verslunarskóla íslands.
Laun: Engin.
Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói?
Nei. Heyrðu jú, ég vann einu sini 50-kall í
Happaþrennu.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Renna mér á snjóbretti og ríða út. Ég er mik-
ið í hestum.
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera?
Hanga heima um helgar og hafa ekkert að
gera.
Uppáhaldsmatur: Kínamatur.
Uppáhaldsdrykkur: Mjólk.
Hvað íþróttamaður stendur
fremstur f dag? Jón Amar
Magnússon.
Uppáhaldstímarit: Eið-
maka?
Naomi
Campbell.
Ertu
hlynntur eða
andvígur ríkis-
stjóminni? Hlynnt-
r.
Hvað persónu langar þig
mest til að hitta? Jamiroquai.
Uppáhaldsleikari: Quentin
Tarantino.
Uppáhaldsleikkona:
Wynona Ryder.
Uppáhaldssöngvari: Ro-
bert Plant.
Uppáhaldsstjómmála-
maður: Jón Baldvin
Hannibalsson.
Uppáhaldsteikni-
myndapersóna:
Hómer Simpson.
Uppáhaldssjón-
varpsefni: X-Files
og Vísitölufjöl-
skyldan sem var á
Stöð 3.
Uppáhaldsmat-
sölustaður/veit-
ingahús: Grillið á Hót-
el Sögu.
Haukur Guömundsson segir ekki útlokaö aö
sviöi.
Hvað bók langar þig mest að lesa? Ég
hef enga í huga í augnablikinu.
Hver útvarpsrásanna finnst þér best?
X-iö.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Sig-
valdi Kaldalóns.
Hverja sjónvarpsstöðina
horfir þú mest á? Ég horfi
mjög lítið á sjónvarp þar sem
ég hef yfirleitt nóg annað að
gera.
Uppáhaldssjónvarpsmað-
ur: Kolfinna Baldvinsdóttir.
Uppáhaldsskemmti-
staður/krá: Bíóbar-
^ inn, niðri.
Uppáhaldsfélag í
l-J* V iþróttuni: Stjarn-
an.
Stefnir þú að
einhveiju sér-
stöku í fram-
tfðinni? Að
verða ríkur.
Annars er svo
margt á döfinni
og erfítt að segja.
Mig langar mjög til
að renna mér nið-
ur Mælifellshnjúk
einhvem tíma í líf-
inu.
Hvað ætlar
þú að gera 1
sumarfríinu?
Vinna, von-
andi. Annars
I er ekkert á
t hreinu varð-
m andi sumar-
I 14
hann eigi eftir aö syngja aftur á
DV-mynd Pjetur