Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1997, Qupperneq 49
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997
Sýningar á Skækjunni hætta eftir
apríl.
Skækjan:
Fimm sýningar eftir
Nú eru aðeins fimm sýningar
eftir af Leitt hún skyldi vera
skækja sem Þjóðleikhúsið hefur
sýnt við góða aðsókn. Sýningum
lýkur í apríl.
Kvennalisti:
Um atvinnumál
Kvennalistinn stendur fyrir
ráðstefnu um framtíðarsýn í at-
vinnu- og umhverfismálum i Rúg-
brauðsgerðinni, Borgartúni 6, í
dag frá 9.30-16. Umhverfismál
varða alla.
Laugarneskirkja:
Enski drengjakórinn
Drengjakór Grosfeldsskólans
frá Reading á Englandi heldur
þriðju tónleika sína hér á landi í
Laugarneskirkju kl. 16 í dag.
Undur veraldar
Kristján Leósson eðlisfræðing-
ur flytur fyrirlestur í fyrirlestrar-
öðinni Undur veraldcir í Háskóla-
bíói kl. 14 í dag. Aðgangur er
ókeypis og öllum opinn.
Samkomur
Skemmtifundur
kennara
Félag kennara á eftirlaunum
stendur fyrir skemmtifundi í dag
kl. 14 í Kennarahúsinu við Lauf-
ásveg.
Dead Sea Apple
Hljómsveitin Dead Sea Apple
leikur á Gauki á Stöng í kvöld.
Leikin verða lög úr ýmsrnn áttum
ásamt völdum lögum af nýlegri
plötu þeirra.
Kringlukráin
Hljómsveitin Sín heldur uppi
fjörinu á Kringlukránni frá kl. 22
í kvöld og annað kvöld. Viðar
Jónsson verður í Leikstofunni í
kvöld frá 22.
Neskirkja:
Hverju breyta bömin?
Dr. Sigrún Júlíusdóttir ræðir
um það hverju börnin breyta í
hjónabandi á fundi í hjónastarfi
Neskirkju annað kvöld kl. 20.30.
Fundurinn er haldinn í safnaðar-
heimilinu og er öllum opinn, ný-
bakaðir foreldrar sérstaklega vel-
komnir.
Á NÆSTA
SÖLUSTAÐ
EÐA
ÍÁSKRIFT
í SÍMA
550 5752
umhleypingar
Áfram
Yfir Norðaustur-Grænlandi er
1.031 mb lægð sem þokast austur.
Um 300 km suður af landinu er 994
mb lægð sem hreyfist austsuðaust-
ur. Skammt norðaustur af Ný-
fundnalandi er 990 mb lægð sem
hreyfíst hægt til norðnorðausturs.
Veðrið í dag
Veðurspá til klukkan 18 í dag ger-
ir ráð fyrir austlægri átt, kalda fyrst
í stað en hægari síðdegis. Við suður-
ströndina verður dálítil slydda eða
snjókoma en annars bjartviðri. Hiti
verður nálægt frostmarki allra syðst
yfir daginn en annars má búast við
1 til 6 stiga frosti.
Á höfuðborgarsvæðinu er gert
ráð fyrir austangolu eða kalda og
skýjuðu með köflum síðadegis. Bú-
ast má við umhleypingum fram eft-
ir vikunni.
Sólarlag í Reykjavík: 18.59
Sólarupprás á morgun: 0.8.18
Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.25
Árdegisflóð á morgun: 04.09
Veðrió kl. 12 á hádegi í gœr:
Akureyri snjókoma -5
Akurnes snjókoma -1
Bergstaðir snjóél á síð.kls. -4
Bolungarvík snjóél -5
Egilsstaðir snjóél -4
Keflavíkurflugv. snjókoma -1
Kirkjubkl.
Raufarhöfn snjókoma -5
Reykjavík úrkoma í grennd 1
Stórhöföi úrkoma í grennd 2
Helsinki snjóél 1
Kaupmannah. skýjaó 8
Ósló skýjað 7
Stokkhólmur hálfskýjaó 7
Þórshöfn alskýjaó 1
Amsterdam hálfskýjaö 7
Barcelona skýjað 19
Chicago skýjaó 13
Frankfurt úrkoma í grennd 8
Glasgow rigning 4
Hamborg hálfskýjaö 8
London skýjaö 11
Lúxemborg hálfskýjaö 7
Malaga léttskýjað 21
Mallorca léttskýjaó 21
París hálfskýjað 11
Róm þokumóða 17
New York léttskýjaó 17
Orlando heiöskírt 14
Nuuk heiðskírt 11
Vín slydduél 5
Washington léttskýjaó 12
Winnipeg þokumóða 1
Stórsveit Reykjavíkur í Loftkastalanum:
Tónleikar á afmælisári
Stórhljómsveit Reykjavíkur á son og Ragnar Bjamason og Andr-
fimm ára afmæli um þessar mund- ea Gylfadóttir syngja með sveit-
ir og blæs því til tónleika í dag í inni í dag en þau voru fyrst til að
Loftkastalanum kl. 16. Boðið verð-
ur upp á þverskurð af því besta frá
hljómsveitinni árin fimm. Frum-
flutt verður lag eftir Óskar Einars-
Skemmtanir
syngja með henni í sínum tíma. Þá
veröur Stefán S. Stefánsson ein-
leikari á tónleikunum en hann
hefur verið í hlutverki stjórnanda
og hljóðfæraleikara sveitarinnar.
Aðgangur er kr. 1.000 og kynnir er
Lana Kolbrún Eddudóttir.
Stórsveit Reykjavíkur heldur tónleika í Loftkastalanum kl. 16 í dag.
Myndgátan
r +* +
•eypoR-
Vinnur með hangandi hendi Myndgátan hér að ofan lýsir oröasambandi.
___ dagsönn
Norræna húsið:
Kammertríó
Þórshafnar
I Tórshavnar Kamartrio leikur í
Norræna húsinu á morgun kl.
20.30. Tríóið skipa Þau Berghild
Poulsen sópran, Árni Hansen,
leikur á píanó, og Bjarni Berg
sem leikur á klarinett. Á efnis-
skránni, sem er mjög fjölbreytt,
eru verk eftir L. Cherbini, W. A.
Mozart, Fr. Schubert, R.
Schumann og að auki verk eftir
finnska tónskáldið B. Crusell,
| færeysk tónskáld, Eyþór Stefáns-
son og eitt grænlenskt verk eftir
Jonathan Petersen.
Tónleikar
----------------------——
I
ITríóið hefur hvarvetna fengið
góðar móttökur og er fylista
ástæða til þess að hvetja fólk til
þess að missa ekki af tónleikun-
um. Miðar veröa seldir við inn-
: ganginn og kosta kr. 800 (400 fyr-
ir börn og námsfólk).
Kjarvalsstaðir:
Rýmisgler
í dag kl. 16 verður á Kjarvals-
stöðum opnuð sýning á verkum
eftir bandaríska listamanninn
Larry Bell, meistara minimalism-
ans. Sýningin ber yfirskriftina
Rýmisgler og sýndir verða
glerskúlptúrar og samklippi-
myndir. Sýningin stendur til 11.
maí.
Við Laugaveg:
Portmyndir
Markmið sýningarinnar Port-
myndir, sem hefst við Laugaveg
og Bankastræti í dag, er að fara út
úr hefðbundnum sýningarsölum
og tengja listina annríki dagsins.
Tólf listamenn standa að sýning-
unni sem stendur i mánuð.
Sýningar
Norræna húsið:
Börn og unglingar
Á morgun verða sýndar þrjár
teiknimyndir um múmínálfana
fyrir börn og unglinga í Norræna
húsinu kl. 14. Aðgangur er ókeyp-
is.
Margt að
gerast
í dag kl. 13 verður úrslitaleikur-
inn i bikarkeppni karla. Þar mæt-
ast í Austurbergi Þróttur, R. og
Stjarnan. Klukkan 16 er síðan
þriðji leikur Hauka og Stjömunn-
ar í úrslitakeppni handknattleiks
kvenna. Með sigri tryggja Hauka-
stúlkur sér sigur í mótinu. ís-
landsmótið i fimleikum verður í
Laugardalshöll alla helgina og á
morgun fer deildarkeppnin í bad-
minton fram 1 TBR- húsinu. Á
morgun verða þriðju leikir
blakliðanna í úrslitakeppninni.
Þróttur, R. og Þróttur, N. mætast
kl. 14 í Hagaskóla og ÍS og Víking-
ur mætast í Austurbergi kl. 15.30.
Iþróttir
Klukkan 16 á morgun leika Aft-
urelding og KA fyrsta leikinn í úr-
slitakeppninni í handknattleik og
Keflavik og Grindavík mætast
þriðja sinni kl. 16. Keflavík getur
tryggt sér titilinn.