Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1997, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1997, Page 44
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997 JjV 52 Qkák Dorfman sparar ekki stóru orðin um yngsta stórmeistara heims: Efnilegri en Fischer og Kasparov - Sævar Bjarnason sigraði í áskorendaflokki á Skákþingi íslands Frakkanum unga, Etienne Bacrot, tókst ætlunarverkið - að verða yngsti stórmeistari skáksög- unnar. Hann vann skák sína við kanadíska stórmeistarann Kevin Spraggett í síðustu umferð alþjóð- lega mótsins í Enghien í Frakklandi og þar með var markinu náð. Bacrot, sem er aðeins 14 ára gamall og Viktor Kortsnoj, 65 ára, deildu sigrinum á mótinu. Bacrot vann Kortsnoj í fyrstu umferð en aldurs- forseti mótsins beit í skjaldarrendur og leyfði aðeins þrjú jafntefli í þeim átta skákum sem hann átti eftir. Bacrot hefur verið nefndur „Moz- art skákborðsins" en hann þykir gæddur óvenjulegum hæfileikum. Hann lærði mannganginn fjögurra Umsjón JónLÁmason ára og var orðinn félagi í skák- klúbbi hálfu öðru ári síðar. Hann varð heimsmeistari barna, yngri en 12 ára, tefldi í landsliði Frakka i fyrra og er nú orðinn stórmeistari. Frá unga aldri hefur hann notið handleiðslu færustu stórmeistara, fyrst Lev Polugajevskys heitins, og síðan Josefs Dorfmans, fyrrverandi þjálfara og aðstoðarmanns Garrí Kasparovs. Dorfman sparar ekki stóru orðin þegar Etienne er annars vegar: „Etienne er mun sterkari en Kasparov var á hans aldri,“ segir Dorfman og bætir við að Fischer hefði heldur ekki verið svo snjall á sama aldri. Etienne býr hjá foreldr- um sínum og 12 ára systur í smábæ fyrir norðan París og þykir frábær námsmaður. Hann er ári á undan í skóla, þó svo að mestur tími hans fari í skákrannsóknir. Foreldrar hans eru báðir menntaðir í raunvís- indum og hafa sérhæft sig í um- hverfisvemd. Bacrot nægði jafntefli í fjórum síðustu skákunum á mótinu tii þess að ná síðasta áfanga að stórmeist- aratitli en lét sér það ekki nægja og fékk háifum vinningi betur. Þar með hafa Frakkar fengið sinn ní- unda stórmeistara og eiga nú jafn- marga og íslendingar. Lokastaðan á mótinu varð þessi: 1.-2. Bacrot (Frakklandi) og Kortsnoj (Sviss) 6,5 v. 3. Dorfman (Frakklandi) 5,5 v. 4. -6. Rausis (Lettlandi),Nataf (Frakklandi) og Spraggett (Kanada) 5 v. 7.-8. Chabanon (Frakklandi) og M. Ivanov (Rússlandi) 3,5 v. 9. Fontaine (Frakklandi) 2,5 v. 10. Anic (Frakklandi) 2 v. Hér er falleg skák frá mótinu, þar sem stórmeistarinn ungi leikur list- ir sínar. Hvítt: Etienne Bacrot Svart: Darko Anic Drottningarbragð. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 Bb4 5. Bg5 Rbd7 6. e3 c5 7. cxd5 exd5 8. Dc2 Da5 9. Bd3 0-0 10. 0-0 c4 11. Bf5 He8 12. Rd2 g6 13. Bxd7 Rxd7 14. Hael Bxc3 15. bxc3 Rb6 16. f3 Da4 Fram að þessu þekktir leikir en nú fer svartur út af sporinu. Betra er 16. - Bd7, eins og leikið var í skák Svíans Hillarp-Perssons og Sosonko (svart) á ólympíumótinu í Jerevan á liðnu ári. 17. Db2 Dc6 18. e4 Be6 19. He3 Ra4 20. Dcl b5 21. Del Rb6 22. Dh4 Rdd7 23. g4! Beittur leikur, sem undirbýr peðafok með e4-e5, ásamt f3-f4-f5 o.s.frv. ásamt því að opna mögu- leika fyrir hvítan hrók á h3. 23. - b4 24. e5 bxc3 25. Dh6! Kh8 Hvítur hótaði 26. Bf6 RxfB 27. exf6 og óverjandi mát á g7, sem nú má bjarga með 27. - Hg8. Svartur hafði því ekki tíma til að þiggja riddara- fómina. 26. Re4!! f5 Enn er riddarinn friðhelgur. Ef 26. - dxe4 27. fxe4 með hótuninni 28. Hh3 og máta á h7; ekki gengur þá 27. - Bxg4 28. Hxf7, eða 27. - Hg8 28. Dxh7+! Kxh7 29. Hh3 mát. 27. exf6 fr.hl. Hg8 28. Rxc3 Haf3? Betra var 28. - Db6 strax. Nú kem- ur meistarinn ungi aftur auga á snotra leið. 29. Dh4! Db6 30. Hxe6! Dxe6 31. Hel Hxf6 Ef drottningin vikur sér undan kemur 32. He7 og svartur er varnar- laus. 32. Hxe6 Hxe6 33. Rxd5 Hb8 34. Bf4 - og svartur gafst upp. Eftir að hafa skoðað þessa skák velkist eng- inn í vafa um það að taflið leikur i höndum meistarans unga. Sævar og Arnar tefla í landsliðsflokki. Sævar Bjarnason tryggði sér sig- ur í áskorendaflokki á Skákþingi ís- lands um páskana, með jafhtefli við Braga Þorfmnsson í síðustu umferð. Sævar varð einn efstur með 7,5 v. og tryggði sér rétt til keppni í lands- liðsflokki, sem fram fer á Akureyri í september. Amar Þorsteinsson varð einn í 2. sæti, hálfum vinningi á eftir Sævari og náði einnig að tryggja sér landsliðssæti með frammistöðu sinni. í þriðja sæti varð Sigurbjörn Björnsson með 6,5 v. Tómas Bjöms- son, Hrannar Baldursson og Bragi Þorfinnsson komu næstir með 6 v. og Magnús Örn Úlfarsson, Jóhann H. Ragnarsson, Amar E. Gunnars- son, Bjöm Þorflnnsson og Baldur Möller fengu 5 v. í opnum flokki sigraði Einar Þor- grímsson með 8,5 v. af 9 möguleg- um. Grétar Áss Sigurðsson - faðir- inn í skákfjölskyldunni fræknu - varð í 2. sæti með 7,5 v. og tryggðu þeir sér keppnisrétt i áskorenda- flokki að ári. Guðjón H. Valgarðs- son varð í 3. sæti með 6,5 v. Guðni S. Pétursson hlaut 6 v. og Harpa Ing- ólfsdóttir og Ingi Þór Einarsson fengu 5,5 v. Alls tefldu 54 keppendur í áskorenda- og opnum flokki. :%idge ^ -4? ■ Landsbankamótið í sveitakeppni 1997: F Sveit Antons Haraldssonar Islandsmeistari Sveit Antons Haraldssonar frá Akureyri sigraði sveit Landsbréfa í hreinum úrslitaleik um íslands- meistaratitilinn í sveita- keppni í síðustu umferð mótsins. Sveit Landsbréfa hafði byrjað mótið mjög vel og allt stemmdi í sig- ur þeirra. En sveit Antons var aldrei langt undan og þegar Lands- bréf töpuðu iila í næstsíðustu um- ferð, þá var Ijóst aö síöasti leikur mótsins yrði hreinn úrslitaleikur um íslandsmeistaratitilinn. Reyndar dugði Antoni jafntefli, en þegar upp var staðið hafði hann unnið Landsbréf 16-14. Með Antoni spiluðu Sigurbjörn Haraldsson, Magnús Magnússon, Pétur Guöjónsson, Steinar Jónsson og Jónas P. Erlingsson. Þetta var annar íslandsmeist- aratitill Steinars í sveitakeppni, en hinir vora að vinna þennan eftir- sótta titil í fyrsta sinn. Sigurbjöm er aöeins 18 ára og er yngsti spilari sem hefir unnið titilinn. Sveit Ant- ons var í öðra sæti í íslandsmótinu í fyrra þannig að sigur þeirra er síð- ur en svo óvæntur. Röð og stig sveitanna var annars þessi: 1. Anton Haraldsson 168 2. Landsbréf 164 3. VÍB 152 4. Samvinnuferðir/Landsýn 152 5. Eurocard 149,5 6. Búlki 137 7. Hjólbarðahöllin 132 8. Málning ehf. 106 9. Sparisjóður Mýrasýslu 92 lO.Símon Símonarson 86,5 Þegar sigurinn hangir á bláþræði, þá er hvert einasta spil úrslitaspil og við skulum skoða eitt, sem hefði getað gert Landsbréf að íslands- meisturum. N/0 é G98 V G86 ♦ DG72 ♦ D64 * KD6 95 * A7543 * A102 é A10754 «A KD1042 - ♦ G73 Þegar ofangreint spil kom á skjá- inn í opna salnum, fylgdi með út- koman úr lokaða salnum, en þar höfðu Bjöm Eysteinsson og Sverrir Ármannsson spilað fjóra tígla, sem Magnús Magnússon hafði doblað af miklu harðfylgi. Sagnhafi varð að gefa einn slag á hvem lit og varð einn niður. Það voru 100 til Akureyringanna. Sagnir í opna salnum vora heldur grimmari, en þar sátu n-s Jón Bald- ursson og Sævar Þorbjörnsson, en a-v Jón P. Erlingsson og Steinar Jónsson : Norður Austur Suður Vestur pass pass 1* 2-f pass 2* pass 2G pass 3G pass pass pass Óneitanlega hart geim, en þegar líklegt er að annar varnarspilarinn sé með þau háspil sem vantar, þá má oft vinna geim á færri púnkta, en venjulega þarf til þess. H~ íslandsmeistararnir f sveitakeppni 1997: Talið frá vinstri: Jónas P. Erlingsson, Pétur Guðjónsson, Anton Haraldsson fyrirliði, Magnús Magnússon, Sigurbjörn Haraldsson og Steinar Jónsson. Það var töluverð spenna hjá áhorfendum, þvi spiliö er tapaö með hjarta út, en virðist unnið með spaðaútspili. Reyndar þarf sagnhafi að verka tígulinn rétt, þannig að spilið hékk á bláþræði. En Jón sér ekki í gegnum holt og hæðir, þótt hugmyndaríkur sé og hann spilaði eðlilega út spaðaáttu. Lítið úr blindum, Sævar drap með ás og skipti yfir í hjartakóng. Stein- ar gaf, þá kom drottningin og aftur gaf Steinar. Sævar hélt áfram með hjartað og ásinn átti slaginn. Stein- ar fór nú heim á spaða og spilaði litlum tígli. Lítið frá Jóni og sexið úr blindum. Þar með var spilið unn- ið og Akureyringarnir bættu 400 við árangurinn í lokaða salnum. En glöggur áhorfandi taldi að Umsjón Stefán Guðjohnsen Sævar hefði ekki verið sjálfum sér samkvæmur, þegar hann drap á spaðaásinn og skipti yfir í hjarta. Annað hvort á hann að spila meiri spaða í þeirri von að Jón eigi kóng eða drottningu, eða að gefa fyrsta spaðaslaginn. Gefi hann fyrsta spaða, þá er spilið tapað, þegar Jón skiptir yfir í hjarta, þegar hann kemst inn á tígul. Reyndar er tígulíferðin ekki sjálf- sögð þá og óvíst að Steinar hefði fundið hana. Spennandi spil, sem gat farið á hvorn veginn sem var.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.