Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1997, Side 6
LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997 JLlV
e útlönd
stuttar fréttir
Létust í skíðagöngu
Tveir ungir Finnar létust úr
kulda á fimmta degi skíðagöngu
sinnar yfir Grænland. Þriðja
manninum var bjargað.
Rottuhland með bjór
Heilbrigðisyfirvöld á írlandi
vara við drykkju beint úr bjór-
flöskum á krám vegna mögulegs
rottuhlands á þeim. Hætta er á
að bjórunnendur fái sjúkdóm
sem getur leitt til dauða.
Laxadeila
Thorbjorn Jagland, forsætis-
ráðherra Noregs,
hvatti í gær fram-
kvæmdastjórn
Evrópusambands-
ins til að setja ekki
refsitolla á norsk-
an eldislax. Skotar
hafa kvartaö und-
an þvi aö seljendur norsks eldis-
lax fái ríkisstyrki og selji laxinn
undir framleiðsluverði. í kjölfar
rannsóknar á málinu íhugar
Evrópusambandið að setja 13,7
prósenta toll á norskan lax.
Mannskæður jarðskjálfti
Að minnsta kosti níu manns
létust í öflugum jarðskjálfta er
reið yfir Xinjiang hérað í Kína í
gær.
Herforingjar reknir
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
rak í gær fjóra herforingja, þar á
meðal yfirmann landvarna. Haft
var eftir heimildarmönnum að
hinir reknu hefðu misnotað að-
stöðu sína.
Sprengiefni á elliheimili
Lögreglan í Brussel fann 40
kíló af sprengiefhi, rifla og skot-
færi í bflskúr undir elliheimili í
úthverfl borgarinnar.
Skálað í geimnum
Áhöfn rússnesku Mir geim-
stöðvarinnar má skála í dag í til-
efni geimdags Rússlands. Gæta
þarf hófs þar sem menn geta orð-
ið verulega ölvaðir af 50 g af
áfengi úti í geimnum.
Mannréttindanefnd
Necmettin Erbakan, forsætis-
ráðherra Tyrk-
lands, hefur sam-
þykkt stofnun
nefndar sem hafa á
eftirlit með mögu-
legum mannrétt-
indabrotum.
Nefndin verður
skipuö fulltrúum ýmissa ráðu-
neyta.
Ráðherraskipti
Nýr forsætisráðherra Saír
setti i gær herforingja í embætti
ráðherra vamarmála og innan-
ríkismála.
Húsum lokað
ísraelskir hermenn lokuðu í
gær heimilum þriggja meintra
hryöjuverkamanna á Vestur-
bakkanum. Reuter
Ásakanir þýsks dómstóls um morðfyrirskipanir íranskra yfirvalda:
Háttsettur írani
veitti upplýsingar
Þýski dómstóllinn, sem kvað upp
þann úrskurð á fimmtudaginn að
írönsk stjórnvöld hefðu fyrirskipað
morð á kúrdískum andófsmönnum í
Berlín 1992, byggði niðurstöðu sína
á upplýsingum þýsku leyniþjónust-
unnar. Dagblaðið Frankfurter All-
gemeine Zeitung fullyrti þetta í gær.
Samkvæmt frétt blaðsins fékk
leyniþjónustan nöfn þeirra sem
stóðu á bak við árásina og aðrar
upplýsingar frá háttsettum írönsk-
um heimildarmanni. Leyniþjónust-
an og gagnnjósnaþjónustan eru
sagðar hafa hlerað öll samtöl milli
írans og Þýskalands frá því seint á
síðasta ári. Talsmaður stjómarinn-
ar kvaðst á fundi með fréttamönn-
um telja ólíklegt að svo hefði verið.
Blaðið fullyrti einnig að það hefði
fengið staðfestingu á því að yfírvöld
hefðu fengið fyrirmæli um að rann-
saka möguleikana á árásum írana.
Gagnnjósnaþjónustan lýsti því yfir í
síðasta mánuði að hún óttaðist of-
beldi, bæði í Þýskalandi og íran, í
kjölfar dómsniðurstöðunnar nú í
apríl.
í gær gengu þrjú þúsund íranir
um fjögurra kílómetra leið frá
bænastund í háskólanum í Teheran
að þýska sendiráðinu. Köstuðu þeir
tómötum á sendiráðið og hrópuðu
slagorð gegn þýskum yfirvöldum.
Flest aðildarríki Evrópusambands-
ins kvöddu heim sendimenn sína
frá íran i gær. Jeltsín Rússlandsfor-
seti bauðst hins vegar í gær til að
efla samskiptin við íran.
Olíukaupmenn í Evrópu vom í
viðbragðsstöðu í gær en töldu þó
litla hættu á að Evrópusambandið
færi að dæmi Bandaríkjanna og
setti viðskiptabann á íran. Um 10
prósent olíunnar, sem flutt er inn til
Evrópusambandsríkja, koma frá
íran.
Reuter
John Major, forsætisráöherra Bretlands, er á kosningaferöalagi meö Normu konu sinni. Þau klappa hér veöreiða-
hesti í Huntingdon. í gær veðjaði Lundúnabúi rúmleya 1 miiljón króna um að Verkamannaflokkurinn bæri sigur úr
býtum í kosningunum 1. maí. Símamynd Reuter
Öryggismálastjóri
skotinn til bana
Milosevics
í Belgrad
Grímuklæddur byssumaður
skaut í gær til bana öryggismála-
stjóra Slobodans Milosevics Serbíu-
forseta, Radovan Stojicic. Byssu-
maðurinn flýði ertir að hafa skotið
Stojicic þar sem hann sat að snæð-
ingi ásamt syni sínum á veitinga-
stað í Belgrad í Serbíu.
Morðið á Stojicic fylgdi í kjölfar
morðs í febrúar síðastliðnum á nán-
um viðskiptafélaga hins óvinsæla
sonar Milosevics forseta, Markos,
við verslunarmiðstöð í Belgrad.
Morð á götum úti eru ekki óalgeng í
Belgrad en fómarlömbin hafa oftast
verið félagar í svartamarkaðsmafi-
unni sem hefur blómstrað undir
stjóm Milosevics.
Radovan stojicic. Símamynd Reuter
Stojicic stýrði óeirðalögreglunni í
Belgrad þegar stjómarandstæðingar
stóðu fyrir þriggja mánaða götumót-
mælum í kjölfar kosningasvika
stjórnarinnar í nóvember síðast-
liðnum. Fjölmiðlar í Belgrad
greindu frá því að Stojicic hefði
neyðst til að vara Milosevic við því
á meðan á götumótmælunum stóð
að hann gæti ekki treyst á hollustu
lögreglunnar ef henni yrði skipað
að berja á mótmælendum.
Andófið fór að mestu friðsamlega
fram þar til lögregla réðst á frið-
sama mótmælendur með kylfum eft-
ir að Milosevic hafði þegar ákveðið
að láta undan kröfum stjómarand-
stöðunnar. Reuter
Hlutabréfamarkaður:
Hækkun í London
Hlutabréf lækkuðu nokkuð á
mörkuðum víða í Evrópu á fímmtu-
dag en hækkuöu í London. Lágt verð
í Wall Street hafði lítil áhrif þar sem
lokunin á markaðnum um nóttina
hafði þegar haft þau áhrif að evr-
ópsk voru lág þegar markaðirnir
opnuðu. í London náðu bréfin sér á
strik en ekki gekk eins vel í Þýska-
landi. Verð á hlutabréfum í Tokyo
og Hong Kong em með lægra móti.
Verð á bensíni og hráolíu hefur
lækkað nokkuð síðustu vikur og
hráolíuverðið hefur ekki verið
lægra svo mánuðum saman. Nú fyr-
ir helgina var tunnan af hráoliu
komin niður í 17,50 dollara, 95 okt-
ana bensínið kostaði 196 dollara
tonnið og 98 oktana 200 dollara tonn-
ið. Verðið á bensíninu helst í hend-
ur við lækkunina á hráolíunni en
þar mun vera eitthvert offramboð á
markaðnum þessa dagana. -sv
7000
6800
6600
6400
6200
Dow Jones
6564,6
J F M A
Kauphallir og vöruverð erlendis
London
4400 R-SE100
4300 jfT \i?
4200 ¥
4100 V
4000
4313,2
J F M A
Sykur
280 270
260 i v !
250 w
271,7
$/t J F M A ]
Kaffi
2000
1500 i
1000
1569
$/t J F M A
Frankfurt
3400 DAX-40
3200
3000
2800
2600
J
3355,49
F M A
Tokyo
25000
)0 Æv
15000
17485,75
J F M A
Hong Kong
Hang Seng
12358,7
J F M A
Hráolía
$/
17,50
tunna J F M A
r»CTi
Valdabarátta
milli Norður-
landa um varn-
aráætlun
Það hefur vakið athygli í
Noregi að danska utanríkis-
ráðuneytið ætlar innan
skamms að kynna sérstaka
áætlun um aðstoð við varnir
I Eystrasaltslanda. Varnarmála-
ráðherrar Norðurlandanna
: samþykktu nefnilega í septem-
ber síðastliðnum að Noregur
skyldi gera slíka áætlun og var
hún kynnt nú i vikunni.
Bertel Heurlin, prófessor og
einn yfirmanna dönsku utan-
ríkismálastofnunarinnar, segir
að um augljósa samkeppni sé
að ræða milli Norðurlanda og
;; sérstaklega milli vamarmála-
ráðuneytisins og utanríkisráðu-
neytisins í Danmörku. Málið
snúist um að vinna sér alþjóð-
legt álit og áhrif. Niels Helveg
Petersen, utanríkisráðherra
í Danmerkur, staðfestir að sam-
keppni og afbrýðisemi sé hluti
norrænnar samvinnu.
IMóður refsað
fyrir að sfela
mat handa
börnum sínum
Franskur áfrýjunardómstóll
hnekkti i gær úrskurði undir-
réttar og dæmdi blásnauða ein-
stæða móður, sem stoliö hafði
mat handa hungruðum bömum
sínum, til að greiða um 36 þús-
und íslenskar krónur fyrir að
I stela fiski og kjöti í þremur
5 stórmörkuðum í borginni Poiti-
ers í Frakklandi. Refsingin er
j. skilorösbundin.
Móðirin kvaðst hafa stolið
mat fyrir um það bil 19 þúsund
krónur þar sem mánaðartekjur
hennar, sem eru um 21 þúsund
krónur, dygðu ekki til að fæða
börnin sem eru 3 og 19 ára.
Móðirin hafði verið sýknuð í
! febrúar á grundvalli laga frá 19.
öld sem leyfa þjófiiað vegna
í nauðsynjar. Ríkissaksóknari
áfrýjaði dómnum til að ekki
skapaðist fordæmi sem heimil-
í aði búðarþjófnaði.
Evrópusam-
bandið fyrir-
skipar mildari
sígarettur
| Evrópusambandið hefur fyr-
irskipað að frá og með 1. janúar
1998 eigi mesta leyfilega tjöru-
magn í sígarettum að vera 12
mg. Núna er mesta leyfilega
magn 15 mg.
Innan Evrópusambandsland-
! anna leita nú sígarettuframleið-
. endur leiða til að láta nýju sí-
garetturnar bragðast nokkum
| veginn eins og þær sem nú em
framleiddar. Einnig kemur til
greina að þróa nýtt bragð sem
fellur reykingamönnum í geð.
Fangar í hung-
urverkfalli í
lífshættu
Fjöldi kúrdískra og vinstris-
innaðra fanga í borginni Erz-
urum í Tyrklandi eru að dauða
komnir eftir að hafa verið í
rúmlega mánaðarlöngu hung-
í urverkfalli. Alls taka 37 fangar
þátt í hungurverkfallinu til að
| leggja áherslu á kröfur um
*; betri skilyrði í fangelsinu í Erz-
umm. Ástand nokkurra fanga
er svo slæmt að talið er að þeir
geti dáið í byrjun næstu viku.
I fyrra sveltu tólf vinstrisinn-
aðir fangar sig til dauða í Tyrk-
landi. Þeir höfðu kraflst þess að
I látið yrði af illri meðferð og að
greitt yrði fyrir samskiptum
þeirra við fjölskyldur og lög-
s fræðinga.
Jyllands-Posten, Reuter