Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1997, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1997, Blaðsíða 34
LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997 DV 42 #íiwm_____________________ Útivistarræktin: Gengið fyrir ánægjuna og ferð á Hvannadalshnjúk - allir velkomnir á æfingarnar og fá leiðbeiningar til að finna getu sína til fjallgöngu og lengri ferða Þeir sem ekki hafa stundað reglu- lega líkamsrækt um langt árabil og kannski aldrei vita fæstir nokkuð um hvað þeir mega bjóða líkama sínum þegar taka á upp að nýju gott og heilbrigt líferni. Þess vegna er mikilvægt að fara varlega í byrjun, fara hægt af stað og ætla sér ekki um of. Þeir sem haldnir eru sjúk- dómum eiga auðvitað að ráðfæra sig við lækni í byrjun. Auk þess bjóða flestar líkamsræktarstöðvam- ar gestum sínum upp á ráðgjöf sér- fræðinga. Þrátt fyrir stöðugt vaxandi fjölda sem sækir líkamsræktarstöðvar um -* allt land og einnig vaxandi fjölda skokkara, sem þá hlaupa ýmist hratt eða hægt, leiða rannsóknir sérfræðinga stöðugt í ljós að örugg- asta leiðin og jafnframt fullnægj- andi aðferð til að halda sér í nægi- lega góðu líkamlegu formi em rösk- ar gönguferðir þrisvar til fjórum sinnum í viku. Sá sem gengur þannig rösklega í um það bil hálf- tíma í hvert sinn tryggir að líkam- legt ástand hans verði nægilega gott. í það minnsta hafa ekki enn t komið fram neinar marktækar rannsóknir sem sýna gildi þess að stunda líkamsrækt eða aðra hreyf- ingu. Að vísu em þeir fjölmargir og þeim fer vafalaust fjölgandi sem kjósa ánægjunnar vegna að stunda meiri hreyfingu en röskleg ganga gefur. Fari þeir varlega og æfi skyn- samlega er heldur ekkert sem mæl- ir á móti slíku. Engar kunnar rann- sóknir benda þó til þess að þetta bæti heilsufarið umfram reglulegar rösklegar gönguferðir. Útivistarræktin leiðbeinir byrj- endum og þar er æft á jafnsléttu fyr- ir fjallaferðirnar Útivistarræktin var stofnuð haus- tið 1995 af dagsferðanefnd Útivistar og hafði staðið lengi til. Frá byrjun vhafa reyndir göngu- og ferðamenn frá Útivist staðið fyrir starfi Útivist- arræktarinnar. Strax frá upphafi voru gönguæfingar þessar vinsælar og þá ekki síst meðal fólks sem kanna vildi getu sína til göngu áður en það hóf þátttöku í hinum fjöl- mörgu fjalla- og gönguferðum sem Útivist hýður upp á. Útivistarhópurinn er á ferð tvisvar í viku. Á mánudögum er gengið frá veitingastaðnum Víbon á horni Bústaðavegar og Breiðholts- brautar. Lagt er af stað kl. 18. Á fimmtudögum er síðan lagt af stað á sama tíma en þá frá bílastæðinu við gömlu skógræktina við Rauðavatn. Gengnir eru 6-7 km í hvert skipti og eru ferðimar þannig að gengið er við allra hæfi og allir eru velkomn- ir. Ragnheiður Óskarsdóttir og Gunnar Hólm Hjálmarsson, félagar í Útivist, standa fyrir starfsemi Útivistarræktarinnar. Þegar myndin var tekin voru þau að teygja á vöðvunum fyrir gönguna. Þau voru vel búin til rúmlega klukkustundargöngu um Eliiðaárdalinn þegar við litum til þeirra einn mánudag fyrir stuttu. Þau eru félagar í Útivistarrækt- inni, sem er nokkurs konar æfingadeild Útivistar fyrir þá sem vilja búa sig vel undir erfiðaðri fjallaferðir komandi sumars. Og hinir lengra komnu stefna á Hvannadalshnjúk um hvítasunn- una. Auk þessa er Útivistarræktin að byrja með gönguferðir fyrir þá sem vilja leggja meira á sig enda stefna sumir göngugarpanna á frekari fjallaferðir og meira að segja ætla nokkrir að ganga á Hvannadals- hnjúk á Vatnajökli um hvítasunn- una. Auk mánudags- og fimmtu- dagsgangnanna verður gengið á miðvikudögum og annan hvem sunnudag á vegum Útivistarræktar- innar. Á miðvikudögunum og sunnudögum verður gengið á ýmis fjöll í nágrenni höfuðborgarinnar: Sunnudagur 6. apríl: Úlfarsfell, farið frá BSÍ kl. 10.30. Miðvikudagur 9. apríl: Hring- ganga um Heiðmörk, frá Vibon kl. 18.30. Miðvikudagur 16. apríl: Helgafell, frá Vibon kl. 18.30. Sunnudagur 20. apríl: Grímmannsfell, Útivistarferð frá BSÍ kl. 10.30. Miðvikudagur 23. apríl: Keilir, frá Víbon kl. 18.30. Miðvikudagur 30. apríl: Esja, Ker- hólakambur frá Víbon kl. 18.30. Sunnudagur 4. maí: Reykjavegur- inn, (fyrsti áfangi Reykjagöngu, sem hefst á Þingvöllum) frá BSÍ kl. 10.30. Miðvikudagur 7. maí: Esja, Þver- fellshom, frá Víbon kl. 18.30. Miðvikudagur 14. maí: Móskarðs- hnjúkar, frá Víbon kl. 18.30. Þátttaka í Útivistarræktinni kost- ar ekkert og heldur ekki í ferðir sem famar eru samkvæt listanum hér að framan, að frátöldum þeim þrem ferðum sem famar eru frá BSÍ. I þær þarf að greiða venjulegt Útivistargjald. Árni Sigurðsson og lífsháttabreytingin: Kílóin fara ekki jafnt og þétt en fara þó - fituhlutfall líkamans hefur hraðlækkað upp á síðkastið líkamsrækt reglulega, hann hefur breytt samsetningu þess, sem hann borðar og auk þess minnkað það. Ámi hefur sett sér markmið og reynt að hafa þau raunhæf en þó erfið. Eftir því sem liðið hefur frá því að Árni hóf lífsháttabreytinguna hefur hann gert sér betur og betur grein fyrir því að árangur vinnu eins og hann stendur í ræðst ekki síst af þeim árangri sem hann nær á andlega sviðinu. Hann telur eins og svo margir aðrir að auðveldast sé í raun að finna réttar aðferðir til að losna við kílóin. Hitt sé aftur á móti erfitt og sumum jafnvel ókleift að fara eftir ráðleggingunum þannig að varanlegur árangur náist. Við munum fialla nánar um þessa andlegu hlið málsins, eins og Ámi skilur hana, auk þess sem setning raunhæfra markmiða verður vænt- anlega ofarlega á baugi. Á meðfylgj- andi línuriti sjáum við að greinilegt er að kílóin hverfa í nokkrum Árangur okkar manns í lífshátta- þreytingunni, Árna Sigurðssonar, mælist auðvitað aðeins að litlum hluta eftir því hve tölurnar á vigt- inni breytast. Eins og svo oft hefur komið fram á þeim tíma, sem við höfum fylgst með honum er auk Umsjón Ólafur Geirsson þess eitt meginatriðið í baráttu ^hans við ofurþyngd að hann er ekki í megrun. Ekki nóg með það - hann ætlar aldrei í megmn aftur. Ekki það að með þeirri lífsháttabreyt- ingu, sem hann hefur staðið að frá þvi í ágúst sl. hefur kílóunum fækk- að um rúmlega 40. Helstu atriðin í lífsháttabreytingu Árna eru að hann hefur stundað hreyfingu og 160 kg. 140 120 100 80 60 40 20 156,6 Lífsháttabreyting Áma Sigurðssonar Á línuritinu sést hvernig kílóin hafa ýmist „dottiö" hratt af Árna eöa þá aö þyngdin hefur haldist litiö breytt um skeiö. Hægfara tímarnir, þegar allt viröist standa fast, eru erfiöastir. Þá gefast fiestir upp og fara aftur í gamla fariö. áfongum en ekki jafnt og þétt. I myndatexta er nánar farið ofan í það og hugsanlegar ástæður og jafn- vel afleiðingar þessara sveiflna. Á línuritinu sést meðal annars að nokkuð hefur hægt á síðustu vikurnar. Á sama tíma er hins veg- ar sú ánægjulega breyting að verða að fituhlutfall líkama Árna hefur hraðlækkað. Um miðjan janúar sl. var það 26,8% en var komið niður í 22,2% 28. apríl sl. Líkaminn er því að byggja upp vöðva en jafnframt að losa sig við fituvef. Það er af hinu góða en getur blekkt ef aðeins er einblínt um of á árangurinn eins og vigtin mælir hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.